Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1992 Frá sýningunni í Hafnarborg haustið 1990. IHelga Pálína Brynjólfsdóttir, textílhönnuður, smíðakennari og leiðsögumaður eftir Laufeyju Helgadóttur Helga Pálína Brynjólfsdóttir er ein þessara atorku- kvenna sem virðast geta allt. Þegar vetur gengur I garð er hún textíl- og smíðakennari, en um leið og snjóa tekur að leysa og dagurinn og nóttin renna saman í eitt þeytist hún um landið með ferðamenn í eftirdragi - enda talar konan ein fimm tungumál. Svo þegar tími gefst skýst hún á gömlu Lödunni sinni suður í Garðabæ, þar sem hún rekur ásamt fjórum öðrum listakonum vinnustofuna „Fjórar grænar og ein svört í sófa“. Helga Pálína átti verk á stórri ' textílsýningu sem haldin var í Hafnarborg í september 1990 og einnig er hún ein þeirra lista- kvenna sem standa að listhúsinu Sneglu sem nýlega var opnað á homi Grettisgötu og Klapparstígs í Reykjavík. Nafngiftin Snegla er mjög vel til fundin, enda hefur hún tvöfalda merkingu eftir orðabók- um að dæma: .hryssingsleg kona eða veíjaspóla. Listhúsið er ör- stutt frá notalegri íbúð Helgu Pálínu á Lokastígnum þar sem ég hitti hana og við spjölluðum um námsferil hennar og vinnu. Hún var fyrst spurð af hveiju hún fór að læra smíðar. „Mér sárnaði einu sinni við afa minn heima á Olafsfirði þegar hann sagði að konur gætu ekki lært að smíða og viðbrögð hans hertu mig upp í þetta,“ segir Helga hlæjandi og bætir síðan við: „Þeg- ar ég var í Menntaskólanum á Akureyri hélt ég alltaf að ég myndi fara í fræðinám, - samanburðar- málfræði, tungumálarannsóknir eða eitthvað slíkt, en svo tók hand- verkið yfirhöndina. Það tók mig langan tíma að átta mig á því hvað ég raunverulega vildi. Þegar ég var yngri viidi ég læra bæði vefnað og smíðar, en guggnaði þegar ég komst að því að til þess að nema smíðaiðnina yrði ég að komast í læri - á samning. Þess vegna fór ég til Frakklands eftir stúdentspróf á meðan ég var að átta mig á því hvað ég vildi. Þeg- ar ég kom til baka ákvað ég að taka smíðar sem valgrein í Kenn- araháskólanum. Þetta var þriggja ára nám og þaðan útskrifaðist ég 1980. Síðan vann ég aðeins við smíðar og kennslu, en mig langaði alltaf í meira nám.“ - Síðan tekur þú þig upp á ný og ferð til Finnlands árið 1982, - af hveiju Finnland? „Ég held ég hafi farið þangað af því að ég vissi svo lítið um land- ið, segir Helga hikandi, „og í sann- leika sagt þá fór ég þangað án þess að vita hvað ég ætlaði mér. Mig langaði að fara í Listiðnaðar- háskólann í Helsinki því ég vissi að þar voru góðar deildir eins og t.d. textílhönnunar- og leikmynda- deildin. Ég var búin að vera á kvöldnámskeiðum í vefnaði í Myndlistarskólanum og var oft að velta því fyrir mér hvort ég gæti ekki tengt vefnaðinn og tréð ein- hvern veginn. Ég komst inn í textíldeildina þarna sem gestanemi fyrst en tók síðar inntökuprófið til að fá full- gilt próf að námi loknu. Þetta er fimm ára háskólanám sem lýkur með kandídatsprófi og telst fólk þá ýmist textílhönnuðir eða textíl- listamenn eftir því hvorn þáttinn þeir hafa lagt meiri áhérslu á í náminu. Ég valdi hönnunariínuna í þrykki, en þar lærir maður m.a. að notfæra'sér tækni fjöldafram- leiðslunnar. Þegar ég byijaði að vinna fyrsta stóra verkefnið mitt við textíldeildina rak ég mig fljótt á annmarka tækninnar, sem varð mér þó jafnframt öj:run til að tak- ast á við hana. Eg hafði notað handþrykk og beitt þar ýmsum ráðum sem ég kunni til að fá út áferð og munstur sem ég var ánægð með. Kennarinn minn gerði mér þá ljóst að þetta myndi ekki ganga í framleiðslu, en fannst engu að síður að það gæti verið spennandi að sýna þetta textíl- verksmiðjum og vita hvort í sam- einingu væri e.t.v. hægt að finna leið til að ná sama árangri með vélunum og þessu handþrykki mínu. Menn voru mjög spenntir fyrir tilrauninni í verksmiðjunni og hún tókst. Það var mikil samvinna milli textíldeildar háskólans og textíl- verksmiðja og þannig gafst okkur færi á nánari tengslum við hina eiginlegu framleiðslu. Mér varð þetta í senn ögrun og ögun, að þurfa að laga mínar listrænu hug- myndir að því verklagi sem beitt er við fjöldaframleiðslu. Öðrum henta ekki svona vinna og fínnst hún hefta sig.“ - Þarna komist þið sem sé strax í tengsl við atvinnuiífið? „Já og það voru fyrirtæki sem styrktu okkur um leið sem var líka mjög uppörvandi. Mér skilst að það sé mjög óvanalegt að fá að vinna svona eins og við unnum. Ef til vill er það vegna þess að Finnarnir eru svo afskaplega raunsæir, enda byggja þeir á langri reynslu, textíiiðnaðurinn er yfir 100 ára gamall hjá þeim.