Morgunblaðið - 15.04.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1992
Atvinnuleysisskráning í mars:
Tvöfalt fleiri án
atvinnu en í fyira
Atvinnuleysi vex meðal fólks á aldrin-
um 20-39 ára á höfuðborgarsvæðinu
SKRÁÐIR atvinnuleysisdagar voru fleiri í marsmánuði en dæmi eru
um áður og meira en tvöfalt fleiri en þeir hafa verið að mcðaltali
síðastliðin fimm ár. Skráðir atvinnnuleysisdagar voru 83 þúsund, 8
þúsund fleiri en í febrúar, og nálgast að vera jafnmargir og þeir voru
í janúarmánuði. Þetta jafngildir því að 3.800 manns hafi að meðaltali
verið atvinnulaus í mánuðinum eða um 3,1% af mannafla á vinnumark-
aði. í mars í fyrra voru skráðir atvinnuleysisdagar tæplega 40 þúsund
en það jafngildir því að tæplega 1.800 hafi verið atvinnulausir.
í frétt frá vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins segir að við
greiningu á þeim sem voru á at-
vinnuleysisskrá í lok febrúar I ár og
í fyrra veki sérstaka athygli mikil
íjölgun karla og kvenna á aldrinu
20 til 39 ára, einkum á höfuðborgar-
svæðinu, eða um 136% að meðal-
tali. Þá sé athyglisvert að þeim sem
hafi verið atvinnulausir 13-25 vikur
hafi fjölgað veruiega eða um 87%
milli ára. Þetta tvennt gefi til kynna
að meðalaldur þeirra sem eru á at-
vinnuleysisskrá fari lækkandi og að
atvinnuleysistímabil lengist.
Þá kemur fram að 245 þúsund
atvinnuleysisdagar hafi verið skráðir
á fyrsta ársfjórðungi, rúmlega 90
þúsund fleiri en sama tímabil í fyrra
þegar þeir voru 157 þúsund. Það
jafngildi því að 3.800 manns hafi
að meðaltali verið atvinnulaus á
þessu tímabili. í fréttinni segir að
það sem einkennt hafi þróunina frá
áramótum sé að atvinnuleysi aukist
á höfuðborgarsvæðinu en dragi úr
AUSTURLAND
SUÐURLAND
Atvinnuleysi í jan. - mars 1992
Hlutfall atvinnulausra af heildar-
vinnuafli. Á höfuðborgar-
svæðinu standa 1.932
atvlnnulausir á bak
við töluna 2,6% I mar$
og fjölgaði um 366 x „
frá því (febrúar
LANDSBYGGÐIN
5,5%
6.9%
6,5%
3,4%
J F M
NORÐURLAND
VESTRA
J F M
NORÐURLAND
EYSTRA
VV
VESTURLAND
7.0%
’ J F
HÖFUÐBORGAR-
5.3% SVÆÐIÐ .
4.3%
SUÐURNES
LANDIÐ ALLT
því eða það standi I stað á lands-
byggðinni. Fátt bendi til breytinga
á þessari þróun. Þannig hafi jafn-
margir verið skráðir atvinnulausir
síðasta dag marsmánaðar og voru
að meðaltali atvinnulausir í árs-
fjórðungnum eða 3.800 manns og
það spái ekki góðu um atvinnumál
skólafólks í sumar.
Atvinnuleysi skiptist þannig eftir
landshlutum að á höfuðborgarsvæð-
inu var atvinnuleysið 2,6% af rpann-
afla á vinnumarkaði að meðaltali,
2,3% meðal kvenna og 2,9% meðal
karla. Á Vesturlandi var það 2,3%,
3% hjá konum og 1,9% hjá körlum,
á Vestljörðum 0,4%, 0,2% þjá konum
og 0,6% hjá körlum, á Norðurlandi
vestra 4,7% að meðaltali, 4,4% hjá
konum og 4,9% hjá körlum, á Norð-
urlandi eystra 4,6%, 4,7% hjá konum
og 4,5% hjá körlum, á Austurlandi
4,7%, 5,4% hjá konum og 4,2% hjá
körlum, á Suðurlandi 3,4%, 4,6% hjá
konum og 2,7% þjá körlum og á
Suðurnesjum 4,3% að meðaltali,
7,4% þjá konum og 2,4% hjá körlum.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 8. APRIL
YFIRLIT: Yfir Norövestur Grænlandi er 1.038 mb hæö oa þaðan 1.022
mb hæöarhryggur suðaustur yfir íslandi. Austur af Labrador er 974 mb
læoö og þaðan vaxandi lægðardrægð við Hvarf á leið norðaustur.
