Morgunblaðið - 03.04.1992, Side 35
35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992
Alþjóðleg frímerkjasýning fyrir unglinga:
*
Islendingar hlutu þrenn verðlaun
Halldóra Björnsdóttir og Baltasar Kormákur í hlutverkum sínum
sem Rórneó og Júlía.
Síðasta sýning á
Rómeó og Júlíu
SYNINGUM á Rómeó og Júlíu
eftir VVilIiam Shakespeare, sem
sýnt hefur verið á Stóra sviði
Tískusýning
í Kringlunni
Á sunnudag, 5. apríl, kl. 15, verð-
ur tískusýning hjá Sævari Karli
í Kringlunni á vor- og sumartísk-
unni 1992 fyrir dömur og herra.
Sýningin verður haldin fyrir utan
versiunina í Kringlunni. Verslunin
verður opin frá kl. 14-17.
Þjóðleikhússins síðan um jól, lýk-
ur fimmtudaginn 9. apríl.
Síðan leikritið var fyrst leikið í
lok 16. aldar hefur það verið eitt
af vinsælustu verkum leikskáldsins.
í uppfærslu Þjóðleikhússins er leik-
ritið fært nær okkur í tímanum án
þess að atburðirnir séu njörvaðir
niður í ákveðið tímabil sögunnar.
Tónlistin er t.d. sambland af blús,
djassi og nútíma dægurtóniist flutt
af hljómsveit sem er hluti af sýning-
unni.
Rómeó er leikinn af Baltasar
Kormáki og Júlíu leikur Haildóra
Björnsdóttir.
Vegagerð ríkisins eyddi ekki
umfram fjárheimildir 1991
í FRÉTTUM og hugleiðingum
fjölmiðla undanfarna daga hefur
verið vísað til skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um framkvæmd fjár-
laga 1991. I skýrslunni er yfirlit
yfir 21 ríkisstofnun sem talin er
liafa eytt umfram fjárheimildir
á sl. ári. Vegagerð ríkisins er
talin í þessum hópi. Það er ekki
rétt. Vegagerð ríkisins fékk á sl.
ári 5.190 m. kr. úr ríkissjóði sam-
kvæmt fjárlögum og átti í
greiðsluafgang um sl. áramót
100 millj. kr., segir í athugasemd
frá vegamálastjóra.
Skýringar á þeim mistökum sem
Laugarhóli.
ALÞJOÐA frímerkjasýningin
„KANADA-92", sem haldin var
fyrir unglinga um allan lieim í
Montreal í Kanada 21.-29. mars,
tilkynnti niðurstöður dómnefnd-
ar um verðlaun einstakra þátt-
takenda á lokadegi sýningarinn-
ar, 29. mars sl.
Þrír ungir Islendingar sýndu frí-
merki á KANADA-92 og fengu all-
ir verðlaun, tvenn silfurverðlaun og
ein bronsverðlaun. Þetta verður að
teljast vel gert því allir sýndu þeir
í fyreta sinn á stórri alþjóðlegri
sýningu.
Þrír ungir íslendingar hafa unnið
sér rétt til að sýna frímerkjasöfn
sín á aiþjóðlegum sýningum og þeir
tóku að þessu sinni allir þátt í sýn-
ingunni „KANADA-92“. Þetta mun
vera stærsta alþjóðlega ungmenna-
íslenskar sjávarafurðir hf:
Bæklingur
á ensku
Fyrirtækið íslenskar sjávaraf-
urðir hf. hefur gefið út upplýs-
ingarbæklingurinn Facts and
Figurcs í annað sinn en ætlunin
er að endurnýja hann árlega. í
bæklingnum er að finna ýrnsar
upplýsingar varðandi veiðar og
vinnslu á ýmsum fisktegundum.
Aftast í bæklingum er að finna
samantekt á útflutningi fyrirtækis-
ins eftir tegundum og mörkuðum.
hér hafa orðið liggja fyrir. Ríkisend-
urskoðun hefur verið beðin að koma
leiðréttingum á framfæri við fjöl-
miðla. Hún hefur ekki orðið við
þeim tilmælum og því telur Vega-
gerðin óhjákvæmilegt að upplýsa
hið rétta í málinu, segir í athuga-
semdinni.
sýningin til þessa.
