Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.' APRÍL 1992 ERLENT ■NNLEIMT VIKUNA 5/4-11/4 Skandia kaup- ir Verðbréfa- markað Fjár- festing- arfélagsins Samkomulag hefur tekist um að norræna tryggingafélagið Skandia kaupi Verðbréfamarkað Fjárfestingarfélagsins hf. fyrir 186,5 milljónir króna. Þá eru hafnar viðræður við Kaupþing um hugsanleg kaup á hlutabréfum í eignarleigufyrirtækinu Féfangi en Fjárfestingarfélagið á um 67% hlutafjár í því. Tap Járnblendifélagsins í fyrra nærri hálfur milljarður 487 milljóna króna tap varð af rekstri Islenska járnblendifé- lagsins á síðastliðnu ári saman- borið við 127 milljóna króna tap árið áður. Hið mikla tap er rakið til verðhruns á kísiljárni vegna aukins framboðs. Efnahagur fyr- irtækisins þykir þó enn vera all- góður og hafa hvorki sænska fyr- irtækið Elkem, sem á 30% hlut í Járnblendinu, né Sumitomo Corp- oration, sem á 15% hlutafjár, í hyggju að selja sinn hlut. Mjólkursamsalan undir eftirliti Verðlagsstofnunar í vikunni skyldaði Verðlagsráð Mjólkursamsöluna í Reykjavík til að tilkynna Verðlagsstofnun um almenn viðskiptakjör við sölu á mjólk, mjólkurvörum og sýrðum vörum. Einnig var Mjólkursamsöl- unni gert að greina frá þeim við- skiptakjörum sem fimm stærstu viðskipatvinir fyrirtækisins njóta og allar breytingar þar á. Þetta var gert vegna háværra radda um að einstakir viðskiptavinir ættu kost á sérstökum kjörum gegn því að þeir seldu ekki vörur frá keppinauti samsölunnar. ÍSNO gjaldþrota Stjórn fiskeidisfyrirtækisins ÍSNO óskaði eftir því í vikunni að félagið yrði tekið til gjaldþrota- skipta. Skuldir þess eru taldar vera um 700 milljónir króna og eru Landsbankinn og ýmsir opin- berir sjóðir stærstu lánardrottn- arnir. Verðmæti eigna er hins vegar óvíst en þær eru bókfærðar á 400 milljónir kr. í reikningum félagsins. ISNO er með seiðaeldis- stöð á Öxnalæk í Ölfusi og Lónum í Kelduhverfi og sjókvíaeldi og hafbeit í Lónum og Vestmanna- eyjum. Dökkt útlit með sumarvinnu Meira en 1.800 nemendur, sextán ára og eldri, höfðu látið skrá sig hjá Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar á miðvikudag þegar vika var liðin frá því að skráning hófst. Það er meira en þreföldun frá árinu áður. Þá hafa rúmlega 600 nemendur skráð sig hjá Atvinnumiðlun námsmanna en sárafá störf hafa boðist á móti umsóknunum. ERLENT Sögulegnr sigur breska Ihalds- flokksins BRESKI íhaldsflokkurinn vann sögulegan sigur í þingkosningun- um í Bretlandi á fimmtudag og hefur það ekki gerst þar síðan 1822, að sami flokkur hafí unnið femar kosningar í röð. Misstu íhaldsmenn að vísu töluvert fylgi en John Major fórsætis- ráðherra má samt vel við una með rétt innan við 20 sæta meirihluta. Þrátt fyrir nokkra fylgisaukningu eru úrslitin mikið áfall fyrir Verka- mannaflokkinn og óvíst, að Neil Kinnock, leiðtogi hans, fái annað tækifæri til að sækjast eftir for- sætisráðherraembættinu. Útkom- an er ekki síður mikil vonbrigði fyrir fijálsleynda demókrata og oddvita þeirra, Paddy Ashdown, en í stað þess að bæta stöðu sína á þingi eins og spáð hafði verið fækkaði fulltrúum þeirra þar. í bresku fjármálalífi var sigri íhaldsmanna vel fagnað og hækk- uðu hlutabréf verulega í verði og gengi steriingspundsins einnig. Ongþveiti á Ítalíu KREPPA ríkir í ítölskum stjórn- málum að loknum kosningunum sl. sunnudag en þá töpuðu allir stóru flokkarnir til smáflokka af hinu ólíklegasta tagi. Kristilegir demókratar, sem verið hafa við stjórnvölinn samfleytt frá stríðs- lokum, fóru í fyrsta sinn niður fyrir 30% og Lýðræðisflokkurinn, arftaki gamla kommúnistaflokks- ins, tapaði meira en þriðjungi fyrra kjörfylgis. Hafa ríkisstjórn- arflokkarnir fjórir að vísu enn meirihluta á þingi en svo nauman, að þeir geta ekki stjórnað áfram nema með tilstyrk fímmta flokks- ins. Er búist við, að stjórnarmynd- unarviðræður taki langan tíma. Eru uppi háværar kröfur um nýj- ar kosningar en fyrst og fremst, að kosningalöggjöfinni verði breytt. . Ottast um Arafat