Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. SJOSLYSIÐ A HALAMIÐUM Krossnes SH 308 sökk á örstuttum tíma um kl. 8:00 á sunnudagsmorgun. Þriggja manna er saknað. Önnur 19 fiskiskip voru að veiðum á þessum slóðun á aðfararnótt sunnu- dags, þar á meðal Guðbjörg ÍS 46 og Sléttanes ÍS 808 sem björguðu 9 mönnum. Flakið af Menju, togara sem sökk í Halaveðrinu 1925, er á 66°45'N og 24°42'V, um 4 sjómílur austnorðaustur af þeim stað sem Krossnesið sökk á Kögur Straumnes Horn Ritur neserUnn Göltur Sauðanes Barði #lsafjörður Sléttanes Kópur Blakknes Látrágrunn Bjargtangar Fjármál o g menning Krossnes sökk á 3-4 mínútum: Guðsgjöf að ekki fór enn verr - segir Hafsteinn Garðarsson skipstjóri Isafirði. Frá Helga Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins. „ÞETTA gerðist allt á svipstundu. Það er guðsgjöf að þetta fór ekki enn verr,“ sagði Hafsteinn Garðarsson skipstjóri á Krossnesi SH 308 í samtali við Morgunblaðið. Hafsteinn sagðist lítið geta sagt vegna þess hvað allt hefði gerst hratt. Hann sagðist hafa sínar hugmyndir um hvað olli því að Krossnesið fórst en vildi láta það koma fram við sjóprófin. Rætt var við Hafstein, Sigurð Olaf Þorvarðarson fyrsta stýri- mann og Torfa Alexandersson háseta í gærmorgun um atburðina og hafði Hafsteinn aðallega orð fyrir þeim félögum. Blómlegt atvinnulíf og traustur efnahagur eru undirstaða góðra lífskjara í nútímasamfélagi. Það er því eða ætti að vera keppikefli þjóðar, sem stríðir við ýmis kreppueinkenni á líðandi stundu, að þróa atvinnuvegi sína og efnahagslíf að þeirri þjóðfélagsgerð, sem gefið hefur mestan árangur i verðmæta- sköpun á hvern vinnandi þegn. Eða með öðrum orðum að laga atvinnulíf sitt og þjóðarbúskap að efnahagslegum veruleika umhvérfisins, það er að þeirri framvindu sem orðin er og fyr- irséð er á mikilvægustu við- skiptasvæðum okkar beggja megin Atlantsála. Það verður ekki horft fram hjá þeim veruleika að sjálf þjóð- félagsgerðin vegur þungt á vogarskálum velferðar hjá þjóðum heimsins. Verkin sýna merkin, bæði í fyrrum ríkjum sósíalismans í Austur-Evrópu og samkeppnisríkjum Vestur- Evrópu og Norður-Ameríku. Svipuðu máli gegnir um fleiri þungavigtarþætti í samfélög- um fólks. Máski fyrst og fremst menntir og vísindi. Það er tví- mælalaust allra hagur að búa í vel upplýstu samfélagi, hver sem skólaganga fólks er. Þess vegna er skólaskylda lögboðin. Þess vegna er flokkast réttur einstaklingsins til náms til mannréttinda. Vísindarannsóknir margs konar þjóna í raun öllum, bæði heild og einstaklingUíh. Niður- stöður slíkra rannsókna eru oftar en ekki þess eðlis að þær styðja almenningsheill, til dæmis rannsóknir á sviði heil- brigðisþjónustu eða tækniþró- unar fyrir atvinnulífið. Vísinda- þekking berst auðveldlega milli manna og þjóða. Og það er engin tilviljun að þær þjóðir, sem veija hæstu hlutfalli þjóð- artekna sinna til almennrar og sérhæfðrar menntunar og til vísinda og rannsókna búa að hæstum þjóðartekjum og mestri velferð. Menntun og þekking skila kostnaði sínum fljótlega til samfélagsins. Það var stóraukin menntun, þekk- ing og tæknikunnátta sem margfaldaði þjóðartekjur okkar á tuttugustu öldinni. Þorvaldur Gylfason segir m.a. í grein, „Fjármál og menn- ing“, í Fjármálatíðindum (júlí 1991): „Það er til að mynda ekki alveg víst, hvort við ís- lendingar hefðum verið í stakk