Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRUAR 1992 35 Ár liðið frá Eyði- merkurstorminum eftir eftir Henry E. Catto Stríð getur aldrei verið fyrsti val- kostur stjórnmálamanna eða al- mennings. Stríð var síðasta úrræðið sem bandarísk stjórnvöld gripu til eftir að írakar hrintu af stað grimmi- legri innrás sinni í Kúveit. George Bush Bandaríkjaforseti kannaði, í nánu samráði við Sameinuðu þjóð- irnar, til þrautar alla aðra möguleika á friðsamlegri lausn deilunnar. Því miður reyndist stríð óumflýjanlegt. Nú, ári síðar, halda sumir því fram að vegna þeirra fjölda vandamála sem enn eru óleyst í þessum heims- hluta geti varla talist að sigur hafí unnist í Persaflóastríðinu. Hemaðar- átök fela alltaf í sér bæði sigur og harmleik (eins og segir í titlinum á síðasta bindi endurminninga Winst- ons Churchills) en í Persaflóastríðinu náðist höfuðmarkmiðið og stríðið hafði í för með sér meiri umbætur en flest önnur stríð gera nokkurn tímann. Lítum yfír sviðið: • Kúveit var frelsað þökk sé 43 daga stríði í lofti og 100 klukkutíma stríði á landi sem var skipulagt og framkvæmt af snilld. Sérstaka at- hygli vakti hversu fáir óbreyttir borgarar urðu fórnarlömb stríðsins. • Mjög hefur verið dregið úr valdi Saddams Husseins, og möguleikum hans á að skapa óstöðugleika í þess- um mikilvæga heimshluta. O Tortímingarvopnum íraka hefur að mestu verið eytt og möguleikar þeirra á að framleiða kjarnorkuvopn, sem voru í augsýn fyrir ári síðan, hafa verið þurrkaðir út um ókominn tíma. O Bandaríkin og bandamenn þeirra vörðu olíulindir Mið-Austurlanda; að öðrum kosti, ef innlimun Kúveit í írak hefði verið látin afskiptalus, hefðu írakar ráðið yfir 20% af öllum olíuauðlindum jarðar og meira en helmingi þeirra ef þeir hefðu náð undir sig auðlindum Saudi-Arabíu og máttarminni nágranna þeirra. O í samvinnu við Breta og önnur aðildarríki Sameinuðu þjóðanna tókst Bandaríkjunum að byggja upp sögulega alþjóðlega samstöðu gegn árásargimi og ágengni íraka. O Fyrstu íjölþjóða samningavið- ræðurnar með þátttöku ísraela og araba eru hafnar. Of snemmt er að segja til um hvaða árangur verður af þessum viðræðum en augljóslega er hafinn nýr kafli í sögu Mið- Austurlanda. O Iran .og önnur ríki brugðust við breyttum aðstæðum í kjölfar Persa- flóastríðsins með því að tryggja á tiltölulega skömmum tíma lausn allra bandarískra gísla í Líbanon. John Keegan, breskur höfundur og sérfræðingur í herfræðum, hefur ef til vill best lýst aðalávinningnum af Persaflóastríðinu. I grein sinni í Sunday Telegraph hinn 12. janúar sl. bendir hann á að nú sé komin á ný heimsskipan þar sem þeim sem stofna til ófriðar og sýni árásargirni verði refsað og þeir afvopnaðir, svo lengi sem vilji hins alþjóðlega samfé- lags er til staðar og Bandaríkin og bandamenn þeirra standi saman við- búin til að bregðast við af krafti og með hraði. Flestir sem líklegir voru til að fylgja í fótspor Saddams Hus- seins virðast hafa fengið skilaboðin. Það hefur Saddam að minnsta Henry E. Catto. kosti gert. Draumar hans um aukin völd og áhrif hafa orðið að engu, dagar hans eru taldir. Vissulega leysti Persaflóastríðið ekki öll vanda- mál Mið-Austurlanda. En í kjölfar þess er útlitið í þessum heimshluta og reyndar öllum heiminum, mun vænlegra. Það er ekki svo lítill árangur og endurskoðunarsinnar ættu að hugleiða það. Höfundur er fyrrum sendiherra Bandaríkjanna íBretlandi og núverandi forstjóri Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna í Washington. ♦ ♦ ♦------ Síðasta orð- ið vantaði I grein Gylfa Pálssonar um stangveiði, „Lengi er von á einum", sem birtist sl. sunnudag, vantaði síðasta orðið. Síðasta setningin í heild er svohljóðandi: Hvað sem því líður var þessu lax bráðfeigur. Er beðist velvirðingar á mistök- unum. Austurlensk teppi Nýjar sendingar Sérverslun með mottur og teppi ■ FORELDRA- og kennarafélag Foldaskóla í Reykjavík fordæmir harðlega fyrirhugaðan niðurskurð í grunnskólum landsins. Minni kennsla ásamt fjölgun nemenda í bekkjardeildum eru í hróplegu ósam- ræmi við ný