FLUGVÉLAR með Yasser Arafat, leiðtoga PLO, Frelsissamtaka Pal- estínumanna, var saknað á þriðju- dagskvöld en hún var á leið frá Súdan til Líbýu þegar samband við hana rofnaði. Hófst strax mik- il leit og 15 klukkustundum síðar fannst hún í líbýsku eyðimörkinni þar sem henni hafði verið brotlent í miklum sandstormi vegna elds- neytisskorts. Fórust flugmennirn- ir þrír en Arafat og aðrir farþegar komust lífs af lítt meiddir. Vörp- uðu þá Palestínumenn og raunar fleiri öndinni léttara. Sátta leitað um Svartahafsflota BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, og Leoníd Kravtsjúk, forseti Úkraínu, hafa náð samkomulagi um, að tilskipunum þeirra á víxl um yfírráð yfír Svartahafsflotan: um verði ekki framfylgt meðan leitað verði sátta í deilunni. Verð- ur skipuð samninganefnd um málið og ætla þeir forsetarnir sjálfir að taka þátt í viðræðunum á iokasprettinum. í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins hafa menn hins vegar áhyggjur af þeirri ákvörðun Úkraínumanna að hætta að flytja kjarnorkuvopn til eyðingar í Rússlandi. Hafa þeir verið hvattir til að standa við gerða samninga. Þjóðlíf í viðjum vanans „ÞAÐ er dapurlegt að sjá hversu lítinn áhuga lettnesk ungmenni hafa á því að verða sér úti um góða menntun og atvinnu," segir Egils Grikis, sem er rúmlega fertugur gra- fískur hönnuður en nam upp- haflega tölvufræði. Hann er borinn og barnfæddur í Rígu, höfuðborg Lettlands. Hann er sjálfstæður atvinnurekandi og er einn þeirra sem eru í farar- broddi í sókninni til markaðs- búskapar í Lettlandi. „Vandinn í hnotskurn er sá að venjuleg vinna borgar sig ekki lengur. Þegar mánaðarlaun venju- legra launþega eru milli 2.000 og 3.000 rúblur og kílóverð á banön- um er 160 rúblur þá verða menn að drýgja tekjur sínar með ein- hvetjum ráðum. Og til hvers að ganga menntaveginn þegar félag-'; ar manns græða á tá og fíngri á svarta og gráa markaðnum?" seg- ir Egils Grikis. Vegna þess hversu gengi rúbl- unnar er óhemju óhagstætt miðað við erlendan gjaldeyri (Banda- ríkjadalur var í lok marsmánaðar 122 rúblna virði í Rigu) virðast allir útlendingar forríkir. Egils Grikis nefnir sem dæmi að hann hafi hannað nafnspjöld handa er- lendum stjórnarerindrekum. Þeg- ar forstöðumanni prentsmiðjunn- ar varð'ljóst að kaupandinn væri útlendingur vildi hann áttfalda verðið. Með einhverjum hætti tókst Grikis að sannfæra karlinn um að hann fengi aldrei framar verkefni hjá erlendum sendiráðum slægi hann ekki af kröfum sínum. „Landar mínir hafa enga hug- mynd um hvað felst í lögmálinu um framboð og eftirspurn,“ segir Grikis. Þrátt fyrir háfleygar yfirlýsing- ar um að breyta hagkerfi Lett- lands líkt og annarra fyrrverandi Sovétlýðvelda hefur mjög lítið gerst enn. Að mati Grikis og fleiri stafar þetta einkum af því að fáir skilja raunverulega hvað mark- aðsbúskapur er í raun. Þetta gild- ir jafnt um almenning sem stjórn- málaleiðtoga. Helst eru það fyrrverandi kommúnistaleið- togar sem hafa gert sér grein fyrir hvernig reka eigi fyrir- tæki, enda fengu þeir áður fyrr oft tækifæfi til utanferða og hafa því kynnst vestrænum starfshátt- um. En aðrir eiga erfitt með að skilja hvernig hugtök eins- og arð- semi eða afköst tengjast hvers- dagslegu striti. A svarta markaðnum hefur að sjálfsögðu verið nokkurs konar markaðsbúskapur í áraraðir en hann er einangrað dæmi. Hins vegar hefur nú þróast nokkurs konar grár markaður þar sem framtakssamir einstaklingar reyna að ná eins miklum tekjum og hægt er án þess að leggja rækt við atvinnustarfsemina eða fyrirtækið lengur en í örfáa mán- uði. Þegar viðskiptavinirnir sjá að vörurnar eða þjónustan stenst ekki kröfur um gæði hverfur fyrir- tækið eins og dögg fyrir sólu. Efnahagslífið er fast í nokkurs konar vítahring. Vegna reynslu- leysis af markaðshagkerfi veit enginn hvaða kröfur markaðsbú- skapur gerir um lagasetningu og stjórnskipan. Hins vegar er ógjörningur að stofna fyrirtæki og fjárfesta í fasteignum og tækjabúnaði — og