Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
29
Jólaumferð gekk
snurðulítíð á landi
og í lofti í gær
JÓLAUMFERÐ á landi og í lofti gekk samkvæmt áætlun í gær,
Þorláksmessudag. Reiknað er um að þann daga hafi um það bil
1000 manns ferðast með áætlunarbifreiðum Bifreiðastöðvar Islands,
álíka margir flogið innanlands með Flugleiðum og um 70 manns
kosið sama ferðamáta með Islandsflugi. Ferðir leggjast af uppúr
hádegi í dag. Gert er ráð fyrir sunnanátt og hlýjindum á jóladag.
Rigningu eða súld sunnanlands og vestan en að úrkomulítið verði
norðaustantil.
Langferðabílar
Þegar Gunnar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri BSÍ, var inntur eftir
færðinni sagðist hann ekki vita
annað en allt gengi vel og allar
rútur væru á eðlilegum tíma. Þó
sagðist hann hafa heyrt að veður
væri eitthvað að versna fyrir norðan
og á Snæfellsnesi. Gunnar sagði
að mikill stígandi hefði verið í flutn-
ingum á fólki og jólapökkum und-
anfarna daga og enn ætti fólk eftir
að sækja tölvert af sendingum í
pakkaafgreiðsluna sem opin væri
til kl. 14 á aðfangadag. Síðustu
langferðir voru farnar frá Umferð-
amiðstöðinni í gærdag en farnar
vérða styttri ferðir í dag. Þær síð-
ustu eru í Borgames og á Reyk-
hóla kl. 13, á Hellu og Hvolfsvöll
kl. 13.30, til Keflavíkur kl. 14.15
en Hveragerðis og Selfoss kl 15.
Akstur hefst aftur samkvæmt
sunnudagsáætlun annan dag jóla.
Flugleiðir
Ólafur Ólafsson, afgreiðslustjóri
í innanlandsflugi Flugleiða, sagði
að flug hefði gengið samkvæmt
áætlun undnfarna daga ef frá væri
talinn sunnudagurinn en þá hefði
verið ófært á Vestfirði og til Vest-
mannaeyja. A Þorláksmessu var
flogið á alla staði samkvæmt áætlun
en 7 ferðir verða farnar í dag, 2
til Akureyrar, 1 til Vestmannaeyja,
1 til Egilsstaða, 1 til Hornaljarðar,
1 til ísafjarðar og 1 til Húsavíkur
og Sauðarkróks. Síðasta ferðin er
til Akureyrar kl. 13. Flogið verður
samkvæmt sunnudagsáætlun ann-
an dag jóla. Fyrsta flugið er til ísa-
fjarðar kl. 10.
íslandsflug
ekið á áfangastað. Gott útlit var
fyrir flug til Hólmavíkur, Gjögurs
og Snæfellsness. Linda Gunnars-
dóttir, skrifstofumaður hjá íslands-
flugi, sagði að flug hefði gengið
mjög vel að undanförnu fyrir utan
síðastliðinn sunnudag en þá var
ekki flogið á Vestfirði. Aðspurð
sagði hún að fiogið yrði á alla
áfangastaði flugfélagsins í dag.
Annan jóladag verður flogið sam-
kvæmt venjubundinni áætlun.
Veður á landinu
I dag, aðfangadag, verður norð-
vestanátt á landinu, sumstaðar all-
hvöss um tíma með snjókomu eða
éljagangi og skafrenningi norðan-
lands en hægari og léttskýjað syðra.
Seinna í dag og kvöld lægir ört og
í nótt lítur út fyrir hægviðri eða
vestan golu á landinum með björtu
veðri víða um land, síst á Vestur-
landi. Veður fer kólnandi og í nótt
verður víða um eða yfir 10 stiga
frost inn til landsins. Á jóladag er
búist við sunnanátt og hlýjindum.
Rigningu eða súld sunnanlands og
vestan en úrkomulítið verði norð-
austantil. Annan jóladag er gert ráð
fyrir suðvestanátt með snjó- og
slydduéljum á suðvestanverðu land-
inu en léttskýjað verður á norðaust-
ur- og austurlandi. Hiti verður rétt
yfir frostmark.
