Morgunblaðið - 15.04.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1992
17
Er eitthvað að gerast?
eftir Sigrúnu
Magnúsdóttur
Leiðari Morgunblaðsins frá
föstudeginum 10. apríl sl. spyrþess-
arar spurningar. Það undrar mig
ekki að hugsandi menn varpi slíkri
spurningu fram, vegna þess að
Sjálfstæðisflokkurinn vill ekkert
reyna að gera til að örva atvinnulíf-
ið j borginni né landinu.
í stjórn veitustofnana hefur legið
tillaga frá mér síðan í haust um
að auka að mun rannsóknar- og
þróunarstarf vatnsveitu, rafmagns-
veitu og Hitaveitu Reykjavíkur.
Hugvit og þekking ásamt auðlind-
um okkar í köldu og heitu vatni og
rafmagni er Ijársjóður sem nýta ber
til alhliða atvinnuuppbyggingar í
Reykjavík.
Miðvikudaginn 8. apríl er fundur
í stjórninni og er tillagan þá loksins
á dagskrá, en sjálfstæðismenn vilja
ekki atvinnuuppbyggingu og fram-
þróun og vísa tillögunni frá.
Við eigum mikla möguleika
Hitaveita Reykjavíkur er að ýmsu
leyti leiðandi fyrirtæki í veröldinni.
Þar er til staðar þekking og reynsla
sem viða kemur að gagni og gæti
orðið eftirsótt hvarvetna. Við verð-
um eigi að síður að skerpa ímynd
fyrirtækisins sem verkfræðifyrir-
tækis og efla sérþekkingu á sviði
hitaveitutækni.
Bæði hitaveitustjóri og Rekstrar-
stofan, sem gerði tillögur að stefnu-
mótun fyrir HR, telja að til að halda
inni í fyrirtækinu sérhæfðri þekk-
ingu þurfi að fjölga verulega tækni-
menntuðu starfsliði innan fyrirtæk-
isins.
Mikið hefur t.d. verið rætt um
að nýta jarðgufu til iðnaðarupp-
byggingar. Það vekur því athygli
hvað innlend iðnfyrirtæki leita í litl-
um mæli til fyrirtækisins með fyrir-
spurnir.
Jafnframt felast í heita vatninu
ýmsir ónýttir möguleikar til at-
vinnusköpunar, t.d. á sviði heilsu-
ræktar, lækninga og ferðamála.
Auður í vatni
Skipulagsnefnd borgarinnar
ferðaðist sl. haust um Mið-Evrópu
og kom m.a. til Karlovy Vary
(Karlsbad), heimsþekkts heilsu-
ræktarbæjar í Vestur-Bæheimi. Til
þessarar 60.000 manna borgar
streyma um 10 milljónir manna á
ári hvetju til að leita sér og sínum
lækninga. Sérkenni borgarinnar er
aðstaða til heilsubótar, þar sem
hveravatn staðarins er notað til hins
ýtrasta í böð og heilsudrykki. Þarn-
ar drakk fólkið úr sérstökum könn-
um (líka iðnaður) 35-45 gráðu heitt
hveravatn í þeirri trú að yngjast
við það um 10-15 ár.
Við Reykvíkingar eigum mikla
auðlind sem er okkar ágæta Gvend-
arbrunnavatn. Starfsmenn Vatns-
veitu Reykjavíkur búa yfir mikjlli
þekkingu á vatni og meðhöndlun
þess. Ekki er ólíklegt að útflutning-
ur vatns verði í framtíðinni meiri-
háttar tekjulind og því á að gefa
þeim fyrirtækjum í borginni, sem
við þann útflutning vilja fást, kost
á að kaupa og nýta sérþekkingu
VR.
Þá er spurning hvernig koma
má við skoðunarferðum innlendra
og erlendra ferðamanna til að skoða
Gvendarbrunnahúsið, bergsalinn og
borholurnar. Það gleymist engum
sem fær tækifæri til að skoða þann
hamrakastala.
Möguleikar okkar á frekari notk-
un raforku eru margvísiegir. Eðli-
legt er að feia RR að fylgjast með
þróun nýrrar tækni í samgöngumál-
um, t.d. bæði hvað varðar rafknúin
almenningssamgöngutæki og raf-
bíla. Hugmynd er uppi um að til
greina kæmi að leggja rafknúinn
einteinung í stað götunnar, Hlíðar-
fótar, en mengandi umferðaræð
milli Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur
eyðileggur mjög útivistargildi
svæðisins. Víða í Evrópu kvíða
menn kröfunni um rafmagnsbíla
vegna þess að orkan er ekki til, þær
áhyggjur þurfum við ekki að hafa.
Það er ánægjulegt að RR skuli nú
vera með einn rafbíl í notkun til
að safna reynslu. Þá er spurningin
um vetnið, er það möguleiki í ná-
inni framtíð að framleiða það úr
íslensku vatni með hjálp rafmagns
á samkeppnishæfu verði?
Nútíma hrossarækt
o g BLUP-kerfið
OPINN fundur verður haldinn í
félagsheimili Fáks miðvikudag-
inn 15. apríl kl. 20.30.
