Morgunblaðið - 24.12.1991, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
J ólaskákþrautir
__________Skák____________
Margeir Pétursson
ÞRAUTIRNAR í ár eru jafnari
en oft áður, það er ekki hlaupið
að því að leysa neina þeirra, en
engin ætti heldur að vera of erf-
ið. Skákdæmagerð er ævaforn
listgrein, sennilega hefur ekki
liðið langur timi frá þvi að tafl-
reglur mótuðust endanlega þar
til menn fóru að sjá óvenjulega
og listræna möguleika sem gætu
komið upp í taflinu. Elstu skák-
dæmi sem hafa varðveist eru
arabísk frá níundu öld. Ráðning
skákdæma hefur síðan verið
nokkuð vinsæl dægradvöl. Eftir
marga beztu skákmenn á 18. og
19. öld liggja ekki aðeins glæstar
sigurskákir heldur líka mörg
lagleg skákdæmi.
I þessu efni vorum við íslending-
ar nokkuð á eftir öðrum þjóðum,
það eru ekki nema rúm hundrað
ár síðan fyrst birtist skákdæmi á
prenti í íslensku blaði. Það var í
Fjallkonunni 10. janúar 1888. Síðan
hafa nokkrir íslendingar fengist við
að semja þrautir, en þessi grein
hefur þó ekki fest nærri eins miklar
rætur hér og í öðrum Evrópulönd-
um, þar sem iðulega eru haldnar
keppnir um það hver semur bezta
og frumlegasta dæmið.
Hannes Þórður Hafstein (1908-
1933) var einn fremsti skákmaður
landsins um 1930 og fékkst mikið
við gerð skákdæma, sem voru birt
í íslenskum og sænskum blöðum.
Hannes lést komungur úr berklum.
Sigurbjörn Sveinsson, rithöfundur
(1878-1951), fékkst nokkuð við
skákdæmagerð. Fyrsta jólaskák-
þrautin að sinni er eftir hann og
tekin upp úr litlu kveri með 64
þrautum hans, sem er fáanlegt í
Skákhúsinu við Hlemmtorg. Til að
geta leyst þetta dæmi Sigurbjörns
þarf að átta sig á samspili drottn-
ingar og biskupa á skálínum.
Næsta dæmi er eftir hinn fræga
bandaríska skákdæmahöfund Sam
Lloyd (1841-1911). Það var birt í
Boston Gazette árið 1858, þegar
höfundurinn var aðeins 18 ára.
Frábært dæmi, sem sýnir vel hæfi-
leika höfundarins strax í æsku.
Þriðja þrautin er eftir þekkta
rússneska höfunda, hún vann til
annarra verðlauna á öðru skák-
dæmaþingi Sovétríkjanna 1947-48.
Það þarf ekki flóknar stöður til
að þrautir verði skemmtilegar og
jafnvel í peðsendatöflum má finna
margan óvæntan hnykkinn. Fjórða
dæmið gæti hæglega komið upp í
tefldri skák.
í því fimmta er hvítur miklu liði
undir, en á samt afar skemmtilega
leið til þess að bjarga sér í jafntefli.
Hið sjötta er eitt af frægastu
dæmum sovézka verkfræðingsins
Henriks M. Kasparjan (f. 1910),
en hann er geysilega afkastamikill
og fær tafllokahöfundur, sem gefíð
hefur út fjölda bóka. Dæmi hans
koma oft mjög á óvart, svo sem
þetta, þar sem hvítur getur unnið
þótt svarta a-peðið eigi aðeins einn
reit eftir upp í borð. Vafalaust er
þetta erfiðasta dæmið að sinni.
Lausnirnar birtast fljótlega eftir
jól.
GLEÐILEG JOL!
1. Höf. Sigurbjörn Sveinsson
Hvítur mátar í öðrum leik.
2. Höf. Samuel Lloyd, 1859
Hvítur mátar í öðrum leik.
3. Höf. R. Kofman og L. Losh- 5. Höf. F. Amelung 1904.
insky 1947.
Hvítur mátar í öðrum leik.
Hvítur leikur og heldur jafntefli.
4. Höf. Cortlever 1940.
6. Höf. H.M. Kasparjan.
Hvítur leikur og vinnur.
