Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRUAR 1992
BOKHALDS- OG
REKSTRARNÁM
6VIKUR
Námið er hnitmiðað og sérhannað með þarfír atvinnulífs-
ins í huga. Markmið námsins er að útskrifa nemendur
með víðtæka þekkingu á bókhaldi, ásamt hagnýtri þekk-
ingu á sviði verslunarréttar.
Námsgreinar:
★ Hlutverk bókhalds, bókhaldslög
★ Bókhaldsæfingar og reikningsskil
★ Verslunarreikningur
★ Launabókhald
★ Virðisaukaskattur
★ Raunhæft verkefni
- afstemmingar og uppgjör
★ Tölvubókhald
★ Réttarform fyrirtækja
★ Samningagerð
★ Viðskiptabréf, ábyrgðir, fyrning skulda.
Ef þú vilt auka þekkingu þína á bókháldi, styrkja stöðu
þína á vinnumarkaðinum, vera fullfær um að annast bók-
hald fyrirtækja eða starfa sjálfstætt, þá er þetta nám
fyrir þig.
Viðskiptaskólinn býður uppá litla hópa, (hámark 9) - ein-
ungis reynda leiðbeinendur - bæði dag- og kvöldskóla -
sveigjanleg greiðslukjör.
Grunnnámskeið byrjar 2. mars
Bókhalds- og rekstrarnámið byrjar 6. mars.
Viðskiptaskólinn
Skólavörðustíg 28, Reykjavík sími 624162.
SUMARHUS
ÍBÚÐARHÚS
Okkarreynsla
er þinn hagur
Við höfum sumarhús til
sýnis á lóð okkar við
Fífuhvammsveg í
Kópavogi. A staðnum er
tæknideild og fagmenn
sem veita ráðgjöf og gera
verð- og efnisáætlanir.
K
ÞINUR
Trésmiðjan Þinur hf.
v. Fífuhvammsveg í Kópavogi Sími 4 35 21
Við kjósum ckki eftir á
eftirÁstu
Snorradóttur
Eitt mesta hagsmunamál stúd-
enta í dag er að tryggja framtíð
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Áform núverandi ríkisstjórnar er að
bæta verulega fjárhagsstöðu LIN
sem hefur farið hnignandi með ári
hveiju. Menntamálaráðherra hefur
þegar mælt fyrir frumvarpi þar að
lútandi sem námsmenn geta engan
veginn sætt sig við.
Fortíðarvandi
Slæm fjárhagsstaða LÍN stafar
m.a. af því að námslán voru til árs-
ins 1976 óverðtryggð og brunnu því
upp í óðaverðbóígu þess tíma. Eins
er það svo að ríkisvaldið tekur erlend
lán sem bera háa vexti til þess að
fjármagna lánasjóðinn. Þetta er sá
fortíðarvandi sem núverandi ríkis-
stjórn vill að námsmenn nútíðar og
framtíðar greiði fyrir. Það vilja þeir
gera með.því að leggja vexti á námsl-
án, innheimta lántökugjald og herða
endurgreiðslur þannig að í stað þess
að endurgreidd séu 3,75% af árstekj-
um verði greidd 8% af árstekjum.
Við í Röskvu, samtökum félags-
hyggjufólks við Háskóla íslands,
teljum að slíkar aðgerðir muni veru-
lega skerða meginmarkmið sjóðsins
sem er að tryggja jafnrétti til náms.
Hvemig koma tillögurnar
við námsmenn?
Það er ljóst að tillögur ríkisstjóm-
arinnar um vexti og endurgreiðslur
muni koma harðast niður á þeim
tekjulægstu. Útreikningar sýna að
tekjulægri hópar geta lent í því að
greiða niður höfuðstól námslánanna
aðeins að litlum hluta þó að þeir séu
að greiða af námslánunum allt sitt
líf. Tekjuhærri hópar hafa hins veg-
ar endurgreitt lánin með vöxtum við
40-50 ára aldurinn. Þessir útreikn-
ingar miða við að námi sé lokið við
24 ára aldur. Einnig er það ljóst að
flöt endurgreiðsluprósenta bitnar
meira á þeim tekjulægstu. Þá sem
hafa um 80.000 krónur í ráðstöfun-
arfé á mánuði munar meira um 8%
af þeirri upphæð en þá sem hafa
helmingi hærri ráðstöfunartekjur.
80.000 krónur í ráðstöfunarfé er
ekki óraunhæf tala fyrir stóran hóp
einstaklinga. Þá verður að hafa í
huga að margir af þessum einstakl-
ingum þurfi að framfleyta fleirum
en sjálfum sér.
0BOSCH
Sértilboð
GBH
2/20 RLW
Höggborvél „SDS Plus" með
ryksugu. Þreplaus hraðastilling
afturábak og áfram. 500 W.
Aukahlutir: Vinkildrif, meitil-
stykki, meitlar.
Höggborvél „SDS Plus“.
Þreplaus hraðastilling afturábak
og áfram. 500 W.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Umboðsmenn um land allt
Afstaða námsmanna
Námsmenn gera sér grein fyrir
að leysa þarf vanda lánasjóðsins.
