Morgunblaðið - 07.04.1992, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1992
Goblin
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
BAR 8
Öruggur stúlknasigur
ANNAÐ tilraunakvöld Músíktilrauna var haldið sl.
fimmtudag og kepptu þá átta sveitir um sæti í úrslita-
keppninni sem fram fer nk. föstudag. Öruggur sigur-
vegari kvöldsins var kvennasveitin Kolrassa krókríð-
andi, en dauðarokk kom þar fast á eftir.
Forgarður helvítis
Fyrsta sveit á svið var
rokksveit úr Reykjavík sem
bar heitið Goblin. Sveitin
var full karakterlaus, en
kannski hefði meiri gítar
bætt þar úr. Þó söngvari
sveitarinnar virtist afslapp-
. aður voru aðrir sveitarmenn
’óöruggir og komust ekki á
skrið fyrr en í þriðja laginu.
Næsta sveit, BAR 8, var vel
þétt sveit úr Kópavogi, sem
galt þess hve hún var
ófrumleg í lagasmíðum.
Einnig var bassaleikari
sveitarinnar full virkur, en
söngvarinn var öruggur og
gítarar skemmtilegir. Svo
var og með Selfosssveitina
Skítamóral, sem fetaði í fót-
spor BAR 8. Þar bar einna
mest á söngvara sveitarinn-
ar sem var góður rokk-
söngvari, en keyrði fullmik-
ið á háu nótunum. Þá sveit
láðist reyndar að kynna en
hana skipa Herbert Viðars-
son bassaleikari, Arngrimur
Haraldsson gítarleikari,
Gunnar Ólafsson gítarleik-
ari og söngvari, Jóhann
Backman trommuleikari og
Kristján Eldjárn Þóroddsson
hljómborðsleikari.
Kvennasveitin Kolrassa
Krókríðandi kom skemmti-
lega á skjön við það sem
áður var komið. Þær voru
stirðar af stað, en annað iag
sveitarinnar var fyrirtak og
það þriðja hreint afbragð.
Fimmta sveit kvöldsins,
Keldusvínin, var sennlega
með þá texta sem mest var
lagt í, en ekki endilega þá
bestu. Sveitin var skemmti-
lega þétt, en lögin ekki eftir-
minnileg, þó með sprettum.
Ein eftirminnilegasta til-
raunasveitin, Forgarður
helvítis, kom á eftir Keldu-
svínunum. Sú sveit kallaði
sig grindcoresveit, en
kannski var fullmikið af
dauðarokki í stöku lögum
og kaflaskiptingar ekki eins
afgerandi og æskilegt væri.
Hvað sem því líður var gam-
an að fylgjast með sveitinni
og vonandi að hún þrói stíl
sinn áfram. Carpe Diem
kom aftur á móti ekki eins
skemmtilega á óvart. Sveit-
in byrjaði geysivel, en svo
datt botninn úr öllu saman
og það besta við fjórða lag
sveitarinnar var að það var
lokalagið. Lokatónana átti
eina dauðarokksveitin að
sinni, Clockwork Diabolus.
Gangvirkið djöfullega stát-
aði af einum besta dauða-
rokkrymjara Músíktilrauna
til þessa, sem var með djö-
fullega djúpa bassarödd og
bar sveitina uppi á köflum.
Gítarhljómur var afar ein-
kennilegur en annar gítar-
inn hljómaði eins og þota í
aðflugi en í hinum heyðist
nánast ekkert.
Úrslit kvöldsins urðu þau
að Kolrössur sigruðu nokk-
uð örugglega, í öðru sæti
urðu dauðarokkararnir í
Clockwork Diabolus, en
dómnefnd ákvað síðan að
hleypa Skítamóral áfram.
Árni Matthíasson.
■ ÚTER komiðnýttheftiafTíma-
riti Máls og menningar og er það
1. hefti 53. árgangs. I kynningu út-
gefanda segir: „Heftið er heigað
__þarna- og unglingabókum og fjalla
fimm greinar um það efni. Meðal
þeirra má nefna yfirlitsgrein eftir
Þuríði J. Jóhannsdóttur um íslenskar
unglingabækur frá undanfömum
árum og grein Ólafar Pétursdóttur
um danskar unglingabækur. Báðar
telja þær að of oft sé kastað höndun-
um til slíkra bóka hér á landi. Þá
fjallar Ragnheiður Gestsdóttir um
myndskreytingar í bamabókum og
nauðsyn þess að vandað sé til slíks
efnis. Tveir ritdómar fjalla um
barnabækur, annars vegar dómur
Guðlaugar Richter um Sossu Sól-
skinsbarn eftir Magneu frá Kleifum
og hins vegaqdómur Silju Aðalsteins-
dóttur _um Óðflugu Þórarins Eld-
járns. í heftinu er beinskeytt hug-
vekja um umhverfismál eftir Guð-
mund Pál Ólafsson, frásögn Árna
Bergmanns af rússneskum andófs-
manni og viðtal Jóns Ólafssonar við
Pál Skúlason um heimspeking. Þor-
steinn frá Hamri skrifar um Jónas
Hallgrímsson og Gísli Sigurðsson um
strauma í íslenskum skáldskap síð-
ustu ára, auk þess sem Pétur Gunn-
arsson ræðir vanda lítilla málsamfé-
laga á tímum aukins alþjóðsam-
starfs. í heftinu eru ljóð eftir Úlf
Hjörvar og Lindu Vilhjálmsdóttur og
smásaga eftir Ólaf Gunnarsson. Rit-
dómar eru fimm í heftinu. Auk þeirra
sem þegar hafa verið nefndir eru það
dómar Dagnýjar Kristjánsdóttur um
Meðan nóttin líður eftir Fríðu Á.