leggja þannig grunn að þekkingu og reynslu — þegar engin lög eru til sem kveða á um eignarrétt einstaklinga og fyrirtækja. Lettland skortir erlend fyrir- tæki sem tilbúin eru að fjárfesta og kenna landsmönnum um leið hvernig reka eigi fyrirtæki með ábata. Þessi þró- un gengur hægt ekki síst vegna þess hve erfitt hefur reynst að ákvarða ríkis- borgararétt þeirra sem búa í landinu og um leið rétt erlendra ríkisborgara til að fjárfesta í Lett- landj. „Óvissa" er því orðið sem best lýsir ástandinu í Lettlandi. Er þá ónefnt risavaxið vandamál sem tengist því hvað eigi að gera við eignir sem kommúnistar gerðu upptækar á fimmta áratugnum. Húsnæðisskortur gæti aukist ef allir sem eitt sinn áttu íbúðarb- lokkir í Rigu og fleiri borgum fengju þær aftur og ákvæðu að reka íbúana á dyr. Þess vegna hafa verið sett lög um margra ára aðlögunartíma áður en eldri eig- andi fasteignar getur fengið um- ráð hennar. Tortryggni Letta í garð útlend- inga má skýra með því að um helmingur íbúa í landinu er kom- inn úr öðrum hlutum Sovétveldis- ins sáluga. Nú hafa verið sett lög um að þeir sem voru ríkisborgarar Lettlands fyrir 1940 og afkom- endur þeirra öðlist sjálfkrafa ríkis- borgararétt. Þar fyrir utan er gerð krafa um að menn hafi dval- ið um nokkra hríð í landinu, kunni málið og sveiji þess eið að sýna Lettneska lýðveldinu hollustu. Á meðan beðið er eftir nýrri lýðræðislegri stjórnarskrá og lög- gjöf á þeim grunni eru efnahags- leg þróun Lettlands og opinber viðfangsefni í höndum fulltrúa í Æðsta ráði Sovétlýðveldisins Lettlands. Að vísu voru síðustu kosningar til ráðsins nokkuð lýð- ræðislegri en áður hafði gerst en það dugir skammt. Flestir þing- manna voru fulltrúar sjálfstæðis- hreyfingarinnar enda kosnir á þeim tíma er þjóðin hugsaði ein- ungis um eitt mál: að endur- heimta sjálfstæði Lettlands. Margir hafa ekki getu til eða áhuga á að verða raunverulegir stjórnmálamenn. Það er einróma álit manna að afar áríðandi sé að endurreisa þjóðþing Letta. Núverandi þing- menn hafi ekki sannað lýðræðis- ást sína. T.d. má nefna að skjala- safn KGB, fyrrverandi öryggis- lögreglu Sovétríkjanna, hefur ver- ið flutt í þinghúsið m.a. til þess að varna því að upplýsingar um samstarf þingmanna og KGB verði birtar í íjölmiðlum. llona Fedosejeva, sem er frétta- maður ríkisútvarpsins í Rígu, seg- ir að sér finnist að blaðamenn hafi einir orðið að bera hitann og þungann af lýðræðisþróuninni. „Almenningur nennir ekki núorðið að hugsa um annað en afkomu sína og stjórnmálamenn eru treg- ir til að vinna að auknu lýðræði. Niðurstaðan er sú að við í blaða- mannastétt erum útverðir hvað þetta varðar," segir Fedosejava. BAKSVID Lars Lundsten skrifar frá Lettlandi Óhóflesf ílilutun í imianríkismál Bonn. Reuter. L-/ MANFRED Brunner, háttsettur þýskur embættismaður hjá Evrópu- bandalaginu (EB), sagði í viðtali sem þýska blaðið Die Welt birti í gær að óhófleg afskipti EB af innanríkismálum aðildarríkjanna skýrðu að hluta fylgisaukningu hægri öfgaflokka í nokkrum þeirra að undanförnu. Brunner er skrifstofustjóri vara- forseta framkvæmdastjórnar Evr- ópubandalagsins, Martins Bange- manns. Hann sagði í viðtalinu að ótti við sívaxandi áhrif Evrópu- bandalagsins hefði stuðlað að því að margir kjósendur í Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu og á Italíu hefðu kosið hægri öfgaflokka í kosningum nýlega. Fólki stæði stuggur af bandalaginu, meðal annars vegna þess að það hvorki þekkti né skyldi stjómkerfi þess. „Fólk hefur einnig gert uppreisn - og ég skil það mætavel að mörgu leyti - gegn tilraunum bandalags- ins til að semja reglugerðir um of mörg svið hins daglega lífs. Evrópu- bandalagið skilur ekki að það þarf að sætta sig við fjölbreytnina í Evrópu," hélt embættismaðurinn áfram. Brunner sagði að hann og Bangemann hefðu barist gegn til- raunum bandalagsins til að tryggja algjört samræmi í lögum og reglu- gerðurn innan bandalagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.