Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 30
I
I
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
Y Opnunartími
yfir hátíðarnar
á sundstöðum
CK og skautasvelli.
Sundstaðir:
24. des.
25. des.
26. des.
27. des.
28. des.
29. des.
30. des.
31. des.
l.jan.
Aðfangadagur.
Jóladagur.
Annar íjólum.
Gamlársdagur.
Nýársdagur.
Opiðfrá 07:00-11:30
Lokað.
Lokað.
Opiðfrá 07:00-20:30
Opiðfrá 07:30-17:30
Opiðfrá 08:00-17:30
Opiðfrá 07:00-20:30
Opiðfrá07:00-11:30
Lokað.
Skautasvellið
í Laugardal verður opið
ef veður leyfir:
24. des. Aðfangadagur. Lokað.
25. des. Jóladagur. Lokað.
26. des. Annaríjólum. Opiðfrá
27. des. Opið frá
28. des. Opið frá
29. des. Opið frá
30. des. Opið frá
31. des. Gamlársdagur. Lokað.
l.jan. Nýársdagur. Lokað.
B
13:00 -18:00
10:00-22:00
13:00-18:00
13:00-18:00
10:00-22:00
Ú0& °9 fa -n&kjptÍH
fiöW”1 s,aMœ
'a ‘arinu - m
0<ii
Kosningarnar á Tævan:
Stj órnarflokkurinn
vann yfírburðasiffur
Tæpei. Reuter.
Þjóðernissinnaflokkurinn á Tævan, er farið hefur með völd frá
því að leiðtogar hans urðu að flýja nieginland Kína undan herskör-
um kommúnista 1949, vann mikinn sigur í fyrstu lýðræðislegu kosn-
ingunum sem farið hafa fram á eynni síðan 1945. Flokkurinn hlaut
254 af 325 sætum á þjóðþinginu en helsti keppinauturinn, Lýðræðis-
legi framfaraflokkurinn (DDP), 66 sæti. Stjórnarandstaðan sakar
þjóðernissinna um að hafa misnotað almannafé til atkvæðakaupa
og segir fjölmiðla hafa gengið erinda stjórnarinnar.
Eitt hundrað uppbótarsætum var
úthlutað að auki í samræmi_ við
atkvæðafjölda á landsvísu. Áður
hafa nokkrum sinnum farið fram
kosningar í landinu en þá aðeins
barist um fáein sæti. Gömlu þing-
mennirnir frá meginlandinu hafa
haldið sætum sínum og því borið
við að ekki væri hægt að kjósa að
nýju vegna valdaráns kommúnista
sem sigruðu í áratuga langri borga-
rastyijöld og komu á flokksein-
ræði. Leiðtogi þjóðernissinna og
áður forseti alls Kína, Chiang Kai-
Shek, lagði grundvöllinn að þessari
stefnu og opinbert heiti landsins,
þar sem um tuttugu milljónir
manna búa, er Lýðveldið Kína.
DDP rak áróður fyrir því að Tævan
lýsti yfir sjálfstæði en kommúnista-
stjórnin í Peking, sem lítur á eyj-
una sem kínverskt hérað, á sama
hátt og þjóðernissinnar, hefur hót-
að innrás verði lýst yfir sjálfstæði.
Arftakar Chiangs hafa smám sam-
an þokað málum í lýðræðisátt en
DDP hefur þó verið hótað banni
vegna sjálfstæðishugmyndanna.
Efnahagslegar framfarir hafa
verið geysilega miklaf á Tævan og
lífskjör eru þar með blóma, einkum
ef miðað er við meginlandið. Gjald-
eyrisforði ríkisins er um 80 millj-
arðar Bandaríkjadollara eða svip-
aður og Japans þar sem búa nær
130 milljónir manna.
Robert Maxwell:
Leiðtogar 11 sovétlýðvelda á fundi í Alma-Ata:
Reuter
Flugslys í Þýskalandi
Talið er, að 26 manns hafi látist þegar flugvél af gerðinni DC-3
hrapaði í gær í mikilli þoku í skóglendi skammt frá Heidelberg
í Þýskalandi. Voru þrír flugliðar og 27 farþegar í vélinni, sem
var hálfrar aldar gömul eða frá árinu 1942, og var enginn ratsjár-
búnaður um borð. Hafði þýskt kvikmyndafyriitæki leigt vélina
til skemmtiflugs með starfsmenn sína. Á myndinni er slökkviliðs-
maður að huga að vélarflakinu.
Vantar millj-
arð punda í
sjóði MCC
London. Reuter.