SPA: Suðvestan- og vestanlands þykknar upp með hægt vaxandi aust-
anátt, en í öðrum landshlutum verður breytileg eða norðlæg átt, gola
eða kaldi. Smáól við noröaustur-ströndina en annars víða bjartviöri, Með
kvöldinu má búast við dálftllli rigningu suðvestanlands og slyddu norð-
vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAQ: Fremur hæg suðaustlæg átt. Skýjað og
sums staðar dálítil rigning eða slydda sunnan- og vestanlands, en bjart-
viðri norðanlands og austan. Hiti 1 -5 stig að deginum en víða næturfrost.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustan átt með rigningu sunnan- og vest-
anlands og einnig um tíma noröan- og austanlands. Hiti v(ðast á billnu
6-8 stig.
o
Heiöskírt
/ / /
f f
f f f
Rigning
&
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
Hálfskýjað
* * *
* n»
* * *
Snjókoma
Skýjað
V Ý
Alskýjaö
$
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vlndðrin sýnir vindstefriu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjðður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
Þoka
itig..
FÆRÐA VEGUM: <ku 7.301 gær)
Góð færð var á vegum á Suður- og Austurlandl kl. 18 í gær, en hálka
á Bröttubrekku. Grelöfært var með suðurströndinni austur á flrði og
ágæt færð víðast eystra. Fært er vestur um Dalí og í Reykhólasveit en
ófært vestur yfir Klettsháls. Góð færð var frá Brjánslæk tll Patreksfjarö-
ar og þaöan til Bildudals og fært norður ýfir Holtavörðuheiðl til Hólma-
víkur og Drangsness en þungfært yfir Steingrímsfjarðarheiðí. Fært var
yfir Breiðadals- og Botnsheiði fyrir vestan. Greiðfært var ó Norður- og
Norðausturlandi til Bakkafjaröar. Fært var frá Bakkafirði um Sandvíkur-
heiði til Vopnafjaröar en þar var délltil hólka sem og á Vopnafjaröar-
heiöl. Fært var um Mývatns- og Möörudalsöræfí.
Vegagerðín.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl, 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyrl Reykjavík hltl 1 2 voður skýjað mistur
Bergen 2 rigning
Helsinkl 7 skýjað
Kaupmannahðfn 8 skýjað
Narsaarssuaq 4 skýjað
Nuuk 1 skýjoð
Óaló 3 snjókoma
Stokkhólmur 3 slydda
Þórshöfn e léttskýjað
Algarve 19 léttskýjað
Amsterdam 10 skýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín B skýjeð
Chlcago 4 rigning
Feneyjer 14 hélfskýieð
Frankfurt 12 léttskýjað
Glasgow 5 rigning
Hamborg 9 skýjað
London 9 alskýjað
LosAngeles 14 alskýjsð
Lúxemborg 11 hálfskýjað
Madrld 18 léttskýjað
Malaga 18 rykmlstur
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal +2 skýjað
NewYork vantar
Orlando vantar
Par(s 13 skýjað
Madeira 17 ekýjaö
Róm 17 léttskýjað
Vín 13 skýjað
Washlngton 6 alskýjað
Wlnnlpeg 1 alskýjað
HelmlM: Veðurstofa Íslontís
(Byggt á vaðuropá kl, 16.151 grar)
IDAG kl. 12.00
Fæðingarheimilið:
Rekstur útilokaður án
viðbótarfjárveitingar
- segir stj órnarformaður Ríkisspítala
Rlkisspítalarnir eru ekki tilbúnir til að reka Fæðingarheimilið áfram
í óbreyttri tnynd nema viðbótarfjárveiting fáist til starfseminnar.
