Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 2
EFNI 2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1992 Viðhorfskönnun þriggja verkalýðsfélaga: Fólk gerir sér grein fyrir stöðu þjóðmála - segir Einar Oddur Kristjánsson „ÉG HAFÐI alltaf gert mér vonir um að það væri raunsætt mat í þjóðfélaginu á stöðu efnahagslífsins," sagði Einar Oddur Kristjáns- son, formaður Vinnuveitendasambands íslands, þegar leitað var álits hans á niðurstöðum viðhorfskönnunar tveggja verkalýðsfélagas í Borgarnesi og eins á Selfossi þar sem fram kemur að flestir vilja að viðræður um nýja kjarasamninga hefjist á ný. Niðurstöður könnunarinnar eru þær að 40% þeirra sem þátt tóku vilja að viðræður um nýja kjara- samninga hefjist á ný, þess verði freistað að ná fram lítils háttar lag- færingum á því sem ASÍ telur að Hitaveita Suðurnesja: Viðræður um endurnýjun vatnssamnings við vamarliðið vinnuveitendur séu tilbúinir til að fallast á. Tæp 27% viljá að kjara- samningar verði undirritaðir sem fyrst, tæp 20% vilja að boðað verði til verkfalla strax og tæp 14% vilja fresta viðræðum þar til útlit er fyrir að betri samningur náist. Einar Oddur sagði um þetta í samtali við Morgunblaðið í gær- morgun: „Ég hef viljað trúa því að verkalýðshreyfingin væri ábyrg í þessum málum og þjóðfn öll. Mér sýnist þetta sýna að fólk geri sér grein fyrir því hver staða þjóðmál- anna er og hverjir möguleikarnir eru.“ Hann sagði að VSÍ myndi verða við óskum ASÍ um að hefja viðræður á ný fljótlega eftir páska. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Stúlknasigur í Músíktilraunum Músíktilraunum Tónabæjar lauk á föstudagskvöld, þegar átta hljóm- sveitir kepptu um hljóðverstíma. Öruggir sigurvegarar urðu keflvísku stúlkurnar í Kolrössu krókríðandi, en Kolrassa er fyrsta stúlknasveit sem tekur þátt í Músíktilraunum í níu ár. í öðru sæti varð þungarokk- sveitin In Memoriam, en í þriðja sæti unglingasveitin Inflammatory, sem leikur dauðarokk. A myndinni fagna stúlkurnar í Kolrössu krókríð- andi sigrinum. Elísa M. Geirsdóttir söngkona og fiðluleikari, Birgitta M. Vilbergsdóttir trommuleikari, Ester Asgeirsdóttir bassaleikari og Sigrún Eiríksdóttir gítarleikari. Menntamálaráðherra: Frekari aðhaldsaðgerðir í skólakerfinu á næsta ári FULLTRÚAR Hitaveitu -Suður- nesja áttu í síðustu viku fund með fulltrúum bandarískra sljórn- valda í Norfolk í Bandaríkjunum um endurnýjun á samningi um sölu á heitu vatni til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Núverandi samningur sem gerður var til tíu ára rennur út um næstu áramót. Að sögn Alberts Albertssonar, framkvæmdastjóra tæknisviðs Hitaveitu Suðurnesja, kaupir varnarliðið nálægt helming vatns sem Hitaveitan selur á svæðinu og eru verulegir hagsmunir í húfi við gerð samninganna. Albert sagði mikið sparnaðarhljóð í Bandaríkjamönnum og að fram hafí komið að þeir hygðust ná fram aukinni hagkvæmni við vatnsnotk- un, sem m.a. fælist í að minnka vatnsmagn til hvers húss með orku- sparnaðaraðgerðum. „Þessar samningaviðræður eiga sér stað við sérkennilegar aðstæður þegar verið er að leggja niður her- stöðvar víða um heim og uppsagnir hafa verið hér uppi á velli. Það er því talsverð óvissa ríkjandi," sagði Albert. Hann sagði jafnframt að á þessum fyrsta fundi hefðu aðilar skipst á upplýsingum og lagt fram magntöl- ur. Fyrirhugað væri að næsti samn- ingafundur verði haldinn hér á landi næsta sumar og sagði Albert vonir standa til að samningar liggi fyrir ekki síðar en í desember. ÓLAFUR G. Einarsson mennta- málaráðherra segir að frekari niðurskurður í skólakerfinu og ráðuneytinu sé óhjákvæmilegur á næsta ári. „Það blasir við meiri vandi við fjárlagagerðina fyrir næsta ár.en við sáum fyrir á síð- asta ári, þegar sett var