Morgunblaðið - 28.09.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991
15
Steyptur bílskúr
í Gijótaþorpi?
eftir Guðrúnu
Jónsdóttur
Fyrirhuguð bílskúrsbygging á
mótum Mjóstrætis og Fischer-
sunds hefur vakið óvenjulega and-
stöðu. Nágrannar hafa mótmælt
og núverandi og fyrrverandi
stjömir íbúasamtaka Gijótaþorps
hafa mótmælt breytingum á upp-
haflega samþykktum teikningum.
Byggingamefnd hefur stöðvað
framkvæmdir og málið er til um-
fjöllunar í borgarkerfinu.
Enn ein leiðinleg nágranna-
deila? Nei: Hér er um að ræða
grundvallardeilu milli húsvemdar-
manna og skipulágsleysis skipu-
lagsaðila.
í byijun aldarinnar biðu hestar
eftir járningu í garði Hildibrands-
húss efst í Fischersundi. Gamalt
hesthús var rifíð í sumar þar sém
fyrirhugaður bílskúr á nú að rísa.
Aður fóm íbúar í Gijótaþorpi allra
sinna ferða fótgangandi eða ríð-
andi. Þannig er Gijótaþorpið. Fullt
af minningum. Ekki bara hús
byggð á ákveðnu tímabili heldur
byggingarstíll (húsagerð, efnisval,
breidd gatna) sem endurspeglar
ákveðinn lífsmáta.
Ætti aftur að hafa hesta í
Gijótaþorpinu? Auðvitað ekki. En
húsvemdarmenn og aðrir geta
vonandi sameinast um einfalda
hugmynd: Að Gijótaþorpið varð-
veiti áfram svipmót aldamótanna
án þess að hafnað sé lágmarkskr-
öfum um nútíma lífsþægindi. Þetta
er hægt án þess að glata uppruna-
legu yfírbragði þorpsins eins og
sannast hefur í ótalmörgum borg-
um í Evrópu.
Range Rover er glæsilegur bíll.
En þarf að skemma það sem íbúar
Gijótaþorps og við hin viljum ein-
mitt varðveita til þess að veita
honum skjól í þessu rótgróna
hverfí. Á að byggja yfír hann á
þann veg að aldargömul götulína
sé rofín? Á að byggja steinsteypu-
hús í rótgrónu bárujárnshverft?
Auðvitað eiga íbúarnir í Gijóta-
þorpi bíla rétt eins og aðrir Reyk-
víkingar. Eðlilegt væri að þeir
hefðu aðgang að nýbyggðri bílag-
eymslu við Vesturgötu, sem er tóm
á kvöldin og um nætur. íbúasam-
tök Gijótaþorps fóru fram á það
en borgaryfirvöld virðast frekar
vilja að húsið standi autt en bjóða
íbúum slíka þjónustu á hóflegu
verði.
Undanfarin ár hefur margt gott
verið gert í Gijótaþorpinu en einn-
ig margt slæmt. Til að forðast slys
þarf að setja fram ákveðnar stílkr-
öfur fyrir nýbyggingar á slíkum
stað. I grónum hverfum ætti að
vera skylda að virða m.a. það
Starfsmenn RÚV:
Guðrún Jónsdóttir
„Range Rover er glæsi-
legur bíll. En þarf að
skemma það sem íbúar
Grjótaþorps og við hin
viljum einmitt varð-
veita til þess að veita
honum skjól í þessu rót-
gróna hverfi.“
efnisval og yfirbragð sem fyrir er
í hverfinu. Þannig væri hægt að
forða fagurfræðilegum slysum
eins og því miður eru of mörg í
borginni. Þýðir það að öll hús
ættu að vera eins? Alls ekki. Horf-
ið á gömlu timburhúsin: Það eru
varla til tvö eins timburhús. Frum-
leiki og ímyndunarafl njóta sín í
þeirri húsagerð samkvæmt reglum
sem virða einingu heildarinnar.
Án slíkra reglna getur bygging-
arnefnd áframhaldandi samþykkt
steinsteypta bílskúrsbyggingu
mitt í sögulegu hverfí eins og
Gijótaþorpi.
Skipulagsnefnd Reykjavíkur er
á förum til Vínarborgar, Búdapest
og Prag til að kynna sér varð-
veislu gamalla borgarhluta. Það
er slæmt að þetta mál skuli hafa
komið upp fyrir þessa ferð. Skipu-
lagsmenn Reykjavíkurborgar afla
sér vonandi í þessari för þeirrar
þekkingar sem þarf til að fjalla
fagmannlega um slík mál. Von-
andi er það ekki um seinan fyrir
Gijótaþorpið.
Höfundur er arkitekt og fulltrúi
Nýs vettvangs í Skipulagsnefnd
Reykjavíkur.
Stjórn starfsmannasam-
takanna umboðslaus
Ekki áhugi meðal
starfsliðsins á að
kaupa fyrirtækið
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt eftirfarandi ályktun af fundi
stjórna og trúnaðarmanna að-
ildarfélaga Starfsmannasam-
taka Ríkisútvarpsins:
„Vegna frétta um að starfs-
menn Ríkisútvarpsins hafí óskað
eftir viðræðum við menntamála-
ráðherra um hugsanleg kaup á
stofnuninni vilja stjórnar- og trún-
aðarmenn aðildarfélaga SSR taka
fram:
Starfsmenn Ríkisútvarpsins
hafa EKKI óskað eftir slíkum við-
ræðum. Af bréfi stjórnar samtak-
anna til menntamálaráðherra má
ráða að starfsmenn séu tilbúnir
að ræða hvort þeir geti hugsanlega
keypt Ríkisútvarpið. Hugmyndir
um að gera stofnunina að hlutafé-
lagi hafa hvorki verið ræddar á
þingi samtakanna, né á almennum
félagsfundum, sem eru eini rétti
vettvangurinn til þess að ræða
jafnmikilvægt mál. Fundurinn tel-
ur að stjórn SSR hafí ekki umboð
til yfírlýsinga af því tagi, sem fram
koma í bréfí til menntamálaráð-
herra og í fréttum.“
PARKETgólf hf.
Skútuvogi 11, 104 Reykjavík, sími: 91-67 17 17
iiausuiiijou
á fyrsta flokks
parketi!
Parhet er gólfefni frá náttúr-
unnar hendi, -endingargott,
-auðvelt í þrifum og hentugt á
allar tegundir gólfa. Við hjá
Parketgólf bjóðum nú "Upofloor
borðaparket á sérstöku haust-
tilboðsverði meðan að byrgðir
endast. "Upofloor parketið er
finnskt borðaparket í
hœsta gœðaflokki, j gjjgj j
þurrkað eins og j
þarf fyrir okkar aðstœður, með
þykkum harðviðar slitfleti.
"Upofloor" parketið er lakkað
fimm umferðir með innbrennu
lakki og þarf ekki að lakk eftir
lögn. "Upofloor" parketið má
leggja beint úr pökkunum.
"Upofloor" parketið er lagt fljót-
andi eðalímt niður.
1