Hvítur leikur og vinnur.
Heimildir: Dr. Ingimar Jónsson: Alfræðibókin um skák, A- Ö,
Reykjavík 1988, ýmsir sovézkir höfundar: Sjakhmatní enzyklope-
dísjevskí slovarj, Moskva 1990, ýmsir höfundar: Alfræðibókin um
endatöfl, 1. bindi, Belgrad 1982, ýmsir sovéskir höfundar: Izbranníe
kompósitsí, Moskva 1985, I. Rozenfeld: Male-etuiidid, Tallinn 1981,
og 64 skákdæmi eftir Sigurbjörn Sveinsson, Reykjavík 1977.
v
HVÍTIR HKAKKAPÚDAR
- MIKIÐ ÚRVAL
starfsgreinum!
JÓLABRIDS
______Brids_______
Guðmundur Páll Arnarson
4.)
Suður gefur; allir á hættu. Þú
ert í austur.
1.)
Suður gefur; enginn á hættu.
Þú ert í suður.
Norður
♦ D5
¥ Á10932
♦ 84
♦ 10632
II
Suður
♦ ÁD1063
V5
♦ 93
♦ KDG107
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf 1 spaði
2 tíglar 4 spaðar Allir pass
Vestur kemur út með lauffimmu.
Austur tekur á ásinn og skiptir yfir
í tígul. Makker hans drepur á ás
og spilar aftur tígii sem austur
trompar.. Spilar svo laufi og véstur
fylgir lit með fimmu.
Þitt er að taka ákvörðun.
Suður
♦ ÁK7432
¥ 6
♦ D5
3.)
Suður gefur; AV á hættu.
ert í austur.
Þú
Vestur ♦ ÁD84 Norður Austur Suður Norður ♦ Á962
_ v _ " 1 spaði ¥ Á32
2 tíglar Pass Pass 2 spaðar ♦ D5
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar ♦ D1086
Pass Pass Pass
Útspil: hjartafjarki.
Hvernig viltu spila?
2.)
Norður gefur; allir á liættu. Þú
ert í suður.
Norður
♦ 9875
¥ÁG83
♦ KD7
♦ 82
Austur
,„,ll ♦KGð
VK8764
♦ K1083
♦ 9
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta'
Hass 1 spaði Pass 1 p-and
I’ass 3 grönd Allir pass
' Hugsanlega 4-litur.
Útspil: tígultvistur, 4. hæsta.
Hvernig er best að haga vörn-
inni?
Norður
♦ 106
VG84
♦ D108
♦ D10974
Austur
♦ Á52
V63
♦ KG74
♦ KG83
Vcstur Norður Austur Suður
— 1 hjarta
Pass 1 grand Pass 3 spaðar'
Pass 4 hjörtu Allir pass
6-5 skipting í hjarta og spaða.
Vestur spilar út tígulás og meiri
tígli, sem þú færð á gosann.
Hvernig viltu veijast?
5.)
Norður gefur; enginn á hættu.
Þú ert í suður.
Norður
♦ 92
V65
♦ ÁKD43
♦ ÁD54
Suður
♦ ÁD10843
¥ D43
♦ 6
♦ K73
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 1 hjarta 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Vestur kemur út með hjartatíu.
Austur tekur tvo slagi á ÁK og
spiiar þriðja hjartanu, sem vestur
trompar með sjöu.
Taktu við.
6.)
Suður gefur; allir á hættú. Þú
ert í vestur.
Vestur
♦ D2
¥ 107432
♦ 643
♦ 865
Vestur Norður Austur Suður
.1 grand*
Pass 2 lauf 2 spaðar Pass
Pass Dobl"* Pass 3 hjörtu
Pass 3 grönd Allir pass
• 12-14 IIP
" Stayman
'"Refsidobl
Hveiju spilarðu út?
M.U-B&W dísilvélar sf.
Óskum útgerðarmönnum og sjómönnum um land allt
GLEÐILEGRA JÓLA OG FENGSÆLS KOMANDI ÁRS
BARÓNSSTÍG 5. SlMAR: 11280 og 11281 - PÓSTHÓLF 683.121 REYKJAVÍK