tveggja ára áætlun um að ná tökum á ríkisfjármálunum. Við erum að glíma við stærri vanda en við sáum fyrir þá og því verðum við áfram með aðhaldsaðgerðir en ég get ekki sagt í hvaða formi þær verða á þessari stundu,“ sagði Ólafur í samtali við Morg- unblaðið. Stjórn Kennarasambands íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem orðum ráðherra um frekari niður- skurð á næsta ári er mótmælt og mínnt er á að ráðherra hafi marg- sinnis lýst yfir frá því að hugmynd- ir ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir í ríkisfjármálum komu fyrst fram að eingöngu væri um tímabundnar ráðstafanir að ræða. Segir stjórn KÍ að með ennfrekari niðurskurði á næsta fjárlagaári sé orðið ljóst að menntamálaráðherra muni ekki standa við þau orð sín að nemendur fái þann skólatíma á næsta ári sem grunnskólalög kveða á um. „Ég get staðið við að ég tel þetta tímabundið og ég hef takmarkaðar NÍTJÁN ára piltur var sviptur ökuleyfi eftir að hafa ekið bif- reið á 110 km hraða á klst. eftir Hafnarbraut á Höfn í Hornafirði á föstudagskvöld. Atburðurinn varð um kvöldmat- arleytið og að sögn lögreglunnar á heimildir til skerðingar á vikulegum kennslutíma. Ef því verður haldið áfram þarf það að fara fyrir Al- þingi en ég hef ekkert sagt um hvort sparnaðaraðgerðirnar verða fólgnar í skerðingu á kennslutíma. Það kemur fleira til greina," sagði Ólafur þegar mótmæli Kennara- sambandsins voru borin undir hann. Höfn var margt fólk á ferli í bænum um það leyti. Leyfilegur hámarks- hraði á þeim stað þar sem bíll pilts- ins mældist á 110 km. hraða er 45 km. Á næstunni áformar lögreglan á Höfn að efla eftirlit með hrað- akstri í bænum og nágrenni hans. Höfn í Hornafirði: Gómaður á 110 km hraða á Hafnarbraut Ráðherrar um álit dómstóls Evrópubandalagsins um EES: Hindrun rutt úr vegi Útlit fyrir sumarþing til að að fjalla um EES-samninginn JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að með áliti dómstóls Evrópubandalagsins sé hindrun rutt úr vegi fyrir sam- komulaginu um Evrópska efnahagssvæðið. Hins vegar sýnist honum að margítrekaðar tafir af hálfu EB þýði að ekki takist að hrinda samningnum í framkvæmd 1. janúar næstkomandi. Þá segir hann einsýnt að ef undirritun samninganna fer ekki fram fyrr en um miðjan maí þurfi að leggja hann fram á sérstöku sumarþingi. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að niðurstaða EB-dómstólsins sé mjög mikilvæg, með honum sé einum ann- marka ýtt til hliðar og segist Davíð telja víst að kalla þurfi Al- þingi saman í sumar til að fjalla um EES-samninginn og geti sumarþingið þurft að standa yfir i sex vikur. Dómstóll EB komst að þeirri niðurstöðu á síðasta ári að kafli EES-samningsins um stofnanir og úrskurð deiluaðila bryti í grundvallaratriðum í bága við Rómarsáttmálann. Eftir það var samningurinn allur tekinn upp og var það meginverkefni Islands í forystu EhTA-þjóðanna að móta nýjar hugmyndir um lausn þeirra mála, að sögn Jóns Baldvins. „Það er út af fyrir sig ánægjulegt að þær hugmyndir hafa staðist rann- sókn dómstólsins en þó stillir hann upp einum fyrirvara um tæknilegt atriði. Það varðar ekki efnislegan ágreining heldur inyndi kalla á' að ákvæði í fylgiskjali, sem kveð- ur á um að stjórnarnefnd EES geti ekki gengið gegn niðurstöð- um dómstólsins, færist í megin- mál samningstextans og fái þann- ig lagalega skuldbindandi gildi,“ sagði Jón Baldvin. Utanríkisráðherra sagði að nú þegar þessi niðurstaða lægi fyrir ætti Evrópubandalagið að geta staðið við tímaáætlun um að ráð- herrar undirrituðu samninginn 11. maí. Sagði hann að þó hefði heyrst að Portúgal, sem nú er í for- mennsku fyrir EB, leggi áherslu á að undirritun fari fram í Portúg- al í byijun maí en það sé enn óútkljáð. „Hvort sem