Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRUAR 1992
37
Bláu augun og „yfirburð-
ir“ norræna kynstofnsins
eftir Svein
Baldursson
Það er ekki á hverjurn degi, sem
maður rekst á ómengaða kynþátta-
stefnu í greinum dagblaðanna. Því
var það að undirritaður og reyndar
allmargir aðrir ráku upp stór augu
við að sjá grein Magnúsar Þor-
steinssonar, bónda í Grímsnesi, sem
bar heitið „Vemdun norræna kyn-
stofnsins“ og birtist í Morgunblað-
inu 3. september sl.
Ég nenni ekki að býsnast yfir
því að hann hafi þessa skoðun og
aðrar sem tengjast kynþáttahatri
og aðskilnaðarstefnu, því hver og
einn verður að hafa sína skoðun í
friði. Rökum hans er á hinn bóginn
ekki hægt að kyngja mótbárulaust,
sér í lagi vegna þess að hann ber
þau á torg öllum til auglitis, þar
sem þau geta hæglega sáð fræjum
þjóðernishyggju og kynþáttahaturs
í huga ómótaðra ungmenna og
þeirra, sem ávallt eru Sammála síð-
asta ræðumanni.
Tengslin við hug-
myndir Hitlers
í grein Magnúsar eru færð rök
fyrir harðari aðskilnaðarstefnu en
þekkist í jafnvel hvítustu Suður-
Afríku. Hugtakið „hreinleiki" virð-
ist Magnúsi ofarlega í huga og sýn-
ist honum að kynblöndun okkar við
aðra kynstofna sé „mengun“. Hann
segir orðrétt: „En þeir [stjórnmála-
menn] gleyma alltaf því, sem er
ennþá mikilvægara, en það er að
við höldum þjóðarstofni okkar
hreinum og óblönduðum. Og þegar
talað er um mengun og umhverfis-
vernd gleymist alltaf að nefna þá
mengun sem hættulegust er, en það
er mengun kynstofnsins vegna kyn-
blöndunar.“ Enn segir Magnús: „Nú
eru augu margra hugsandi manna
á Vesturlöndum að opnast fyrir
því, að ef norrænn kynstofn á ekki
að líða undir lok þarf að stöðva
innflutning á þessu fólki og koma
sem flestu af því úr landi.“
Minna ofangreind orð helst á
hugmyndir Hitlers, en hann mun
hafa sagt í bók sinni „Barátta mín“:
„Öll hámenning fyrri tíma hefur lið-
ið undir lok, þar sem hinn uppruna-
legi skapandi kynþáttur týndist
vegna blóðskemmda." Og nú óttast
Magnús að hinn bláeygi kynstofn
týnist vegna „blóðskemmda“ eða
„mengunar" svo notað sé hugtak
hans orðrétt.
Helför hvíta mannsins
Magnús segir: „Margt bendir til
þess, að menning og velmegun
Vesturlanda sé mannkostum nor-
ræna kynstofnsins að þakka.“
Kynleg eru þau gleraugu, sem
Magnús skoðar tilveruna gegnum.
Hvað bendir svo sem til þess að
„velmegun“ Vesturlanda sé nor-
rænum kynþætti að þakka? Ef ekki
væri fyrir að þakka púðrinu, sem
Kínveijar fundu upp en vildu ekki
nota öðruvísi en til að hræða óvini
sína, þá hefðu barbararnir á Vestur-
löndum aldrei getað vaðið yfir lönd
þriðja heimsins með eldi og eimytju
og orðið þeir nýlendurherrar, sem
þeir urðu. Nýlendurnar gat hvíti
maðurinn notað sem efnahagslega
vogarstöng til að lyfta sér upp fyr-
ir önnur ríki í tækni, verslun og
viðskiptum.
Og árangurinn, þessi svonefnda
„menning og velmegun“, lætur ekki
á sér standa. Atgangur hvíta
mannsins í „velferðar“-kapphlaupi
sínu er með þeim ósköpum að það
verður vart annað kallað en hin
hatrammasta helför gegn náttúr-
unni og þessum gjöfula hnetti, sem
ætti með ágætum að geta fóstrað
okkur öll. Helför sú er raunar efni
í aðra grein.
Mannkostir hins nor-
ræna kynstofns?
Og hvaða mannkostum skyldi svo
hið norræna kyn vera búið umfram
önnur kyn? Eru það þeir hinir sömu
mannkostir og fengu hina norrænu
landnema á Islandi til að bera út
börnin sín? Eða sömu mannkostir
og fengu menn til að höggva með-
bræður sína „af því þeir lágu vel
við höggi“? Eða ef til vill sömu
mannkostir og fengu menn til að
leggja á ráðin um vígaferli, morð,
rán og nauðganir? Voru Merðir
Valgarðssynir þessa lands ef til vill
allir brúneygir?
Nu og hvað er svo hægt að segja
um hinn norræna kynstofn á Is-
landi í dag? Það hljóta að vera hin-
ir norrænu mannkostir, sem valda
því að landinn drekkur mikið og
illa, eða eru slíkir menn bara brún-
eygir? Og eru það bara brúneygir
íslendingar, sem farga samferða-
mönnum sínum í fjáröflunarskyni,
misnota börn sín og annarra, og
bijóta fingur skólabræðra sinna?
Ógnarlíferni okkar
Magnús hefur miklar áhyggjur
af „ógnarfjölda“ þess fólks, sem
gistir þriðja heiminn. Ég hef meiri
áhyggjur af „ógnarlíferni“ þess
fólks, sem gistir iðnríki þessa hnatt-
ar og er hvíti maðurinn þar fremst-
ur í flokki. Einhvers staðar las ég
að hver Breti væri að jafnaði þijá-
tíufalt dýrari fyrir vistkerfið en
hver Indveiji og að munurinn væri
fimmtíufaldur milli Bandaríkja-
manna og Indveija. Samkvæmt
þessum tölum, þá jafnast 57 millj-
ónir Breta á við 1.710 milljónir Ind-
verja, en þeir eru nú um 820 milljón-
ir, svo samkvæmt þessum tölum,
þá eru Bretar einir meira en tvö-
falt dýrari fyrir vistkerfið en næst-
Ijölmennasta þjóð hnattarins. Ekki
batnar samanburðurinn, þegar litið
er á Bandaríkjamenn og Indveija.
Þá jafnast 250 milljónir Bandaríkja-
manna á við 12.500 milljónir eða
12,5 milljarða Indveija, en það er
rúmlega tvöfalt hærri tala en sem
nemur fjölda ailra jarðarbúa. For-
sendurnar fyrir þessum útreikning-
um má hártoga, þ.e. hversu marg-
faldur ofangreindur munur sé, en
engum ætti að dyljast að munurinn
á auðlindanotkun og úrgangsfram-
leiðslu okkar er miklum mun meiri
en það sem gengur og gerist í þriðja
heiminum. Og ef þjóðarframleiðsla
er einhver mælikvarði á neyslu, þá
má hafa það hugfast að þjóðarfram-
leiðsla á mann í Bandaríkjunum er
sextíufalt hærri en í Indlandi og
er þjóðarframleiðsla á mann í Ind-
landi þó hærri en í Kína.
Eitt er víst: Það er líferni okkar
Vesturlandabúa, sem er að eyða
ósonlaginu og auka gróðurhúsa-
áhrifin. Það er líferni okkar íslend-
inga, sem veldur hinni hörmulegu
gróðursnauð á landi voru. Ekki
amast bóndinn Magnús við því þótt
rollurnar nagi gróður landsins upp
til agna* Nei, vandamál okkar er
að Magnúsar mati að finna í hætt-
unni á því að íslendingar verði
„svarthærð, brúneygð, mókollótt
kynblendingaþjóð", mælandi á „ein-
hverskonar íslensku".
Það hlýtur hreinlega að hafa far-
ið framhjá Mágnúsi að nú þegar
eru til ljóshærðir og bláeygir íslend-
ingar, sem finnst ekki „meika sens“
annað en að tala „klín kött“ ís-
lensku! Það þarf nefnilega alls enga
kynblöndun til að menn noti orð
eins og „sjitt", „ókey“, „töff“,
„smart“, og þar fram eftir götun-
um.
Ömurleiki fábreytninnar
Á meðan líffræðingar telja hveiju
vistkerfi mikilvægt að hafa ríkulegt
genasafn, til þess að tegundir eigi
betra með að aðlaga sig síbreytileg-
um aðstæðum, þá vill Magnús
hreinrækta hinn norræna kynstofn
burtséð frá allri úrkynjunarhættu.
Mikið held ég að það yrði þá leiðin-
legt að ganga niður Laugaveginn,
þar sem hin mannlega flóra endur-
kastaði frá sér engu öðru en bláum
lit augnanna og ljósum lit hárs og
hörunds.
Bláeygir öðrum fremri?
Ekkert sé ég, sem bendir til þess
að bláeygir menn séu öðrum æðri
eða fremri. Hafa skal í huga að
Sveinn Baldursson
„Ekkert sé ég, sem
bendir til þess að blá-
eygir menn séu öðrum
æðri eða fremri. Hafa
skal í huga að sagan
kennir okkur það að á
gervöllum hnettinum
hafa menningarskeið
risið og hnigið rétt eins
og öldur úthafanna.“
sagan kennir okkur það að á gervöll-
um hnettinum hafa menningarskeið
risið og hnigið rétt eins og öldur
úthafanna. Fyrir mörgum árþús-
undum voru Kínveijar til dæmis
miklu fremri forfeðrum okkar að
menningu og tækni. Ef telja ætti
allar þær „nýjungar" (þær voru það
á sínum tíma), sem borist hafa frá
Kínveijum til Vesturlanda, þá yrði
það langur listi og fróðlegur og
væntanlega kæmi þar margt á
óvart. Benda má til dæmis á að
Kívneijar fundu upp púðrið, pappír-
inn og prentlistina mörgum öldum
áður en slíkt varð þekkt í Evrópu.
Okkar menning mun hrynja
Þótt vestræn menning hafi risið
hátt á efnahagslegan mælikvarða,
þá er eins víst að hún mun hníga
og þá munu önnur menningarsam-
félög bruna fram úr okkur og gefa
hugtökunum „efnahagur" og
„tækni“ alveg nýja merkingu. Þá
mun jafnvel verða talað um hrun
iðnaðarþjóðfélagsins, hrun kapítal-
ismans, hrun vestrænnar menningar
eða eitthvað álíka. Ekki er það ólík-
legt að talað verði um slavneska
efnahagsundrið eða þá hið rússn-
eska. Hveijum hefði dottið japanska
efnahagsundrið í hug í lok seinni
heimsstyijaldarinnar?
Genamarkaður framtíðarinnar
Framfarir í erfiðavísindum eru
slíkar og þvílíkar að nú þegar hafa
átt sér stað tilraunir á mönnum þar
sem afmarkaðir erfðagallar eru lag-
færðir og lofa tilraunir þessar góðu.
Þess verður ekki langt að bíða að
við munum ráða yfir þeirri tækni
að bjóða upp á arfbera (gen) til sölu.
Þá geta þeir sem viljað fengið sér
blá augu og ljóst hár handa sér eða
afkomendum sínum. Ég vona bara
að genaneytendur framtíðarinnar
verði ekki svo smekklausir og hænd-
ir að frábreytninni að þeir velji sér
allir blá augu.
Höfundur er töivunarfræðingur
og nuddfræðingur.
^AROMAZON
nuddmeðferðin
Ótrúlega þægileg meðhöndlun
sem eykur sogæðaflæðið,
blóðstreymið (og þar með
súrefnisflutninginn). Losar stíflur
og uppsöfnuð eiturefni. Styrkir
húðina.lagar línurnar og eykur
vellíðan.
Notaðar eru virkar ilmolíur og
AROMAZONE krem.
Láttu þér líða betur
nátic
andlits- brjóst- og líkams-
meðferð.
}/má
Nýjar neglur
Gæði í sérflokki.
Eðlilegar.sterkar og léttar með
náttúrulegum gljáa.
■ Andlitsböð Kínverskt nudd
■ Húðhreinsun ■ Slökunarnudd
■ Vaxmeðferð ■ Svæðanudd
■ Förðun ■ íþróttanudd
■ Fótaaðgerðir ■ Vöðvabólgunudd
■ Litun
■ Handsnyrting
TILBOÐSPAKKAR
--1------
WÆFJBrfr
Verið velkomin.
Opið virka daga frá 9-7
einnig laugardaga.
SNYRTI- OG NUDDSTOFAN
PARADÍS
Laugarnesvegi 82
Sími31330