Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGUR 24. DESEMBER 1991 Samviskufangar í desember 1991 Morgunblaðinu hefur borist eft- irfarandi frá Amnesty International á íslandi: Mannréttindasamtökin Amnesty International vilja vekja athygli al- mennings á máli þessara samvisku- fanga. Amnesty vonar að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þessum mönnum og skipi sér á bekk með þeim, sem berjast gegn mannréttindabrotum á borð við þau, sem hér er sagt frá. íslandsdeild Amnesty gefur einn- ig út póstkort til stuðnings föngum mánaðarins. Hægt er að gerast áskrifandi að þessum kortum með því að hringja til skrifstofunnar, Hafnarstræti 15, virka daga frá kl. 16-18 í síma 16940. Úganda Daniel Omara Atubo, 44 ára gamall meðlimur í Demókrataflokki (DP) og ráðherra utanríkis- og svæðismála var ásakaður um landr- áð 7. maí 1991 ásamt 19 öðrum þekktum borgururn frá Norður- Úganda. Hann bíður nú réttarhalda í Luzira-fangelsinu, nærri höfuð- borginni Kampala. Daniel Omara Atubo var hand- tekinn í Kampala 15. apríl 1991, um það leyti sem her Úganda stóð fyrir meiriháttar aðgerðum gegn uppreisnarmönnum, sem höfðu haft sig í frammi í norðurhéruðum Gula, Kitgum, Lira og Apac frá því 1986. Fleiri hundruð manns voru hand- teknir á þeim grundvelli að þeir væru grunaðir um uppreisnartil- raunir, Daniel Omara Atubo og aðrir kjörnir fulitrúar mótmæltu, að því er virðist, þessum Ijöldahand- tökum. Eftir þriggja vikna varðhald í herbúðum voru Daniel Omara Atubo og sautján aðrir sakaðir um landráð (þar á meðal voru þrír aðr- ir meðlimir Demókrataflokksins sem sæti áttu í ríkisstjórn). Ríkis- stjómin gaf út tilkynningar, bæði fyrir og eftir handtökumar, þar sem fundið er að aðgerðum meðlima DP í Norður-Úganda og látið í veðri vaka að þeir hafi hjálpað til við áframhald uppreisnarinnar, þrátt fyrir að engar sannanir hafi komið fram um slíkt. Ekki var getið dagsetninga, staða eða eðlis þeirra athafna sem ásakanir um landráð Daniels Omara Atubo og sautján annarra byggðu á. Samkvæmt lögum Úganda er óleyfilegt að láta lacsa gegn trygg- ingu þá sem sakaðir eru um landr- áð, í að minnsta kosti 480 daga. Amnesty International hefur áhyggjur af því að ásakanir um landráð á hendur Daniel Omara Atubo án nokkurra sannana séu til komnar vegna friðsamrar gagnrýni hans á ríkisstjórnina. Daniel Omara Atubo var að sögn misþyrmt illilega eftir handtökuna og sáust merki þess á h'kama hans þegar hann kom fyrir rétt. Ríkis- stjórnin hefur látið fara fram opin- bera rannsókn á meintri illri með- ferð en ekkert hefur verið tilkynnt um niðurstöður þeirrar rannsóknar. Vinsamlegast sendið kurteisleg bréf og farið fram á að Daniel Omara Atubo verði þegar í stað látinn laus úr fangelsi og án allra skilyrða. Skrifið til: His Excellency Mr. Yoweri Museveni President of the Republic of Uganda Office of the President Parliament Buildings PO Box 7006 Kampala Uganda. íran Mohammadreza Nezameddin Mohaved, 74 ára gamall opinber starfsmaður á eftirlaunum, tekur nú út þriggja ára fangelsisdóm fyr- ir „aðfinnslur við forsetann“. Mohammadreza Nezameddin Mohaved og að minnsta kosti tutt- ugu aðrir voru handteknir í júní 1990 eftir að hafa undirritað gagn- rýnið opið bréf til forsetans, Hash- emi Rafsanjani. í bréfinu var kraf- ist stjórnskipulegs öryggis, fijájs- ræðis og réttlætis