Morgunblaðið - 15.04.1992, Side 49

Morgunblaðið - 15.04.1992, Side 49
Þetta loforð var um tíma skriflegt en engu að síður var það svikið og innheimtur héldu áfram af fullum krafti. Eftir mánaðarþóf þar sem innheimtumennirnir létust fúsir til samninga varð þ'óst að ekki næðust samningar, þar sem gagnkröfur innheimtumannanna jafngiltu í raun fjárkúgun í ljósi stöðunnar. Þegar ijóst var að ékki gengi að semja við innheimtumennina um framsal krafnanna samdi stjórn Þjóðlífs ítarlega greinargerð um málið og sendi öllum bæjarfógetum og sýslumönnum sem og Borgar- dómi Reykjavíkur. í bréfinu var varað við innheimtumönnunum og á það bent að þeir störfuðu í óþökk Þjóðlífs við innheimtu krafna-sem ekki ættu sér stoð í raunveruleikan- um. Bréfinu var síðan fylgt eftir með símtölum við öll embættin þar sem málið var frekar skýrt. Sam- hliða bréfi þessi var framferði inn- heimtumannanna kært til Lög- mannafélags íslands og farið fram á liðsinni þess í að stöðva fram- göngu þeirra. Lögmannafélagið taldi málið ekki heyra undir starf- semi sína og vísaði því frá sér. Þegar hér var komið sögu höfðu okkur borist í hendur gögn sem sýndu að innheimtumennirnir höfðu ofan á allt annað falsað undirritun framkvæmdastjóra Þjóðlífs undir nýjan kaupsamning og lagt hann fram sem réttargagn í dómsmálum. Fölsun þessi var þegar í stað kærð til Rannsóknarlögreglunnar og far- ið fram á rannsókn málsins. Enn í dag hefur ekkert borið á viðleitni lögreglunnar til að fylgja málinu eftir og hefur krafan um rannsókn legið þar óhreyfð í um sex mánuði. Öllum bæjarfógetum og sýslumönn- um var tilkynnt um fölsunina og kæru Þjóðlífs á henni. Það hafði þau áhrif að sýslumenn hættu að taka mál innheimtumannanna fyrir og tókst því að stöðva frekari dóma á saklaust fólk. En því miður virð- ast fógetaembættin enn í dag vinna athugasemdalaust fyrir innheimtu- mennina. Á þessu ári hefur lögmað- ur Þjóðlífs með formlegum hætti rift samningnum og komið var að stefnum ( málunum þegar Þjóðlíf hf. þraut örendið og var endanlega lýst gjaldþrota, ekki síst vegna þessa máls. Þar með missum við málið úr okkar höndum en fyrrum stjórnarmenn Þjóðlífs hafa þegar farið fram á leyfi bústjóra til að halda málarekstri á hendur inn- heimtumönnum áfram á eigin kostnað. Enn hefur ekki verið veitt svar við þeirri málaleitan okkar. Bitur reynsla - Gallað réttarkerfi Nú er Ijóst að íjöldi einstaklinga um allt land hefur hlotið af máli þessu mikinn skaða, bæði fjárhags- legan og tilfinningalegan. Þjóðlíf hf. er gjaldþrota vegna þessa máls og fyrrum hluthafar þess sitja per- sónulega uppi með margra milljóna króna skuldbindingar. Allt hefur þetta átt sér stað þrátt fyrir að allra leiða hafi verið leitað til að stöðva málið þegar ljóst var hvert stefndi, Hagsmunasamtök lögmanna reynd- ust ráðalaus, lögreglan reyndist gagnslaus og fógetavaldið brást oftar en ekki því hlutverki sínu að upplýsa þolendurna um þau úrræði sem þeim gáfust og unnu sum hver þess í stað í einu og öllu með inn- heimtumönnunum. Getuléysi þeirra stofnana sem verja eiga almenning fyrir átroðningi glæpamanna hefur því opinberað sig í þessu máli og það skilur eftir sig ótal spurningar um raunverulegan