Morgunblaðið - 12.04.1992, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIINIIMINGAR SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1992
Spítalahneyksli vestra:
Sjúkum er nánast
rænt af götunum
Embættismenn í Texas í Banda-
ríkjunum hafa að undanförnu
verið að fletta ofan af víðtækum
svikum á stórum spítala þar í rík-
inu og bendir margt til, að aðeins
sé um að ræða einn anga af gífur-
legri spiliingu í öllu bandaríska
heilsugæslukerfinu.
Rannsóknin hófst á geðsjúk-
dómadeild National Medical
Enterprises Incorporated, NME, en
það er annað stærsta spítalafyrir-
tæki í Bandaríkjunum og eingöngu
rekið á viðskiptalegum grundvelli.
Hefur oft verið fjallað um árangur
læknanna og stjórnenda spítalans
en ekki í læknatímaritum, heldur í
fjármálatímaritum, og nýlega kom
það fram í Wall Street Journal, að
„ævintýralegur vöxtur“ hefði verið
hjá fyrirtækinu. .
Nú er hins vegar hafin opinber
rannsókn á starfsemi NME og raun-
ar á þremur „gróðafyrirtækjum"
eða spítalakeðjum að auki. Afleið-
ingin er meðal annars su hjá NME,
að sjúklingunum hefur fækkað og
hlutabréfm lækkað í verði. Við því
hefur verið reynt að bregðast með
einhverjum umbótum og jafnvel
með því að skipta um nafn á sjúkra-
húsunum en stjórnendurnir neita
aiveg alvarlegustu ásökununum.
Þær eru i stuttu máli, að skilorðs-
eftirlitsmönnum, lögreglumönnum
og kennurum svo einhvijir séu
nefndir hafi verið borgað jafnvel
70.000 ÍSK. fyrir að koma með
sjúkling á geðsjúkdómadeild spital-
ans. Þar er honum síðan haldið
nauðugum en hrikalegir reikningar
búnir til fyrir læknisþjónustu, sem
oft hefur alls ekki verið veitt.
Þetta hneyksli kemur upp á sama
tíma og kreppa ríkir í bandaríska
heilbrigðiskerfinu. Milljónir manna
eru án nokkurra sjúkratrygginga
og aðrir verða gjaldþrota við að
reyna að borga læknareikningana.
Það er heldur engin tilviljun, að
þetta mál kemur upp_ í sambandi
við geðlækningarnar. í þeirri grein
var lengi vel mikil „veisla" eftir að
Ronald Reagan, fyrrum forseti,
heimilaði ríkisspítölunum að sleppa
ijöldanum öllum af fólki, sem var
þó sannanlega veikt, en-í kjölfarið
ruku einkasjúkrahúsin upp eins og
gorkúlur. Þau urðu hins vegar fljót-
lega allt of mörg og samkeppnín
milli þeirra er því mikil. Það hefur
svo aftur leitt til þess, að reynt er
með ýmsum og stundum vafasöm-
um ráðum að „manna“ sjúkrarúm-
in.
Hjá NME komst hneykslið í há-
mæli þegar geðlæknirinn Duard
Bok var rekinn i ágúst sl. fyrir að
mæta illa í vinnuna. Hann svaraði
fyrir sig með því að höfða mál á
hendur sjúkrahúsinu og lét þess um
leið getið, að hann hefði verið þving-
aður til að breyta sjúkdómsgrein-
ingum til að framlengja dvöl sjúkl-
inga og þar með greiðslunum. í
framhaldi af þessu hefur ríkissak-
sóknarinn í Texas höfðað mál á
hendur sjúkrahúsinu.
Sagt er, að jafnvel skólabörn
hafi verið „sjanghæjuð“ með þess-
um hætti á sjúkrahús eftir ábend-
ingum kennara og ríkissaksóknar-
inn í Texas og starfsmenn hans eru
að kanna þær ásakanir. Við nýlega
rannsókn kbm í ljós, að á geðsjúkra-
húsunum fjölgaði innlögnum ungs
fólks á aldrinum 10-19 ára um 43%
á siðasta áratug og segja þeir, sem
að rannsókninni stóðu, að 75% inn-
lagnanna hafi verið óþörf.