undirritun ráðherra fer fram í byijun maí eða 11. maí er eftir að fá samninginn staðfest- an í 19 þjóðþingum og á þingi Evrópubandalagsins,“ sagði Jón Baldvin. „Mér sýnist að þessar marg- ítrekuðu tafír af hálfu Evrópu- bandalagsins hafi þegar þýtt að við náum því ekki að hrinda samn- ingnum í framkvæmd á upphaf- lega tilsettum tíma 1. janúar, en hversu lengi það dregst umfram það vitum við ekki. Ef undirritun ráðherra fer ekki fram fyrr en um miðjan maí sýn- ist mér einsýnt að við erum kom- in í sumarþingsstöðu og hljótum að stefna að því að leggja samn- inginn og fylgifrumvörp hans fyr- ir á sérstöku sumarþingi," sagði Jón Baldvin. Aðspurður sagðist hann telja að þótt undirritun samningsins yrði flýtt fram í byrj- un maí muni reynast of naumur tími á vorþingi til að Ijúka umfjöll- un hans á Alþingi. „Þetta er afskaplega mikilvæg niðurstaða sem þýðir að við getum ótrauðir farið í að ganga frá samningnum að okkar leyti. Það þarf að gerast strax í vor og ég tel alveg víst að það þurfi að boða til sumarþings," sagði Davíð Oddsson. Hann sagði jafnframt að sumarþingið gæti þurft að standa yfir í sex vikur. Davíð sagðist enn vonast til að samningurinn gæti tekið gildi 1. janúar eins og að hefur verið stefnt eða fljótlega eftir áramót. Vegalaus börn ►Oddný Sv. Björgvins heldur áfram að fjalla um aðstæður vega- lausra barna í þjóðfélaginu. í áhrifamikilli umíjöllun heimsækir hún m.a. almennan grunnskóla, fjölskyldusambýli og sérskóla und- ir Unglingaheimili ríkisins. Loks hittir hún að máli Jóhönnu Sigurð- ardóttir félagsmálaráðherra sem er staðráðin í að einbeita sér að málefnum vegalausra ungmenna. /10 Á blóðvöllum Kambódíu ►Jóhanna Kristjónsdóttir er ný- komin úr ferð um land hinna skelfi- legu voðaverka, Kambódíu, og seg- ir að höfuðborgin, PhnorrTPenh, sé nú vöknuð til brothætts friðar. /16 Enginn grætur IMoriega ►Fyrrum einnræðisherra Panama hefur verið fundinn sekur um kó- akínsmygl og fjárglæfrastarfsemi, en umgjörð málsins og aðdragandi vekjaefasemdir. /22 Bheimili/ FASTEIGNIR ► l-32 Stórframkvæmdir í Smárahvammi ► Byggingafyrirtækið Faghús hefur fest kaup á 15 þúsund fer- metrum lands íSmárahvammi í Kópavogi, þar sem ætlunin að reisa fjórar byggingar undir skrifstofur ogversianir. /16 ► 1 -32 Ferming til fjár * ►Um 160 þúsund íslendingar taka þátt í veisluhöldum í arpíl. Fermingin skapar fjölda manns., atvinnu og margir reyna að hagn- ast á þessari trúarlegu athöfn, svo að ýmsum þykir hún hafa glatað inntaki sínu. /1 Norræn kvikmynda- veisla ►Elína Pálmadóttir var á Nor- rænu kvikmyndahátíðinni í Rúðu- borg í Frakklandi. /8 Blábleikar kýr ► Flikróttar, golbuxóttar, klukk- óttar kindur, blábleikar, frænóttar, rílóttar kýr, og sporðóttir, litförótt- ir, moldbleikir hestar. Við veltum vöngum yfir litarheitum íslenskra húsdýra. /10 Reykjavík fær Ráðhús ►Ráðhús Reykjavíkinga verður opnað með viðhöfn nk. þriðjudag. Guðmundur Ó. Ingvarsson, korta- gerðarmaður á Morgunbiaðinu, hefur gert teikningu sem sýnir fyrirkomulag og herbergjaskipan í húsinu og Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari, bregður upp myndum af þessu sérstæða húsi. /16 Tindabikkja og annað tros ► Rúnar Marvinsson hefur matre- itt það sem áður þótti óætt tros - og sannað að það getur líka verið herramannsmatur. /14 ► FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Skoðun 23 Leiðari 24 Heigispjall 24 Reykjavíkurbréf 24 Minningar 26 íþróttir 42 Útvarp/sjónvarp 44 Gárur 47 Mannlifsstr. 6c Kvikmyndir 18c INNLENDAR Fl 2-6-BAK ERLENDAR FR 1-4 Dægurtónlist 19c Fólk í fréttum 22c Myndasögur 24c Brids 24c Stjörnuspá 24c Skák 24c Bíó/dans 25c Rréf til blaðsins 28c Velvakandi 28c Samsafnið 30d ÉTTIR;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.