Það er hins vegar krafa námsmanna
að ekki verði fallið frá markmiði
lánasjóðsins sem félagslegs jöfnun-
arsjóðs. Nám á háskólastigi á ekki
að vera forréttindi efnameiri ein-
staklinga. Þess vegna geta náms-
menn ekki fallist á að frumvarpið
um Lánasjóð íslenskra námsmanna,
sem nú liggur fyrir Alþingi, fari
óbreytt í gegn.
Menntamálaráðherra hafa borist
í hendur tvær tillögur frá náms-
mönnum um hvernig hægt sé að
bæta fjárhag sjóðsins. Önnur er frá
samstarfsnefnd námsmannahreyf-
inganna sem er málsvari 15.000
námsmanna í landinu en hin er frá
Vöku, f.l.s. Vaka leggur m.a. til að
lagt verði á lántökugjald, jafnframt
að endurgreiðsluprósenta launa
hækki með vissu millibili á endur-
greiðslutíma, óháð því hvort laun
einstaklings hækki að sama skapi.
Raunhæfar tillögur
námsmanna
Röskva er aðili að tillögu sam-
starfsnefndarinnar. Henni var skilað
inn af lánasjóðsfulltrúa stúdenta við
HÍ, Pétri Þ. Óskarssyni. Þar er lagt
til að tekjuhærri einstaklingar greiði
námslán sín hraðar til baka, endur-
greiðsluprósenta verði 4% af
100.000 krónunum en 6% af 50.000
krónunum. Með því er komið í veg
fyrir að endurgreiðslur bitni hraðast
á þeim tekjulægstu og það er tryggt
að markmið lánasjóðsins verður
áfam að stuðla að jafnrétti til náms.
Á sömu forsendum er samstarfs-
nefndin andvíg því að vextir verði
lagðir á námslán. Tillögur samstars-
nefndarinnar munu skila lánasjóðn-
um 400 milljónum króna í auknar
tekjur á ári miðað við núgildandi
endurgreiðslur.
Tökum afstöðu
Næstkomandi fimmtudag, 27. fe-
brúar, ganga nemendur við Háskóla
íslands til kosninga fulltrúa í stúd-
enta- og háskólaráð. Þá fá stúdentar
tækifæri til að sýna fram á hvori
þeir treysti Röskvu eða Vöku betur
til að fara með sín hagsmunamál.
Eins og sést hér að framan greinir
félögin á um hvemig best verði stuðl-
að að jafnrétti til náms í gegnum
Ásta Snorradóttir.
„Námsmenn gera sér
grein fyrir að leysa
þarf vanda lánasjóðs-
ins. Það er hins vegar
krafa námsmanna að
ekki verði fallið frá
markmiði lánasjóðsins
sem félagslegs jöfnun-
arsjóðs.“
lánasjóðinn. Það er skoðun okkar í
Röskvu að námsmannahreyfingar í
landinu skuli vinna saman að sam-
eiginlegum hagsmunamálum. Mál-
efni LIN varða alla námsmenn í
landinu jafnt. Ef við stúdentar við
Háskóla íslands kljúfum okkur út
úr samstarfsnefnd námsmanna-
hreyfinganna erum við jafnframt að
veikja stöðu okkar gagnvart ríkis-
valdinu og almenningi. Það sást best
á baráttufundi námsmannahreyfing-
anna í Háskólabíói 13. febrúar sl.
að sameinuð höfum við áhrif. Ég vil
hvetja stúdenta við Háskóla Islands
að hafa ofangreint í huga þegar
þeir ganga til kosninga nk. fímmtu-
dag.
Höfundur er nemi í mannfræði við
HÍ og skipar 3. sæti á
framboðslista Röskvu til
Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Læknafélag Reykjavík-
ur mótmælir uppsögnum
STJÖRN Læknafélags Reykjavík-
ur mótmælir harðlega uppsögn-
um sérfræðinga á bæklunardeild
Landspítalans frá 1. apríl næst-
komandi, en þær hafa fengist
staðfestar.
Ennfremur er mótmælt þeirri
'92
ákvörðun stjórnamefndar ríkisspít-
alanna um að loka lýtalækningadeild
Landspítalans og færa þar með
meðferð brunasjúklinga áratugi aft-
ur í tímann.
Stjórn Læknafélags Reykjavíkur
varar við þeirri ískyggilegu þróun
sem nú er hafin í sjúkrahúsmálum
landsins, þar sem þrengt er æ meira
að þjónustu við sjúka, án þess að
fagleg eða siðferðileg rök liggi þar
að baki.
Verð frá: 969.000,-
Greiðslukjör við allra hæfi
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 — 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
E) ]
HONDA
Skorað er á stjórnarnefnd ríkissp-
ítalanna að taka ofangreindar
ákvarðanir nú þegar til baka.
Stjórn félagsins er reiðubúin til
samvinnu um mótun framtíðarskip-
unar heilbrigðismála á höfðuborg-
arsvæðinu verði þess óskað.
NGK rafkerti