Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1992 43 hefð á bak við sig. Það verður mik- il barátta og leikmenn bera enga virðingu fyrir andstæðingnum. Það er erfitt að spá en ég held að heima- völlurinn vegi þungt. 2:1 fyrir Sel- foss,“ segir Valdimar um viðureign Selfyssinga og Hauka. „Eg tel að það verði þjálfaranna að klára þetta dæmi. Liðin eru áþekk og það er aðeins spurning um útfærslu hjá þjálfurunum þegar -í leikinn er komið og viðbrögð leik- manna á vellinum. Styrkur Selfyssinga er sterk vörn, að minnsta kosti helmingur- inn af henni. Sigurður Sveinsson er reyndar ágætur við að stöðva skot en hann er ekki eins sterkur maður á móti manni. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig til tekst hjá Halldóri Ingólfssyni. Selfoss er með besta markvarða- dúettinn og það fleytir þeim langt. Einar Þorvarðarson, sem nú er að koma sér í form, og Gísli Felix eru báðir snöggir að koma knettinum í leik og því byggja þeir mikið á hraðaupphlaupum auk þess sem þeir eru með góðar skyttur. Lið þeirra er sambland af reynd- um köppum og ungum strákum. Þeir gömlu vita hvernig tilfinning það er að sigra og ungu strákarnir hljóta að vera orðnir þyrstir í titií. Þetta er besta blanda sem hægt er að hafa í handbolta. Vandamálið hjá þeim er að breiddin er ekki næg og ef lykilleikmenn bregðast gætu þeir lent í vandæðum. Þetta er reyndar vandamál sem fiest lið eiga við að etja. Haukarnir eiga að geta gert bet- ur en þeir hafa gert í vetur. Þeir hafa þrjár góðar skyttur og ágæta hornamenn og Jón Örn er lunkinn línumaður en á erfitt uppdráttar gegn sterkari liðum. Petr Baumruk og Páll Ólafsson eru báðir í góðri æfingu og það hefur verið einkenni Páls undanfar- in ár að hann leikur aldrei betur en á vorin, í lok keppnistímabilsin^. Það mun því mæða mikið á þeim félögum enda eru þeir sterkir leik- menn. Vörnin er ekki nægilega góð og markvarslan hjá þeim í vetur hefur verið of gloppótt." Sterkir heimavellir og KA- menn sigra því þeir eiga tvo leiki heima „Þetta verður fyrst og fremst leikur þar sem vellirnir skipta máli. Bæði lið eru með góða heimavelli og þar sem KA á tvo heimaleiki vinna þeir 2:1,“ segir Valdimar um leik nyrsta liðsins, KA, og þess syðsta, ÍBV. „Það má segja að KA byiji með 8:4 því heimavöllurinn gefur fjögur mörk. KA er með einn besta heima- völlinn í deildinni og allir þekkja heimavöll ÍBV, sem er geysilega mikilvægur liðinu. í KA þekkja fæstir hvað það er að vinna en þó eru nokkrir leikmenn sem hafa fundið þefinn af titli, en það hefur ekki skilað sér inn í liðið. Þó hefur leikur liðsins breyst síðari hluta móts og er nú betri en áður. Erlingur Kristjánsson hefur verið að koma til og er nú mjög sterkur. Stefán Kristjánsson hefur hins veg- ar ekki nýst sem skyldi fyrir utan en hefur komið ágætlega út í horn- inu og svo er það auðvitað Alfreð. Vandamálið í vetur hefur verið markvarslan. KA hefur þokkalega góða breidd og leikmenn eru há- vaxnir þannig að vömin á að geta verið sterk. Aðall Eyjamanna er markvarsla Sigmars Þrastar ÓskArsson, sem hefur verið mjög sterkur í vetur og ég er viss um að þeir gætu komist langt á henni. Vestmanneyingar eru þekktir fyrir góðan varparleik og gífurlega stemmningu sem þeir ná upp. Breiddin er höfuðverkur þeirra og leikir ráðast gjarnan á hvernig leik lykilmennirnir ná hveiju sinni. Aðrir leikmenn hafa þó sýnt að þeir geta leikið vel. LEIKIRIMIR Lið verður að sigra í tveimur leikjum til að komast áfram, því er ekki víst að til þriðja leiks komi. PH - Stjarnan Kaplakriki, mánud. 13. apríl kl. 20.30 Garðabær, miðvikud. 15. apríl kl. 20 Kaplakriki, mánud. 20. apríl kl. 20.30 Víkingur - Fram Víkin, mánudagur 13. apríl kl. 20 Höllin, miðvikudagur 15. apríl kl. 20.15 Víkin, laugardagur 18. apríl kl. 16.30 Selfoss - Haukar Selfoss, mánudaginn 13. apríl kl. 20 Strandgata, miðvikud. 15. apríl kl. 20 Selfoss, laugard. 18. apríl kl. 16.30 KA - ÍBV KA-hús, mánudaginn 13. april kl. 20 Eyjar, miðvikudaginn. 15. apríl kl. 20 KA-hús, laugard. 18. apríl kl. 16.30 Morgunblaðið/Einar Falur Vörnin í lagi Vörn KA er hávaxin og ekki árennileg. Úrslitin í leikjum liðanna í úrslitakeppn- inni eiga örugglega eftir að ráðast af því hvernig liðunum tekst upp í vörn- inni. Markvarslan mun einnig hafa mikið að segja, ekki síst hvað varðar hraða- upphlaupin en mörg liðanna leggja ineiri áherslu á sóknina en vörnina. / / / LOÐAUTHLUTUN I GARÐABÆ Um er að ræöa raðhús við Draumahæð. Bent er á að enn eru lausar einbýlishúsalóðir til úthlutunar annars staðar í hverfinu. Allar upplýsingar um byggingar- og skipulagsmála ásamt umsóknareyðublöðum liggja frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Sveinatungu við Vífilsstaðaveg. Umsóknarfrestur er til 1 .maí 1992. Skipulagsarkitekt er Ingimundur Sveinsson GARÐABÆR Gott úrval hljóðfæra fermingartilboði t.d. REYKJ AVÍKUR Laugavegi 96 - Sími: 600935 MosVibvJfn V peaoNeY1 Verb oí>e\ns SKÍFAH: BOGAKT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.