íslendingarnir voru Ólafur Kjart-
ansson, sem sýndi safn sitt „Blóm
í Evrópu“ og vann fyrir bronsverð-
laun, Björgvin Ingi Ólason, sem
sýndi safnið „Fuglar Evrópu" og
fékk fyrir silfui-verðlaun og Stórt
silfur, en heiðursverðlaun hlaut svo
Kári Sigurðsson fyrir safn sitt
„Merkir Islendingar".
Þessir ungu menn er félagar í
Félagi frímerkjasafnara í Reykjavík
og í Klúbbi Skandinavíusafnara sem
Tíðkast hefur til langs tíma
að framhaldsskólarnir þreyti
ineð sér keppni í ýmsum greinuin
íþrótta og fleiru. Nú í annað
skipti leiða framhaldsskólanem-
ar saman hesta sína í orðsins
fyllstu merkingu um helgina þeg-
ar haldið verður framhaldsskóla-
inót í hestaíþróttum í Reiðhöll-
inni.
Fimmtán skólar taka nú þátt i
mótinu en í fyrra voru þeir fimm.
Eru það skólar á Norður-, Vestur-
og Suðurlandi auk skóla af höfuð-
borgarsvæðinu sem taka þátt að
þessu sinni og eru keppendur þrír
frá hveijum skóla í hverri grein.
Keppt verður í tölti, fjór- og fimm-
gangi og er um að ræða bæði ein-
staklingskejipni og stigakeppni milli
skólanna. I fyrra sigraði Ármúla-
skóli en þar hefur á undanförnum
árum verið rekið öflugt starf í
hestaklúbbi skólans. Mótið hefst
fyrir hádegi á laugardag með for-
keppni í fjórgangi og þar á eftir
verður keppt í fimmgangi. Á sunnu-
dag fer frani forkeppni í tölti og
úrslit að henni lokinni.
í flestum skólum hefur farið fram
úrtökukeppni og var víða hart bar-
ist um sæti í liðunum. Margir lands-
þekktir hestar koma þarna fram
og má þar nefna Atlas frá Gerðum
sem riðið var til sigurs í fimmgangi
á íslandsmóti í Borgarnesi, þá verð-
einnig starfar í Reykjavík. Þeir sem
hafa aðstoðað þá í söfnuninni og í
starfi eru Guðni Fr." Gunnarsson
hjá Félagi frímerkjasafnara og Jón
Fr. Zalewski hjá Klúbbi Skandinaví-
usa/nara.
Áður hafa söfn þessi verið sýnd
á Norðurlandasýningum og einnig
á sýningum innanlands. Það að ná
slíkum verðlaunifm á alþjóðlegri
sýningu er hins vegar mjög góður
árangur.
S.H.Þ.
ur þarna Hörður frá Bjamastöðum
sem er margfaldur íslandsmeistari
í unglinga- og ungmennaflokki og
að síðustu má nefna Kolskegg frá
Ásmundarstöðum en hann stóð
efstur í gæðingakeppni unglinga á
fjórðungsmótinu á Hellu síðastliðuT
sumar. Keppt er um veglegan far-
andbikar í stigakeppin skólanna
sem Búnaðarbanki Islands gaf.
V.Kr.
-----» ♦ ♦----
Lýst eftir
ökumanni
og vitnuni
Slysarannsóknadeild lögreglunn-
ar í Reykjavík lýsir eftir ökumanni
appelsínugulrar grjótflutningabif-
reiðar, sem varð fyrir því að aka á
númerslausa bláa Ford Fiesta bif-
reið fyrir utan húsnæði Bifreiða-
skoðun íslands þann 7. febrúar síð-
astliðinn um klukkan 15.30.
Þá er lýst eftir vitnum að árekstri
milli Chevreolet-bifreiðar og BMW-
bifreiðar á Kringlumýrarbraut,
móts við Nesti í Fossvogi um klukk-
an 14.40 þann 21.10. síðastliðinn.
Reiðhöllin um helgina:
Framhaldsskólanemar
leiða saman hesta sína
AUGLYSINGAR
Laugardagsfundur um
mennta- og kennsBumál
Landsmálafélagið Vörður boðar til um-
ræðufundar um mennta- og kennslumál
laugardagsmorguninn 4. apríl nk. milli kl.
10.00 og 12.00 í Valhöll, kjallara.
