Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 49
W( .y tf'fffHfffi}' a#? H-filí+t ifiW ?;ri*fO¥ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 49 VELVAKANDI MISTÖK GYÐINGA Þorsteinn S. Thorsteinsson skrif- ar: EF MENN tnía þyí bókstaflega að Kristur komi „í skýjum“ þegar hann kemur hljóta þeir einnig að trúa sögunni að Kristur fædd- ist hjá gyðingunum og þeir kross- festu hann, til þess að spádóm- arnir myndu rætast, en síðan átti Kristur að koma á öðrum eða síðari tímum „í skýjum“ skv. Gt Dan 7:13 í bókstaflegri merkingu eins og þetta hafi allt saman verið undirbúið í Gamla testa- mentinu fyrir þá kristnu, en ekki fyrir hinna útvöldu þjóð ísrael (gyðinga). Eða hvers vegna er Daníelspá- dómurinn í Gamla testamentinu að hann komni „í skýjum" ef menn fullyrða eða segja að ekki sé um að ræða táknræna merk- ingu í þessu sambandi? Gat ekki Guð látið Jesús Krist koma „í skýjum" himinsins í bók- staflegri merkingu til hinnar út- völdu þjóðar ísrael á sínum tíma? Ef Guð getur látið Krist koma „í skýjum“ og þá í bókstaflegri merkingu, hefði Guð örugglega framkvæmt komu hans með þeim hætti fyrir hina útvöldu þjóð Isra- el, til þess að gyðingarnir hefðu um leið trúað á Krist, og Guðsrík- ið orðið stofnsett fyrr eða fyrir lifandislöngu, þar sem við vitum að Guð hefur ekki verið neitt ánægður eða haft löngun til þess að horfa uppá þennan eymdar- og volæðislega heim. En eins og við vitum þá fram- kvæmdi Guð ekki komu Krists þannig á sínum tíma heldur fæddist hann í Betlehem og síðan var Jesús Kristur krossfestur á hæðinni Golgata. Jesús hafði sjálfur reynt að benda mönnum á að hann hefði komið niður frá himnum (Jóh 3:13), en fólkið trúði því ekki, því að það hafði ekki séð Jesú koma frá himni í skýjum. Það er alveg rétt hjá Sr. J. Habets að þetta voru mistök sem gyðing- arnir gerðu að afneita Kristi. Fólkið sagði: „Kom blóð hans yfir börn vor,“ en hvers vegna sagði Jesús er hann var leiddur til aftöku: „Jerúsalemsdætur, grátið ekki yfir mér, en grátið yfir sjálfum yður og börnum yð- ar“. Hvernig sem menn líta á sögu gyðinga frá tímum Krists er það alveg gi-einilegt að gyðing- ar hafa hlotið einhver ógurleg örlög og eru ekki lengur Guðs útvalda þjóð. Margir kristintrúarmenn trúa því að Kristur komi í bókstaf- legri merkingu „í skýjum", en ekki í táknrænni merkingu, Við gætum því einnig gert sömu mistökin og gyðingarnir gerðu, þar sem flestir trúa því að Kristur komi frá himnum í bókstaflegri merkingu, en ekki í táknrænni merkingu er það í raun og veru alveg eins víst að menn myndum afneita honum, þar sem þeir hefðu ekki séð hann koma frá himnum „í skýjurn" er hann kæmi til þeirra. Er Kristur kemur aftur hlýtur hann að fæðast hér á jörðu skv. Op 12:5, 19:12-16. Og þá kem- ur hann til þess að stofna eða byggja Guðsríki á jörðu. Skyldur við yfirvöld Frá Böðvari Magnússyni: „Sérhver maður hlýði þeim yfir- völdum, sem hann er undirgefínn. Því ekki er neitt yfírvald til nema frá Guði, og þau sem til eru, þau eru skipuð af Guði. Sá sem veitir yfírvöldunum mótstöðu hann veitir Guðs tilskipun mótstöðu og þeir sem veita mótstöðu munu fá dóm sinn. Sá sem vinnur góð verk þarf ekki að óttast valdsmennina, heldur sá sem vinnur vond verk. En viljir þú eigi þurfa að óttast yfirvöldin, þá gjör það sem gott er og muntu fá lofstír af þeim. Því að þau eru þjónn Guðs þér til góðs. En ef þú gjörir það sem illt er, þá skaltu óttast. Yfirvöldin bera ekki sverðið ófyrir- synju, þau eru Guðs þjónn, hegnari til refsingar þeim er aðhefst hið illa. Þess vegna er nauðsynlegt að hlýðn- ast, ekki einungis vegna hegningar- innar heldur og vegna samviskunn- ar. Einmitt þess vegna gjaldið þér og skatt því að valdsmennirnir eru Guðs þjónar, sem annast þetta. Gjaldið öllum það sem skylt er: Þeim skatt sem skattur ber, þeim toll, sem tollur ber.