Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 7
Bankastrœti 5, sími 27200. Lœkjargata 12, sími 691800. Lgugavegur 172, sími 626962. Alfheimar 74, sími 814300. Crensásvegur 13, sími 814466. Háaleitisbraut 58, sími 812755. Eftirtaldir afgreiöslustabir islandsbanka veita Húsfélagaþjónustu: Stórhöfbi 17, viö Gullinbrú, sími 675830. Reykjavíkurvegur 60, Haínarfirbi, Lóuhólar 2-6, sími 79777. sími 54400. Kringlan 7, sími 608000. Strandgata 1, Hafnarfirbi, sími 50980. Þarabakki 3, sími 74600. Hörgatún 2, Carbabce, simi 46800. Dalbraut 3, sími 685488. Hamraborg 14a, Kópavogi, sími 42300. Eibistorg 17, Seltj., sími 629966. Þverholt 6, Mostellsixv, simi 666080. Hafnargata 60, Keflavík, sími 92-15555. Kirkjubraut 40, Akranesi, sími 93-13255. Hrísalundur la, Akureyri, sími 96-21200. Abalgata 34, Siglufirbi, sími 96-71305. M0RGUNBLAÐIÐ*ÞRIÐJUDA<3UR 25. FEBRUAR 1992 Sjúkrabíll í tíu tíma barningi Patreksíirði. Sjúkrabílstjóri og læknir frá Patreksfirði áttu langa nótt í Hafnarmúla í Patreksfirði í fyrrinótt. Þeir lentu í kolvitiausu veðri og voru tíu klukkustundir að komast Iieim á ný. Það var um kl. 2 um nóttina að lagt var af stað í læknisvitjun út í Örlygshöfn handan fjarðarins. Veðrið var kolvitlaust og var feng- inn vörubíll með snjótönn til að fara á undan sjúkrabílnum. Þegar komið var í Hafnarmúla féll snjóflóð fyrir framan vörubílinn. Flóðið var það mikið að ekki þýddi að moka lengra og var ekki um annað að velja en snúa við. Það er ekki hlaupið að því að snúa bíl í Hafnarmúlanum að sum- arlagi, hvað þá við þessar aðstæð- ur. Allt gekk þó slysalaust og var nú lagt af stað heim á leið. Þegar komið var í múlann milli Vatnsdals og Skalladals hafði fallið snjóflóð þar. Fenginn var veghefill frá Patreksfirði sem gat rutt sjúkra- bílnum braut og það var ekki fyrr en kl. 12 á hádegi í gær sem sjúkra- bíllinn komst loks til Patreksfjarð- ar. Það er af sjúklingnum að segja að hann hresstist þó aldrei kæmist læknirinn til hans. Fréttaritari átti tal við Ólaf B. Baldursson, sjúkraflutningamann, þegar hann kom úr ferðinni og sagði hann að þetta hefði verið alversta veður sem hann hefði komist í og veðurhamurinn slíkur að hann hefði óttast að bíllinn fyki í verstu kviðun- um. Ekkert hefur fréttst af skaða af veðrinu utan einhveijar rafmagns- truflanir. Ingveldur Næsta mál! Kosning gjaldkera húsfélagsins „Nei eðajá“ sigraði í Söngvakeppmnm: Við ætlum að gera okkar besta í Svíþjóð - segir Sigríður Beinteinsdóttir LAGIÐ „Nei eða já“ eftir Friðrik Karlsson og Grétar Orvarsson, við texta Stefáns Ililmarssonar, bar sigur úr býtum í Söngva- keppni sjónvarpsins á laugardag. Lagið fluttu þær Sigríður Bejn- teinsdóttir og Sigrún Eva Ár- mannsdóttir. Þær munu flytja lagið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Malmö í Svíþjóð þann 9. maí. Sigríður Beinteinsdóttir sagði eft- ir keppnina að höfundar og flytjend- ur væru mjög ánægðir með árangur- inn, en við stigagjöfina hefði hún óttast að lagið „Karen“ yrði þeim skeinuhætt, enda gott lag og vel flutt. „Ég get ekki lofað því að við náum 4. sæti í Malmö,“ sagði Sigríð- ur, sem náði þeim árangri ásamt Grétari í Júgóslavíu fyrir tveimur árum. „Hins vegar erum við Sissa ákveðnar í að gera okkar besta og svo er bara að sjá hvernig dóm- nefndunum líst á lagið.