“ - Nú hefur mér fundist gæta dálítillar stöðnunar í því sem Finnar eru að gera í textíliðnaði í dag? „Það gengur mjög illa hjá þeim í dag og það eru mörg fyrirtæki gjaldþrota. Mér finnst eins og hin séu bara að framleiða það sem selst best og taka þess vegna enga áhættu.“ - Nú eru mjög ólík viðhorf hér á Islandi til textílgerðar og í Finn- landi? „Eins og ég sagði áðan þá byggja Finnar á svo traustum grunni í textíliðninni og þar er miklu meira leitað til textílhönn- uða eins og t.d. í sambandi við nýbyggingar, litavai, áklæði, gluggatjöld og annað slíkt. Mark- aðurinn þar er líka miklu stærri heldur en hér hjá okkur, sem eðli- legt er þar eð Finnar eru miklu stærri þjóð en við, þó þeir teljist ekki til stórþjóða á heimskortinu." - Hvaða möguleika hafa svo þeir nemendur sem útskrifast úr Listiðnaðarháskólanum þegar þeir koma út á vinnumarkaðinn? „Það lítur ekki mjög glæsilega út í dag. Það eru margir sem fara í allt annað en hönnun eftir að þeir útskrifast, sumir verða t.d. innkaupastjórar hjá stórfyrirtækj- um, velja efni, liti og annað slíkt, aðrir fara í kennslu og enn aðrir reyna fyrir sér við hönnun og skapa sér eigin verkefni eins og ég hef reynt að gera hér heima. Ég hef t.d. verið að hanna bóka- kápur sem eru kannski ekki beint mitt fag en þar beiti ég samt minni kunnáttu og mínum aðferðum.“ - Þú talaðir áðan um löngun til að sameina vefnað og tré, af hveiju ekki í skúiptúr? „Eg hugsaði um það á tímabili en komst fljótt að því að það er fyrst og fremst handverkið og hönnunin sem ég hef áhuga á. Ég vil gera hluti sem hægt er að nota, - nytjalist. Ég vil hanna og fram- leiða hluti sem fegra og auðga hvunndaginn. Mér finnst gaman að sjá þegar fólk kann vel til verka. Ég man eftir því að Níels Haf- stein myndlistannaður sagði eitt sinn, að það að raka fallega væri gott handverk. Ég ber virðingu fyrir handverkinu og það heillar mig. - Þó að efnin þín séu vissulega nytjalist þá eru þau líka þín tján- ing, þitt tungumál, - hvernig stendur t.d. á því að þú notar svarta litinn svona mikið? Það kemur íjarrænt blik í augun á Helgu þegar hún svarar: „það eru svörtu strendurnar og svörtu sandarnir í óbyggðum íslands. Ég er svo heilluð af þessum söndum og mér tekst alltaf að sjá alls kon- Það eru svörtu strendurnar og svörtu sandarnir í óbyggðum Islands, Eg ersvo heilluð af þessum söndum og mér tekst alltaf að sjó alls konar mynstur út úr þeim sem ég nýti mér síðan beint eða óbeint. Textílhönnuður rammar ekki verkin sín inn, þetta eru endalausir strangar, líkt og sandöldur Sprengisands eða hraunbreiður Ódóðahrauns, ar mynstur út úr þeim sem ég nýti mér síðan beint eða óbeint. Textíihönnuður rammar ekki verk- in sín inn, þetta eru endalausir strangar, líkt. og sandöldur Sprengisands eða hraunbreiður Ódáðahrauns,“ segir Helga og kímir. „Mér finnst annars, án gam- ans, að ég noti þessi ferðalög með ferðamönnunum á sumrin til þess að afla fanga, safna sjónrænni reynslu úr náttúrunni og e.t.v.- ekki síður stemmningu. Áferðin skiptir mig gríðariega miklu máli þegar ég er að vinna munstur fyr- ir textílframleiðslu. Hún ásamt litasamsetningu og blæbrigðum skapar þá stemmningu sem tauið ber með sér. íslensk náttúra er óendanleg uppspretta fyrir þá sem horfa á hana þessum augum. Ég tek myndir af mosanum, kletta- veggjum, ofan í sandinn og vatn- ið. A veturna vinn ég svo bæði út frá myndunum og líka hlaðin þeim krafti sem náttúran hefur gefið mér í göngu um fjöll og firnindi. Lokaverkefnið _mitt var að vissu leyti óður til íslands - heimþrá. Þó sumir haldi að þetta séu bara einhver munstur á efnun- um þá eram við líka svo sannar- lega að vinna út frá okkar eigin tilfinningum.“ - Þegar þú hefur sýnt efnin á sýningum þá hefur þú reynt að skapa ákveðnar „installasjónir", þ.e.a.s. þú sýnir þau ekki sem efn- isbúta sem skoðandinn gæti keypt í metravís. heldur reynir þú að skapa stemmningu í kringum þau; hver er tilgangurinn þeð því? „Ég vil sýna fram á að efnið þarf ekki bara að vera skreytilist heldur liggur á bak við það eins og alla góða hönnun heilmikil íhugun. Efnið á ekki að þurfa að vera innrammað upp á vegg tii þess að geta staðið sem sjálfstætt verk.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.