EINN milljarð sterlingspunda,
104 milljarða ISK., vantar í hlut-
hafasjóði MCC, Maxwell Com-
munication Corp., en það var eitt
af helstu flaggskipunum í fyrir-
tæly'asamsteypu Roberts heitins
Maxwells. Kemur þetta fram í
endurskoðendaskýrslu, sem
breska blaðið The Sunday Times
segist hafa komist yfir.
Að sögn blaðsins kemur fram í
skýrslunni, að 763 milljónir punda
hafi með ólögmætum hætti verið
fluttar úr hluthafasjóðum og 240
að auki glatast vegna niðurfærslu
á fasteignaverði og taps í viðskipt-
um með erlendan gjaldeyri. Er þetta
aðeins nýjasta hneykslið varðandi
fjármálavafstur Maxwells heitins.
Segir The Sunday Times, að hugs-
anlega hafí Maxwell hrifsað til sín
allt að tveimur milljörðum punda,
208 milljörðum ÍSK.
Jeltsín verður yfirmað-
ur kjarnorkuheraflans
Alma-Ata, Moskvu, Washington, London. Reuter.
LEIÐTOGAR 11 af 12 lýðveldum Sovétríkjanna ákváðu á fundi sínum
í Alma-Ata á laugardag að taka þátt í hinu nýja samveldi sjálfstæðra
rílya og verða Sovétríkin formlega úr sögunni nú um áramótin. Ymsum
spurningum er þó enn ósvarað um efnahags- og hermál samveldisríkj-
anna en samþykkt var, að Borís Jeltsín, forseti Rússlands, bæri mesta
ábyrgð á kjarnorkuheraflanum. Bandaríkjastjórn og fleiri ríki hafa
sent leiðtogum samveldisins árnaðaróskir en Míkhaíl Gorbatsjov, sem
nú er að láta af embætti sem forseti Sovétríkjanna, segist ekki hafa
mikla trú á framtíð þess.
Samfara hruni Sovétríkjanna hafa
vestræn ríki haft miklar áhyggjur
af sovésku kjarnorkuvopnunum en
Andrei Kozyrev, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði að lokinni undirrit-
un samveldissáttmálans, að Rússland
yrði arftaki Sovétríkjanna hvað
kjarnorkuvopnin áhrærði. Jeltsín eða
Rússlandsforseti verður því yfirmað-
ur kjarnorkuheraflans en þó með
þeim takmörkunum, að vopnunum
má hann ekki beita nema með sam-
þykki Hvít-Rússa, Úkraínumanna og
Kazaka. Ráða þeir yfir hluta sovésku
kjarnorkuvopnanna auk Rússa og
Núrsúltan Nazarbajev, forseti Kaz-
akhstans, sagði, að ekki væri búið
að semja um bvar vopnin yrðu í fram-
tíðinni.
Leiðtogamir náðu ekki samkomu-
lagi um sameiginlega stefnu fyrir
heraflann, sem hefur ijórar milljónír
manna undir vopnum, en til bráða-
birgða var Jevgeníj Shaposhnikov,
fráfarandi varnarmálaráðherra Sov-
étríkjanna, skipaður yfírmaður hans.
Þá var einnig ágreiningur um gæslu
á ytri landamærum samveldisins en
Jeltsín sagði, að því máli hefði verið
vísað til nefndar. Leoníd Kravtsjúk,
forseti Úkraínu, sagði hins vegar,
að Úkraínumenn hefðu engin af-
skipti af nefndinni því að þeir ætluðu
sjálfir að gæta sinna landamæra.
I samveldissáttmálanum, sem
lagður verður fyrit- þjóðþjng lýðveld-
anna, er varla minnst á efnahagsmál-
in, sem allt veltur þó á. í þeim efnum
er stefna lýðveldanna líka ólík og
vilja þau ganga mislangt og mis-
hratt í átt til einkavæðingar og mark-
aðsbúskapar. Þá má nefna, að Úkra-
ínumenn og Hvít-Rússar féllust á,
að Rússar fengju sæti fastafulltrúa
Sövétríkjanna í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna.
Leiðtogarnir 11 lýstu því yfir, að
Sovétríkin væru úr sögunni og Gorb-
atsjov þar með atvinnulaus en Jeltsín
sagði með bros á vör, að gerðar hefðu
verið „viðeigandi ráðstafanir" varð-
andi framtíð sovétforsetans. Ekki
vildi hann þó útskýra það nánar.
Gorbatsjov sagði í viðtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina CBS á
sunnudag, að hann væri ekki hættur
afskiptum af stjórnmálum og í við-