Sigurðardóttur, dómur Kristjáns B.
Jónassonar um Vetraráform um
sumarferðalag og Heykvísl og gúm-
mískó eftir Gyrði Elíasson og loks
dómur Hallgríms Helgasonar um
Svaninn eftir Guðberg Bergsson.“
Prentsmiðjan Oddi hf. annast prent-
un og bókband tímaritsins; ristjóri
þess er Árni Sigutjónsson.
asL
• Háskólabíói fimmtud
EFNISSKRÁ:
agmn 9. april, kl. 20.00
Mozart: Brúðkaup Fígarós, forleikur
Maxwoli Davies: Trompetkonsert
Mozart: Sinfónía nr. 40
Maxwell Davies: Brúðkaup á Orkneyjum
með sólarupprás
HLJÓMSVEITARSTJÓRI:
Sir Feter Maxwell Davies
Um hann hafa gagnrýnendursagt: ...Það eru ekki
mörg nútímatónskáld sem geta fengið áheyrendur
til að hrópa og kalla og stappa niður fótum
af einskærri hrifningu...
Elnleikari er Hákan Hardenberger,
einn besti trompetleikarl heimsl
‘Símapantanir og miðasala
Háskólabíói v/Hagatorg. Sími 622255
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Jóhanna Dagmar Magnúsdóttir og Stefán Ólafsson veita gjöfum
móttöku úr hendi Árna Björgvinssonar úr Keili.
I miimingu góðs félaga
Höfn.
NOKKRIR félagar úr Kiwanisklúbbnum Keili í Keflavík komu til
Hafnar fyrir nokkru færandi hendi. Þeir voru að heiðra minningu
fyrrum forseta klúbbsins, Þórðar Arnar Karlssonar, sem fórst með
skólaskipinu Mími 28. í október í fyrra.
Félagar hans sem þá ijölmenntu
austur til að taka þátt í leitarstarfi
færðu nú Björgunarsveit Horna-
fjarðar og kvennadeild slysavarna-
félagsins Framtíðarinnar sínar
200.000 kr. hvorri til tækjakaupa
að eigin ósk.
Árni Björgvinsson, forseti Keilis,
afhenti Stefáni Ólafssyni og Jó-
hönnu D. Magnúsdóttur gjafirnar.
Þá fengu deildirnar gjafabréf frá
Smur- pg dekkjaþjónustunni Tindi
sf. og Ólafi Haukssyni kafara, sem
lögðu fram efni og vinnu við leit-
ina, að andvirði 100.000 króna.
Forseti KiWanisklúbbsins Óss á
Höfn er Jóhann Guðmundsson.
- JGG
Meltanleiki fiskafóðurs
og mengun frá fiskeldi
Dr. C. Young Cho frá háskól-
anum í Guelph í Kanada heldur
fimmtudaginn 9. apríl kl. 10. f.h.
erindi í fundarsal Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins í
Keldnaholti sem hann nefnir:
„Digestibility of feedstuffs as
Leiðrétting
í frétt um doktorspróf dr. Kesara
Anamthawat-Jónsson í plöntuerfð-
afræðum í blaðinu á laugardag var
gerð villa í texta um starfsferil
hennar. Hið rétta er að hún starf-
aði sem aðstoðarprófessor í grasa-
fræði við Chulalonkorn-háskóla í
Bankok til 1982. Það ár fluttist hún
tij íslands.
nutritional strategies for aqua-
culture waste management“.
Dr. C. Young Cho er einn af
fremstu sérfræðingum í næringar-
og fóðurfræði fiska. Hann fæddist
í Kóreu, lauk doktorsprófi við land-
búnaðarháskólann í Kaupmanna-
höfn og hefur síðan starfað við
háskólann í Guelph i Kanada. Hann
er ráðgjafi margra fóður-, fram-
leiðslu- og fiskeldisfyrirtækja og
hefur skrifað fjölda vísindagreina
um fiskeldi. Þá hefur hann skrifað
og ritstýrt nokkrum bókum um
sama efni. Á síðari árum hefur
áhugi hans einkum beinst að meng-
un frá fiskeldi og hvernig hægt er
að draga úr henni með fóðurfræði-
legum aðferðum.
(Fréttatilkynning)