“ (Róm. 13:1-7.) Það sem ég vil segja með þessu er það að þið íslendingar sem teijið ykkur kristna þjóð en gerið uppreisn gegn löglega þingkjörnum fulltrúum þessarar þjóðar, til að brjóta niður þau verk sem þessi ríkisstjórn er að framkvæma á þessum dögum, sem ég trúi að verði þegar til lengri tíma er litið til meiri heilla fyrir þessa þjóð heldur en áframhaldandi erlend skuldasöfnun, sem er ekkert annað en heimatilbúin gervivelferð sem kemur næstu kynslóð í koll. Það er næsta kynslóð sem stendur uppi með skuldasúpu okkar ef við höldum áfram á sömu braut. Auðvit- að er sjálfsagt að rökræða um að- ferðir og hvar niðurskurðarhnífnum skal beitt, en til þess höfum við til þess kjörna fulltrúa á Alþingi og á sú röksemdaumræða að fara fram þar með fullri virðingu hver fyrir öðrum, en ekki með einskis nýtum orðahnippingum og niðurníði af versta tagi eins og óþroskuð börn. Ég minni fólk bara á að ef ávöxtur þessarar ríkisstjórnar verður vondur þá getur hann eða hún dæmt um ávöxtinn í kjörklefanum í næstu kosningum. Enn hvet ég ykkur kæru landar, verið ábyrgir ykkar eigin gjörða og dæmið réttlátan dóm, ekki lifa bara í hinu stundlega, lítið fram á við, beinið hugsun ykkar fram á við og trúið því að stjómvöld hafi hugsjón fyrir þessari þjóð. Ef þið eigið trúna á Guð föður á himnum og son hans Jesúm Krist þá gerið eins og Páll segir í fyrra Tímóteusarbréfi 2:1-4. „Fyrst af öllu áminni ég um að bera fram ákall, bænir, fyrirbænir og þakkargjörð fyrir öllum mönnum, fyrir konungum (stjórnvöldum) og öllum þeim sem hátt eru settir, til þess að vér fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífí í allri guðhræðslu og siðprýði. Þetta er gott og þóknan- legt fyrir frelsara vorum Guði, sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikan- um.“ Eða trúið orðum Jesú sjálfs: „Biðjið og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýjið á, og fyrir þeim, sem á knýr mun upplok- ið verða.“ Að endingu kæru íslendingar stærið yður ekki upp hver yfír öðrum og leggið ekki fyrirfram dóm á gerð- ir annarra, heldur bíðið átekta og sjáið ávöxtinn. Lifíð í friði hver við annan, nógur er ófriðurinn annars staðar í heiminum. Verum samtaka, tökum öll saman á árina og látum gott af okkur leiða. Guð blessi ykkur, ég kveð ykkur með orðum úr Orðskviðum Salóm- ons Davíðssonar 14:34: „Réttlætið hefur upp lýðinn, en syndin er þjóð- anna skömm." BÖÐVAR MAGNÚSSON Bjamastaðavör 4 Álftanesi LOKSINS! Öryggisklossar meö beygjanlegum sóla Sérlega þægilegir Stærðir: 36 til 47 25% kynningaraffsláttur ^SoSkeifunni 11D, sími 686466. SÉRVERSLUN MEÐ ÖRYGGISSKÓ I--------------------------------------------------------1 I I I I I I I I I I I I Fyrir aðeins kr. 5.000 * j Námið er sniðið að þörfum vinnumarkaðarins. Þú lærir að færa bókhald og nota tölvu við lausn algengra verkefna á nútíma skrifstofu, til dæmis ritvinnslu, áæltanagerð og tölvubókhald. * Verðið miðast við skuldabréf til tveggja ára ! Tölvuskóli Islands vSími: 67 14 66, opið til kl. 22 Skrifstolíitækninám Vlnningstolur 22. feb. 19921 (jVío}{2 (29ÍÍ36) 6)tf VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆD A HVERN VINNINGSHAFA 1. 5a(5 0 2.946.179 r\ KUG,d 4af 5* 102.356 í 3. 4af5 105 8.407 4. 3a(5 3.640 565 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 6.397.294 kr. M? ■■ upplýsingar:sImsvari91-681511 lukkul!na991002 HtgygttttMiifttft Auglýsingasíminn er691111 Emn sem Ibolir alla krákka! Já nú geta krakkarnir hoppað eins og þeir vilja því áklæðið þolir alla ærslabelgi STÓRA sem smáa. Ekkert mál að þrífa. GOÐ GREIÐSLUKJOR BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMl 91-681199 - FAX 91-873511

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.