Morgunblaðið - 24.12.1991, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
63
KNATTSPYRNA
lan Wright
í hlutverki
jólasveinsins
Gaf stuðningsmönnum Arsenal
fjögur mörk íjólagjöf á Highbury
Frá
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
IAN Wright, miðherji Arsenal,
var í sviðsljósinu í Englandi um
helgina. Hann missti af síðustu
fimm leikjum Arsenal vegna
meiðsla en kom, sá og sigraði
á laugardaginn og gerði öll
mörk Arsenal í 4:2 sigri gegn
Everton á Highbury. „Ég hefði
hugsanlega gert sex mörk, ef
ég hefði verið búinn að ná mér
100°/o. Ég var ekki alveg eins
og ég á að mér, en mörkin
skyggðu á mistökin," sagði
Wright.
lllfright, sem er 28 ára og var
keyptur til Arsenal fyrir
tveimur mánuðum, er markahæstur
hjá Arsenal í deild
og bikar með 18
mörk, en hefur ekki
áður gert fjögur
mörk í leik. Svíinn
Anders Limpar lagði upp þijú mark-
anna og Wright var réttur maður
á réttum stað inní í markteig mót-
heijanna, en var eini leikmaðurinn,
sem var bókaður á Highbury.
„Hann átti ekki skilið að fá
spjald,“ sagði George Graham.
„Hann er ákafur og verður að læra
að temja skapið, en það má ekki
verða á kostnað baráttunnar.“
Howard Kendall hrósaði Wright
og vildi ekki kenna varnarmönnum
sínum um hvernig fór. „Það er hins
vegar svekkjandi að gera tvö mörk
á Highbury, en tapa samt.“
Óbreytt á toppnum
Leik Manchester United og
Aston Villa var frestað vegna mikil
vatnselgs á Old Trafford, en Leeds
náði aðeins markalausu jafntefli í
Nottingham og missti af tækifær-
inu til að ná efsta sætinu — United
er með betri markatölu og á auk
þess tvo leiki til góða. Leeds var
meira með boltann gegn Forest án
þess samt að skapa sér hættuleg
marktækifæri, en heimamenn
fengu þijú góð færi.
Sheffield Wednesday vann
Wimbledon 2:0 og er áfram í þriðja
sæti. Veðrið var leiðinlegt í
Sheffield og hafði það mikil áhrif
á viðureignina, en John Sheridan
tryggði heimamönnum sigur með
tveimur mörkum eftir hlé.
Liverpool skipti um gír um miðja
síðustu viku og virtist til alls líklegt
eftir góðan leik og sigur gegn Tott-
enham, en leikmennirnir nær brot-
lentu á Anfield, þar sem þeir gerðu
2:2 jafntefli við Manchester City.
Graeme Souness var enda óhress.
„Ég er óánægður með úrslitin og
frammistöðu manna minna. Sumir
leikmannanna virðast hafa trúað
því, sem stóð í blöðunum fyrir leik-
inn. Leikmenn City komu hins veg-
ar hingað með réttu hugarfari,
börðust vel og áttu stigið svo sann-
arlega skilið."
Allen á réttum stað
Clive Allen, sem var keyptur til
Chelsea frá Manchester City fyrir
þremur vikum, þakkaði fyrir flutn-
inginn og gerði tvö mörk í 4:2 sigri
gegn Oldham. Ian Porterfield sagði
að Allen væri loks kominn heim og
þar kynni hann best við sig. „Hann
getur gert fyrir okkur það sem John
Aldridge hefur verið að gera hjá
Tranmere Rovers."
Allen sagði að gott væri að leika
frammi með Terry Dixon. „Terry
sagði mér að strákamir sköpuðu
ávallt mörg marktækifæri og eftir
því sem við leikum meira saman
verður skilningurinn meiri.“
Dennis Bailey var hetja QPR
aðra helgina í röð. Fyrir rúmri viku
tryggði hann QPR jafntefli gegn
Manchester City með marki á 88.
mínútu, en nú skoraði hann á 90.
mínútu gegn Norwich og var það
eina mark leiksins. Lánið lék hins
vegar ekki við Norwich. Leikmenn
liðsins hreinlega óðu í færum og fór
þar Darren Beckford fremstur í
flokki. „Við getum engum nema
sjálfum okkur um kennt,“ sagði
Dave Stringer. QPR gaf okkur rot-
höggið á síðustu mínútu.“ Francis
var hins vegar ánægður með strák-
ana sína. „Ég hef verið að beijast
við að ná þessum stöðugleika viku
eftir viku og við sáum góða knatt-
spyrnu að þessu sinni.“
West ham og Sheffield United
gerðu 1:1 jafntefli í London. United
hefur ekki sigrað á Upton Park í
17 ár og eftir að fyrirliðanum Brian
Gayle hafði verið vikið af velli á
66. mínútu drógu gestirnir sig aftur
og ætluðu að halda fengnum hlut.
