Morgunblaðið - 24.12.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
Fjárlög' samþykkt með
4.112 milljóna halla
ALÞINGI samþykkti aðfaranótt
sunnudagsins fjárlög fyrir næsta
ár með 4.112 milljóna króna halla,
en ríkisstjórnin stefndi að því að
halli á fjárlögunum yrði innan við
4.000 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum fjár-
málaráðuneytisins gera fjárlögin
fyrir árið 1992 ráð fyrir að ríkissjóð-
ur afli 105.463 milljóna króna tekna
á næsta ári en gjöld verði 109.575
Árásarmaðurinn
ófundinn:
Hugsanlegt
að leitað verði
til öryggis-
fyrirtækja
LEITIN að manninum sem réðist
að útibússtjóra ÁTVR í Hafnar-
firði sl. föstudagskvöld hefur enn
ekki borið árangur. Höskuldur
Jónsson, forsljóri ÁTVR, segir að
borist hafi orðsendingar frá ör-
yggisvörslufyrirtækjum þar sem
þeir kynna þjónustu sína, meðal
annars á sviði peningaflutninga.
Hann segir ekki útilokað að leitað
verði til þeirra með slíka þjón-
ustu.
Tveir starfsmenn ÁTVR voru
rændir árið 1982 er þeir hugðust
leggja inn stórar fjárhæðir í banka-
hólf í Landsbankanum Laugavegi
77. Sagði Höskuldur að eftir það
atvik hefði lögreglan verið fengin til
að flytja peninga frá útsölum ÁTVR.
Reglur um peningaflutninga voru
síðan teknar til endurmats 1986 og
sagði hann að nú þyrfti að fara
reglulega yfir þær því öll „rútína“
væri óeðlileg og óheppileg, meðal
annars vegna þess að mikil hreyfing
væri á starfsmönnum í verslunum
ÁTVR og nokkrir tugir eða hundruð
manna kunnáttumenn í því hvaða
starfsreglur gilda hvetju sinni.
„Þetta þarf að vera sífellt í endur-
skoðun og síst af öllu fallið að birta
hvaða starfsreglur gilda,“ sagði
Höskuldur.
milljónir króna á meðalverðlagi árs-
ins.
Niðurstöðutölur fjárlaga yfir-
standandi árs voru 101.698 milljónir
á tekjuhlið og 105.767 milljónir á
gjaidahlið. Þegar tekið er tillit til
fjáraukalaga, sem Alþingi hefur
samþykkt á árinu, gera íjárlögin
hins vegar ráð fyrir 112.250 milljóna
króna haila.
Ef miðað er við hækkun meðal-
verðlags landsframleiðslu má hækka
niðurstöðutölur fjárlaga fyrir árið
1991 um 3% til að fá út sambærileg-
ar tölur við fjárlög næsta árs, sam-
kvæmt upplýsingum íjármálaráðu-
neytisins. Þannig uppfærðar eru
fjárlagatölur síðustu fjárlaga
104.749 milljónir króna á tekjuhlið
og 108.940 á gjaldahlið eða ívið
lægri en tölur fjárlaga næsta árs,
en með örlítið meiri halla.
Ef hins vegar er miðað til dæmis
við hækkun byggingarvísitölu frá
upphafi til loka þessa árs, 6,2%,
væru rauntökur ljárlaga 1991
108.003 milljónir króna á tekjuhlið
og 112.324 á tekjuhlið.
Sjá einnig þingsíðu, bls. 38.
Snjóþungt í Ejjum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Mikil snjókoma var í Vestmannaeyjum aðfaranótt s.l. sunnudags og mjög hvasst. Urðu lögregla og björgun-
arsveitir að aðstoða fólk. Snjór er nú með því mesta sem þekkist í Eyjum.
Mun fleirí beiðnir um að-
stoð fyrir jólin en áður
Söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar hefur gengið hægar en hjá öðrum líknarsamtökum
MIKLU fleiri einstaklingar hafa óskað aðstoðar líknarsamtaka
hér á landi fyrir þessi jól en um jólin í fyrra og virðist þörfin nú
mun meiri en áður. Jafnframt virðast íslendingar vera jafn rausn-
arlegir og áður. í söfnunarframtaki Mæðrastyrksnefndarinnar,
Hjálpræðishersins og Rauða Krossins á Rás 2 nýverið söfnuðust
um 3,5 milljónir króna, auk annarrar peningasöfnunar, fata- og
matargjafa og fleira.
Jónas Þórisson, framkvæmda-
stjóri Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar, segir söfnunina ekki hafa
gengið eins vel og í fyrra. Þó hafi
Hjálparstofnunin látið af hendi um
700 þúsund krónur til einstaklinga
Munið eftir smáfuglun-
um en haldið kisa inni
- segir formaður Sólskríkjusjóðsins
„VIÐ HVETJUM fólk til að
gefa smáfuglunum um jólin og
halda köttunum inni,“ sagði
Erlingur Þorsteinsson, formað-
ur Sólskríkjusjóðsins. Sjóður-
inn sendi út 70 sekki til barna-
skóla á landinu í haust og þá
aðallega til skóla á landinu
norðanverðu þar sem snjóar
mest en einnig til Vestmanna-
eyja, Skóga undir Eyjafjöllum
og Hafnar.