Höfuðborgarsvæðið
Á höfðuborgarsvæðinu er búist
við norðvestan stinningskalda og
síðar kalda og smáéljum frameftir
aðfangadegi en síðan hægri vestan-
átt og úrkomuleysi. Sunnan og suð-
austan gola og léttskýjað verður á
jóladagsmorgun. Á jóladag hlýnar
í veðri.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Frá athöfninni í Ytri-Njarðvíkurkirkju - nýstúdentar setja upp hvítu kollana eftir að hafa tekið
við brautskráningarskírteinum.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
26 jólastúdentar brautskráðir
Keflavík._
HAUSTÖNN Fjölbrautaskóla Suðurnesja var slitið í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju við hátíðlega athöfn á föstudaginn og voru þá 59 nemendur
brautskráðir. Alls stunduðu 839 nemendur nám við skólann á önn-
inni, þar af voru 665 í dagskóla og 174 í öldungadeild og sagði
Ægir Sigurðsson aðstoðarskólameistari í yfirliti um starf annarinn-
ar að ekki hefði verið hægt að sinna öllum umsóknum um skólavist
og hefði orðið að vísa frá nokkrum tugum nemenda. Ægir sagði að
á hausti komandi myndi húsakostur skólans aukast um helming því
nú væri verið að byggja við skólann um 3.000 fermetra viðbygg-
ingu sem þá yrði tekin í notkun og hýsa myndi nær alla starfsemi
skólans.
Að þessu sinni luku 26 nemend-
ur stúdentsprófi, 9 vélstjóranámi,
8 iðnnámi, 3 voru af háriðnaðar-
braut, 6 sjúkraliðar, 5 af 2ja ára
braut og einn skiptinemi lauk al-
mennu bóknámi. Tveim nemendum
voru veitt verðlaun fyrir góðan
námsárangur, Margréti Blöndal í
stærðfræði og Hörpu Ólafsdóttur
í efnafræði. Viðurkenningar fengu
einnig: Veigar Margeirsson fyrir
skapandi frammistöðu í félagslífí
FS, Sigrún Eva Kristinsdóttir fyrir
félagsmál, Daníel Guðbjartsson
fyrir góða frammistöðu í stærð-
fræðikeppni framhaldsskóla,
Björgvin Þór Hólm fyrir þróunar-
starf og Bjarni S. Guðmundsson
fyrir skólasókn, en hann lauk námi
án þess að vanta í einn einasta
tíma.
Hjálmar Árnason skólameistari
gerði að umtalsefni í ávarpi sínu
til nemenda glímu sveinsins Rand-
vers við sjálfan sig í bókinni Börn
náttúrunnar eftir Halldór Laxness,
þar sem Randver stóð á krossgöt-
um í glímunni við sjálfan sig þar
sem í vitund hans toguðust á and-
stæðar hugsanir. Líkt og hann,
þyrftu þau að velja næsta skrefíð
í lífinu - og þar réði vali hvers og
eins hugsjón, löngun og þrá. Auð-
velt væri að blekkja þann sem lærði
án þess að hugsa og á sama hátt
væri heimska að nota ekki það sem
maður lærði. í lok ræðu sinnar
varpaði skólameistari fram spum-
ingunum hvort það væru dáðir hins
menntaða að eyða lífi sjávar, lofti
jarðar eða gróðri landa? Eða hvort
það væru afrek viskunnar að ganga
af fískistofnum nærri dauðum, að
spúa eimyiju yfir borgir með of-
notkun bifreiða, plastpokamenn-
ingu og öðrum fylgikvillum skyndi-
hagsmuna? Og hvort við byggjum
með slíku hugarþeli í haginn fyrir
þá sem landið erfa. „Látið ykkur
ekki bara dreyma um lífið - gerið
lífí.ð að fallegum draumi," sagði
Hjálmar í lok ræðu sinnar til braut-
skráðra.
BB
íslandsflug flaug á Vestfirði og
til Vestmannaeyja á Þorláksmessu
en ófært var til Siglufjarðar. Flogið
var með þá farþega sem þangað
áttu bókað far til Sauðarkróks og
Mjólkurframleiðslan:
Bændur hafa
selt rétt fyrir
130 milljónir
FYRRI niðurfærslu fullvirðis-
réttar í mjólkurframleiðslu
vegna framleiðslu yfirstandandi
verðlagsárs lauk 15. desember,
og höfðu bændur þá selt 3,7
milljóna Iítra framleiðslurétt
fyrir samtals um 130 millj. kr.
Bændur fá greiddar 35 kr. fyrir
hvern mjólkurlítra sem þeir
skuldbinda sig til að framleiða
ekki á verðlagsárinu, og er sam-
tals stefnt að 5 milljóna lítra
samdrætti með þessum hætti.
Að sögn Gísla Karlssonar, fram-
kvæmdastjóra Framleiðsluráðs, fá
þeir bændur sem þegar hafa samið
um niðurfærslu fullvirðisréttar síns
greiðslur inntar af hendi 10. jan-
úar, en þeir sem semja um niður-
færslu fyrir lok mars fá greitt í
april. Gísli sagðist reikna með því
að sett markmið um 5 milljóna lítra
niðurfærslu fullvirðisréttarins
næðist, en það hefði í för með sér
um 160 milljóna króna sparnað
fyrir ríkissjóð en ríkissjóður hefur
greidd um 67 krónur með hveijum
lítra mjólkur sem flutter er út.
■jÍTfe.,
OÐINSVE
hotel-restaurant
Óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla, árs og friðar.