tilgang þess, Það ætti að vera dómsmálaráðherra og lögmönnum þessa lands ærið um- liugsunarefni hvernig bregðast eigi við til að endurvinna traust almenn- ings á þessum stofnunum. Við sem stóðum upphaflega að sölu krafn- anna gerum okkur fulla grein fyrir okkar ábyrgð og þeim mistökum sem salan var. Við munum freista þess að reka málið áfram í réttar- kerfinu en ítrekum þá skoðun okkar að málið sé allt með þeim hætti að hið opinbera ætti að grípa í taum- ana, stöðva aðgerðir fyrirtækisins Innheimtur og ráðgjöf hf. og hefja opinbera rannsókn á starfsemi þess. HRANNAR ARNARSSON KRISTINN KARLSSON 1 l"!’i / 1;’ |. :.( 1 K-ll /í 4|j/ ( |j(\! !; . i ! I MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1992 —■—r~ 49 VELVAKANDI BLOMASALUR LYKLAKIPPA Lykiakippa með húslykli og póstkassalykli fannst við Ból- staðarhlíð fyrir skömmu. Lítill skór er áfastur við kippuná. Upplýsingar í síma 31053. VESKI Brúnt veski með smellu tapaðist fimmtudaginn 9. apríl á bíla- stæðinu við Kringluna. Finnandi er vinsainlegast beðinn að koma því til öryggisvarða í Kringlunni eða til lögreglunnar eða hringi í heimasíma 92-12953. TASKA Dökkblá strátaska tapaðist í Þórskaffi 28. mars. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 672827 eða síma 682703. Fundarlaun. KETTIR Gulbröndóttur köttur með hvíta bringu er í óskilum. Upp- lýsingar í síma 75160 og 72261 eða í Kattholti. Kettlingar fást gefins. Upp- lýsingar í síma 682489. Köttur tapaðist við Gunnars- braut á sunnudag, er til heimil- is í Bólstaðarhlíð 7. Vinsamleg- ast hringið í heimasíma 28116 eða vinnusíma 685060 ef kisa hefur komið fram. Fimm gullfallegir kettlingar fást gefins. Upplýsingar í síma 652472. HRINGUR Lítill gullhringur tapaðist á fimmtudag, sennilega í grennd við Hagabúðina eða við Lækjar- götu. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 14588. Opið öll kvöld um páskahátíðina - fyrir þig Borðapantanir í síma 22321 FLUGLEIÐIR HÓTEL LOFTLEIÐIR - þegar matarilmurinn liggur í loftinu \__________________________) Trúarhópar Fvá Guðna Thorarensen: Við skulum líta aðeins á eitt stærsta trúarsamfélag heims. Nefnilega kaþólsku kirkjuna. Þeirra trú hefur einkennst svolítið í gegn- um árin að kaupa sjálfan sig lausan með það sem kallast syndaaflausn en það er A venjulegu máli að kaupa sig lausan undan einhverri synd sem þeir hafa drýgt. Þetta er nú að mestu ef ekki öllu horfið Bem betur fer en þá hefur bara annað komið I staðinn, t.d. blessun Martu meyjar og að fara með sömu bæn margoft, á sama tíma eru færðar kúlur til og frá sem eru á bandi. _En hvað segir Bibltan við þessu? „Ég er vegurinn, sannleikurinn og ltfið," sagði Jesús eitt sinn. Jóh. 14.6. Hann sagði einnig: „Ég er dyrnar.“ Jóh 10.9. Einkennilegt er að á þessum tveimur textum er ekki minnst einu orði á Martu móð- ur Jesú. Kannski vegna þess að Biblían talar um að hinir látnu séu sofandi og munu verða það uns hann kemur aftur samanber yfir- ferð mína um þjóðkirkjuna. Til eru einnig líkneski af allskonar dýrling- um sem uppi hafa verið og beðið er til þeirra um hvað eina sem lujá- ir kaþólska menn. Megum við samkvæmt heilagri ritningu biðja til dýrlinga og til alls- konar mynda og stytta? í Jes, 44. 