Morgunblaðið - 07.04.1992, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1992
27
Verðlaunahafar skeifu-
dagsins 1992, frá vinstri
talið: Skeifuhafinn Jó-
sef Guðjónsson á Golu,
Hilda Pálmadóttir sem
varð í öðru sæti á
Lipurtá, Asa Birgisdótt-
ir á Gjafari, María H.
Eggertsdóttir á Fleyg
og Þóra Elín Einars-
dóttir á Blakk sem varð
í fimmta sæti. Næstur
er Sigurjón Hákon
Krisljánsson á Þrumu
en hann hlaut Eiðfaxa-
bikarinn og Stella
Kristjánsdóttir á Kagga
en hún hlaut ásetuverð-
laun Félags tamninga-
manna.
Skeifukeppnin á Hvanneyri:
Margt efnilegra trippa
í mjög jafnri keppni
________Hestar___________
Valdimar Kristinsson
Þrátt fyrir rysjótta tíð í vetur
og það að Skeifukeppnin er nú
haldin nokkru fyrr en venja er
til virtist útkoman úr tamning-
um nemenda á Hvanneyri með
besta móti. Mátti þarna sjá tals-
vert efnileg trippi sem lofa
góðu. Keppnin sem fram fór á
sunnudag var jöfn og spenn-
andi og virtist enginn einn nem-
andi skera sig afgerandi úr að
þessu sinni. Þegar upp var stað-
ið stóð Jósef Guðjónsson uppi
sem sigurvegari í keppninni um
Morgunblaðsskeifuna með 84,5
stig en hann tamdi og keppti á
hryssunni Golu frá Oddsstöð-
um.
Gola sem er fimm vetra er und-
an Eiðfaxa 953 frá Stykkishólmi
og Eydísi frá Oddstöðum. Stúlk-
urnar voru nokkuð atkvæðamiklar
að þessu sinní því fjögur næstu
sætin voru skipuð stúlkum. Næst
kom Hilda Pálmadóttir á Lipurtá
frá Læk með 83 stig, Ása Birgis-
dóttir varð þriðja á Gjafari frá
Strönd með 82,5 stig, María H.
Eggertsdóttir íjórða á Fleyg frá
Haukagili með 81,5 stig og Þóra
Elín Einarsdóttir á Blakk frá
Feijukoti varð fimmta með 80,5
stig.
Ásetuverðiaun Félags tamn-
ingamanna hlaut Stella Kristjáns-
dóttir en hún keppti á Kagga frá
Stóra-Hofi og Eiðfaxabikarinn
hlaut Siguijón Hákon Kristjáns-
son en hann var með hryssuna
Þrumu frá Kúfhóli. Eiðfaxabikar-
inn var ágæt sárabót fyrir Hákon
því hann var talinn líklegur í efsta
sætið af mörgum bæði fyrir og
ekki síður eftir sýningu en dómar-
arnir voru á öðru máli og það eru
jú þeir sem ráða ferðinni. Reyndar
var það nokkuð undarlegt að hann
skyldi ekki einu sinni vera meðal
fimm efstu í skeifukeppninni.
Haraldur Sveinsson
framkvæn(idastj óri
Árvakurs afhenti
Jósef Guðjónssyni
Morgunblaðsskeif-
una eftirsóttu en
Jósef situr hryss-
una Golu frá Odds-
stöðum sem hann
tamdi í vetur og
keppti á í skeifu-
keppninni.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Hvað varðar umhirðu og fóðrun
trippanna má óhikað taka undir
orð Ingimars Sveinssonar kennara
er hann sagði að verðlauna mætti
alla krakkana fyrir góða hirðingu.
Hrossin báru þess greinileg merki
að þau hafi komist í kynni við
kambinn í vetur og fóðurástand
var eins best verður á kosið.
Fyrr um daginn var keppt í
gæðingakeppni hestamanna-
félagsins Grana en þar sigraði í
A-flokki Úi 939 frá Nýjabæ, eig-
andi Olöf Guðbrandsdóttir, en
knapi var Guðbrandur Reynisson.
í öðru sæti varð Jarpur frá Hindi-
svík, eigandi og knapi Einar
Gestsson, og í þriðja sæti varð
Bjarmi frá Sauðanesi, eigandi
Baldur Jónsson, en knapi Guðrún
Lára Pálmadóttir. í B-flokki sigr-
aði Garri frá Kúskerpi, eigandi
og knapi Jóhann B. Magnússon,
annar varð Blámann frá Báreks-
stöðum, eigandi Jón Ólafsson,
knapi May Britt, og þriðji varð
Bir.ni frá Syðstu-Grund, eigandi
pg knapi Jóhann B. Magnússon.
í unglingaflokki sigraði Sigurður
Guðmundsson á Feyki frá Eski-
holti, annar varð Kristján Péturs-
son á Hrönn frá Skeljabrekku og
þriðja Guðbjörg Brá Gísladóttir á
Skerplu frá Jafnaskarði.
k ú hefur yfirbragöi nokkurra Miklagarösverslana veriö breytt og veröa þær
^ framvegis reknar undir heiti KAUPSTAÐAR.
Þetta er gert í framhaldi af breytingum á rekstri Miklagarðs viö Sund.
( Kaupstað munum við bjóða alla heimilisvöru á stórmarkaðsverði.
Glæsileg kjötborö, góö þjónusta. Úrvals ávextir og grænmeti.
Það er gott aö hafa góöan stórmarkað heima við.
KAUPSTADUR
MIÐVANGI HAFNARFIRÐI tl VESTUR í BÆ (JL- HÚSINU)
•— —■* í MJÓDD
krk.rkrwr'krkrkrkrk.rk.rk.rkr