og ríkisstjórnin einnig gagnrýnd fyrir stjórnun fjár- mála. Margir þeirra sem undirrit- uðu bréfið voru í tengslum við Mehdi Bazargan, fyrsta forsætis- ráðherra íslamska lýðveldisins írans eða, líkt og Mohammadreza Nez- ameddin Mohaved, meðlimir Sam- taka til eflingar fijálsræði og full- veldi hinnar írönsku þjóðar, sem voru leyst upp 14. júní 1990. Eftir handtöku Mohammadreza Nezameddin Mohaved og annarra var þeim haldið föngnum í Evin- fangelsinu í Tehran og að sögn beittir þrýstingi til að skrifa undir skjal þar sem þeir afneituðu og fordæmdu sínar eigin gerðir. Nokkrir voru látnir lausir, en níu komu fyrir rétt og hlutu fangelsis- dóma i allt að þijú ár og upp í þrjá- tíu svipuhögg. Réttarhöldin yfir Moh- ammadreza Nezameddin Mohaved fóru fram við íslamskan byltingar- dómstól í júní 1991, næstum einu ári eftir handtökuna. Honum var meinað að fá lögfræðilega ráðgjöf og réttarhöldin, sem fram fóru fyr- ir luktum dyrum, stóðu að sögn aðeins yfir í nokkrar mínútur. Heilsufari Mohammadreza Nez- ameddin Mihaved hefur farið hrak- andi. Fregnir herma að hann geti ekki hreyft annan fótinn og verði að ganga við hækjur. Einnig þjáist hann af hjartveiki. Vinsamlegast sendið kurteislegt bréf og farið fram á að Moh- ammadreza Nezameddin Mohaved verði þegar í stað látinn laus úr fangelsi og án allra skilyrða. Skrif- ið til: President Hojatoleslam AIi Akbar Hashemi Rafsanjani President of the Islamic Republic of Iran The Presidency Palestine Avenue Tehran Islamic Republic of Iran Laos Thongsouk Saysangkhi, fyrr- um vísinda- og tæknimálaráðherra, var handtekinn 8. október 1990 í höfuðborginni Vientiane, eftir að út kom bréf eftir hann skrifað 26. ágúst 1990 til forsætisráðherra landsins, Kaysone Phomvihan, þar sem fundið var að stjórnun lands- ins. Einnig tilkynnti hann í bréfi þessu úrsögn sína úr ríkisstjórninni og Byltingarflokki fólksins sem ræður lögum og lofum í landinu. Thongsouk Saysangkhi skrifaði í bréfinu að hann væri á móti „spilltum gamaldags stjórnarhátt- um sem takmörkuðu fijálsræði ein- staklinga og lýðræði" og „einræðis- völdum fámennrar klíku“. Hann fór fram á „fijálsar kosningar, mann- réttindi og lýðræði og að komið væri á fót lýðræðisstofnunum í stað þess að viðhalda hinu kommúníska lénsskipulagi með lögregluvaldi". Hann bætti við: „Sagan hefur nú staðfest að eins flokks stjórnarfar sem einungis styðst við valdbeitingu og blekkingu er ófært að skapa hagsæld og hamingju meðal þjóðar vorrar.“ Thongsouk Saysangkhi reyndi einnig, að sögn, að koma á fót „klúbbi sósíaldemókrata" til að koma á framfæri hugmyndum um fjölflokkalýðræði, og skrifaði ásamt fleirum, blaðagrein til stuðnings slíku stjórnarfari. Opinber fréttastofa tilkynnti 3. nóvember 1990 að Thongsouk Saysangkhi hefði „gerst sekur um áróður gegn stefnu flokksins og ríkisins“ og hefði „stjórnað að- gerðum til að steypa stjórninni og skapa þannig pólitíska truflun í höfuðborginni Vientiane". Þrátt fyrir að sagt væri „að hann yrði yfirheyrður og dæmdur sam- kvæmt landslögum“ hafa engar formlegar ákærður verið bornar fram á hendur honum fyrir rétti, að því er Amnesty International best veit. Honum er haldið, að sögn, í „tímabundnu varðhaldi'* samkvæmt reglum um gæslu- varðhald, líklega í Xam Khe- fangelsinu í Vientiane. Vinsamlegast sendið kurteisleg bréf og farið fram á að