Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
61
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
591282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS , ir
'mjJÍ
í>essir hringdu . .
Lyklakippa tapaðist
Lyklakippa í vínrauðu lykla-
veski tapaðist miðvikudaginn 18.
des. sennilega fyrir utan hjá
Sveini bakara á Reykjavíkurvegi
í Hafnarfirði. Hún gæti líka hafa
týnst fyrir utan Hrafnistu í
Hafnarfírði eða Smyrlahraun 22.
Finnandi vinsamlegast skili þeim
á lögreglustöðina í Hafnarfírði.
Kaupæði, heilbrigðismál,
risna og fleira
Kona hringdi og vildi þakka
fyrir grein Árna Björnssonar
læknis í Morgunblaðinu fyrir
skömmu sem fjallaði um breyt-
ingar á heilbrigðismálum okkar
íslendinga. Hún sagði að fyrir
stuttu hefðum við búið við eitt
besta heilbrigðiskerfí í heiminum
en það stefndi í breytingar á því
sviði sem ekki væru æskilegar.
Hún sagði að ráðherrar væru
alltaf að vandræðast hvar þeir
ættu að taka peninga til þess
að geta sparað. Hún vildi benda
þeim á að lækka eitthvað eigin
risnu og fækka utlandsferðum
og borga þær ferðir fyrir niaka
sína. Með því myndi án efa spa-
rast nokkur upphæð, auk þess
sem almenningur myndi frekar
fylgja á eftir góðu fordæmi.
Þessi sama kona vildi einnig
gera athugasemdir við hið
gengdarlausa kaupæði fyrir jól-
in, það væri eins og fólk þyrfti
ekki að lifa nema þessa örfáu
daga á árinu.
Hún vildi einnig taka undir
grein Magnúsar Blöndals í Morg-
unblaðinu 20. des. um menning-
arslysið í London. Hún sagði vin-
konu sína sem búsett væri í Lon-
don hafa lýst uppákomunni sem
varð þar á dögunum sem menn-
ingarsjokki.
Gullhringur
_ Gullhringur með demanti tap-
aðist 18. des. Þetta er hringur
sem passar á litla putta og er
eigandanum mjög kær. Finnandi
vinsamlegast hringi í Stephanie
í síma 17315.
Alþingismaður á bágt
Húsmóðir hringdi og vildi
koma eftirfarandi á framfæri:
„Vesalings Guðmundur Hall-
varðsson á bágt þessa dagana,
hann er nýasta dæmið sem sann-
ar þjóðinni hvað skoðanir pólitík-
usa, sem eru að reyna að klífa
metorðastigann og fylgja vind-
áttinni sem best hentar þeim í
það og það sinnið. Ég get varla
ímyndað mér að hann hafi mikið
að gera inn fyrir dyr hjá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur eftir
þetta.“
íþróttahús við Foldaskóla
Þórdís hringdi og sagðist hafa
verið að lesa fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar og þar væri
m.a. gert ráð fyrir íþróttahúsi
við Húsaskóla upp á- 330 milljón-
ir og ætti það að vera tilbúið
næsta haust. Á sarna tíma hefði
næst stærsti skóli landsins, Fold-
askóli, starfað í sex ár án þess
að hafa íþróttahús og ekkert
væri áformað um aðgerðir til
úrlausnar. Sagði hún að sér
fyndist þetta vera svolítið skrýtið
þar sem Húsaskóli væri ekki
fullbúinn ennþá.
Vínrautt belti
Vínrautt belti af kápu tapaðist
í efri hluta Álfheima 19. des.
skömmu eftir hádegi. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 32177
eða 35389.
Nótulaus viðskipti
Hjörtur hringdi og vildi þakka
fyrir grein í Víkverja 14. des.
sem fjallaði um nótulaus við-
skipti. Sagði hann þetta afar
þarfa umfjöllun og vildi gjarnan
að eitthvað meira yrði íjallað um
þetta mál.
Dansk Julegndstjeneste í Dómkirkjan
anden juledag kl. 17.00
Dönsk jólaguðsþjónusta í Dómkirkjunni annan í jólum kl. 17.00.
Dansk Kvindeklub.
Det Danske Selskab.
Foreningen Dannebrog.
Jólatrésskemmtun
Læknafélags Reykjavíkur og Lyfjafræð-
ingafélags Islands verður í Dómus Medica
föstudaginn 27. desember kl. 15.00-
18.00.
Jólasveinarnir.
Jólaball verður fyrir börnin 28. des. nk. kl. 15-17
í húsi félagsins, Álfabakka 14A í Mjódd.
Aðgangseyrir kr. 400,- fyrir börn.
Innifalið gos og sælgætispoki.
Kaffiveitingar fyrir fullorðna.
Takið með ykkur gesti.
Allirvelkomnir.
ÞJÓÐDANSAFÉLAG REYKJAVÍKUR
JÓIATRÉSSKEMMIUN1991
fyrir börn félagsmanna og gesti þeirra verður í
Átthagasl Hótels Sögu á annan dagjóla
Pottaskef-
i illeðaPotta-
sleikir
Fyrir nokkrum dögum heyrði
ég spurningaþátt á Aðalstöðinni
þar sem börn voru spurð að því
hvað jólasveinn væri næstur í röð-
inni. Lítil stúlka hringdi og sagði
hann heita Pottaskefil, ekki vildi
stjórnandinn viðurkenna það og
gaf næsta barni samband og það
sagði Pottasleikir sem stjórnand-
inn samþykkti. Því miður er þetta
gott dæmi um hvað þáttastjóm-
endur hafa oft litla kunnáttu á því
sem þeir eru að fjalla um en í
íj þessu tilfelli höfðu börnin bæði
rétt fyrir sér, því báðar þessar
myndir af nafni jólasveinsins eru
j góðar og gildar og það er hart að
litla stúlkan skildi verða af verð-
launum sinum fyrir fávisku
stjórnandans.
Jólasveinninn
í
Nöfn
sigurvegaranna
í Fjölskylduleik
Coca Cola og
Euro Disney
verða birt í
Morgunblaðinu
4
4
Vlnningstölur 21. des. 1991
laugaraaginn
VINNINGAR
1.
5af 5
2.
3.
4.
fjOldi upphæðáhvern
VINNINGSHAFA VINNINGSHAFA
532
5.953
445.640
77.476
1.507
314
Heildarvinningsupphæd þessa viku:
5.809.662 kr.
uppiýsingar:SImsvmii91 -681511 iukkul!na991002
15 þátttakendur hljóta
vikuferð fyrir fjóra til
Euro Disney og 30 aðrir
fá vegleg aukaverðlaun.
Skyldi seðillinn þinn
hafa breyst í töfrasprota?
kl. 15.00-18.00.
JÓLASVEINAR KOMA íHEIMSÓKN
1/ERÐ KR. 500,-
Miðar seldir við innganginn.
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMNNA
BLINDRAFÉLAGIÐ
FÉLAG BIFREIÐASMIÐA
IÐJA, FÉLAG VERKSMIÐJUFÓLKS
NÓT, SVEINAFÉLAG NETAGERÐARMANNA
FÉLAG BLIKKSMIÐA
Myndir sem birtast í Morgunblaðinu,
teknar af Ijósmyndurum blaðsins
fást keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UÓSMYNDADEILD
„SALA MYNDA"
Aöalstrœti 6, sími 691150
101 Reykjavík