Samt náðu þeir að skora, þegar sex
mínútur voru til leiksloka, en Julian
Dicks gerði sigurvonir þeirra að
engu þremur mínútum síðar — jafn-
aði úr vítaspyrnu.
Utafreksturinn orkaði tvímælis.
Gayle lét móðinn mása og tók dóm-
arinn blótsyrðin til sín, en fyrirliðinn
sagðist hafa verið að skammast út
í samheija. „Ég má ekkert segja,
því það getur komið mér í koll,“
sagði Dave Bassett, sem hefur kom-
ist í hann krappann vegna ummæla
um dómara.
Varamaðurinn
barg Grikkjum
|alta og Grikkland gerðu 1:1
jafntefli í Valetta á Möltu á
sunnudaginn. Þetta var síðasti leik-
urinn í 6. riðli Evrópukeppninnar.
Holland sigraði í riðlinum, Malta
var neðst með tvö stig, en Grikk-
land, sem er í sama riðli og ísland
í undankeppni HM, var í þriðja sæti.
Malta var á góðri leið með að
sigra eftir að Stefan Sultana hafði
notfæit sér mistök Georgis Plitsis,
markvarðar Grikkja, og skorað á
42. mínútu. Grikkir voru án nok-
kurra lykilmanna, en Georgis Mar-
inakis kom inná sem varamaður hjá
Grikkjum ogjafnaði 1:1 á 67. mín-
útu.
ísland og Malta léku á sama stað
í byijun maí s.l. íslenska liðið var
þá án flestra atvinnumannanna en
vann 4:0 og gerðu Rúnar Kristins-
son (2), Sigurður Grétarsson og
Andri Marteinsson mörkin.
lan Wright skoraði fjögur mörk á Highbury.
Þetta var barátta tveggja botn-
liða og Billy Bonds gerði sér grein
fyrir því. „Þetta stig getur skipt
sköpum fyrir okkur í vor. Við erum
í fallbaráttu, en ég verð fyrst að
selja menn áður en ég get farið að
hugsa um að styrkja West Ham lið-
ið.“
Gary Lineker, fyrirliði enska
landsliðsins, lék á ný með Guðna
Bergssyni og smaheijum í Totten-
ham eftir að hafa misst af fjórum
leikjum vegna veikinda nýfædds
sonar. Markahæsti leikmaðurinn í
Englandi gerði annað mark Spurs
í 2:1 sigri gegn Crystal Palace.
Papin knattspymu'
maður Evrópu
Crakkinn Jean-Pierre Papin,
■ sem leikur með Marseille, var
á sunnudaginn útnefndur Knatt-
spyrnumaður Evrópu 1991. Hann
er þriðji Frakkinn sem er þessa
heiðurs aðnjótandi. Áður höfðu
þeir Raymond Kopa og Michel
Platini borið nafnbótina.
Papin fékk 141 stig, en þrír
leikmenn komu síðan með 42 stig.
Lothar Matthaus, sem var knatt-
spyrnumaðir ársins 1990 og Júgó-
slavarnir Darko Pancev og Dejan
Savisevic. Þriðji Júgóslavinn, Ro-
berto Prosinecki, varð í fimmta
sæti með 34 stig.
Papin er 28 ára. Hann hefur
skorað 124 deildarmörk fyrir
Marseille síðan hann byrjaði að
leika með félaginu 1986.
Jean-Pierre Papin.
LYFTINGAR
ÆT
Islandsmet Þorsteins
Þorsteinn Leifsson, KR, bætti átta ára gamalt met Baldurs Bergþói'sson
ar í snörun um hálft kg um helgina. Keppt var í ólympískum lyfting
um í líkamsræktarstöðinni Kjörgarði og snaraði Þorsteinn 150,5 kg.
samanlögðu (snörun og jafnhendingu) lyfti Baldur 337,5 kg, sem er einn
ig met, en met Guðmundar Sigurðssonar hafði staðið í u.þ.b. 15 ár.
