Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.04.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1992 ATVINNUAÍ YSINGAR Prentsmiður Hefur þú áhuga á að vinna hjá traustu og góðu fyrirtæki, sem sérhæft hefur sig í um- búðagerð og hágæðaprentun? Við hjá Kassagerð Reykjavíkur erum að leita eftir samstarfsmanni í filmudeild. Þú þarft að vera: - Vandvirkur fagmaður - Geta unnið í beinu sambandi við viðskipta- vini Kassagerðarinnar - Geta unnið undir álagi - Geta unnið fjölbreytt verkefni - Geta tileinkað þér nýja tækni - Samstarfsgóður Kassagerðin býður upp á góða vinnuað- stöðu, gott samstarfsfólk og möguleika á því að fylgjast með nýrri tækni. Þeir, sem hafa áhuga á þessu starfi, sendi skriflega umsókn til Óðins Rögnvaldssonar, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar í síma 38383 milli kl. 2-3 eh. næstu daga. KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR HE KLEPPSVEGI 33-105 REYKJAVÍK — SlMI 38383 $ Norræni Genbankinn Lausar stöður Norræni Genbankinn (NGB) er ein af stofnun- um Norðurlandaráðs, staðsettur á Skáni í Svíþjóð, skammt frá Malmö. Stofnunin aug- lýsir eftir umsóknum í þrjár stöður á eftirtöld- um sviðum. Ræktunarstjóri Starfsmaður ber ábyrgð á fjölgun og end- urnýjun á efnivið Genbankans og jafnframt að lýsa honum og meta. Hann hefur einnig yfirumsjón með því að viðhalda fjölrænum ávaxta-, berja- og garðplöntum. Ræktunar- stjórinn á að hafa háskólamenntun á sviði líffræði og reynslu af tilraunastarfsemi eða annarri ræktun, úti og/eða inni. Fræsafn Starfsmaður vinnur í frægeymslu Genbank- ans. Hann sér t.d. um að koma fræi fyrir í og afgreiða það úr geymslu. Hann sér um spírunarpróf og hefur eftirlit með innan- stokksmunum og innréttingum. Krafist er stúdentsmenntunar. Hann þarf að hafa gott verksvit, vera nákvæmur og hafa áhuga á sviði líffræði. Skrifstofumaður Starfsmaður sér um fjármál og starfsmanna- hald, m.a. að greiða reikninga, bókhald og að reikna út laun. Hann fæst einnig við skrán- ingu gagna og ýmis ritarastörf. Krafist er stúdentsmenntunar, sem sé að nokkru á sviði skrifstofuhalds og starfsmenntunar á því sviði. Ráðið verður í stöðurnar til fjögurra ára og framlengja má ráðningarsamning um fjögur ár. Ríkisstarfsmenn í fastri stöðu eiga rétt á launalausu leyfi á ráðningartímanum. Launa- kjör eru einstaklingsbundin. Starfsmenn frá öðrum löndum en Svíþjóð fá uppbót, sem getur numið allt að 7500 SEK á mánuði eft- ir fjölskylduaðstæðum og við ráðningu er greidd sérstök upphæð vegna kostnaður við staðfestu á nýjum stað. Greiddur er kostnað- ur vegna flutnings til og frá Svíþjóð og við árlegar ferðir til heimalands á ráðningar- tímanum. Ráðningartími hefst á bilinu 1. júlí 1992 til 1. janúar 1993 eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefa Dr. Stig Blixt, for- stjóri og Dr. Sigfús Bjarnason, deildarstjóri, sími +46-40-461790 og Þorsteinn Tómas- son, forstjóri Rannsóknarstofnunar landbún- aðarins, sími 91-812230. Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. maí nk. Utanáskrift: Norræni Genbankinn (NGB), Box 41, S-23053 Alnarp, Sverige. Bókasafn S-Þingeyinga Forstöðumaður Bókasafn S-Þingeyinga, Húsavík, óskar að ráða forstöðumann frá 1. júlí nk. eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að umsækjendur hafi próf í bókasafnsfræðum. Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. og skulu umsóknir sendar til stjórnar Bókasafns S- Þingeyinga, Safnahúsinu, 640 Húsavík. Upplýsingar um starfið veita Elín Kristjáns- dóttir, forstöðumaður bókasafns, í síma 96-41343 (heima) og 96-41173 (vinna) eða Regína Sigurðardóttir, stjórnarformaður, í síma 96-41743 (heima) eða 96-41333 (vinna). Stjórn Bókasafns S-Þingeyinga. Lögfræðingur Veitinga- og skemmtistaður óskar eftir að ráða ungan og drífandi lögfræðing til að gegna starfi framkvæmdastjóra í hlutastarfi. Boðið er upp á vinnuaðstöðu í miðbænum sem viðkomandi gæti nýtt í eigin þágu. Framkvæmdastjóri sér um skrifstofu fyrir- tækisins, fjármálastjórn og samningagerð. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf mjög fljótlega. FWQOF C X, RÁDNINC7NR Laugavegi 178, s. 689099 (á mótum Bolholts og Laugavegar) BORGARSPÍTALINN Bæklunarlækningadeild fyrir aldraða B-4 Hjúkrunarfræðingar óskast á kvöld- og næturvaktir;>Boðið er upp á aðlögunartíma. Öldrunardeild B-5 Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa. Vinnu- tími og starfshlutfall eftir samkomulagi. Boð- ið er upp á aðlögunartíma. Einnig eru lausar stöður sjúkraliða. Möguleiki á morgunvökt- um eingöngu. Hvítaband öldrunardeild Sjúkraliðar óskast til starfa á morgun- og kvöldvaktir. Einnig er laus hálf staða hjúkrun- arritara. Hjúkrunar- og endurhæfingardeild E-63 Staða aðstoðardeildarstjóra er laus til um- sóknar. Einnig eru lausar stöður sjúkraliða. Ýmsir vaktmöguleikar og starfshlutfall eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Hjalta- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 696358 og deildarstjórar viðkomandi deilda í síma 696600. Iðjuþjálfun Hefur þú áhuga á öldrunarmálum og umönn- un aldraðra? í boði eru tvær stöður aðstoðarmanna iðju- þjálfa. Annars vegar til að annast virkni/afþreyingu vistmanna á öldrunardeild Hvítabandsins og hins vegar á hjúkrunar- og endurhæfingar- deild spítalans á Heilsuverndarstöðinni. Um er að ræða hlutastörf. Vinnutími er fyrir hádegi alla virka daga. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veitir aðstoðaryfiriðjuþjálfi í síma 696712. Hjúkrunarfræðingar Á Sjúkrahús Akraness bráðvantar hjúkrunar- fræðinga í sumarafleysingar í júlí-ágúst. Vinsamlega hafið samband við hjúkrunarfor- stjóra sem allra fyrst í síma 93-12311. Gjaldkeri Innflutningsfyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða gjaldkera til framtíðarstarfa. Starfið er laust nú þegar. Viðkomandi þarf að hafa reynslu sem gjald- keri ásamt góðri bókhaldsþekkingu (tölvu- bókhald) og reynslu í afstemmingu í bók- haldi. Æskileg menntun er, Verslunarskóla- próf eða sambærilegt próf og þekkingu á Opus bókhaldi. Snyrtimennska, lipurð og öryggi í ailri framkomu er nauðsynleg. Laun samkomulagsatriði. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknir berist fyrir 16. apríl merktar: „G - 7943“ til auglýsingadeildar Mbl. Styrktarfélag vangefinna Þroskaþjálfar Óskum eftir að ráða þroskaþjálfa í 50% starf við verndaðar íbúðir félagsins. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma. Styrktarfélagið hefur nú á sínum vegum umsjón með og stuðning við 16 verndaðar íbúðir með tæplega 30 íbúum. ' Þessi starfsemi er enn í mótun og starfið felur í sér þátttöku í áhugaverðri þróun og gerir kröfur til sjálfstæðra vinnubragða og náinnar samvinnu við fatlaða, aðstandendur þeirra og fagaðilá',. Upplýsingar gefur Kristín J. Sigurjónsdóttir, forstöðumaður í síma 15622 milli kl. 13 og 15 næstu daga. Styrktarfélag vangefinna. radiomidun Sölumaður Radíómiðun er rótgróið fyrirtæki, en sérhæf- ing' þess. er sala og þjónusta á siglinga- og fiskileitartækjum með fjarskipti og tölvu- tækni sem sérgrein. Góðar vörur, duglegt og áhugasamt starfs- fólk ásamt fjárhagslegu sjálfstæði fyrirtækis- ins gefur væntanlegum sölumanni gott svig- rúm til að ná settum markmiðum. Gott væri að viðkomandi uppfyllti sem flest eftirfarandi skilyrða: - Hafi náð árangri í starfi sem sölumaður. - Tengst sjávarútvegi. - Hafi tæknimenntun og búi yfir tölvuþekk- ingu. - Sé ósérhlífinn, metnaðargjarn og skipu- lagður í vinnubrögðum. - Snyrtilegur, með vandaða framkomu ásamt þjónustulipurð. Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 1992. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást aðeins á skrifstofu Liðsauka frá kl. 9-15. Afleysinga- og ráðningaþiónusta Liösauki hf. Skólavörðustlg 1a - 101 fíeykjavtk - Slmi 62135S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.