9.-11. og III Mós 26.1. er greini- legt að allt slíkt er bannað og hveij- ir sem sltkt gjöra munu til skamm- ar verða. Þeir mega þó eiga það að þeir bera hvað mesta virðingu fyrir sinni trú og kirkju. Þeir hneigja sig og signa fyrir hveija einustu messu Ófriðar- ástand Frá Vilhjálmi Alfivðssyni: Það vekur ugg hjá mörgum á Vesturlöndum hve tyrknesk yfir- völd láta ófriðlega gagnvart Kúrd- um t Norður-írak og Armenum. Báðar þessar stðarnefndu þjóðir haifa þurft að þola ótrúlegustu raun- ir af hálfu tyrkneskra yfirvalda ára- tugum sarnan. Annað hvort gera tyrknesk yfir- völd upp við sig að virða rétt þess- ara tveggja þjóða eða taka afleið- ingunum. Það væri synd að það land, sem Kamel Ataturk faðir Tyrklands nútímans stofnaði, yrði lagt í rúst, Enginn er óhultur t þess- um heimi t dag. Tyrkir ættu þegar að hverfa frá þeim stöðum í Evrópu sem tilheyra Grikklandi og Búlgar- (u. VILHJÁLMUR ALFREÐSSON, Efstasundi 76, Reykjavík. bæði fyrir og eftir. Kirkjan hefur verið með um alllangt skeið klaust- ur bæði fyrir konur og karla. Bibl- ían bannar ekki þessi hús beint en þau koma í veg fyrir að kristniboðs- skipunin fái að ryóta sín þannig að allir menn fái að heyra fagnaðar- boðskapinn og taki þá trú sem þeir kjósa sér. Matt 28. 18.-20. Páfinn hefur tnikið vald innan kirkjunnar og það sem hann segir er bæði rétt og satt. Stangist það stðan á við það sem ritningin segir hefur páfínn rétt fyrir sér en ekki Biblían. Þannig væri eins og í fyrstu kynningu lengi hægt að halda áfram. En slíkt er ekki við hæfi því ekki er það ætlun mín hér að dæma einn eða neinn heldur að fólk fái örlitla innsýn t það sem þessir hóp- ar segja og trúa og hvað Biblían segir um sama efni. GUÐNI THORARENSEN, Melsíðu 6d, Akureyri. LEIÐRÉTTING AR Svartfugl á frönsku í Morgunblaðinu 12. aprtl s.l. á 6, bls, birtist frétt um að Svartfugl Gunnars GunnarBsonar sé nýkominn út á frönsku og þetta sé fyrsta verk höfundarins sem kæmi út á því máli, Það er ekki rétt. Fjallkirkjan I-III (Lék ég mér þá að stráum, Skip heiðríkjunnar og Nótt og draumur) kom út á frönsku 1942-1944 og Svartfugl 1947. Þetta er því 2, útgáfa Svartfugls í Frakk- landi, í fréttinni er þýðandi sagður vera Jacqueline Delia en það er ekki held- ur rétt. Þýðandinn er sá sami og 1947, J. Dorende, en þýðingin er endurskoðuð af Gérard Lemarquis og Maríu Gunnarsdóttur. Rangur bókartitill f GREININNl „Blábleikar kýr“ sl. sunnudag var ranglega farið með nafn á bók Alberts Jóhannssonar, Hún heitir „Handbók tslenskra hesta- manna. Knapinn á hestbaki er kóng- ur um stund“. Ártal misritaðist í myndatexta á miðopnu blaðsins ! gær þar sem talað var um hvar fundir bæjar- og borgarstjórnar hefðu verið haldnir f gegnum ttðina, misritaðist ártai. Hið rétta er að fundir bæjarstjórnar voru haldnir t kaupþingssalnum á efstu hæð Eim- skipafélagshússins við Pósthússtræti frá 1932 til 1958. Einnig láðist að geta þess (mynda- texta að fundir bæjar- og borgar* stjómar voru haldnir að Skúlatúni 2 á árabilinu 1968 til 1992. FRÖNSKU LAMPARNIR FALLEG HÖNNUN MARGAR GERÐIR le öauphin FRANCE HEKLA LAUQAVEQ1174 S 695600/695550

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.