Árangur Þorsteins hefði nægt í 9. sæti á HM í Þýskalandi fyrir skömmu
og ei' 7,5 kg yfír lágmarkinu, sem Alþjóða ólympíunefndin setti vegna ÓL
í Barcelona.
Frá
Bob
Hennessy
iEnglandi
Mxm
FOLK
DAVID Whiíe gerði bæði mörk
Manchester City í 2:2 jafnteflinu
gegn Liverpool. White gerði líka
tvö mörk í fyrri leik liðanna, en þá
sigraði City á Main
Road. Liðinu hefur
hins vegar ekki
gengið eins vel á
Anfield og hefur^
ekki sigrað þar í áratug.
IAN Wright er fjórði leikmað-
urinn í Englandi til að gera ijögur
mörk í leik á tímabilinu. Hinir eru
Gary Lineker hjá Spurs, Doncan
Shearer með Swindon og Steve
Moran, leikmaður Exeter. Wright
hefur áður verið með þrennu í vetur.
M MO Johnston lék þriðja leik
sinn fyrir Everton og skoraði ann-
að mark sitt fyrir félagið.
■ ARSENAL tapaði einum leik í
fyrra og fékk þá á sig 18 mörk.
Meistararnir hafa nú gert 39 mörk,
en fengið á sig 26.
■ VINNIE Jones var í jólaskapi
fyrir leik Chelsea og Oldham.
Hann hitaði upp með jólasveinahú^.
á höfðinu og var með rautt trúðs-
nef utan um sitt eigið.
■ PAUL Davis hefur farið fram
á að verða seldur frá Arsenal, þar
sem hann byijaði 14 ára gamall.
Davis fékk ijáröflunarleik fyrr- á
árinu og runnu um 15 millj. ÍSK í
hans hlut, en hann er óánægður
með að vera lengst af á bekknum.
George Graham var allt annað en
kátur við tíðindin, sagði að tveir
miðjumenn [Sigurður Jónsson og
Michael Thomas] væru þegar
farnir og Davis færi hvergi encSh-
samningsbundinn.
■ TREVOR Steven hefur átt er-
fitt uppdráttar hjá Marseille í
Frakklandi og er á heimleið, en
hann var keyptur fyrir um 550
millj. ÍSK frá Glasgow Rangers
fyrir fimm mánuðum. Graeme Sou-
ness keypti hann til Rangers og
vill fá hann til Liverpool, en
Rangers hefur einnig áhuga.
Steven er tilbúinn að fara aftur til
Skotlands ef samningar nást, en
hann á hús í Edinborg og annað
í Liverpool.
■ STEVEN lækkar töluvert í
launum við að fara aftur til Bret-
lands. Vikulaun hans nú eru um ,
1,4 millj. ÍSK. ^ '
■ CHRIS Wncldlc gengur hins
vegar betur hjá Marseille og gerði
eitt mark í 5:0 sigri gegn Caen á
laugardaginn.
■ NEIL Ruddock var rekinn af
velii á síðustu mínútu, þegar Sout-
hampton og Notts County gerðu
1:1 jafntefli. Þetta er í annað sinn
í vetur, sem þessi varnarmaður
Southampton fær að sjá rauða
spjaldið.
H IAIN Dowie skoraði loks fyrir
Southampton, en hann var keyptur
frá West Ham í ágúst svL
■ MICK Hnrford tryggði Luton
fyrsta sigurinn í 15 leikjum og gerði
sjötta mark sitt á tímabilinu í 1-0
sigri gegn Coventry.
■ STUÐNINGSMENN knatt-
spyrnufélaganna í Bretlandi hafa
um annað að hugsa en knattspyrnu
síðustu helgi fyrir jól. Því voru
margir fegnir slæma veðrinu, sem
varð til þess að fresta þurfti 23
leikjum,
■ JAN Stejskal, markvörðurinn
tékkneski hjá QPR, hefur haldið
hreinu í þremur síðustu leikjum.
Hann gengur nú undir nafninu óút-
fylltur Tékki!
Iþróttir 27. des.
HANDKNATTLEIKUR
Landsleikur:
Akureyri, ísland - Rússland.kl. 20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Landsleikur:
Keflavik, ísland - Pólland.kl. 20
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Jólamót Fijálsíþróttaráðs Reykjavík-
ur verður haldið í Baldui'shaga undir
stúku í Laugardal 27. desember kl.
17 til 20. Keppt verður í karla- og
kvennaflokki 150 m gr., 50 m hlaupi,
hástökki, langstökki og þrístökki.