Morgunblaðið - 24.12.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
41
Haldið upp á 20 ára af-
mæli Kirkj ubæj arskóla
Kirkjubæjarklaustri.
í HAUST var haldið upp á 20
ára afmæli Kirkjubæjarskóla á
Síðu. Öllum fyrrverandi og nú-
verandi starfsmönnum og nem-
endum var boðið til kaffisamsæt-
is þar sem ávörp voru flutt og
auk þess var í skólanum mynda-
sýning, svipmyndir úr myndlist
til sýningar.
Kirkjubæjarskóli, eins og margir
Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir
Gestur skoðar svipmyndir úr
skólastarfinu í 20 ár.
aðrir skólar á landinu, var lengi í
byggingu. Þegar hann var vígður
haustið 1971 var fullbyggð mötu-
neytis- og heimavistarálma og
kennt í bráðabirgðakennslustofum.
Síðar voru byggðar kennslustofur
og kennarastofa og síðasti áfanginn
var bókasafnsbygging sem tekin
var í notkun 1988. Nú er unnið að
framkvæmdum við skólalóð, kostn-
aðaráætlun þar að lútandi rúmlega
4 milljónir, lokið verður við þá fram-
kvæmd í júní á næsta ári.
NÞað sem helst vantar nú er
kennslustofa fyrir srníðar en auk
þess er ekkert íþróttahús við skól-
ann, íþróttir eru kenndar í félags-
heimili og í sundlaug skólans.
Nú eru 93 nemendur í skólanum
og starfsmenn eru samtals 18, þar
af 11 kennarar. Auk þess er að
hluta til tengd skólanum deild úr
Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fisk-
eldisdeild þar sem eru 14 nemendur.
Kirkjubæjarskóli er allt í senn,
heimavistar-, heimanaksturs- og
heimagönguskóli og er grunnskóli
nemenda úr Skaftárhreppi sem er
byggðin milli Mýrdalssands og
Skeiðarársands.
H.H.
Frá útskrift stúdenta við Fjölbrautaskólann við Ármúla.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla:
Fyrstu sjúkraliðarnir útskrifast
Dengsi færgull
Piatan „Jólaball með Dengsa og félögum" hefur fengið gull, þ.e. selzt
í 3.000 eintökum. Á meðfylgjaldi mynd hefur Halldór Bachmann
markaðsstjóri Skífunnar hf. afhent þeim Björgvini Halldórssyni, Yil-
hjálmi Guðjónssyni og Þórhalli Sigurðssyni hverjum sína gullplötu,
og tveimur hinum fyrstnefndu fyrir sinn þátt í plötunni. Með þeim
á myndinni er Bjarni Dagur Jónsson, þar sem afhendingin fór fram
í beinni útsendingu á Bylgjunni.
LAUGARDAGINN 21. desember voru nemendur brautskráðir frá
Fjölbrautaskólanum við Ármúla við hátíðlega athöfn í Langholts-
kirkju. Þrír luku verslunarprófi, tíu luku sjúkraliðaprófi, hinir
fyrstu frá skólanum, og þrjátíu og tveir luku stúdentsprófi, flestir
af félagsfræðibraut.
Hafsteinn Þ. Stefánsson skóla-
meistari setti athöfnina og stjórn-
aði henni. í ræðu sinni vék hann
að stöðu skólans, en hann er 10
ára um þessar mundir. Skólinn var
formlega stofnaður 7. september
1981 er borgarstjórinn í Reykjavík
og menntamálaráðherra undirrit-
uðu samning um reksturinn. Af-
mælisins var minnst með veglegri
veislu í haust, en íleira er á döf-
inni á bak jólum.
Sérhæfing Fjölbrautaskólans við
Ármúla er á heilbrigðissviði. í des-
ember luku námi fyrstu nemend-
urnir á braut fyrir aðstoðarfólk
tannlækna, og fara þeir í starfs-
þjálfun hjá tannlæknadeild Há-
skóla íslands eftir áramót. Fyrstu
sjúkraliðarnir luku prófi að þessu
sinni, og eftir áramót verður nám-
skeið í handlæknishjúkrun fyrir
sjúkraliða, en skólinn hefur tekið
að sér að annast framhaldsmennt-
un fyrir þessa stétt. í febrúar verð-
ur síðan haldið námskeið fyrir
læknaritara, og að því loknu fá
þeir löggildingu ráðuneytis til
starfa.
Að venju veitti skólinn viður-
kenningu þeim nemendum, sem
fram úr sköruðu í námi. Á náms-
braut fyrir sjúkraliða fengu Björg
Kristjánsdóttir og Sveinbjörg
Steinþórsdóttir bókaverðlaun fyrir
góða kunnáttu í hjúkrunargrein-
um. Dux scholae varð Sólrún Birg-
isdóttir, sem lauk stúdentsprófi af
íþróttabraut. Hún hlaut auk þess
sérstök verðlaun fyrir þýskukunn-
áttu. Auk þess hlutu eftirtaldir
Lögreglustöðin í Grindavík í nýju húsnæði.
