Morgunblaðið - 24.12.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
15
JÓLAKVEÐJA
FRÁ EIMSKIP
1903“ og „Skólavörðustígur
1892“.
Myndir sem þessar og ýmsar
fleiri eiga hvergi heima annars
staðar en á Listasafni íslands, eða
væntanlegu Borgarlistasafni, og
mundu jafnvel sóma sér vel innan
um nútímaleg verk.
Það er annars áberandi hve
mikið er lagt í ýmsar þessara
mynda og einkum hve Jón nær
stemmningunni vel. Svo látlaus
var hann og einlægur þjónn áhug-
asviðs síns að hann hirti sjaldan
um að árita myndir sínar, sem er
nú það sem margur kann best í
dag. Þetta eru með réttu önnur
vinnubrögð en menn sjá hjá yngri
kynslóðum og yfir þeim meiri heið-
ríkja, innileiki og væntumþykja.
Það er líkast sem að sums staðar
leiftri listrænir taktar í þessum
myndum, sem þó var ekki aðal-
atriðið hjá Jóni heldur sannverðug
lýsing myndefnisins. En einmitt
þess vegna bua þær yfir töfrum
þess sem verður tii rökrétt og
ósjálfrátt, sem í höndum meistar-
anna verður .svo að mikilli snilld.
Viðkynningin við þessar myndir
hlýtur að kveikja í öllum þeim sem
lifðu gömlu Reykjavík, t.d. er
Rauðarárstígur var enn á mörkum
byggðar og Tunga uppi í sveít,
og hestar voru algeng sjón, auk
þess sem menn héldu hænsni og
jafnvel einstaka maður belju, þá
var það árviss viðburður að lömb
voru rekin af fjalli til slátrunar.
Streymdu um götur borgarinnar
sem flóðalda við óp, köll og hróp,
skeggjaðra veðurbarinna rekstrar-
manna og fjallkónga, er blönduð-
ust svo furðulega við jarmið í ráð-
villtum fórnardýrunum.
Umskiptin frá þessum tíma og
til dagsins í dag eru tröllsleg og
sú kyrrð og ró sem einkenndi sum
hverfi löngu horfin.
Slíkir hljóta að meta myndir
Jóns Helgasonar og skynja að ævi
hans var stórvirki fyrir íslenzka
sagnfræði auk þess sem að mynd-
listarmenn nýrri tíma viðurkenna
ótvírætt gildi bestu mynda hans
fýrir íslenzka myndlist.
Seinni tíma kynslóðir munu
vissulega með forvitni virða fyrir
sér þessar myndir og spyija sig
margra spuminga, því ýmsum
mun ljóst hve margt hefur glatast
fyrir skammsýni og óforsjálni mis-
viturra byggingarfulltrúa.
Svo að maður tali máli sem fólk
nú á tímum skilur, væru sumar
götumyndirnar milljarðavirði í
beinhörðum peningum ef tekist
hefði að varðveita þær fram á
daginn í dag.
Það eina sem við eigum eftir
eru þessar óborganlegu heimildar-
myndir Jóns Helgasonar biskups
og gildi þeirra mun aukast með
hverri kynslóð, bæði sem sagn-
fræðileg heimild og það listræna
leiftur sem bregður fyrir í þeim.
Barnaspítalinn fær leikjatölvur
Barnaspítala Hringsins barst nýlega gjöf frá Tölvuhúsinu hf. við
Laugaveg, tvær Sega-sjónvarpsleikjatölvur. Herta Jónsdóttir deildar-
stjóri vildi fyrir hönd Barnaspítala Hringsins koma á framfæri sér-
stökum þökkum til Tölvuhúsins.
Jólatréð á Austurvelli er í
hugum margra íslendinga tákn
um nálægð jólanna. I 39 ár
hefur haldist sá siður að
Oslóborg hefur gefið höfuð-
borg íslands glæsilegt barrtré
úr skógum Noregs svo það
mætti skarta ljósum sínum í
íslensku skammdegi. í ár sem
svo oft áður hlotnaðist
EIMSKIP sá heiður að fá að
færa íslendingum þessa jóla-
gjöf. Við vonum að jólatréð á
Austurvelli, þetta vináttutákn
granna okkar, minni landsmenn
með sínum hljóðláta hætti á
boðskap og fögnuð jólanna.
** *
,* *
*****
*
*
-¥■
*
oífkrt1 / p n a0tf,
VIÐ GREIÐUM PÉR LEIÐ
HVlTA HÚSIÐ / SlA