Morgunblaðið - 25.01.1992, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANUAR 1992
31
Dulitlir nýársþankar um
nýlist, listfræðinga o.fi.
eftir Guðmund
Guðmundarson
Þögnin getur stundum verið býsna
hávær. Sýning á verkum Sigurðar
Guðmundssonar í Listasafni Islands
var og er talin mikill listviðburður.
Bragi Ásgeirsson — sá slyngi gagn-
rýnandi og myndlistarmaður — skrif-
aði heila síðu í Morgunblaðið, án
þess að dæma nokkurt einstakt verk.
Þegar maðui- hafði skoðað hug-
ljúfa sýningu á myndlist Muggs á
1. hæð (26.000 gestir) munu flestir
hafa gengið upp á efri hæðina, þar
sem var sýning á ljósmyndaverkum
hins mikla frægðarmanns Sigurðar
Guðmundssonar. Á önnur verk Sig-
urðar legg ég engan dóm. Þau eru
hafin upp til skýjanna af ýmsum.
Um leið og gengið var inn í salinn
trónaði á miðju gólfi mikil ljósmynd
í svörtum, þykkum ramma. Ég ætl-
aði varla að trúa eigin augum, þegar
við mér blasti mynd af séníinu sjálfu,
þar sem það sat á klósetti með allt
á hælunum — að mér fannst furðu
glaðbeitt á svipinn miðað við aðstæð-
ur — eins og það vildi segja: Já, bless-
uð gjörið svo vel, þótt ég sé dálítið
vant við látinn á klóinu í augnablik-
inu, en hér eru líka margar fleiri
markverðar uppstillingar — allar af
mér sjálfum að sjálfsögðu. Já, já,
blessuð skoðið ykkur um og verið
velkomin! Gaman, gaman.
Ég sé ekki ástæðu til að ljalla
mikið um hinar ljósmyndirnar en þar
gat að líta séníið með þvotta-
klemmu á nefinu, sem vafalaust er
mjög frumlegt og á öðrum stað var
mynd með texta: „Að hringja í Önnu
og pissa í könnu“. Sigurður hélt á
símtólinu upp að eyranu með vinstri
hendi og hlandkannan var einnig
rétt staðsett í hægri hendi.
Á maður að falla í stafi af aðdáun
á þessum listaverkum eða er verið
að hafa sýningargesti að fíflum?
Þegar þessir dularfulli listamaður
kýs að beita hæfileikum sínum með
þessum hætti, þorir enginn svo mik-
ið sem að hósta!
Grafarþögn listfræðinganna verð-
ur býsna hávær.
En þarna töluðu ljósmynda-lista-
verkin sjálf sínu máli og margir höfðu
ekki við að trúa að þama væri falinn
vonarneisti nýrrar listsköpunar.
Það er hins vegar staðreynd að
alls konar nýlist er látin blómstra í
Listasafni íslands og mörgum gleym-
ist ekki ræfilslegt strauborð með
drulluskítugu áklæði og neon-lampa
til að lýsa herlegheitin, svo allt njóti
sín sem best. Það er í felum eins og
stendur en prísinn var mjög hár eins
og sönnu nýlistarverki sæmdi!
Kjarvalsstaðafælni
Á sl. ári gustaði all mjög um Kjar-
valsstaði, vegna ofdekurs við nýlist-
ina. Þegar Yoko Ono fékk geysilega
aðsókn (með allt sitt vafasama drasl),
vegna fjölmiðlagauragangs og áhuga
á popp-goðinu Lennon, þá gerðist
það að mjög margir sýningargestir,
sem voru talsvert á þriðja tug þús-
unda, fengu víst eins konar aðkenn-
ingu að andlegu ofnæmi fyrir nýlist-
inni, sem kalla mætti Kjarvalsstaða-
fælni og láta ekki plata sig þangað
auðveldlega.
Aðsóknin hrundi rækilega, þegar
pökkunarmeistarinn mikli Christo
sýndi 12 skítugar og ryðgaðar olíu-
tunnur og fjórar innpakkaðar ásamt
ljósmyndum af alls konar listaverk-
um. Þetta var talinn heimsviðburður!
