Morgunblaðið - 24.12.1991, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIFTI/JflOTNNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
37
Auglýsingar
Hvíta húsið hlýtur tvær
alþjóðlegar viðurkenningar
AUGLÝSINGASTOFAN Hvíta húsið hefur nýlega feng'ið tvær viður-
kenningar á alþjóðlegum auglýsingahátíðum. Stofan fékk viðurkenn-
ingu fyrir auglýsingu um nýnvjólk á auglýsingahátíðinni EPICA
1991 (Europe’s Creative Awards). Aðeins þrjár auglýsingar voru
tilncfndar í þessum flokki og voru hinar tvær báðar frá Bretlandi.
Þá komst íslenskt veggspjald með kynningu á Profil smokkum í
úrslit á EUROBEST agulýsingahátíðinni og hlaut viðurkenningu.
Alls tóku 21 Evrópuþjóð þátt í
EPICA keppninni að þessu sinni.
Bretland hlaut flestar viðurkenn-
ingar eða 60 talsins, þá komu Hol-
land með 21 tilnefningu og Spánn
með 14. ísland var með eina tilnefn-
ingu etuallar tilnefningarnar verða
birtar í næstu árbók EPICA keppn-
innar sem kemur út í ágúst 1992.
Allar þjóðir Evrópu taka þátt í
EUROBEST samkeppninni. Hún er
háð árlega til að auka meðvitund
um gæði og veita viðurkenningu
fyrir hugmyndaauðgi og áhrifamátt
í evrópskri auglýsingagerð, segir í
frétt frá Hvíta húsinu.
Auglýsingar
Auglýsingum sem bijóta í
bága viðjafnréttislögfækkar
JAFNRÉTTISRÁÐ hefur fengið
allnokkrar ábendingar á siðustu
mánuðum vegna auglýsinga sem
eru hæpnar út frá forsendum
jafnréttis kvenna og karla. Aug-
lýsingarnar hafa ekki talist brot
á jafnréttislögunum, en eru til
þess fallnar að viðhalda stöðluð-
um hugmyndum um hlutverk
VERSLUNARRÁÐ íslands hef-
ur auglýst eftir umsóknum um
tvo styrki til framhaldsnáms
erlendis sem veittir verða úr
Námssjóði VI.
Styrkirnir veitast til framhalds-
náms við erlenda háskóla eða aðra
sambærilega skóla í námsgreinum
sem tengjast atvinnulífinu og
stuðla að framþróun þess. Skilyrði
styrkveitingar er að umsækjandi
hafi lokið námi sem veitir rétt til
kynjanna. Af þessu tilefni og
vegna þess að nú fer í hönd sá
tími sem auglýsingar skipa æ
stærri sess í fjölmiðlum vill Jafn-
réttisráð minna á ákvæði í Iög-
um, sem segir að þeim sem
hanna eða birta auglýsingu sé
skylt að sjá til þess að hún sé
ekki öðru kyninu til minnkunar,
inngöngu í Háskóla ísiands eða
aðra sambærilega skóla.
Hvor styrkur er 185.000 krónur
og verða þeir afhentir á aðalfundi
Verslunarráðs Islands 20. febrúar.
Umsóknir þurfa að hafa borist til
skrifstofu ráðsins fyrir 31. janúar.
Með umsóknum þarf að fylgja af-
rit af prófskírteini, vottorð um
skólavist erlendis, lýsing á viðkom-
andi námi og ljósmynd af umsækj-
anda.
lítilsvirðingar eða stríði gegn
jafnri stöðu og jafnrétti kynj-
anna á nokkurn hátt. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Jafnréttis-
ráði hefur auglýsingum, sem bijóta
í bága við þetta lagaákvæði fækk-
að verulega á undanförnum árum.
Ennfremur hefur Jafnréttisráð
orðið áþreifanlega vart við að aug-
lýsingar sem byggja á stöðluðum
hugmyndum um hlutverk kynja
verða til þess að neytendur hafni
vörunni eða þjónustunni, þar sem
auglýsingin bijóti í bága við breytt
viðhorf fólks. Slíkar auglýsingar
geta orðið til þess að neytendur
verði færri en ella, þar sem auglýs-
ingin höfði aðeins til takmarkaðs
hóps eða einungis annars kynsins.
Nám
Verslunarráð veitir styrki
C^CeÁcCe^ýóCttted Cétt&Cí
/ 1 ... - 1
NÝTT - NÝTT
12 í pakka frá PRIPPS
Vinsæll jólapakki sem passar
beint í ísskápinn
VIÐURKENNINGAR
— Auglýsingar Hvíta hússins
sem unnar voru fyrir Markaðs-
nefnd mjólkuriðnaðarins og heild-
verslunina Fyrirtak komust ný-
lega í úrslit og hlutu viðurkenn-
ingu á alþjóðlegum auglýsingahá-
tíðum.
SVONA
ER OPIÐ UM JÓLIN
Gistideild hótelsins er opin alla dagana og
veitingasalir sem hér segir:
BLÓMASALUR
Þorláksmessa 18-22
Aðfangadagur 18-20
Jóladagur 18-20
2. jóladagur 18-22
Gamlársdagur 18-20
Nýársdagur 18-22
LÓNIÐ
Þorláksmessa 5-17
Aðfangadagur 5-14:30
Jóladagur 8-14:30
2. jóladagur 5-17
Gamlársdagur 5-14:30
Nýársdagur 8-14:30
Gistideild hótelsins verður lokuð
frá 20. desember til 2. janúar 1992
Veitingahúsið Lauga-ás og Esjubarinn verður lokað
yfir hátíðisdagana en opið eins og venjulega aðra
daga eða frá kl. 11:30-22
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR