Morgunblaðið - 07.04.1992, Page 2

Morgunblaðið - 07.04.1992, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1992 Aðalfundur íslandsbanka: Sameining eignarhaldsfélag- anna við bankann undirbúin Tveir milljarðar lagðir á afskriftareikning á sl. þremur árum AÐALFUNDUR íslandsbanka samþykkti samhljóða tillögu um að fela bankaráði bankans í samráði við stjórnir þeirra eignarhaldsfé- laga, sem aðild eiga að bankanum, að halda áfram að undirbúa sam- einingu eignarhaldsfélaganna og bankans eftir því sem um semst. í ræðu Vals Valssonar, formanns banka- og framkvæmdastjórnar, kom fram að framlag í afskriftareikning útlána nam 815 milljónum króna á sl. ári samanborið við 565 milljónir árið áður og er það um 44% aukning. Bankarnir fjórir sem mynduðu íslandsbanka lögðu árið 1989 tæplega 700 milljónir á afskriftareikning. Þetta gerir sam- tals yfir 2.000 milljónir á sl. þremur árum. Kveikti eld og skaut af byssu inni hjá sér ELDUR kom upp í íbúð við Vallarás í Reykjavík um klukkan hálftvö aðfaranótt sunnudagsins. íbúi reyndist hafa lagt eld að fatahrúgu á gólfi, kveikt í henni og skotið síðan nokkrum skotum úr haglabyssu inni í íbúðinni. Þegar lögregla og slökkvilið komu á staðinn hafði maðurinn slökkt eldinn með slökkvitæki og komið haglabyssunni fyrir inni í skáp. Hins vegar var reykur á stiga- ganginum og skemmdir af völdum hans og sóts í íbúðinni. Maðurinn var vistaður í fanga- geymslum lögreglunnar. Sérhæfði sig í að stela Saab FJORIR unglingspiltar voru handteknir á stolnum Saab- bíl á Mosfellsheiði snemma á sunnudagsmorgun. Einn þeirra hefur játað að hafa undanfarnar vikur stolið fjöl- mörgum bílum sömu tegund- ar en hann hafði komist yfir höfuðlykil sem gekk að flest- um Saab-bílum. För piltanna fékk þann endi að bíllinn lenti út af veginum eftir að honum hafði verið ekið yfir umferðarskilti á heiðinni og allar vegstikur á 2-3 km vegarkafla. Bíl þessum höfðu piltamir stolið við Seljaveg fyrr um nótt- ina. Þegar eigandinn tilkynnti lögreglunni um þjófnaðinn um klukkan ellefu á sunnudags- morguninn var þegar búið að draga bílinn stórskemmdan í port lögreglustöðvarinnar. Fleiri Saab-bílum höfðu piltar þessir stolið fyrr um helgina en þeir virtust allir undir áhrif- um áfengis, að sögn lögreglu. Missti framan af fingri þegar hurð var skellt MAÐUR missti framan af fingri þegar skellt var á hann hurð í húsi þar sem hann var ekki vel- kominn gestur. Maðurinn mun hafa ætlað sér að heimsækja fólk í húsi í austurbæ borgarinnar, um klukkan þfjú að- faranótt sunnudags. Honum var vísað á dyr en þegar útidyrnar voru látnar aftur varð einn fingur mannsins milli stafs og hurðar og hjóst þar framan af honum. í ræðu sinni sagði Einar Sveins- son, formaður bankaráðs, að svo virtist sem skilyrði hefðu verið sköpuð sem auðvelda mættu sam- einingu eignarhaldsfélaganna og bankans. Um þetta væru þó nokkuð skiptar skoðanir. Hvatti hann til að unnið væri að sameiningu eins fljótt og kostur væri. Hagnaður af rekstri íslands- banka varð 62 milljónir króna á sl. ári samanborið við 448 milljónir árið 1990. Sagði Einar þessi miklu umskipti stafa 'af tvennu. Annars vegar hefði vaxtamunur minnkað snögglega á fyrstu mánuðum ársins og á tímabilinu 1. janúar til 30. apríl hefði verið 252 milljóna króna tap á rekstri bankans. Vaxtamunur var 3,4% árið 1991 en 4,0% árið 1990. Hins vegar hefði framlag bankans í afskriftareikning hækkað um 44% á milli ára. Einnig sagði hann