Guðmundur Guðmundarson
„Eg hef heyrt og lesið
um að hámenntaðir list-
fræðingar í Skandinav-
íu séu að gera ýmsar
þekktar sýningarhallir
að eins konar nýlistar-
grafhýsum með hrun-
inn fjárhag og aðsókn
nálægt núllinu. Nú er
þessi flensa farin að
grassera hér.“
Það væri full ástæða til að óska
eftir stuttri greinargerð um sýningu
Kjarvalsstaða 1991 um aðsókn, tekj-
ur og gjöld á einstakar sýningar.
Ekkert pukur! Spilin á borðið!
Nýlega var svo ívari Valgarðs-
syni, sem er víst óumdeilt séní í ný-
listinni, boðið að sýna í aðalsalnum
og var það að sjálfsögðu rökrétt
framhald þeirrar lönguvitleysu ný-
listar, sem þarna virðist sífellt á boð-
stólum. Hann stundar svokallaða
„naumhyggju" og lét hann sér nægja
að stafla upp á miðju gólfi gangstétt-
arhellum, nokkrum gulum málning-
ardósum og hlaða upp við vegg timb-
ur-battningum. Listaverkin „voru
knöpp í einfaldleik sfnum og féllu
vel að umgjörð sinni“, að sögn list-
fræðinga. Enn glutraðist aðsóknin
niður á neðsta þrep, enda skilst mér
að listfræðingar telji, að sýning-
argestir þurfi að fara á námskeið til
að geta skilið marga þá undramenn,
sem gista einna mest Kjarvalsstaði
á síðustu tímum. Því miður óttast
ég að slík námskeið yrðu ekki fjöl-
sótt fremur en sýningamar.
Hins vegar er það stóralvarlegt
mál að Kjarvalsstaðafælni er orðin
grasserandi meðal almennings.
Um listfræðinga o.fl.
Þar sem ég hef ekki vit á mynd-
list umfram venjulegt fólk ómenntað
í þeirri grein, þá langar mig til að
vitna aðeins til tveggja óumdeildra
myndlistarmanna, sem hafa að sögn
ekki verið hallir undir neina pólitík,
rekist illa þegar menningarvitar og
listfræðingar eru annars vegar með
sína skólalærðu speki.
Fyrst Einar Hákonai-son. í gömlu
viðtali við Gísla Sigurðsson í Lesbók
og grein í Morgunblaðinu nýlega
segir m.a.:
„Þegarég var skólastjóri Handíða-
og myndlistaskólans var forskólinn
í lagi en strax á öðru ári fara nem-
endur að líta á sig sem listamenn
og ég get ekki betur séð en náminu
sé þá lokið ... átök urðu í skólann
út af því að ég vildi að nemendur
lærðu ákveðin grundvallaratriði
myndlistar. Þau átök eru venjulega
kennd við svokallaða nýlistardeild ...
Nú er þetta orðinn sandkassaleikur,
þar sem hver gerir það sem honum
sýnist og ég get ekki séð neina
ástæðu til að kosta kennara til að
líta eftir þessu föndri ... Þar að auki
eru nú sumir þeir sem eiga að heita
kennarar útskrifaðir úr nýlistardeild-
inni, þar sem öllum hefðbundnum
lærdómi var hafnað, svo þeir kunna
nú heldur lítið sjálfír. Én það fer
ugglaust vel á því að blihdur leiði
blindan ... skólinn alltof stór ogþyrfti
að sigta frá miklu fleiri á inntöku-
prófínu. Að útskrifa 40-50 nenendur
á ári er bara út í loftið. Reynslan
sýnir að af þeim eru aðeind 2 eða
3, sem ná einhveijum árangri ...
Hins vegar telja fíestir sig fulll’æra
og ýmsir hætta í námi af því þeir
telja sig fullnema og þyrftu að drífa
sig í að halda sýningu. “
Að sjálfsögðu kallar slík hrein-
skilni á hörð mótmæli og skammir,
þótt ég efíst ekki um, að hér er ver-
ið að stinga á kýli sem er enn í vexti,
án þess að menn geri sér grein fyrir
ofdekrínu við ræfíldóm og sýnd-
armennsku líkt og í ljóðagerðinni.
