Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991 39 Grímsey; Jólasveinar í hvert hús með góðgæti í poka Senda átti jólarjómann með ferjunni í nótt Grímsey. Jólaundirbúningur hefur verið með hefðbundnum hætti hér í Grímsey. Jólasveinar börðu upp á í öllum húsum eyjarinnar í gær- kvöldi og heimsóttu börnin og gáfu þeim góðgæti í poka. Jólarjóm- inn átti að koma með ferjunni Sæfara í nótt er leið og horfur eru á að Grímseyingar fái jólamessu um þessi jól. Grímseyingar koma ævinlega saman í félagsheimilinu Múla og drekka jólaglögg og borða eitthvert meðlæti og styrkja með því félags- heimilissjóð, en á þessa samkomu er ævinlega vel mætt. Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon Elín Guðbjartsdóttir, elsti íbúi Ólafsfjarðar, er 100 ára í dag, aðfangadag. Ólafsfjörður; Elsti Ólafs- firðingur- inn 100 ára Ólafsfirði ELSTI Ólafsfirðingurinn, Elín Björg Guðbjartsdóttir, vistmaður á dvalarheimilinu Hornbrekku, á 100 ára afmæli í dag, aðfanga- dag. Hún fæddist á Skeri á Látra- strönd 24. desember 1891. Hún er ekkja Sigurðar Jóhannessonar skósmiðs, en hann lést fyrir 10 árum. Sigurður starfaði sem skó- smiður í Ólafsfirði í hálfa öld. Elín ber aldurinn vel. Sjónin er að vísu farin að gefa sig og heyrn- in og minnið svíkja stundum. En hún er glaðlynd og kveikir sér stundum í sígarettu, segist gera sér það til gamans. Hún segist lítið mega horfa á sjónvarpið vegna augnanna. En hún hlustar á útvarp en fylgist þó ekki jafn mikið með því og áður, segir dagskrána ekki jafn góða og í gamla daga. Elín man tímana tvenna. Hún á góðar minningar frá bernskuheimili sínu á Látraströnd fyrir aldamótin, átti þá heima í torfbæ og ólst upp við vinnusemi aldamótakynslóðar- innar. Hún fluttist árið 1933 til Ólafsfjarðar með eiginmanni sínum og hefur séð plássið breytast úr óásjálegu fiskiþorpi í myndarlegan kaupstað. Þau hjónin ólu upp tvö börn en sjálf voru þau barnlaus. Elín tekur þessum tímamótum með jafnaðar- geði. Hún segir að sér líði vel og hún þurfi ekki að kvarta. Ættingjar Elínar og«\æjarstjórn Ólafsfjarðar ætla að halda henni veislu í tilefni dagsins á annan í jólum á vistheimilinu Hornbrekku. - SB Hátíðarguðsþjónusta verður í Miðgarðakirkju sunnudaginn 29. desember, þannig að ef ekki spillist veður þann dag fá Grímseyingar jólamessu um hátíðirnar og er það nokkurt nýmæli. Engin messa var um síðustu jól vegna veðurs og árið þar á undan var messað á þrettánd- anum. Unglingar sem stunda nám í landi eru komnir heim til að halda jól með fjölskyldum sínum og setja þau svip sinn á lífið hér. Þá hafa ljós verið kveikt á jólatrjám við fé- lagsheimilið og við kaupfélagið auk þess sem á flestum heimilum hefur verið komið fyrir ljósaseríum í gluggum. Hér á hjara veraldar er því bjart yfir í skammdeginu. Jólatrésskemmtun verður haldin milli jóla og nýárs sem kvenfélagið í eynni stendur fyrir og þangað mæta allir sem vettlingi geta valdið. Ferjan Sæfari komst ekki til eyj- arinnar í gær vegna veðurs en hún var væntanleg m.a. með jólarjóm- ann sem og aðrar mjólkurvörur síðastliðna nótt. Ef ekki gæfi á sjó munu Grímseyingar fá þessar nauð- synjar með flugi í dag, aðfangadag. Jólasveinar voru á ferðinni í gærkvöldi, en þeir hafa um margra ára skeið heimsótt öll börn í eynni á Þorláksmessukvöld og fært þeim eitthvert góðgæti í poka og spjallað við heimilisfólk. Það má segja að þetta séu kiwanissveinar, því það eru kiwanismenn í eynni sem kom- ið hafa þessum ómissandi jólasið á hér í Grímsey. -HSH Ljósadýrð loftin fyllir Akureyringar vöknuðu upp við norðankóf mikið að morgni Þor- láksmessu, en er á daginn leið hægðist um og var komið hið fegursta veður, stillt en nokkuð frost, síðdegis. Húsin í Innbæn- um kúrðu undir brekkubrúninni ljósum prýdd, en ljósadýrðin speglaðist í Pollinum. Hæst ber Akureyrarkirkju, sem stendur af sér öll veður, en allt útlit er fyrir að hið skaplegasta veður verði á aðfangadag jóla. Akureyrarbær: Baldur Dýr- fjörð ráðinn sem lögmað- ur bæjarins BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að Baldur Dýrfjörð verði ráðinn lögmaður Akureyrarbæjar. Hann mun taka við starfinu af Hreini Pálssyni, sem gegnt hef- ur starfi bæjarlögmanns í tæp- lega 22 ár. Baldur Dýrfjörð er ættaður frá Siglufirði, fæddur árið 1962. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum á Akureyri árið 1982 og lög- fræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1991. Hann starfar nú í lögfræði- deild Islandsbanka í Reykjavík. Eiginkona Baldurs er Ásta Hrönn Jónasdóttir og eiga þau þijú börn. Reiknað er með að nýr bæjarlög- maður taki til starfa fljótlega upp úr áramótum, en Karl Jörundsson starfsmannastjóri Ákureyrarbæjar sagði að sennilegast yrði Hreinn Pálsson fráfarandi lögmaður bæj- arins beðinn um að brúa bilið þar til Baldur kæmi til starfa. Hreinn hefur verið lögmaður Akureyrar- bæjar frá því í júní árið 1970, eða í tæplega 22 ár. Hann hefur stofn- að lögmannsstofu á Akureyri. Leiðrétting í grein Ingimundar Gíslasonar í blaðinu síðastliðinn laugardag var sú villa, að sagt var að 2,4% af votlendi á Suðurlandi hafí verið ræst fram, standa átti 97,6%. Gleðilegt iólakaffi Á jólunum gera menn það besta við sig og sína í mat og drykk. Kaffibrennsla Akureyrar óskar öllum kaffiunnendum gleðilegra jóla. s» KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.