Sekkirnir voru sendir út í lok
nóvember og eru um 50 kg af
fóðri í hverjum þeirra en 35 kg í
nokkrum. Kennarar sjá um að
skipta fóðrinu milli barnanna sem
fara með það heim og gefa fuglun-
um, auk þess sem nokkru er dreift
við skólana.
„Verslanir í bænum áttu fyrn-
ingar frá því í fyrra og einnig
framleiðendur, þannig að send-
ingin barst í tæka tíð til skól-
anna,“ sagði Erlingur. „Það var
svo afskaplega snjólétt í fyrra en
nú ætiar að gera áhlaup og við
hvetjum því fólk til að gefa fugl-
unum og halda köttunum inni.
Það er ágætt að gefa þeim á bíl-
skúrsþök en þangað komast kett-
ir oft þannig að betra væri að
gefa þeim út um þakglugga, á
þakið sjálft eða út á svölum. Þang-
að koma þeir frekar og eru
óhræddir."
á síðustu tíu dögum. Það sem af
er árinu hafí um tveimur milljón-
um króna verið varið í aðstoð.
Jónas segir um helmingi fleiri
beiðnir hafa borist nú en á sama
tíma í fyrra.
Unnur Jónasdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndarinnar, segir
að aldrei hafí fleiri beðið um að-
stoð þar en í ár. í gær höfðu á
fimmta hundrað manns leitað til
Mæðrastyrksnefndarinnar og eru
það rúmlega helmingi fleiri beiðnir
en í fyrra. Bjóst Unnur við að mun
fleiri ættu þó eftir að óska aðstoð-
ar fyrir jólin, en oft komi síkar
beiðnir rétt fyrir hátíðina. Hún
sagði söfnun í ár hafa gengið vel,
sérstaklega vegna söfnunarfram-
taksins á Rás 2. Unnur sagði al-
menning hafa sýnt mikinn
rausnarskap og velvild í þessari
söfnun og vildi koma á framfæri
þakklæti til allra þeirra, sem veitt
hefðu stuðníng.
Hjálpræðisherinn verður að
venju með jólamat í kvöld, að-
fangadagskvöld, og að sögn Daní-
els Oskarssonar, yfírmanns Hjálp-
ræðishersins á íslandi, er búist við
að um fímmtíu manns leiti þang-
að. Jafnframt sagði Daníel þörfína
fyrir hjálp vera miklu meiri nú en
áður og mun fleiri hefðu leitað til
þeirra nú en áður. Sagði hann að
auk söfnunarframtaksins á Rás 2
hafí Hjálpræðisherinn verið með
söfnunarbauka víða um bæinn og
hafí sú söfnun einnig gengið mjög
vel.
Ólafur Oddsson, starfsmaður
Rauða Krossins, segir að visa hafi
þurft fólki frá, sem beðið hafí um
aðstoð, vegna þess hversu miklu
fleiri hefðu óskað aðstoðar en við
var búist. Það hefði komið þeim
mikið á óvart hversu margir hefðu
leitað til þeirra.
Hann sagði einnig að Rauði
Krossinn hafa fengið margar
ábendingar um fólk, sem þyrfti á
aðstoð að halda og þá hafí verið
hringt í það og því boðin hjálp.
Þetta væri oft fólk úti á lands-
byggðinni og væru peningar lagð-
ir inn á bankareikninga þess og
færi allt fram í fullum tnínaði, en
þetta væru helst þeir,r sem ekki
leituðu sér aðstoðar sjálfír.
------------------
Garðar Gísla-
son dómari
við Hæstarétt
FORSETI íslands hefur að til-
lögn dómsmálaráðherra skipað
Garðar Gíslason, borgardómara
í Reykjavík, til þess að vera
dómari við Hæstarétt íslands
frá 1. janúar næstkomandi.
Garðar er fæddur 29. október
1942 í Reykjavík, sonur hjónanna
Kristjáns G. Gíslasonar stórkaup-
manns og Ingunnar Jónsdóttur.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1962 og prófi frá lagadeild Há-
skóia íslands árið 1967. Hann var
við framhaldsnám í réttarheim-
speki við lagadeild Oxford-háskóla
frá 1967-1969 og 1971. Garðar
varð fulltrúi yfirborgardómarans í
Reykjavík árið 1970 og síðar aðal-
fulltrúi, en árið 1974 var hann
settur borgardómari og skipaður
í þá stöðu 1979. Hann hefur verið
stundakennari við lagadeild HÍ frá
1973.
Gæsluvarð-
hald vegna
hasssmygls
17 ÁRA gömul stúlka og 19 ára
piltur hafa verið úrskurðuð í
gæsluvarðhald vegna játningar
urn að hafa flutt til landsins
fikniefni innvortis. Talið er að
þau hafi gleypt 160-180 grömm
af. hassi sem þau keyptu í
Krisljaníu í Kaupmannahöfn.
Pilturinn var úrskurðaður til 30.
desember og stúlkan til 28. desem-
ber. Þau voru handtekin í húsi í
borginni. Pilturinn hefur áður
komið við sögu fíkniefnamála en
stúlkan ekki.
Garðar Gíslason
Auk Garðars sóttu um stöðuna
þau Auður Þorbergsdóttir, borgar-
dómari, og dr. Páll Sigurðsson,
prófessor.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út laugardaginn 28. des-
ember. Morgunblaðið kemur
einnig út sunnudaginn 29. og
þriðjudaginn 31. desember.
Fyrsta blað á nýju ári kemur
út föstudaginn 3. janúar.