Morgunblaðið - 07.04.1992, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 69IISI, PÓSTHÓLF 1550 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1992
VERÐ I LAUSASÖLU 110 KR.
Fæst tilfelli burðar-
málsdauða á Islandi
Burðarmálsdauði er hvergi minni en á íslandi. Burðarmálsdauði er
samanlagður fjöldi andvana fæddra barna og barna sem látast á fyrstu
viku eftir fæðingu miðað við 1.000 fædda andvana og lifandi. Síðustu
ár hefur fjöldi slíkra tilfella verið svipaður hér á landi og í Svíþjóð,
sem hefur verið með því lægsta í heiminum, en nú hefur tíðni burðar-
málsdauða enn lækkað hérlendis. Að sögn Gunnlaugs Snædals, yfir-
læknis á Kvennadeild Landspítalans, hefur tíðnin lækkað mikið síð-
ustu 20 ár, meðal annars vegna betur skipulagðar mæðraskoðunar,
aukinnar fræðslu og bættrar aðstöðu í meðferð nýbura.
Gunnlaugur segir miklu minna um
burðarmálsdauða eftir að nýja fæð-
ingardeild Landspítalans var tekin í
notkun árið 1975. Á árunum 1972
til 1976 fæddust alls 21.998 börn
og þar af létust 360 börn á burðar-
málsskeiði, eða 16,4 af hveijum
1.000. Til viðmiðunar fæddust
®*22.732 börn á árunum 1987 til 1991
og þar af létust 136 börn á burðar-
málsskeiði, eða 6,0 af þúsundi og
sýnir þetta fækkun slíkra tilfella.
Gunnlaugur segir að í fæstum til-
fellum sé hægt að koma í veg fyrir
burðarmálsdauða þar sem börnin séu
ýmist vansköpuð eða mjög litlir fyr-
Island og EB:
EB vill ræða
"Veiðiheimildir
irburar. „Hér á landi náum við miklu
betur til allra heldur en í stærri lönd-
um. Fólk hér er vel upplýst, konur
fylgjast vel með og leita í langflest-
um tilfellum til lækna ef eitthvað
bjátar á. Læknar og ljósmæður fylgj-
ast einnig vel með og sjá til þess
að konan sé send annaðhvort hingað
suður eða til Akureyrar ef eitthvað
kemur upp á,“ segir Gunnlaugur.
Hann segir að lítið sé um burðar-
málsdauða á landsbyggðinni og það
heyri nánast til undantekninga.
Þetta sé aðeins vegna þess hversu
árvakrir Islendingar séu.
Gunnlaugur segir að tíðni burðar-
málsdauða í Færeyjum hafi stór-
lækkað á undanförnum árum og þar
náðst miklill árangur. Hins vegar
sé ástandið á Grænlandi slæmt og
þar hafi vegalengdir, áfengisvanda-
mál og smitsjúkdómar mest áhrif.
Morgunblaðið/Sverrir
A peysufötum og kjólfötum
Hinn svokallaði Peysufatadagur nemenda í Verslunarskóla íslands var
í gær. Eins og jafnan á þessum degi gengu þeir nemendur sem þreyta
verslunarpróf í vor fylktu liði um miðborgina, stúlkur í peysufötum
en piltar í kjólfötum. Myndin var tekin skömmu áður en lagt var upp
í gönguna, þegar námsmeyjarnar voru að ljúka við að setja upp andlit-
ið, eins og sagt hefði verið einhvem tíma.
SVR hættir
akstri lítilla vagna:
Oftastvoru 1-
2 farþegar
í hverri ferð
STRÆTISVAGNAR Reykjavíkur
hafa ákveðið að hætta tilrauna-
akstri með litlum vagni í gamla
austurbænum frá og með næst-
komandi fimmtudegi. Að sögn
Sveins Björnssonar, forstjóra
SVR, hefði verið ódýrara að
greiða leigubílakostnað farþega á
þessari leið. Hann segir að þessi
tilraun hafi verið misheppnuð.
Tilraunaaksturinn hefur staðið í l/i
ár og sagði Sveinn að til jafnaðar
hefðu verið 1-2 farþegar í hverri
ferð, jafnvel nær einum farþega.