Grindavik:
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Lögreg'lan í nýtt húsnæði
Nýtt símanúmer tekið í notkun
Grindavík.
LöGREGLAN í Grindavík flutti
nýlega í nýtt húsnæði við Víkur-
braut 25 þar sem áður var Lands-
banki Islands. Með flutningunum
batnar öll aðstaða lögreglunnar
til muna. Þeir fá einnig nýtt síma-
númer sem verður 67777.
„Það má segja að það verði nán-
ast bylting hvað varðar starfsað-
stöðu. I staðinn fyrir að vera nán-
ast í einu herbergi fá lögreglumenn
starfsaðstöðu og varðstjórarnir fá
sérherbergi og ég fæ séraðstöðu,"
sagði Sigurður M. Ágústsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn við Morg-
unblaðið í tilefni tímamótanna.
„Við fáum fangahús en gamla
fangahúsið hefur verið lokað und-
anfarin 2 ár og við þurft að aka
með fanga til Keflavíkur um 25
kílómetra leið. Öll tæki eru betri á
nýja staðnum og við erum sem óð-
asf að fá ný öryggistæki þannig
að þessi breyting eykur öryggi
bæjarbúa. Nýtt símanúmer í staf-
rænu stöðinni hefur það í för með
sér að það tekur mun skemmri tíma
á ná í bakvaktarmann en það gat
tekið nokkurn tíma áður og varð
oft til þess að menn náðu ekki til
lögreglunnar. Almannavarnanefnd
Grindavíkur fær glæsilega stjórn-
unaraðstöðu á efri hæð hússins sem
var nánast engin áður. Með því að
skrifstofa bæjarfógeta flyst á efri
hæð hússins losnar fólk einnig við
að ganga í gegnum lögreglustöðina
til að komast þangað og lögreglu-
menn sem áður geymdu allan fatn-
að sinn á biðstofu bæjarfógeta fá
fataklefa og geymslu. Öll aðstaða
til hreinlætis batnar einnig með
þessari nýju stöð.“
Stöðin er öll hin glæsilegasta og
víst bregður lögreglumönnum við
að komast úr gömlu stöðinni sem
var bæði þröng og lítil. Sigurður
vildi undirstrika að menn notuðu
nýja númerið sem lögreglan fær,
67777.
- FÓ
Myndabrengl
Með pistli Gunnars Hersveins,
Er vit í lífinu, birtist mynd af nafna
hans Bragasyni. Eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar.
Ekið á kyrr-
stæðan bíl
við Kringluna
EKIÐ var á kyrrstæðan bíl af
gerðinni Daihatsu Charade fyr-
ir utan veitingastaðinn Kvikk í
Kringlunni í gær á tímabilinu
12.30-13. Bíllinn er stór-
skemmdur á hlið farþegameg-
inn.
Bíllinn er nýr, rauður að lit,
með skráningarnúmerið PT-350.
Sá er skaðanum olli hvarf af vett-
vangi, en lögreglan telur líklegt
að jeppi hafi valdið tjóninu. Marg-
ir voru á ferli um þetta leyti við
Kringluna og biður lögreglan þá
er hafa orðið vitni að atvikinu að
hafa samband.
----♦ ♦ ♦--
Leiðrétting
I frétt Morgunblaðsins á sunnudag-
inn þar sem fjallað var um ráðningu
Arnars Páls Haukssonar til Ruvak
var foiveri hans í starfi þar nyrðra
rangfeðraður. Hann var sagður
heita Kristján Sigmundsson, en hið
rétta er að hann heitir Kristján Sig-
uijónsson og leiðréttist það hér með
og er beðist velvirðingar á mistök-
unum.
nemendur viðurkenningu fyrir
góða kunnáttu í einstökum grein-
um: Bryndís Jóna Jónsdóttir í fé-
lagsgreinum, Guðbjörg Kr. Bárð-
ardóttir í íslensku, Samúel Hinriks-
son í viðskiptagreinum, Ásrún Jó-
hannsdóttir í stærðfræði, frönsku
og ensku, og Jónas G. Allansson
fékk bókargjöf fyrir framlag sitt
til félagsmála nemenda.
Kertasníkir.
Kertasníkir
kemurídag
Þrettándi og síðasti jóla-
sveinninn, Kertasníkir, kemur
í Þjóðminjasafnið í dag, að-
fangadag, kl. 11.
Kjaradeila mjólk-
urfræðinga:
Verkfall hefst
á miðnætti
27. desember
VERKFALL nijólkurfræðinga
hefst á miðnætti föstudaginn 27.
desember, hafi samningar ekki
tekist fyrir þann tíma, og stendur
yfir áramótin til miðnættis
fimmtudaginn 2. janúar.
Samninganefndir aðila hafa ekki
fundað undanfarna daga eftir að
upp úr slitnaði á síðasta á fundi. 4
Gert er ráð fyrir fundi næst seinni-
part föstudagsins og á þá að reyna
til þrautar að ná samkomulagi áður
en verkfall skellur á.