Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991 45 Minning: JonnaF.H. Vinther Jonna Fanny H. Vinther var fædd 23. apríi 1943 í Vági á Suðurey í Færeyjum. Hún ólst upp í föður- garði, en foreldrar hennar voru Thomas og Frida Vinther. Móðir hennar er ennþá á lífi, en faðir henn- ar dó aðeins nokkrum dögum áður en hún sjálf kvaddi þennan heim, þann 24. nóvember. Hún á tvö systk- ini, sem bæði eru á lífi. Þau eru Trigvi Vinther, sem býr í föðurhús- um í Færeyjum, og Andrea, sem býr í Reykjavík. Hún varð aðeins 48 ára gömul, á besta aldri. Þegar hún var 22 ára gömul kom hún eins og svo margir ungir Færey- ingar á þeim árum til íslands í at- vinnuleit. Það sem varð til þess að hún settist að hér á íslandi var að hún kynntist Þorsteini Þorsteinssyni íslenskum pilti úr Keflavík, og gekk hún að eiga hann þann 22. október 1966 og auðnaðist þeim að halda upp á silfurbrúðkaupsafmælið sam- an. Með Þorsteini eignaðist hún tvö börn, Lilju 25 ára og Sigurð 15 ára. Hún eignaðist einnig tvö börn í Færeyjum áður en hún kom til ís- lands, en vegna þess að erfitt var fyrir einstæðar mæður þar heima í þá daga, ólst sonur hennar Tommy upp hjá foreldrum hennar í Vági, en dó.ttirin Marjun hjá föðursystur hennar í Lopra á Suðurey og var samband þeirra barnanna við móður sína, eiginmann hennar og hálf- systkinin á íslandi mjög náið. Hún var Færeyingur að eðlisfari, og tilfínningar hennar til fólksins þar heima og til fósturlandsins voru ósviknar. Hún fór oft til Færeyja á sumrin og dvaldi þeins lengi og fjar- veran frá heimilinu leyfði hjá foreldr- um sínum og börnum þar ytra. Margir Færeyingar eins og íslend- ingar hafa ótal sinnum átt notalegar stundir á heimili hennar, þar sem gestrisnin var í hávegum höfð. Hún var ekki aðeins fyrirmyndar húsmóð- ir og gestgjafi, heldur lét hún einnig til sín taka í félagsmálum og var ein af virkustu félögum Færeyinga- klúbbsins á Suðurnesjum. Hún var mörg ár í stjórn, en hvort sem hún var í stjórn eða ekki, þá var hún alltaf reiðubúin að hjálpa, og sem dæmni má nefna, að þegar átti að hafði veikst alvarlega. Bar hann veikindin vel eftir atvikum, var hress <í tali og fullur bjartsýni, enda Land- helgisgæsluþyrlan á leiðinni til móts við okkur. Hann andaðist síðan kl. 17.00. Þyrlan þá ókomin. Síðastliðin 4 ár starfaði Björn Bjömsson hjá Þorbirninum hf. í Grindavík sem vélstjóri á bv. Gnúp GK 11. Gegndi hann starfi sínu vel og af mikilli ósérhlífni. Ávallt var hann mjög athugull og fylgdist vel með vélunum. Ef hægt er að segja það um nokkurn mann, að hann fínni meira til með vélunum sínum en sjálfum sér, þá átti það við um Bjössa, eins og við kölluðum hann. Gagnvart vinnufélögum sínum er svipaða sögu að segja. Kátur og spaugsamur var hann oft og hafði frá mörgu að segja. Áttum við marg- ar góðar stundir saman. Áhugasam- ur var hann um veiðar og aflabrögð. Kom hann alltaf aftur á, að fylgjast með þegar trollpokinn var hífður inn fyrir. undirbúa matarveislur, þá lagði hún að eigin frumkvæði, ótal sinnum eld- hús sitt undir þessa starfsemi, og stóð hún ásamt öðrum konum i klúbbnum oft og tíðum langt fram' á nótt við matargerð. Var þetta allt gert í sjálfboðavinnu. Hún var já- kvæð, lífsglöð og sá aðeins björtu hliðarnar á tilverunni, og var það hvatning öllum þeim sem hana þekktu að gera slíkt hið sama. Þegar henni í sumar var tilkynnt, eftir að hafa