“ Alls fékk „Nei eða já“ 92 stig dómnefnda; sem sátu í kjördæmun- um átta. Á hæla þess kom lagið „Karen" eftir Jóhann Helgason við texta Björns Björnssonar, í flutningi Bjarna Arasonar, með 80 stig. Björgvin Halldórsson samdi lag og texta „Mig dreymir" og flutti lagið sjálfur. Hann varð í þriðja sæti með 68 stig, þar af hlaut hann 16 stig sem sérstök dómsnefnd í sjónvarps- sal veitti. í fjórða sæti varð „Ljós- dimma nótt“ í flutningi Guðrúnar Gunnarsdóttur, (lag og texti: Herdís Hallvarðsdóttir), í fimmta sæti varð „Einfalt mál“ (lag: Hörður G. Ólafs- son, texti: Aðalsteinn Ásberg Sig- urðsson), flutt af Helgu Möller og Karli Örvarssyni, í sjötta sæti varð „Þú mátt mig engu leyna“ (lag: Axel Einarsson, texti: Hörður Hilm- arsson) sungið af Margréti Eir Hjartardóttur, sjöunda sætið hlaut „Eva“ (lag: Þórir úlfarsson, texti: Arnar Freyr Gunnarsson) sungið af Arnari Frey, átturtda sætið féll í skaut „Þú! Um þig! Frá þér! Til þín! eftir Ómar Þ. Ragnarssön, í flutn- ingi Helgu Möller og Karls Örvarss- onar og tíunda sætið fékk lagið „Nótt sem dag“, höfundar lags og texta þeir Sigurður Baldursson og Gylfi Már Hilmisson, en Gylfi Már söng lagið. Lagahöfundarnir Friðrik Karlsson og Grétar.Örvarsson, ásamt söng- konunum Sigríði Beinteinsdóttur og Sigrúnu Evu Ármannsdóttur, taka við heiliaóskum kynnis keppninnar, Sigrúnar Waage, eftir að úrslitin lágu fyrir á laugardagskvöld. Fáskrúðsfj örður: Bátur slitnaði frá bryggju í óveðrinu Fáskrúðsfirði. ROK gekk yfir Fáskrúðsfjörð í gærmorgun. Allmörg skip leit- uðu vars og voru úti á firðinum fram undir hádegið. Um áttaleytið slitnaði vélskipið Búðarfell frá bryggju og rak upp í fjöru. Hoffellið sem komið var inn á fjörðinn setti taug í Búðar- fellið og dróg það á flot. Ekki er vitað um skemmdir en verður það kannað betur við fyrsta tækifæri. - Aibert. Húsfélagaþjónusta íslandsbanka býðst til að annast innheimtu-, greiðslu- og bókhaldsþjónustu fyrir húsfélög. HUSFELAGA ónusta Gjaldkerastarf í húsfélagi fjölbýlishúsa hefur aldrei þótt eftirsóknarvert, enda bœöi tímafrekt og oft van- þakklátt. Húsfélagaþjónustan auöveldar rekstur og tryggir öruggari fjárreiöur húsfélaga meö nákvœmri yfirsýn yfir greiöslustööu og rekstur á hverjum tíma. Þetta fyrir- komulag er því íbúum fjölbýlishúsa til hagsbóta. Þrír þcettir Húsfélagaþjónustu: ..----Innheimtuþjónusta: Bankinn annast mánaöarlega tölvuútskrift gíróseöils á hvern greiö- /jý aþ \ an<^a húsgjalds. Á gíróseölinum eru þau gjöld sundurliðuö sem greiöa (i þarftilhúsfélagsins. 'ýo §j Greiösluþjónusta: \.a ^ °’ * ** >^?/ Öll þau gjöld sem húsfélagiö þarf aö greiöa, t. d. fyrir rafmagn og jy/ hita, fœrir bankinn af viðskiptareikningi og sendir til viökomandi á umsömdum tíma. Bókhaldsþjónusta: í lok hvers mánaöar er sent út reikningsyfirlit sem sýnir hverjir hafa greitt og íhvaö peningarnir hafa fariö. í árslok liggur fyrir yfirlit yfir rekstur húsfélagsins á árinu, greiöslur íbúa á árinu og skuldir þeirra í lok árs. Allar nánari upplýsingar um Húsfélagaþjón- ustu bankans og kynningartilboöiö sem stendur húsfélögum til boöa til 16. mars fást hjá þjónustufulltrúum í neöan- ÍSLANDSBANKI greindum afgreiöslustööum bankans. _ (takt yið tlýja tíma,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.