-CHRISTOPHER REED
Blómastofa
Friöfinm
Suöuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öllkvöld
tilkl.22,-
Gjafavörur.
Áskriftarsíminn er 83033
Minning:
Guðrún Halldórs-
dóttir - Akureyri
Fædd 14. ágúst 1903
Dáin 29. mars 1992
Mig langar til þess að skrifa fáein
orð um hana Gunnu mína nú þegar
hún hefur ^firgefið þennan heim og
er komin á annað og æðra tilveru-
stig. Nú veit ég að henni líður vel.
Gunna var búin að eiga við mikla
vanheilsu að stríða og síðustu árin.
dvaldi hún á Seli, þar sem vel var
annast um hana. Gunna var sérlega
glaðlynd og góð manneskja. Oft var
hlegið dátt að ótrúlegustu hlutum.
Eg tel mikið lán að hafa fengið
að njóta þess að hafa hana inni á
heimilinu hjá okkur í sex sumur.
Fyrir þann tíma erum við öll þakklát.
Hún var fædd á Akureyri og átti
alla tíð heima á Oddeyrinni, lengst
af á Strandgötu 15, í húsi foreldra
sinna. Það hús er nú horfið sjónum
okkar. Hún var elsta barn foreldra
t
Faðir minn og tengdafaðir,
GUÐNI VIGFÚSSOIM,
Hátúni 10, Reykjavík,
sinna, hjónanna Rósfríðar Guð-
mundsdóttur, er lést 1969, og Hall-
dórs Halldórssonar, söðlasmiðs, er
lést 1964. Hann rak verkstæði sitt
í kjallara hússins.
Systkini Gunnu eru:
Ingibjörg, fædd 29. október 1906,
búsett á Akureyri, gift Magnúsi
Bjarnasyni fyrrum skipaeftirlits-
manni, þeirra börn eru Guðrún bú-
sett í Reykjavík, gift Jóni Svein-
björnssyni, guðfræðiprófessor, Hall-
friður, þúsett á Akureyri, gift Arnari
Daníelssyni, rafvirkjameistara, Ás-
laug, búsett á Akureyri, gift Ragn-
ari Haraldssyni húsverði Landsbank-
ans á Akureyri. Þær systur Áslaug
og Hallfríður starfa báðar hjá Raf-
veitu Akureyrar. Bjarni, húsasmíða-
meistari, búsettur í Reykjavík, sam-
býliskona hans er Guðrún Gunnars-
dóttir.
Einn bróður átti Gunna, Stefán,
fæddur 14. september 1913, lést
1978, vélstjóri, bjó um tíma á Hjalt-
Minning:
eyri. Eftirlifandi kona hans er Krist-
ín Eggertsdóttir. Þau eiga tvö fóstur-
börn, Guðlaugu Ástu, gift Ramon
Waqeza, búsett í Bandaríkjunum, og
Kjartan sem staddur er í Póllandi
um þessar mundir.
Lára er yngst þeirra systkina,
fædd 6. júlí 1917. Hún var gift Kára
Sigurjónssyni, prentara, sem lést
1970. Dætur þeirra eru Elín Ásta
fóstra, búsett í Reykjavík, gift Lúter
Kristjánssyni, húsasmíðameistara,
Rósfríður, deildarstjóri á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, gift Magn-
úsi Friðrikssyni, bókbandsmeistara.
Hún Gunna kom til okkar að
Brúnalaug í Öngulsstaðahreppi, fyrst
vorið 1953 og vann í gróðurhúsunum
hjá föður mínum. Einnig var hún
móður minni mikil hjálp innanhúss í
hennar lasleika. Gunna hafði sér-
stakt yndi af öllum gróðri og ekki
síður þeim gróðri sem vex úti í nátt-
úrunni. Hún þekkti kynstrin öll af
jurtum með nöfnum, og á gönguferð-
um um nágrennið miðlaði hún okkur
systkinunum af þeirri þekkingu. Eitt-
hvað situr eftir af henni vona ég.
Einnig var hún vel að sér um fugla.
