Morgunblaðið - 25.01.1992, Page 15

Morgunblaðið - 25.01.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992 15 Herbert Guðmundsson „Einangrunarstefna meirihluta stjórnar Fé- lags íslenskra stór- kaupmanna innan heildarsamtaka við- skiptalífsins og út á við er í raun ekkert annað en tilraun til þess að drepa íslenskt viðskipt- alíf í dróma (stinga hausnum í sandinn) og að fremja harakiri á sinni eigin tilveru.“ kaupmenn og aðra verslunarrekend- ur í íslensku viðskiptalífí, og að út- hrópa Verslunarráð íslands sem hækju hinna stóru, sérlega þeirra sem skara fram úr í þjónusturekstri. Harakiri Þessi skyndilegu umskipti í mála- rekstri FIS innan viðskiptalífsins eiga sér ekki minna en dularfullar forsendur. Látum það vera þótt engu tauti yrði við komið í áframhaldandi sameiginlegum skrifstofurekstri VÍ og FIS. Félögin gátu þó skilið að þeim skiptum út af fyrir sig. Hver er þá ástæðan, sú raunverulega, fyrir framferði meirihluta stjórnar FÍS síðustu mánuði? Ekki er nóg með að núverandi formaður FÍS hafi legið óþreytandi í því síðan í sumar að skilgreina Verslunarráð íslands opinberlega sem ófreskju í garð íslenskrar versl- unar, heldur hefur hann líka stjórnað skipulegri atlögu að Verslunarráðinu með tilmælum um úrsagnir félags- manna þess, jafnvel með sameigin- legum texta og á úrsagnarlista, af- hentum af starfsmanni FÍS. í þessum darraðardansi hefur Verslunarráðinu verið lýst sem óvini verslunarinnar, ofurseldu stórfyrir- tækjum og einkum stórum þjónustu- fyrirtækjum, sem beita afli sínu inn- an VÍ. Tæplega hefur Verslunarráð- inu oft verið lýst fyrr jafn ranglega og ódrengilega frá upphafí, fyrir 75 árum til nútímans. Og hvers kyns er þessi aðför svo eiginlega? Ráðandi forysta Félags íslenskra stórkaupmkanna ræðst upp úr rekstrarlegum vandamálum að samstarfsaðila sínum og megin- málsvara íslensks viðskiptalífs, Verslunarráðinu. í 19 manna stjórn Verslunarráðsins sitja 6 félagsmann FÍS. Og í 5 manna framkvæmd- stjórn Verslunarráðsins sitja 3 fé- lagsmenn FÍS, undir forystu félags- manna í FÍS sem jafnframt er for- maður VÍ. Á næsta tveggja ára tímabili á undan voru bæði formaður og vara- formaður Verslunarráðsins jafn- framt félagar í FÍS. í áratug hefur afl atkvæða innan Verslunarráðsins ekki ráðið neinu nema um stjórnarkjör. Og sagan sýnir að þeir sem hafa sóst af verð- leikum eftir stjórnarsestu hafa náð kjöri og áhrifum, án valdbeitingar af nokkru tagi. Stórkaupmenn, kaupmenn, framleiðendur af öllum toga og aðilar að þjónustu, hafa mótað sameiginlega stefnu og störf Verslunarráðsins, og notið þjónustu þess inn á við og út á við. Verslunar- ráðið hefur þannig þjónað tilgangi sínum í áranna rás, í þágu frjálsra og heilbrigðra viðskipta á öllum svið- um íslensks viðskiptalífs, enda er það tilgangur þess og lífsafl. Það er vitanlega hörmulegt að meirihluti kjörinna forystu eins máttarstólpa félagasamtaka í við- skiptalífinu, við hlið Verslunarráðs- ins og innan þess, rói nú öllum árum að því að ófrægja það, ófrægja eigin félagsmenn í forystu þess, og draga um leið værðarvoð yfír knýjandi, sameiginleg viðfangefni. Einangrunarstefna meirihluta stjórnar Félags íslenskra stórkaup- manna innan heildarsanitaka við- skiptalífsins og út á við er í raun ekkert annað en tilraun til þess að drepa íslenskt viðskiptalíf í dróma (stinga hausnum í sandinn) og að fremja harakiri á sinni eigin tilveru. Höfundur er félagsmálastjóri Verslunarráðs íslands. Ásgrímssafn: Breytingar á sýningartíma SAFN Ásgríms Jónssonar hefur verið lokað í desember og verður lokað í janúar. Frá 1. febrúar verður safnið hins vegar opið á laugardögum og sunnudögum frá klukkan 13 til 16, en hópar, sem óska eftir að koma á öðrum tíma, geta haft samband við safn- vörð. í vetur verður sýning á ævintýra- og þjóðsagnamyndum. eftir Ásgrím Jónsson í safni hans að Bergstaða- stræti 74. Við val verka á sýning- una var m.a. haft í huga að börn gætu haft gagn og gaman af henni. ---------«------ Leiðrétting Nokkrar villur slæddust inn í frétt, sem birtist á miðsíðu Morgunblaðs- ins í gær, þar sem skýrt var frá stofnun íslenskrar verslunar. Þar átti að standa að Kristján Einarsson væri stjómarmaður fýrir Rekstrar- vörur, en ekki Heklu hf. Því er hann fulltrúi FÍS, en ekki BGS. Þá féll niður nafn Ragnars Ragnars- sonar frá Jöfri hf. en hann er full- trúi BGS og nafn Sigfúsar Sigfús- sonar fará Heklu, sem einnig er fulltrúi frá BGS. ♦ ♦ ♦-- ■ SOVÉSK verðlaunamynd frá árinu 1977 verður sýnd í bíósal MIR, Vatnsstíg 10, nk. sunnudag 26. janúar kl. 16. Þetta er myndin Uppgangan sem gerð var undir stjórn Larissu Shepitko. Kvik- myndin lýsir atburðum sem gerðust í skóglendi Hvíta-Rússlands fyrir réttum 50 árum, veturinn 1942. Hópur skæruliða hefur orðið að leita langt inn í skóginn ásamt fjölskyld- um sínum undan hersveitum Þjóð- veija. Vetrarhörkur eru miklar og vistir á þrotum. Tveir karlmenn úr hópnum eru sendir eftir mat. Fylgst er með ferð mannanna í hörku- frosti og ófærð og hvernig þeir bregðast misjafnlega við því sem að höndum ber, annar vinnur hetju- dáð sem kostar hann lífið, hinn gerist svikari og bindur enda á eig- ið líf. Rússneskt tal, enskur texti. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. KAUPIN í grillsteikum Nautasteik...........kr. 790,- m/bak. kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati Lambagrillsteik......kr. 790,- m/sama Svínagrillsteik......kr. 760,- m/sama ÚTSALA - ÚTSALA Stórkostlegt úrval af stökum teppum og mottum Sérverslun með mottur og teppi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.