að bankanum væri nauðsyn- legt að gæta ýtrustu varkárni við mat á útlánum bankans. Einar greindi jafnframt frá að- gerðum bankans undanfarin ár til að auka hagkvæmni í rekstrinum. Útibúum hafi verið fækkað úr 37 í 32. Húsnæði hefði verið selt fyrir 345 milljónir króna og bankinn noti nú 3.000 færri fermetra en bankarnir fjórir gerðu áður. Starfs- fólki hefði fækkað og gert væri ráð fyrir að stöðugildi verði 750 talsins í lok þessa árs og hefði fækkað um 150 frá því ákvörðun um stofnun íslandsbanka hefði verið tekin. Valur Valsson gagnrýndi álögur ýmissa opinberra gjalda sem gerðu íslenskum bönkum erfitt að keppa við erlenda banka. Þá sagði hann bundnar innstæður banka og spari- sjóða í Seðlabankanum hafa numið rúmlega 10 milljörðum króna á sl. ári. Ekki væri fjarri að álykta að hefðu bankar og sparisjóðir fengið eðlilega ávöxtun af fé sínu hefðu tekjur þeirra verið um 500 milljón- um króna hærri á síðasta ári en raun varð á og afkoma Seðlabank- ans 500 milljónum króna verri af sömu ástæðu. Eigið fé íslandsbanka nam í árs- lok 5.391 milljón króna og hafði þá hækkað um 1.407 milljónir. Á aðalfundinum var samþykkt tillaga bankaráðs um að greiddur yrði 5% arður á árinu 1992 eða 189 milljónir. í bankaráð íslandsbanka voru kosnir Ásmundur Stefánsson, Brynjólfur Bjarnason, Einar Sveins- son, Guðmundur H. Garðarsson, Kristján Ragnarsson, Magnús Geirsson og Sveinn Valfells. Á fyrsta fundi bankaráðsins í gær var Kristján Ragnarsson kjörinn for- maður ráðsins, Bi-ynjólfur Bjarna- son varaformaður og Ásmundur Stefánsson ritari. :-----» ♦ >----- Islenskt grænmeti til varn- arliðsins Selfossi. VARNARLIÐINU á Keflavíkur- flugvelli verður í fyrsta sinn selt íslenskt grænmeti í apríl. Um er að ræða tilraunasölu. Kristinn Ágústsson sölustjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna sagði að ef þessi tilraunasala gengi vel væri stefnt að því að allt græn- meti sem varnarliðsmönnum byðist yrði íslenskt. Grænmeti vamarliðs- manna hefur hingað til verið flutt inn frá Bandaríkjunum. - Sig. Jóns. Missti fót um ökkla SJÓMAÐUR um borð í Kópanesi SH 702 missti fót um ökkla i slysi sem varð er skipið var statt úti af Snæfellsnesi á sunnudag. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF Sif, var kvödd til aðstoðar en slæmt veður var á slysstað og varð þyrlan að bíða hins slasaða á bryggjunni á Rifi. Slysið mun hafa orðið með þeim hætti að dreki var settur fyrir borð og festist færi sem bundið var í hann um fót sjómannsins með fyrrgreindum afleiðingum. Sjómaðurinn, sem er á fertugs- aldri, var á gjörgæsludeild Borg- arspítalans í Reykjavík í gær, en var ekki talinn í lífshættu. Landhelgisgæslunni barst beiðni um aðstoð frá Kópanesi kl. 20.40 á sunnudagskvöld. Þyrlan kom að bátnum þar sem hann var staddur um tíu sjómílur norðaust- ur af Rifi rétt fyrir kl. 22. Veður var slæmt, sex vindstig af norð- austri, og var ekki talið ráðlegt að hífa sjúklinginn um borð í þyrl- una vegna sjógangs, að sögn Landhelgisgæslunnar. Læknir seig um borð í bátinn með sjúkrabörur og búnað og gerði að sárum mannsins til bráðabirgða og bjó hann undir sjúkraflutning. Læknirinn fór síð- an með skipinu að Rifi þar sem þyrlan beið þess. Siglingin að Rifi tók um 50 mínútur. Flogið var með sjúklinginn að Borgarspítal- anum og þar lenti þyrlan kl. 23.38. Sjómaðurinn fluttur í land á sjúkrabörum. Morgunbiaðið/Aifons

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.