Morgunblaðið - 12.04.1992, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1992
29
Lúðrasveitin frá Musterinu í Ösló,
Hjálpræðisherinn:
Ung’ling’ahlj ómsveit
frá Noregi í heimsókn
Unglingalúðrasveit Hjalpræðis-
hersins frá Musterinu í Ósló kem-
ur í heimsókn til Islands um pásk-
ana. Þetta er 30 manna lúðrasveit
og með í förinni er Einar Höyland
majór, sem var flokkssljóri í Rvík
fyrir nálægt 30 árum.
Lúðrasveitin mun leika á sam-
komu á Akureyri í sal Hjálpræðis-
hersins, Hvannavöllum 10, pálma-
sunnudag 12. apríl kl. 50.00. Þar
mun einnig tríóið „Guðný og dreng-
irnir“ syngja og leika trúarlög í
djassstíl.
Mánudaginn 13. apríl verða tón-
leikar í Húsavíkurkirkju kl. 20.30 og
heimsókninni fyrir norðan lýkur svo
með útitónleikum í göngugötunni á
Akureyri þriðjudaginn kl. 16.00 (ef
veður leyfir) og tónleikum í Hersaln-
um kl. 20.30 en þar mun einnig
Lúðrasveit Akureyrar leika.
í Reykjavík mun lúðrasveitin leika
í útvarpsguðsþjónustu í Dómkirkj-
unni á skírdag kl. 11.00. í Neskirkju
verða svo tónleikar kl. 16.00 sama
dag.
Föstudaginn langa verður haldin
samkoma í Neskirkju kl. 20.00 og á
páskadag verður upprisufögnuður í
samkomusalnum í Herkastalanum
kl. 8.00 þar sem allir fá morgunmat
á eftir. Síðasta tækifærið að hlýða á
þessa lúðrasveit verður um kvöldið
kl. 20.00 í Neskirkju en þar verður
söng- og tónleikasamkoma.
Lúðrasveitarmeðlimir munu auk
lúðrablásturs syngja bæði einsöng,
þrísöng og kórsöng. Einnig munu
þeir sýna leikþátt. Það verður
ábyggilega mjög gaman að fá þessa
frændur okkar frá Noregi í heim-
sókn, og viljum við hvetja sem flesta
til að koma og hlýða á þá. Sjáið
nánar auglýsingar í fjölmiðlum.
Teiknimynd með íslensku tali
SAMBÍÓIN munu frumsýna um
páskana nýja teiknimynd með
íslenslu tali. Ber hún heitið „Leit-
in mikla“. Er hér á ferðinni am-
erísk mynd og eru hún um 90
mínútna löng.
Um talsetningu sáu þeir Júlíus
Agnarsson og Þórhallur „Laddi“
Sigurðsson. Þá sáu þeir Laddi og
Björgvin Halldórsson um söngva í
myndinni. Myndin verður fumsýnd
á skírdag, þann 16. apríl.
SPARIÐ BENSÍN
AKIÐ Á
GOODfÝEAR
GOODpYEAR
60 ÁR
Á ÍSLANDI
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S 695560 & 674363
Odýr og spennandi sumarfargjöld með SAS
SUMARLEYFISFARGJÖLD SAS 15. apríl - 30. september 1992
Reykjavík - Kaupmannahöfn .20.900.-
Reykjavík - Gautaborg .20.900.-
Reykjavík - Osló Reykjavík - Stokkhólmur .20.900.- .24.900.-
Reykjavtk - Helslnki Reykjavík - Hamborg .24.900.- .24.900.-
Lágmarksdvöl 7 dagar, hámarksdvöl 1 mánuöur. Barnaafsláttur er 20%. Tll sölu fram aö 1. maí 1992. 1250 kr. Innlendur flugvallarskattur er ekki Innlfalinn í uppgefnu veröl auk 600 kr. á fargjald til Kaupmannahafnar.
Hafðu samband viö söluskrifstofu SAS
eða feröaskrifstofuna þína.
M/SAS
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11