leitað til læknis vegna smákvilla að hennar eigin mati, að hún væri með krabbamein og eftir erfiðan uppskurð og geislameðferð kom hún heim aftur af spítalanum, greindist ekki nokkur breyting á skapi, jákvæðni eða bjartsýni henn- ar. Þegar hún nokkrum dögum fyrir andlát sitt, eftir að hafa verið lögð inn á spítala á ný og reyndar allt fram á síðustu stund, hélt hún þess- ari ró sinni og gerði að gamni sínu við þau sem vitjuðu hennar. Sú hugs- un leitar á mann, að hún var einstök kona, sem eftir að hafa sýnt kær- leika, ósérhlífni og fórnfýsi í hví- vetna, var reiðubúin að mæta Drottni sínum. Lengi lifi minning hennar. Fjölskylduvinur, Jákup Midjord. Við minnumst hans sem góðs félaga er hafði að geyma skemmti- legan persónuleika og ætíð tilbúinn að rétta öðrum hjálparhönd. Þökkum við honum fyrir allar samverustundirnar og megi hann hvíla í friði. Eftirlifandi maka, börnum og barnabörnum vottum við innilegustu samúð. Skipsfélagar Farve! heim, heim í drottins dýrðar geim! Náð og miskunn muntu finna meðal dýrstu vina þinna; friðarkveðju færðu þeim. Farvel heim! (Matth. Joch.) Við viljum minnast góðs manns, Björns Björnssonar, sem móðir okk- ar var svo lánsöm að kynnast, og eignast fyrir eiginmann fyrir 13 árum síðan. Þau voru mjög samhent og hamingjusöm í hjónabandi sínu, reyndist Bjössi henni og okkur systkinunum afar vel. Eigum við og móðir okkar honum mikið að þakka, og er andlát hans okkur mikill miss- ir. Björn heitinn var traustur maður sem vildi öllum vel og var gaman að sjá hvað bömin hændust mikið að honum. Allt frá því að þau voru smákríli sem toguðu í skeggið, þar til þau höfðu gaman af að sjá hann dytta að bílunum og húsinu í Kög- urseli. Var hann alveg ótrúlega þolinmóður við þetta smáfólk sem eins og börnum er von og vísa flækt- ust fyrir og töfðu með ærslum og spurningum. Kveðjum við Bjössa og þökkum fyrir árin sem hefðu mátt verða fleiri. Hvíl í friði. Svanhildur, Guðfinna, Guðmundur, Hrönn, Arna Bára og fjölskyldur. I * V D A EYKJAVIK Skátahúsið, Snorrabraut 60 Hekla v/Laugaveg Ingvar Helgason, Sævarhöföa 3 Kaupstaður, Mjódd Bílaborgarhúsið, Fosshálsi 1, Miklagarður.Sund, Efra bílaplani v/Kringluna, Bílabúð Benna, Vagnhöfða Stilling, Skeifunni Skátaheimilið, Sólheimum 20 A Byko, Hringbraut ARÐASTRÖND Hjálparsveitin Lómfell SAFJORÐUR Skátaheimilið LÖNDUÓS Hjálparsveitarhúsið Efstubraut 3 ARMAHLIÐ Við flugbjörgunarsveitarhúsiö. ALVÍK Flugeldamarkaður í söluskúr neðan við Hafnarbraut s, KUREYRI Stór-flugeldamarkaður Lundi, söluskúr við Hagkaup, Norðurgötu 2, við Hita, Draupnisgötu, Bílasalan Stórholt-Toyota AURBÆJAR- HREPPURí EYJAFIRÐI AHjálparsveitin Dalbjörg ÐALDALUR Hjálparsveit skáta Aðaldal GILSSTAÐIR Slökkvistöðin við Tjarnarás V ESTMANNAEYJAR Skátaheimilið við Faxastíg 38 ELLA Flugbjörgunarhúsið Hellu F LUÐIR Hjálparsveitin Snækollur, Slökkvistööinni. s ELFOSS við Eyrarveg 25 * VERAGERÐI Hjálparsveitarhús, Austurmörk 9. IJARÐVIK - ICeflavIk jk. G Iþróttavallarhúsið Stakkshúsiö, Iðavöllum 3d Ahaldahús Keflavíkur, Vesturbraut ARÐABÆR Hjálparsveitarhúsið við Bæjarbraut, við Lyngás, Krakkakot á Álftanesi. K ÓPAVOGUR Toyota, Nýbýlavegi 8, Skátaheimilið, Borgarholtsbraut 7, Hvellur, Smiðjuvegi, Teitur Jónasson, Dalvegur 14 (við Reykjanesbraut) * FLUGELDAMARKAÐIR HJÁLPARSVEITA SKÁTA LnHtUmmb.nJ kjergumdnvrita
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.