Tekjur hefðu reynst brotabrot af
kostnaði, sem nam rúmlega 1,9 millj-
ónum kr. samkvæmt tilboði fyrir sex
mánaða tímabil frá 10. október sl.
„Það hefði verið miklu hagkvæm-
ara fyrir okkur að panta leigubíl fyr-
ir hvern einasta farþega sem ferðað-
ist á þessari leið. Okkur er vandi á
höndum með þjónustu við austurbæ-
inn,“ sagði Sveinn. Hann sagði að
hvorki væri hægt að koma við ferðum
stærri vagna á Njálsgötu né Freyju-
götu vegna aðstæðna.
Skandia kaupir Verðbréfa-
markað Fjárfestíngarfélagsins
/
Viðræður við Kaupþing um kaup á hlutabréfum í eignaleigufyrirtækinu Féfangi
SAMKOMULAG hefur tekist um að norræna tryggingafélagið Skan-
dia A/S kaupi öll hlutabréf í Verðbréfamarkaði Fjárfestingarfélagsins
hf. fyrir 186,5 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að starfsemi og starfslið
verði óbreytt frá því sem verið hefur. Verðbréfafyrirtækið verður
rekið áfram í Hafnarstræti og í Kringlunni sem hluti af Skandia sam-
steypunni hér á landi. Þá eru hafnar viðræður við Kaupþing um hugs-
anleg kaup á hlutabréfum í eignarleigufyrirtækinu Féfangi. Fjár-
festingarfélagið á um 67% hlut í því en aðrir helstu eigendur eru
Tryggingamiðstöðin, Islandsbanki, Lífeyrissjóður verslunarmanna og
Sparisjóður vélstjóra.
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgnnbladsins.
Evrópubandalagið hefur farið
þess á leit við Islendinga að samn-
ingaviðræður um skipti á veiði-
heimildum og samskipti á sviði
sjávarútvegsmála hefjist fyrir lok
þessa mánaðar eða í byijun þess
næsta, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins í Brussel.
Gert er ráð fyrir að samninga-
fundurinn verði á íslandi. Auk þess
að semja um gagnkvæm skipti á
veiðiheimildum verður samið um al-
mennt samstarf vegna veiða og
rannsókna. Til grundvallar verður
Jagt samningsuppkast sem Islend-
ingar lögðu fram í viðræðum við EB
árið 1981 með nauðsynlegum breyt-
ingum m.a. vegna breyttrar stöðu
Grænlands gagnvart EB.
Ljóst þykir að útfærsla samkomu-
lagsins um skipti á veiðiheimildum
getur orðið næsta snúin en semja
þarf m.a. um fjölda veiðiskipa, fyrir-
komulag eftirlits og hvernig reikna
eigi kvóta EB á móti veiðum íslend-
inga á loðnu við Grænland.
„Þegar Skandia-samsteypan
sænska eignaðist meirihlutann í
Reykvískri tryggingu þá var mótuð
sú stefna að bjóða líf- og lífeyris-
tryggingar og fjármálaþjónustu,"
sagði Gíslj Örn Lárusson, forstjóri
Skandia ísland. „Tenging trygg-
ingafélaga og ijármálafyrirtækja er
alþekkt um allan heim og núna erum
við að fylgja eftir þessari stefnu.
Skandia-samsteypan lítur á Norður-
lönd sem sinn heimamarkað og við
teljum að íslenskir neytendur eigi
rétt á þjónustu og kjörum sem mót-
ast af heilbrigðri samkeppni. íslensk
þjónustufyrirtæki sem hafa búið við
ákveðna vernd í sínu samkeppnisum-
hverfi verða einfaldlega að laga sig
að alvöru samkeppni."
Gísli benti á að nú stæði eitt öflug-
asta fjárfestingarfyrirtæki Evrópu
sem bakhjarl við verðbréfafyrirtæki
Fjárfestingarfélagsins. „Það eru
mikil tækifæri framundan í því að
ryðja nýjungum braut og færa ís-
lenskum neytendum í senn ný tæki-
færi til fjárhagslegs öryggis og
bættrar afkomu. Við horfum til
ýmissa nýjunga í tilboðum til al-
mennings sem auka tryggingavernd,
lækka iðgjöld og renna stoðum und-
ir fjárhagslegt öryggi í lífi hvers ein-
staklings," sagði Gísli.
