Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. PEBRÚAR 1992 11 Lífræn form Myndlist Bragi Ásgeirsson í listhúsinu flotta á Skóla- vörðustíg 15, sem hefur hlotið nafnið Gallerí G 15, hefur undanfarið staðið yfir sýning á nokkrum verka Grétars Reyniss- onar. Grétar er löngu vel þekktur sem málari og enn betur þekktur sem leikmyndahönnuður enda hefur hann verið atkvæðamikill á báðum vettvöngum undanfarin ár. Þessi sýning Grétars byggist fyrst og fremst á röð lítilla stefja við ákveðna grunnhugmynd, en auk þess hefur eitt sporöskjulaga málverk fengið að fljóta með. Málverkið er mjög í anda þess, sem menn sáu á síðustu sýningu Grétars, sem dijúga athygli vakti. Það er hnitmiðað í einfald- leika sínum og minnir sterklega á einhveija ákveðna hringrás úit í geiminum, jafnvel svarthol. Hvað litlu stefin snertir þá er hér um að ræða formæfingar, þar sem gengið er út frá liinu lífræna og minnir ferlið dálítið á stækkaðar öreindir, sem hafa brugðið á leik við hin ýmsu frum- form, sem eins og halda þeim í skeíjum í myndfletinum. Þetta er ekki stór sýning en vert er að vekja athygli á henni fyrir hin léttu og einlægu vinnu- brögð, þar sem upplifunin skiptir meginmáli og myndaröðin kann að marka nýtt landnám í list Grétars Reynissonar. Sýningin fellur vel að hinum litla kjallarasal og er i einu og öllu hin notalegasta heim að sækja og skal þeim mörgu sem fylgjast af áhuga með framvind- unni hjá þessum listamanni sér- staklega bent á hana. Grétar Reynisson Textar í mannhafinu ___________Bækur_________________ Jón Stefánsson Kristján Hreinsson: MANNHAF. Ljóð. Eigin útgáfa. 1991. Þeir eru ekki margir sem halda tryggð við hið gullna tríó; stuðul, höfuðstaf og rím, en Kristján Hreinsson er einn af þeim. Og svona lýsir hann skrifum sínum: Minn skáldaandi skapar Ijóð, ég skrifa þau á blað og les þau fyrir land og þjóð. Ég læt mig hafa það. Ég skrifa Ijóðin skiljanleg um skáldsins línudans. Og lifi míni leyni ég í ljósi sannleikans. Ég held að það væri full rausnar- legt að kalla þessar línur skáld- skap, miklu nær væri að tala um textagerð. Fyrra erindið er rímuð lýsing höfundar á vinnuaðferðum sínum, ósköp almennt orðað en eitthvað er síðasta línan vand- ræðaleg. í síðari erindinu slær Kristján um sig með líkingu; „Og lífí míni leyni ég/í ljósi sannleik- ans“. Er hægt að leynast í ljósi? Sumar ljóðabækur eru bara hugdettur bókhneigðra ungmenna sem lesa Stein á menntaskólaárum sínum og telja sjálfum sér trú um að þeir séu skáld. Flestir sjá fljót- lega að sér, afgreiða bókina sem bemskubrek og láta síðan nægja að yrkja ofaní skúffuna. Kristján Hreinsson lét sér ekki segjast eft- ir fýrstu bók og heldur áfralíí að yrkja. En honum hefur enn ekki tekist að senda frá sér góða ljóða- bók og því miður breytir Mannhaf- ið ekki þeirri staðreynd. Kristjáni er þó ekki alls vamað, hefur til dæmis þokkalegt vald á bragfræð- inni og gæti því samið texta fyrir hinar ýmsu hljómsveitir. Sum kvæði hans í Mannhafi minna reyndar mjög á dægurlagatexta: Um hafið ég sigli og hugsa til þín, ég heyri í blásandi vindum er Venus mín stjama í vestrinu skín og vitund mín fyllist af myndum. í sjálfu sér er lítið hægt að setja út á svona texta, hann rennur