Morgunblaðið - 28.09.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.09.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991 19 Hvað er heilbrigð- isþjónustan ekki? eftir Benjamín H.J. Eiríksson Heilbrigðisþjónustan, hún er læknisþjónusta, hjúkrun og lyf. Þai; sem ekki er hagkvæmt að heim- sækja hvern sjúkling, þá er aug- ljóst að til þjónustunnar þarf hús- næði, spítala. Þetta er þá hin eigin- lega heilbrigðisþjónusta. Af þessu sjáum vér, að heilbrigð- isþjónustan er í eðli sínu ekki hótel- þjónusta, því að í heilbrigðisþjón- ustunni er ekkert fæði nema sem algjör undantekning. Heilbrigðir jafnt og sjúkir þurfa að borða. Maturinn er því ekki einkenni heil- brigðisþjónustnnar. Á elliheimilun- um greiða vistmennirnir með sér, einnig hinir sjúku þeirra. Þegar sjúklingurinn fer á spítala sparar hann sér fæðiskostnaðinn heima, eins og fyrirkomulagið er núna. Honum er áreiðanlega ekki ætlað að græða á heilbrigðisþjón- ustunni sem hann fær, en það gerir hann fái hann ókeypis fæði á spítalanum, sem hann og gerir við núverandi fyrirkomulag. Sjúkl- ingurinn er þar með orðinn ríkari þegar hann kemur aftur heim, rík- ari en þegar hann fór á spítalann. Skattgreiðendur hafa „tapað“ til- svarandi upphæð. Hin' almenna skattbyrði hefir þyngst sem þessu nemur. Að réttu lagi á sjúklingur- inn að greiða að minnsta kosti ef- nið í matinn sem hann borðar. Það „Eigi sjúklingurinn ekki beinlínis að hagn- ast á sjúkrahússvist- inni, þá verður hann að greiða fæðið, að minnsta kosti efnið í það. Það verður hann að gera hvort sem er þegar hann er heima.“ yrði hann að gera, væri hann enn heima. Hin svokallaða ókeypis heil- brigðisþjónusta er alls ekki ókeyp- is, þvert á móti, hún er dýr. Og hana verður skattgreiðandinn að borga. Hún byggist á vinnu hóps iangmenntaðs og langþjálfaðs starfsfólks og dýrum lyfjum og tækjum. Hún er sjúklingum ókeyp- is. En þar sem hann er eins líklega einn af skattgreiðendunum, þá borgar hann kostnaðinn sem skatt- greiðandi. Greiði hann sjúkrahús- inu fæðiskostnaðinn, þá lækkar þar með hin almenna skattbyrði. Þetta mál er því fýrst og fremst spurning um hagkvæmni, skyn- samlegt fyrirkomulag greiðslu kostnaðar hinna sameiginlegu þarfa, sameiginlegu byrða, og hvað skuli með nokkurri sanngirni telj- ast til þeirra. Er skynsamlegt að greiða fæðiskostnaðinn úr sameig- inlegum sjóði, aðeins fyrir suma, Benjamín H.J. Eiríksson þegar allir þurfa að borða og greiða þann kostnað yfirleitt beint úr eig- in vasa, auk skattanna? Eigi sjúklingurinn ekki beinlínis að hagnast á sjúkrahússvistinni, þá verður hann að greiða fæðið, að minnsta kosti efnið í það. Það verður hann að gera hvort sem er þegar hann er heima. Höfundur var áður um árabil ráðunautur ríkisstjórnarinnar og síðar bankastjóri Framkvæmdabanka Islands. Innilegt þakklœti til allrn þeirrn, sem glöddu migá lOOára afmœli mínu 16. september 1991. GuÖ blessi ykkur öll. Sigurjóna Jakobsdóttir. Hjartans þakkir til allra hinna mörgu, vina og vandamanna, sem glöddu mig meÖ skeyt- um, blómum, gjöfum og heimsóknum á áttrœö- isafmœli mínu þann 23. september sl. GuÖ blessi ykkur öll. KristínÁ. Gunnlaugsdóttir, Framnesvegi 57. GEFÐU DOS TIL HJALPAR! A laugardögum söfnum við einnota umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli kl. 11.00 og 14.00 og við sækjum. ÞJOÐÞRIF UX*1M iSUKSUU OUTA Dósakúlur um allan bæ. \ p 4KypMtiG § Meim en þú geturímyndað þér! loksins, loksins langþráða Það fer vel á því að Teppalandsútsalan sé f kjallaranum þvf verðið fer niður úr öllu valdi. Teppi, gólfdúkar, flfsar og parket í góðu úrvali og á enn betra verði. Útsalan stendur yfir um allt land því eftirtaldir aðilar halda gólfefnaútsölur um þessar mundir og þar færðu gólfefni frá Teppalandi. Byggingavöruverslunin Núpur, ísafirði Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, Höfn Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi Kaupfélag Hunvetninga, Blönduósi Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík Litabúðin, Ólafsvík S.G. búðin, Selfossi Verslunin Brimnes,Vestmannaeyjum Verslunin Dropinn,Keflavík m VISA raðgreiðslur og Euro kredit Opið laugardaga frá kl. 10:00 til 16:00 Teppaland Grensásvegi 13 Sími 81 35 77 81 34 30

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.