grunnskólalög sem sam- þykkt voru samhljóða á Alþingi síð- astliðið vor. Niðui’skurðurinn lýsir yfirþyrmandi skammsýni valdhafa í skólamálum og gerir skólum lands- ins aldeilis ófært að sinna þeim skyldum sem samfélagið leggur á þá. Það er því skýlaus krafa okkar að hætt verið við allar hugmyndir um niðurskurð í grunnskólunum þar sem lagður er grunnur að framtíð uppvaxandi kynslóðar. (Frcttatilkyiming) Bókhalds- nám Markmið námsins er að þátttakendur verði fullfærir um að starfa sjálfstætt við bókhald og annast það allt árið. TVrVw ðfttt- ttyuttdf éóééttMt éeAtne 4 Aénát&á* yt tuuutdmáéeát. / A námskeiðinu verður eftirfarandi kennfc * Almenn bókhaldsverkefni * Launabókhald * Lög og reglugerðir * Viröisaukaskattur * Raunhæf verkefni, fylgiskjöl og afstemmingar * Tölvubókhald: Fjárhagsbókhald viðskiptamannabókhald _______Launapókhald___________ Námskeiðið er 72 klst. Næsta grunnnámskeið hefst 2. mars og bókhaldsnámið 9. mars. Innritun er þegar hafin. BJÓÐUM UPP Á BÆÐI DAG- OG KVÖLDNÁMSKEIÐ 11 ■ .................... A TVINNUHUSNÆÐI Til leigu eða sölu er fyrrum húsnæði Málaskólans Mímis í Brautarholti 4. Húsnæðið er 210 fm á 2. hæð, vandað, hentar vel til hvers konar nám- skeiðahalds, félags-, þjónustu- og funda- starfsemi. Fyrirtaks skrifstofuhúsnæði með kaffistofu. Rétt við Hlemm, póst og banka. Upplýsingar í síma 25149 eftir hádegi dag- lega. NAUÐUNGARUPPBOÐ Nauðungaruppboð á eftirtöldum eignum: Fjörður 6, Seyöisfirði, þinglesinn eigandi Helga Benjaminsdóttir, fer fram mánudaginn 2. mars 1992 kl. 15.00 á eigninni sjálfri, eftir kröf- um Búnaðarbanka íslands, Róberts Árna Hreiðarssonar, hdl., Seyðis- fjarðarkaupstaðar, Byggingarsjóös rikisins, Gjaldheimtu Austurlands og Sigriðar Thorlacius. Þriðja og siðasta. Austurvegur 51, Seyðisfirði, þinglesinn eigandi Jón Þorsteinsson, fer fram mánudaginn 2. mars 1992 kl. 16.00 á eigninni sjálfri eftir kröf- um Magnúsar M. Norðdahl hdl., Seyðisfjarðarkaupsstaðar og Gjald- heimtu Austurlands. Þriðja og síðasta. Bæjarfógetinn á Seyðisfirði. Sýslumaður Norður-Múlasýslu. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum eignum fer fram i dómsal embættis- ins, Aðalgötu 7, Stykkishólmi, föstudaginn 28. febrúar 1992 og hefst kl. 11.00: V/s Tungufelli SH-31, þingl. eigandi Tungufell hf., eftir kröfum Ósk- ars Magnússonar, hdl., Landsbanka islands, Byggðastofnunar, Skúla J. Pálmasonar, hrl. og Tryggingastofnunar rikisins. V/s Helenu SH-103, þingl. eigandi Bjami Þórðarson, eftir kröfum innheimtu rfkissjóðs og Fiskveiðasjóðs íslands. V/s Má SH-127, þingl. eigandi Snæfellingur hf., eftir kröfu Björns J. Arnviðarssonar, hdl. Sýslumáður Snæfellsness- og Hnappadalssýslu. Bæjarfógetinn i Ólafsvik. SWiOiauglýsingar KENNSLA Lærið vélritun Morgunámskeið hefst 2.mars Vélritunarskólinn, simi 28040. Í~ FÉIAGSLÍF □ EDDA 59922527 = 1 I.O.O.F. Rb. 1=1412258 - 9.0. HELGAFELL 59922257 VI 2 □ FJÖLNIR 599202257 - 1 Frl. Atk Q HAMAR 59922257 - Frl. AD KFUK Fundur i kvöld kl. 20.30 á Holta- vegi. Á ferð um landið með ferðapredikurum. Susie Bachmann og Elísabet Magnúsdóttir. Kaffi eftir fund. All- ar konur hjartanlega velkomnar. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3S. 11798 19533 Kvöldvaka Fi - Breiðafjarðareyjar Á kvöldvöku i Sóknarsalnum, Skipholti 50a, miðvikudaginn 26. febrúar, mun Ævar Petersen draga fram sérkenni Breiöa- fjarðareyja i myndum með til- heyrandi útskýringum. Ævar skrifaði um „Náttúrufar Breiða- fjarðareyja" í árbók Fi 1989 og er manna kunnugastur dýralífi og náttúrufari eyjanna. Missið ekki af leiðsögn Ævars um þessa „matarkistu" islendinga á fyrri tíð; þar kemur margt forvitnilegt í Ijós. Myndagetraun verður á dagskrá að vanda og getur þá fólk látið reyna á þekkingu á landinu. Aðgangur er kr. 500,- (kaffi og meðlæti innifalið). Kvöldvakan hefst kl. 20.30 stundvíslega. All- ir velkomnir, félagar og aðrir. Munið aðalfund Ferðafélagsins miðikudaginn 4. mars nk. í Sóknarsalnum. Venjuleg aðal- fundarstörf. Ferðafélag íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.