Framsögu hefur Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra. ' "
Allir, sem áhuga hafa á mennta-, menning-
ar- og kennslumálum, eru velkomnir.
Landsmálafélagið Vörður.
Aðalfundur
kjördæmasamtaka ungra
sjálfstæðismanna
á Reykjanesi
verður haldinn föstudaginn 3. apríl kl.
20.00. í félagsheimili Sjálfstaeðisflokksins í
Garðabæ, Lyngási 12.
Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðal-
fundarstörf og léttar veitingar á
eftir.
Gestur fundarins verður Árni Mathiesen.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Landsmálafélagið
Fram og F.U.S.
Stefnir halda há-
degisverðarfund í
Sjálfstæðishúsinu
4. april kl. 12.00-
13.30.
Gestur fundarins
verður Björn Bjarna-
son, alþingismaður.
Fundarefni:
Utanrikismál.
Fundarstjóri: Magnus Gunnarsson.
Hvetjum allt sjálfstæðisfólk til að mæta!
Qútivist
Hallveigarstíg 1, sími 14606
Dagsferðir sunnudaginn
5. apríl:
Kl. 10.30: Kirkjugangan 7.
áfangi, Saurbær á Hvalfjarðar-
strönd.
Kl. 13.00: Skíðaganga á Hellis-
heiði.
Sjáumst!
Útivist.
I.O.O.F. 1 = 17343872 =
I.O.O.F. 12 = 173438'A = SP
St.St.5992444 IX kl. 16.00
Innanfélagsmót
skíðadeildar Víkings í stórsvigi
verður haldið laugardaginn 4.
april kl. 11.00 í flokkum 13-14
ára, 15-16 ára, karla, kvenna
og öldunga.
Stjórnin.
Samvera fyrir fólk á öllum aldri
i kvöld í Laugarneskirkju kl.
20.30. Kyrrðar- og íhugunar-
stund. Altarisganga. Eftir kyrrð-
arstundina verður samvera í
safnaðarheimilinu. Efni: „Að lifa
einn", sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son talar. Ath. breyttan stað.
SAMBAND ÍSLENZKRA
0 KRISTNIBODSFÉLAGA
Árleg fjáröflunarsamkoma verð-
ur í Kristniboðssalnum, Háalteit-
isbraut 58, i kvöld kl. 20.30.
Kenýaþáttur: Ragnar Gunnars-
son. Happdrættisborð. Hugleið-
ing: Skúli Svavarsson. Kaffi.
Kristniboðsfélag kvenna
í Reykjavik.
Frá Guöspeki-
fólaginu
Ingólfsstræti 22.
Áskrlftarslml
Ganglera ar
I kvöld kl. 21.00 flytur Jón Arn-
alds erindi um mannþekkingu i
húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á morgun, laugardag, er opið
hús frá kl. 15.00-17.00. Herdís
Þorvaldsdóttir sér um fræðslu
kl. 15.30. Allir eru velkomnir og
aðgangur ókeypis.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3S11798 19533
Aðeinstværvikur
í páskafrí með FÍ
Fjöldi spennandi ferða.
1. 16.-18. aprii. Snæfellsnes -
Snæfellsjökull (3 dagar).
2. 16.-20. aprfl. Landmanna-
laugar, skíðagönguferð (5 dagar).
3. 16.-20. april. Landmanna-
laugar-Hrafntinnusker-Laufa-
fell, skíðagönguferð (5 dagár).
4. 18.-20. aprfl. Þórsmörk
(3 dagar).
5. 18.-20. apríl. Borgar-
fjörður-Húsafell. (3 dagar).
Nánari upplýsingar og farmiðar
á skrifstofu, Öldugötu 3.
Pantið tímanlega.
Myndakvöld á miðvikudags-
kvöldið 8. aprfl kl. 20.30 í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a. Áhuga-
verð myndasýning af utanlands-
og innanlandsferðum. M.a. kynn-
ing á páskaferðunum.
Sunnudagsferðir 5. aprfl:
Kl. 10.30 Bláfjöll-Kleifarvatn,
skíðaganga.
Kl. 13.00 Skíðakennsla og skfða-
ganga frá Hveradölum.
Kl. 13.00 Hafnarskeið-Þorláks-
höfn, fjölskylduganga.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin (viðkoma hjá
Mörkinni 6). Verið með!
Ferðafélag islands.