ljúf- lega og átakalaust áfram. En þetta er og verður bara texti sem á lítið erindi í ljóðabók. Nú kann ein- hveijum að þykja ég full dómharð- ur, en Mannhaf er nú einu sinni sjötta ljóðabók Kristjáns og því hlýtur að vera óhætt að gera þá kröfu að hann sendi frá sér eitt- Kristján Hreinsson hvað annað og meir en snotra dægulagatexta. Eða stirðlegar lýs- ingar á Adolf Hitler: Hann Adolf var dæmalaust orðheppinn snáði. Hann átti sér drauma um frama og völd. Með metorðagirnd var svo margt sem hann þráði -Hann mætti í heiminn á nítjándu öld. Ég get auðvitað ekki bannað Kristjáni Hreinssyni að gefa út ljóðabækur, en ef hann gerir ekki betur en í Mannhafi getur hann varla búist við að fá hrós hjá rit- dómurum. DAGBÓK ÁRNAÐ HEILLA Q /\ára afmæli. í dag, 25. OU febrúar, er áttræð María Júlíusdóttir, Ránar- götu 20, Akureyri. Maður hennar var Guðmundur Jón- atansson málarameistari. Hann lést árið 1989. Hún tek- ur á móti gestum nk. laugar- dag 29. þ.m. í Litla sal Fiðlar- ans, Skipagötu 14 þar í bæn- um kl. 15-20. /?/\ára afmæli. í dag, 25. þ-m., er sextugur Haraldur Baldursson, bankaútibússtjóri, Urða- stekk 3, Reykjavík. Eigin- kona hans er Gyða Guð- mundsdóttir. Þau taka á móti gestum í dag, afmælisdaginn, í Akóges-salnum, Sigtúni 3, kl. 17-19. pT /\ára afmæli. í dag, 25. tll/ febrúar, er fimmtug- ur Þorsteinn Eggertsson, Skipholti 18, Reykjavik, blaðamaður og rithöfund- ur. Hann og kona hans Jó- hanna Fjóla Ólafsdóttir taka á móti gestum í kvöld eftir kl. 20.30. á Hótel íslandi. /*/\ára afmæli. Aðal- OU steinn Aðalsteins- son bóndi á Varðbrekku í Jökuldalshreppi er sextugur á morgun, miðvikudag 26. febrúar. Kona hans er Sigríð- ur Sigurðardóttir. Þau eru að heiman á afmælisdaginn. HÓTfl þg,T,AND NÆSTU HELGI: FÖSTUDAGS- 0G LAUGARDAGSKVÖLD THE BYRDS Fyrsta lag hljómsveitarinna Mr. Tambourine Man eftir Dylan, sló í gegn og seldist í meira en 2 milljónum eintaka. Síðan kom hvert lagið af öðru; Turn Turn Turn, Eight Miles High, So You Want to be a Rock'n Roll Star, Lady Friend, lagið úr Easy Rider og Jesus It's Just All Right with Me svo aðeins fáein séu nefnd. 7. NIARS - SIÐASTA SYNING STÓRSÝNINGI Pétur Daníel Berglind Nú fer hver að verða síðasfur að sjá þessa stórskemmtilegu sýningu Páll Óskar Móeiður 13., 14., 20., 21., 27.08 28. NIARS 0G 3. og 4. APRÍL THE PLATTERS Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að sjá og heyra í hinum stórkostlegu The Platters. Hver man ekki eftir lögum eins og The Great Pretender, Only You, Smoke Gets in Your Eyes, The Magic Touch, Harbor Lights Enchanted, My Prayer, Twilight Time, You’ll never Know, Red Sails in the Sunset, Remember When.. o.fl. 10.0G11.APRÍL DR. HOOK EIN ALVINSÆLASTA HLJÓMSVEIT SEM TIL LANDSINS HEFUR KOMIÐ. Hver man ekki eftir: Sylvia s mother, The cover of the Rolling stones, Only sixteen, Walk right in, Sharing the night together, When you are in love with a beautiful woman, Sexy eyes, Sweetest of all o.fl. o.fl. Hljómsveitin STJÓRNIN er nú aftur komin á sviðið á Hótel íslandiog leikur fyrir dansi á laugardagskvöldið. Sýningar á heimsmælikvarða á Hótel íslandi HÓm fj,LAND Miðasala og borðapantnanir i síma 687111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.