búnir að breyta þjóðfélagi okk- ar úr bláfátæku og frumstæðu bændasamfélagi í fjölbreytt og forríkt nútímasamfélag á nokkrum áratugum, eins og okkur hefur tekizt að gera við erfiðar aðstæður að ýmsu leyti, hefðum við ekki átt traustan bakhjarl í bókmenntum for- feðra okkar. Og það er heldur ekki sjálfgefið, að okkur takist að varðveita þennan árangur að öllu leyti, ef við leggjum of litla sameiginlega rækt við bók- menntir, listir og menningarlíf í landinu. Til að laða ungt fólk aftur heim frá námi og störfum í útlöndum og til að halda land- inu í sómasamlegri byggð verð- um við að halda vöku okkar í menningarmálum. “ Erfiðara er að vísu að meta listir til fjár en menntir og vís- indi, þótt einstök listaverk séu að vísu metin til ógrynnis fjár- muna. Listir eru fyrst og fremst hluti af þjóð- og heimsmenn- ingu og veita milljónum manna lífsfyllingu. Þegar bezt lætur eru þær ómetanlegar. Fornar bókmenntir íslendinga eru til dæmis hornsteinar þjóðernis okkar, sem og menningar- og stjórnarfarslegs sjálfstæðis. Sex til átta hundruð ára texti, skráður á skinn í klaustrum landsins, og meira en fjögur hundruð ára þýðing biblíunnar á íslenzku, skiluðu móðurmál- inu óskemmdu-til samtímans. Listir þjóðarinnar á líðandi stundu þjóna og mikilvægu hlutverki í tilveru okkar, þótt sitt hvað orki tvímælis þá gert, nú sem fyrr, hér sem annars staðar. Og það er áreiðanlega rétt hjá Þorvaldi Gylfasyni „að ef fjöldi menntafólks hefði aldr- ei snúið aftur heim frá námi í útlöndum, væri ekkert Þjóðleik- hús í landinu, engin Sinfóníu- hljómsveit, ekkert Listasafn íslands, engin Ópera. Þá væri þjóðarbragurinn annar en hann er nú, lífskjörin áreiðanlega lakari og lífsgæðin minni“. Á samdráttartímum, eins og þeim sem við nú lifum, verður þjóðin að velja og hafna og raða verkefnum og viðfangs- efnum í forgangsröð. Og það er hygginna manna og þjóða háttur að hemja útgjöld innan ramma ráðstöfunartekna. En það þarf jafnframt að muna vel hvað gerir þjóð að þjóð. Að menntir, vísindi og listir eru vörður við þann veg sem liggur til þroska, þekkingar og betri tíðar. Hafsteinn sagðist hafa verið í koju þegar skipið fór á hliðina. Hon- um og félögum hans ber saman um að ekki hafi liðið nema 3 til 4 mínút- ur þar til allt var yfirstaðið. Haf- steinn sagði að brugðist hafí verið rétt við öllum aðstæðum og mennirn- ir átta sem komust í gúmbjörgunar- bátana komist í þá á svipstundu. Hafsteinn komst upp í brú og var síðastur þaðan út þegar skipið sökk. Lenti hann í sjónum eins og flestir áttmenninganna. Aðeins tveir þeirra átta manna sem bjargað var úr gúm- björgunarbátunum komust alveg í flotgalla. Hinir voru flestir hálf- klæddir í þá og einn var ekki í galla. Hafsteinn sagðist aðeins hafa komist í skálmarnar á sínum flotgalla. Hann sagði aðspurður um öryggismálin að flotgallarnir væru mikið öryggis- atriði en á notkun þeirra væru ákveðnir gallar, sem hann vildi ekki lýsa fyrr en við sjóprófin. „Frábær umönnun" Flestir skipverjarnir á Krossnesi eru frá Grundarfirði, einn er úr Ól- afsvík. Margir þeirra hafa verið á skipinu frá því það var keypt til Grundarfjarðar fyrir fimm árum. Skipið var 296 brúttórúmlestir að stærð í eigu Hraðfrystihúss Grund- arfjarðar hf. Hafsteinn er fyrsti stýrimaður og afleysingaskipstjóri og hefur verið á Krossnesi frá því það kom til Grundarfjarðar. „Þetta var gott skip, ég hef alltaf kunnað vel við það.