Gunna fékk það hlutverk að kenna
okkur systkinunum að lesa. Þá tók
hún okkur inn í sitt herbergi til þess
að stauta. Stundum var erfitt að
hætta lestrinum ef sögumar voru
spennandi. En það var alltaf notalegt
lést á Landspítalanum 10. apríl. Hann verður jarðsunginn frá
Neskirkju þriðjudaginn 14. apríl kl. 15.00.
Helga Guðnadóttir, Hilmar Antonsson.
Jóhann K.S. Alberts-
Bróðir okkar og frændi,
MAGNÚS ÓLAFSSON,
Æsufelli 6,
er látinn.
Hallveig Ólafsdóttir,
Bergþóra Ólafsdóttir,
Úlfhildur Úlfarsdóttir,
Soffra Vilhjálmsdóttir.
son, Höfn íHomafirði
Fæddur 21. ágúst 1904
Dáinn 2. apríl 1992
í gær, laugardaginn 11. apríl, fór
fram frá Hafnarfjarðarkirkju útför
Jóhanns Albertssonar, fyrrverandi
hafnsögumanns, fósturföður okkar
systra. Að okkur setti sáran söknuð
er okkur var sagt að pabbi væri lát-
inn. Við getum ekki lýst þeim sökn-
uði sem við hans nánustu fundum
fyrir. Það er stórt tóm sem hann
skilur eftir í sálum okkar sem þekkt-
um hann. Jóhann var hafnsögumaður
á Hornafirði um áratugaskeið. Hann
dvaldi síðustu vikur lífs sína á Skjól-
garði, dvalarheimili aldraðra á Höfn.
Þar fékk hann þá bestu aðhlynningu
sem völ var á og starfsfólk og lækn-
ar gátu veitt. Hann hafði skýra hugs-
un til síðustu stundar er hann lést
eftir langvinn veikindi. Við sem eftir
lifum söknum hans en vitum þó að
hann hefði viljað sjá okkur brosa og
samfagna sér að mega nú loks ganga
inn í dýrð Drottins. Við vonum að
honum líði vel þar sem hann er og
hugsum með þakklæti til hans fyrir
IVKarim<ara,ii.<5 j an
Legsteinagerð
Höfðatúni 12, Sími 91-629955
að koma inn til Gunnu. Marga sög-
una las hún fyrir okkur, söng og
spilaði á gítarinn sinn.
Hún kunni mikið af skemmtilegum
söngvum. Hún heklaði og pijónaði
dúkkuföt fyrir okkur systurnar.
Sérstaklega er minnistæður
dúkkustrákur sem hún pijónaði fyrir
systur mína en hann hlaut nafnið
Hemmi í höfuðið á dreng sem Elsa
vinkona henna Gunnu á og var
Hemmi mikið uppáhald. Hún Gunna
giftist aldrei og eignaðist ekki börn,
en ég veit að við erum mörg sem
höfum notið góðs af kynnum okkar
af henni. Henni þótti afskaplega
vænt um fjölskylduna sína og marg-
ar sögur sagði hún okkur af systkina-
börnum sínum.
Gunna spilaði bæði á orgeí og gít-
ar, og hún kenndi mörgum að spila
á gítar. Einnig var hún töluvert við
verslunarstörf þar á meðal i verslun
seni Ingibjörg systir hennar rak.
Við garðyrkjustörf vann hún m.a.
hjá Soffíu Sófaniasdóttur frænku
sinni sem var sú fyrsta með plöntu-
sölu á Akureyri. Þar hefur hún ef
til vill fengið áhugann fyrir gróðrin-
um. Hafi hún hjartans þakkir frá
okkur öllum.
Okkar bestu kveðjur til aðstand-
enda Gunnu.
Sigurbjörg Gísladóttir og
fjöiskylda
alla þá umönnun og elsku sem hann
sýndi okkur alla tið. Hann var okkur
sem faðir og betri föður en hann
hefðum við aldrei getað fengið.
Við kveðjum fósturföður okkar.
Veri hann sæll og blessaður. Guð
veri með honum.
Fyrir hönd eiginmanna og barna
okkar,
Jóna og Elín.