Þetta var niðurstaða fundar stjórnarnefndar Ríkisspítalanna í gær.
„Eg mun aldrei standa að því að taka peninga út úr rekstri Ríkisspít-
alanna, eins og staða þeirra er núna, til að setja í nýtt verkefni, sem
við fáum ekki fjármuni til að sinna,“ segir Árni Gunnarsson, formað-
ur sljórnarnefndar Ríkisspítala.
Á fundinum í gær var forstjóra
Ríkisspítalanna og yfirlækni
kvennadeildar falið að endurmeta
stöðu þessa máls, en taliö er að
barnsfæðingum á Fæðingarheimil-
inu verði hætt innan nokkurra daga.
„Við getum ekki rætt þetta meira.
Við leysum þetta ekki nema að fá
fjármagn til þess,“ segir Árni. „Það
er alveg ljóst að það er engin leið
að reka Fæðingarheimilið með þeim
fjármunum sem við höfum fengið
og að halda fæðingum úti á
Formaður utan-
ríkismálanefndar:
EES-samning-
urinn brot á
stjórnarskrá
EYJÓLFUR Konráð Jónsson, for-
maður utunríkismáluncfndar,
sagðist við umræður á Alþingi í
gær telja að samningurinn um
evrópskt efnahagssvæði bryti í
bága við stjórnarskrá íslands.
Hann sagði það einnig ógæfu að
aðalsamningamaður íslands
hefði í gær sett upphafsstafi sína
undir samninginn ásamt öðrum
samningamönnum EFTA og EB.
Eyjólfur Konráð fór fram á að
utanríkisráðherra fengi Hannes
Hafstein, samningamann sinn, til
að lýsa því yfir, að þessi undirritun
hefði ekki aðra þýðingu en þá að
samningamenn næðu ekki lengra
við samningsgerðina og væru hætt-
ir.
í ræðu sinni gagnrýndi Eyjólfur
Konráð samninginn og sagðist ekki
geta lesið annað af samningsplögg-
um en að í honum fælist skerðing
á sjálfstæði og fullveldi íslands.
Jón Baldvin Hapnibalsson utan-
ríkisráðherra sagði við umræðumar
að ekki hefði verið stofnað til þjóð-
réttarlegra skuldbindinga þótt
samningamenn hefðu sctt upphafs-
stafi sina undir samninginn um evr-
ópskt efnahagssvæði í gær.
Fæðingarheimilinu," segir hann.
Á síðasta ári kostaði 72 milljónir
að reka Fæðingarheimili Reykjavík-
urborgar, þar af voru 60 millj. beinn
rekstrarkostnaður og afgangurinn
viðhalds- pg framkvæmdaverkefni,
að sögn Árna. Miðað við rösklega
400 fæðingar á síðasta ári er kostn-
aður vegna hverrar fæðingar um
130 þúsund kr. á sama tíma og
kostnaðurinn var 85 þús. kr. á
fæðingardeild Landspítalans.
Árni segist vilja beita sér fyrir
sameiginlegum fundi fulltrúa Rík-
isspítala, Ljósmæðrafélagsins,
Reykjavíkut'borgar, heilbrigðisráðu-
neytis og hugsanlega með þátttöku
áhugamannahóps um rekstur Fæð-
ingarheimilisins, þar sem allt málið
verði endurskoðað og stokkað upp
á nýtt.
Pilturinn
sem lést
Pilturinn, sem lést eftir slys í Blá-
fjöllum á föstudag, hét Geir Þór
Jóhannsson, til hcimilis að Stiga-
hiíð 48 í Reykjavík.
Geir Þór var á fimmtánda ári,
fæddur 6. október 1977.