Friðrik Jóhannsson, forstjóri Fjár-
festingarfélagsins, sagði við Morg-
unblaðið að Skandia væri mjög
öflugt félag og þessi breyting hefði
mikla möguleika í för með sér fyrir
Verðbréfamarkað Fjárfestingarfé-
lagsins. Kvaðst hann gera ráð fyrir
einhveijum áherslubreytingum í
rekstri í framhaldinu.
------» ♦ ♦------
Loft í Þjóðarbókhlöðu:
Tilboðin 50 -
100 milljónum
undir áætlun
ÁTJÁN tilboð bárust í niðurhengd
loft Þjóðarbókhlöðunnar en kostn-
aðaráætlun hljóðaði upp á 321,647
milljónir króna. Hæst var boðið
277,269 miiy. í verkið en 220,330
millj. lægst. Ákveðið verður innan
skamms hver hlýtur verkið.
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Inn-
kaupastofnunar ríkisins, sagði að
þijú Jægstu tilboðin í verkið sam-
kvæmt útboðslýsingu hefðu verið frá
Sveinbirni Sigurðssyni hf. 220,330
millj., Beiki hf. 221,961 milljónir og
Harald og Sigurði hf. 226,238 millj-
ónir króna. Hæsta tilboðið hljóðaði
upp á 277,269 milljónir.
Ók stolinni bifreið á
4 lögreglubíla, ljósa-
staur og grindverk
LOGREGLAN veitti í fyrrinótt ungum pilti á stolnum bíl eftirför
frá bílasölu við Ártúnshöfða upp á Kjalarnes og aftur til Reykja-
víkur. Áður en yfir lauk hafði maðurinn ekið á fjóra lögreglu-
bíla, en meðan á eftirförinni stóð ók hann einnig utan í ljósa-
staur og grindverk. Eftirförinni lauk um 40 mínútum eftir að
hún hófst með því að pilturinn beygði bílnum inn í port lögreglu-
stöðvarinnar við Hverfisgötu. Þar króaði lögreglan bílinn af en
þurfti að brjóta rúðu til að ná piltinum út úr bílnum.
Laust eftir klukkan þijú að-
faranótt mánudagsins sáu lög-
reglumenn hvar Ijóslausum bíl,
af Pontiac-gerð, var ekið frá bíla-
sölu við Hyijarhöfða. Lögreglu-
mennirnir gáfu ökumanninum
merki um að stöðva en hann gaf
í og ók um Grafarvog og síðan
eftir Vesturlandsvegi út úr bæn-
um og allt upp á Kjalarnes. Þar
sneri hann við og hélt til borgar-
innar að nýju. Á þeirri leið var
reynt að tálma för hans með því
að láta tvo lögreglubíla aka hægt
á undan honum og draga þannig
úr ferðinni en hann ók utan í lög-
reglubíla, komst fram hjá tálmum
og sinnti hvergi beiðnum um að
nema staðar, fyrr en hann ók
Snorrabrautina og að lögreglu-
stöðinni við Hverfisgötu. Þá
sveigði pilturinn skyndilega bíln-
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Eftirförinni lauk í porti lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu.
um inn á port lögreglustöðvarinn-
ar og ók inn á stæði lögreglubíla
á lítilli ferð og þar tókst að króa
hann af með því að aka lögreglu-
bíl í veg fyrir Pontiac-inn. Piltur-
inn læsti þá að sér og fékkst ekki
til að koma út úr bílnum og brutu
lögreglumenn hliðarrúðu til að ná
honum út. Hann virtist mjög
drukkinn að sögn lögreglu og var
færður til yfirheyrslu. hjá RLR
eftir að hafa sofið úr sér í fanga-
geymslum.
Talið er að pilturinn hafi brot-
ist inn á bílasöluna og stolið þar
lyklum að bílnum. Alls ók hann á
fjóra lögreglubíla og skemmdi
einn þeirra mikið. Ljósastaur
skemmdist er pilturinn ók á hann
og sömuleiðis grindverk sem á
vegi hans varð. Bíllinn sem hann
hafði stolið er stórskemmdur.