Thongsouk Saysangkhi verði þegar í stað látinn laus úr fangelsi og án allra skil- yrða. Skrifið til: President Kaysone Phomvihan Office of the President Vientiane Lao People’s Democratic Republic Israel og hernumdu svæðin Abie Nathan, 64 ára gamall ísraelskur friðarsinni, var fangels- aður 10. október 1991 til 18 mán- aða. Honum var gefið að sök að bijóta lög frá 1986 sem banna sam- skipti ísraelskra borgara við hópa sern skilgreindir eru af yfirvöldum í Israel sem „hryðjuverkamenn". Abie Nathan var ákærður fyrir að eiga fund með formanni Frelsis- hreyfingar Palestínu (PLO), Yasser Arafat, í Túnis 10. og 16. mars 1990. A þessum fundum munu þeir hafa rætt þróun friðarmála í Mið- Austurlöndum, beinar viðræður milli PLO og ísraelsstjórnar, upp- reisn Palestínumanna á hernumdu svæðunum (intifada) og örlög ísra- elskra hermanna sem saknað er í Líbanon. „Þetta er sorgardagur fyrir lýð- ræðið, mannréttindi og frið,“ sagði Abie Nathan eftir dómsúrskurðinn. Hann hefur ákveðið að áfrýja ekki dóminum og hefur jafnframt heitið því að endurnýja sambönd sín við PLO, strax og hann verður laus úr fangelsi. Abie Nathan sat í fangelsi í fjóra mánuði á árunum 1989 og 1990 vegna funda við formann PLO, Yasser Arafat, og aðra leiðtoga hreyfingarinnar í september 1988. Amnesty International fór þá fram á að honum yrði sleppt úr haldi. Abie Nathan sat einnig í 40 daga i fangelsi árið 1966 fyrir að fljúga til Egyptalands með undirskriftir 100.000 ísraelsmanna með ákalli um frið í Mið-Austurlöndum. Amnesty Intenational telur að Abie Nathan sé enn einu sinni orð- inn samviskufangi. Ríkisstjórn ísra- els heldur því fram að Abie Nathan hafi verið ákærður „ekki ... vegna pólitískra skoðana sinna eða fyrir að láta þær í ljós, heldur sem afleið- ingu athafna sinna“. Samt sem áðuf nær alþjóðlega viðurkenndur réttur til fijálsrar tjáningar og frið- samra samskipta manna á milli fullkomlega til athafna eins og þeirra sem Abie Nathan tók sér fyrir hendur. Amnesty International telur að lögin fá 1986 eigi að endurskoða, til að tryggja að þau leiði ekki til fangelsunar samviskufanga. Vinsamlegast sendið kurteisleg bréf og farið fram á að Abie Nath- an verði þegar í stað látinn laus úr fangelsi og án allra skilyrða. Skrifið til: President Chaim Herzog Office of the President Beit Hanasi 3 Hakeset Street Jerusalem 92188 Israel Kína Jampa Ngodrup, 46 ára gamall læknir búsettur í Lhasa, höfuðborg tíbeska sjálfstjórnarhéraðsins í Kína, var dæmdur í 13 ára fangelsi 24. desember 1990, ákærður fyrir njósnir. Jampa Ngodrup, sem var Iæknir við borgarlæknamiðstöðina Barkor í Lhasa, var settur í varðhald 20. október 1989 og opinberlega ákærður 13. ágúst 1990. Hann var ákærður fyrir að hafa „með and- byltingarlegum markmiðum, skráð nöfn fólks sem haldið er í fangelsi fyrir óeirðir og dreift skránni til annarra og þannig grafið undan og brotið lög um leynd“. Með „óeirð- um“ er átt við starfsemi stuðnings- manna sjálfstæðisbaráttu Tíbets í Lhasa árið 1988. í úrskurði dómstóls í máli Jampa Ngodrup segir að hann hafi beðið ungan munk, sem vann í læknamið- stöðinni Barkor, að safna á skrá nöfnum fólks sem tekið hefði verið til fanga eftir átök milli lögreglu og mótmælenda 5. mars 1988. Jampa Ngodrup er sagður hafa lát- ið skrá þessa í té útlendingi búsett- um i Tíbet, sem í staðinn lét Jampa