“ sagði Hafsteinn. „Við vonumst til að komast heim sem fyrst, þar bíður fólk eftir okkur,“ sagði hann. Skipverjarnir fóru síðan í gærkvöldi með flugvél til Stykkis- hólms og þaðan heim. Teknar voru skýrslur af skipverjum og björgun- armönnum á ísafirði í gær og fyrra- dag og var starfsmaður Sjóslysa- nefndar viðstaddur. Sjópróf fara fram hjá sýslumannsembættinu í Stykkishólmi. Jón Magnússon sýslu- maður sagði í gærkvöldi að sjóprófin færu líklega fram á miðvikudag. Hafsteinn, Sigurður Ólafur og Torfi vildu koma á framfæri þakk- læti til allra sem hafa hjálpað þeim og tekið þátt í leitinni að félögum þeirra þremur. „Við höfum fengið frábæra umönnun. Sérstaklega var tekið vel á móti okkur um borð í Guðbjörgu og eins föður mínum sem • Morgunblaðið/RAX Hafsteinn Garðarsson skipstjóri Krossness, nýkominn úr læknis- skoðun á sjúkrahúsinu á ísafirði. Sléttanesið bjargaði úr sjónum. Við viljum senda öllum sem að þessu hafa komið okkar bestu þakkir. Móttökur hafa verið á sömu lund hvar sem við höfum komið hér á ísafirði,“ sagði Hafsteinn. Gagnrýni á fréttaflutning Hafsteinn sagði að það hefði verið mikið áfall að missa skipið og annað áfall að gera sér grein fyrir því um borð í Guðbjörgu að þijá menn vant- aði. Þegar hefðu verið gerðar ráð- stafanir til að láta aðstandendur þeirra vita. Það tæki sinn tíma og það hefði verið þeim áfall að heyra frétt um slysið í hádegisfréttum Rík- isútvarpsins, þremur tímum eftir björgunina, án þess að þeir vissu hvort búið væri að ná í alla aðstand- endur og leit að mönnunum rétt að byija. Hann sagði í gærmorgun að þetta atriði væri honum og mörgum félögum hans efst í huga eftir þessa atburðarás og vildi koma gagnrýni sinni á framfæri. „Þetta er ekki mennskt. Það mætti halda að svona slys væru fréttamönnum eins og konfektkassi sem færður er litlum börnum. Ég tel að fréttastofan ætti að biðjast afsök- unar á þessu,“ sagði Hafsteinn. MORGUNBLAÐIÐ ’ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 27 Ljósmynd/Flosi Amórsson Þrír skipbrotsmenn af Krossnesi með nokkrum björgunarmönnum sínum í matsalnum í Guðbjörgu á leið til ísafjarðar síðdegis á sunnu- dag eftir erfiðan dag á Halamið- um. Lengst til vinstri sést á andlit Runólfs Péturssonar fyrsta stýri- manns Guðbjargar. I sófanum silja síðan Torfi Alexandersson háseti af Krossnesi, Birkir Kristjánsson netamaður á Guðbjörgu, Víðir Ólafsson yfirvélsljóri Guðbjargar, Guðmundur Freyr Guðmundsson netamaður af Krossnesi og Jón Snorrason annar stýrimaður af Krossnesi. Lengst til hægri sést Asgeir Pálsson annar stýrimaður á Guðbjörgu teygja sig í ösku- bakka 1 gftp? 1 r Morgunbiadið/Árni Sæberg Átta togaranna sem fínkembdu leitarsvæðið á sunnudag. Myndin er tekin úr Fokker-vél Landhelgisgæslunnar. Morgunblaðið/Arni Jónasson Á myndinni hér að ofan sjást skip- verjar á Súlnafelii EA svipast um eftir skipbrotsmönnum skömmu eft- ir að Krossnesið sökk. Á mydninni hér til vinstri sést Krossnes SH-308 í Grundarfjarðarhöfn 12. febrúar síðastliðinn, en það var í síðasta skipti sem togarinn kom til heima- hafnar. Krossnesið kom þangað með vélbátinn Grundfirðing í togi, en báturinn var á hörpudisksveiðum undan Eyrarfjalli er hann fékk plóg- inn í skrúfuna og missti við það afl og rak að landi. Var Krossnesið nærstatt er óhappið varð