Að sjálfsögðu ryðjast ýmsir fram á
sviðið til að svívirða Einar fyrir hrein-
skilnina. Mér finnst full ástæða til
að þakaa honum heilshugar fyrir
holla hugvekju.
Í gamalli grein í Morgunblaðinu
segir Kjartan Guðjónsson listmálari:
„Listamenn eru tvennskonar, fjöl-
miðla-listamenn, sem ekki myndu lifa
af daginn án pressunnar, og hinir.
Það verður mestur hávaðinn í kring-
um þá fyrrnefndu ... og svo er þessi
formáli (að prógrammi á yfírlitssýn-
ingu Kjaitans), sem égkaus að skrifa
sjálfur. Ekki get ég leitað til sérfræð-
inga um „fræðilega úttekt“ þar sem
ég held að ég sé búinn að móðga
þá velflesta með því að bera þeim á
brýn kjaftavaðal... Hræðsla ogsnobb
hér á landi við listfræðinga er að
verða að þjóðarböli
Orð í tíma töluð!
Ég hef heyrt og lesið um að há-
menntaðir listfræðingar í Skandi-
navíu séu að gera ýmsar þekktar
sýningarhallir að eins konar nýlistar-
grafhýsum með hruninn fjárhag og
aðsókn nálægt núllinu. Nú er þessi
flensa farin að grassera hér. Ég held
þess vegna að menningarmálanefnd
Kjarvalsstaða og einræðisherrann
þar ættu að hyggja vel að gangstétt-
arhellunum í kringum þá veglegu
byggingu en vera ekki að brölta í
því að flytja þær inn á mitt gólf í
aðalsal.
Gleðilegt nýár!
Höfundur er framkvæmdastjóri í
Reykjavík.
Samstarf óskast
Óskað er eftir samstarfi við dugmikinn og
ábyrgan aðila, er starfa vill við innflutning.
Um er að ræða allt að helmings eignaraðild í
fyrirtæki er starfar við mjög sérstæðan og arð-
bæran innflutning.
Lysthafendur vinsamlegast sendi inn tilboð
merkt: „Samstarf - 13763“ á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 30. janúar, er greini frá nafni og síma-
númeri.
Fullum trúnaði heitið og öllum tilboðum svarað.
Húsbmienúur - arkitektar h
Iméttmaúagar H.K. innréttinga 25. ian.-2. fet.
Ertu að byggja eða ætlarðu
að endurnýja innréttingarnar?
Við kynnum á sýningu okkar um helgina 16 nýjar
hurðagerðir á innréttingar okkar. I fulningahurðum
kynnum við 5 nýjar gerðir. í plastlögðum hurðum
með viðarkanti 7 nýjar gerðir. í viðarhurðum 4
nýjar gerðir. Á öllum þessum gerðum er hægt að
fá allt tréverkið í stfl.
H.K. tréverk hækkar fasteignaverð.
Við hönnum meó þér
Innanhúsarkitekt til aðstoóar
Sýning um helgina og næstu helgi.
Opið laugardag frá kl. 10-18.
Sunnudag frá kl. 13-18.
H.K. INNRÉTTINGAR,
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík.
Sími 35609, myndsendir 679909.
- Geymið auglýsinguna -
Lopi, band, bómuUarpeysur, ullarpeysur, værdarvoðir, fínullamærföt
Opið daglega frá kl. 10.00-18.00, einnig sunnudaga.
Sendum í póstkröfu, símí 91 -666303.
UTSALA
»hmimél^P
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, sími 813555
Opió laugardag
frá kl. 10-16
20-50% afslátlur
Dæmi um veró:
Áóur kr. Nú kr.
Barnaúlpa 6.490,- 3.990,-
Fullorðinsúlpa 8.990,- 5.990,-
íþróttagallar 6.990,- 3.990,-
Rúskinnsskór 32-46 4.490,- 2.990,-
Tvískiptir skíóagallar barna 9.290,- 4.990,-
Samfestingar LUTHA 24.900,- 17.900,-