Ngodrup hafa lista með nöfnum fólks sem meiddist og var handtek- ið á baráttufundi sjálfstæðissinna 10. desember 1988. Jampa Ngodr- up játaði sýnilega öllum ákæruatr- iðum. Dómstóllinn ákvað að Jampa Ngodrup skyldi missa öll stjórn- málaleg réttindi sín í fjögur ár til viðbótar við þrettán ára fangelsis- dóminn. Amnesty International telur Jampa Ngodrup vera samvisku- fanga, sem er dæmdur og haldið föngnum eingöngu fyrir að notfæra sér rétt sinn til að taka á móti og láta öðrum í té upplýsingar á frið- saman hátt. Vinsamlegast sendið kurteisleg bréf og farið fram á að Jampa Ngodrup verði þegar í stað látinn laus úr fangelsi og án allra skil- yrða. Skrifið til: Gyaltsen Norbu Chairperson of the Tibet Autonomous Region Tibet Regional Government Lhasa Tibet Autonomous Region People’s Republic of China Bretland Vic Williams, 28 ára gamall hermaður í stórskotaliði hins kon- unglega breska hers, hefur verið dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir liðhlaup og „háttemi sem er skaðvænlegt fyrir góða reglu og hemaðarlegan aga“. 11. september 1991 var Vic Will- iams fundinn sekur af herrétti af þremur ákæruatriðum, sem snúa að liðhlaupi og því að mótmæla Persaflóastríðinu. Hann yfírgaf herdeild sína án leyfis í desember 1990, daginn áður en senda átti hann til Saudi Arabíu. Hann fór vegna þess að samviska hans leyfði honum ekki að taka þátt í hemaðar- aðgerðum í tengslum við Persaflóa- deiluna. Vic Williams hefur skýrt frá því að hann hafí yfírgefið herdeild sína eftir að hafa komist að þeirri niður- stöðu að hann ætti engan kost ann- an (honum var aldrei gerð grein fyrir þeim rétti sínum sem her- manni, að geta neitað að gegna herþjónustu af samviskuástæðum). Reglugerðir sem útskýrðu þann möguleika að hermaður í breska hernum geti neitað herþjónustu af samviskuástæðum, em skilgreindar sem „leynileg" skjöl, og aðeins for- ingjar í hemum eiga aðgang að þeim. Vitnisburður foringja við herrétt- inn og yfirlýsing lögmanns ákæm- valdsins í lok vitnaleiðslunnar styðja grun Amnesty International um að Vic Williams hafi ekki verið tryggð- ur fullnægjandi aðgangur að upp- lýsingum varðandi möguleikann að skrá sig sem samviskuneitanda í Persaflóadeilunni. Vinsamlegast sendið kurteisleg bréf og farið fram á að Vic Will- iams verði þegar í stað látinn laus úr fangelsi og án allra skilyrða. Skrifið til: The Right Honourable John Major MP Prime Minister 10 Downing Street London SWl 2AA United Kingdom Toyota gefur Krabbameins- félaginu bíl Umboðsaðili Toyota á íslandi, P. Samúelsson hf., hefur gefið Krabbameinsfélaginu sendibifreið af gerðinni Toyota HiAce, en verðmæti hennar er á aðra milljón króna. Páll Samúelsson, stjórn- arformaður P. Samúelsson hf., afhenti Almari Grímssyni form- anni Krabbameinsfélagi íslands lykla að bifreiðinni við athöfn í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8. Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands og verndari Krabbameinsfélagsins var viðstödd afhendinguna. Á myndinni eru Páll Samúelsson stjórnarformaður P. Samúels- son hf., Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, Almar Grímsson formaður Krabbameinsfélags íslands, Ingi R. Helgason gjaldkeri félagsins og Jón Þorgeir Hallgrímsson formaður Krabbameinsfé- lags Reykjavíkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.