og kom fyrst að Grundfirðingi. Skipverjum á togaranum tókst að koma línu og kaðli um borð í bátinn, sem síðan var dreginn í land. Morgimblaðið/Hallgrímur Magnússon Fyrst fór Guðbjörgin framhjá en svo lenti ég í ljósgeislanum frá Sléttanesinu Rætt við Garðar Gunnarsson sem var bjargað fótbrotnum og þrekuðum úr sjónum „ÞAÐ er lítið hægt að segja um hvað kom fyrir, þetta gerðist allt svo snöggt. Ég var kominn út á dekk í vinnugallanum, við vorurn þar sex og það var verið að byrja að hífa, þegar skipið fer skyndilega að hallast á bakborða og engu skipti þótt hætt væri að hífa og slakað þess í stað. Menn vissu ekki almennilega hvað var að ger- ast, trúðu ekki að þetta gæti skeð.“ Með þessum orðum lýsti Garðar Gunnarsson 59 ára sjómaður frá Grundarfirði aðdraganda þess að Krossnes SH-308 sökk á sunnu- dagsmorgun á Halamiðum. Hann er faðir Hafsteins skipstjóra á Krossnesinu. Garðar komst ekki í gúmbjörgunarbát en var bjargað úr sjónum um borð í Sléttanes ÍS, fótbrotnum og langt leiddum af kulda. Hann gekkst undir hjartaaðgerð á sjúkra- húsi fyrir um það bil einu ári. Morgunblaðið ræddi við Garðar á Landakotsspítala í gær. „Við fórum upp í brú, komum þangað allir nema tveir að því er ég best veit, og fórum í flotgallana," sagði Garðar, „en þetta gerðist svo snöggt að ég komst ekki almenni- lega í gallann áður en báturinn valt alveg á hliðina. Ég húrraði í sjóinn og þá lenti ein- hver hlutur á fætinum á mér og braut hann. Sjór komst inn í gallann. Ég náði ekki að bjprgunarbátunum, var kominn alveg að öðrum þeirra en þá flaut hann frá og fjar- lægðist. Ég veit ekki hvað olli því, hvort það var einhver ólga í sjónum meðan skipið var að sökkva. Ég heyrði að þeir voru að kalla í mig úr gúmmíbátnum og þeir hentu ábyggi- lega línu í áttina að mér en ég náði henni ekki.“ Garðar kvaðst ekki gera sér grein fyrir tímanum sem leið meðan hann dvaldi í sjón- um. Hann var spurður um hvað hann hefði hugsað meðan hann beið þess sem verða vildi. „Ég veit ekki almennilega, ætli maður hugsi ekki mest um það að svamla og bíða og sjá hvað setur,“ sagði Garðar. Hann kvaðst hafa vitað af skipum skammt undan. „Fyrst fór Guðbjörgin framhjá án þess að taka eftir mér en skömmu síðar kom Slétta- nesið. Það sigldi aðeins nær og þá lenti ég í ljósgeislanum frá þeim. Ég var orðinn mjög kaldur þegar þeir náðu mér um borð en í sjónum hafði ég dofnað upp og gerði mér ekki nákvæmlega grein fyrir því hvað þetta stæði tæpt.“ Vissir þú strax að sonur þinn hefði komist í bátinn? „Nei, ég vissi ekkert um hann fyrr en ég var kominn um borð í Sléttanesið og þeir sögðu mér að hann væri kominn um borð í Guðbjörgu." Morgunblaðið/Þorkell Garðar Gunnarsson í rúmi sínu á Landakoti í gær. Við rúmið sitja systir Garðars, Sigrún Gunnarsdóttir, og frændi hans, Svanur Jóhannsson. Garðar sagði að hins vegar hefði sér hlýn- að fljótlega þegar þeir á Sléttanesinu hefðu verið búnir að skera utan af honum flotgall- ann og færa hann úr blautum fötum en vefja hann þess í stað í sængur og teppi. Frá Bolungarvík var hann fluttur á sjúkra- hús en síðan rakleiðis með flugvél suður á Landakot. Þar reiknar hann með að liggja í nokkra daga. Hann hefur verið á Krossnes- inu af og til í þijú ár en hann á að baki áratugalangan feril sem sjómaður og skip- stjóri. : r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.