Frummælendur á fundinum eru
þeir dr. Þorvaldur Árnason, höfund-
ur hins svokallaðar BLUP-kerfis í
íslenskri hrossarækt, og Kristinn
Hugason, hrossaræktarráðunautur
BÍ. Þorvaldur er búsettur í Svíþjóð
og hefur því ekki haft tækifæri til
að tjá sig og leiða umræðuna á
réttar brautir.
„Vatnið er umhverfis-
vænsti valkosturinn í
dag, hvort sem það er
heitt, kalt eða til raf-
orkuframleiðslu. Við
eigum gífurlegar auð-
lindir í vatninu, sem
okkur ber að efla þekk-
ingu á og markaðs-
setja.“
Aukin áliersla á
umhverfisvernd
Umhverfismál eru efst á baugi
um allan heim. Við óttumst eyðingu
ósonlagsins og gróðurhúsaáhrifin.
Vatnið er umliverfisvænsti val-
kosturinn í dag, hvort sem það er
heitt, kalt eða til raforkufram-
leiðslu. Við eigum gífurlegar auð-
lindir í vatninu, sem okkur ber að
efla þekkingu á og markaðssetja.
Með þessu er ég ekki að segja
að veiturnar eða sveitarfélagið eigi
að stofnsetja fyrirtæki, alls ekki,
heldur hafa innan sinna vébanda
öflugt rannsóknar- og þróunarstarf,
þannig að fyrirtæki geti sótt í þann
viskubrunn hugmyndir sem nýttust
þeim til atvinnusköpunar.
Velgengni þjóða byggist á inn-
lendum auðlindum, hugviti og þekk-
ingu, að þessu eiga stjórnendur að
hlúa.
Það má minna á að í löndum
Evrópu og Bandaríkjunum hefur
verið mestur vöxtur í smáfyrirtækj-
um þar sem einstaklingar og litlir
samvinnuhópar eru að' vinna úr
hugmyndum, framleiða varning eða
Sigrún Magnúsdóttir
bjóða upp á einhvers konar þjón-
ustu.
Rannsóknarstarf
Þá er enn einn þátturinn ótalinn,
sem styður að efla þurfi rannsókn-
ar- og þróunarstarf veitanna í
Reykjavík, en það eru vandamál
eins og útfellingar og tæring.
Þegar Nesjavallavirkjun var tek-
in í notkun síðsumars 1990 og vatn-
inu hleypt á veitukerfið komu upp
mikil vandræði, sem enginn vildi í'
fyrstu viðurkenna að væru óeðlileg.
Undirrituð var aldeilis tekin á bein-
ið fyrir að vilja úttekt sérfræðinga
á útfellingum og spyrja hvort ekki
yrði að aðskilja vatnið frá Nesjavöll-
um og jarðhitavatnið frá Reykjum.
Menn áttuðu sig þó og fimm sér-
fræðingar voru skipaðir í ráðgjafar-
hóp til að rannsaka útfellingar.
' Niðurstöður þessarar skýrslu sér-
fræðinga voru lagðar frarn á fundi
veitustjórnar 8. apríl, sama fundi
sem vísaði tillögu minni frá.
Þar segir: „Niðurstöður rann-
sóknanna gefa ótvírætt til kynna
að halda verður vatni frá Nesja-
vallavirkjun og jarðhitavatni af lág-
hitasvæðunum á Reykjum og í
Reykjavík aðskildu í veitukerfinu.
Nesjavallavatnið sjálft er einnig
varhugavert hvað útfellingu snertir
og þarf að halda sýrustigi þess eins
og nú er gert á bilinu ph 8,5 til ph
8,8.“
Þá leggja þeir til nauðsynlegar
framhaldsrannsóknir í fimm liðum.
Þá er tæring vaxandi vandamál hjá
húseigendum bæði hvað varðar
heitt og kalt vatn. Það vandamál
er brýnt að rannsaka betur.
Niðurlag
í tugi ára hefur ekki verið meira
atvinnuleysi í Reykjavík en um
þessar mundir. Á sama tíma vísar
sjálfstæðismeirihlutinn frá tillögu
um rannsóknar- og þróunarstarf til
styrktar atvinnuuppbyggingar í
borginni. Höfundar að frávísuninni
eru framkvæmdastjóri Ráðgefandi
verkfræðinga og framkvæmdastjóri
Markaðsskrifstofu Landsvirkjunar
og iðnaðarráðuneytisins.
Ég er viss um að borgarbúar eiga
betra skilið en svo staðnaða vald-
hafa, sem sjá'engin úrræði og vilja
heldur ekki leita þeirra.
í leiðara Morgunblaðsins er
spurt: „Er einhver viðleitni á ferð-
inni til þess að leita að nýjum vaxt-
arbroddum í atvinnulífi okkar og
ýta undir þá? Svarið er, ekki hjá
Sjálfstæðisflokknum sem nú stýrir
bæði landi og borg.
Höfundur er borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins.
Fundurinn er öllum opinn enda
er gert ráð fyrir fjörugum umræð-
um og fyrirspurnum að lokinni
framsögu. Fundarstjóri verður Kári
Arnórsson, formaður Landssam-
bands hestamannafélaga.
Fundarboðendur eru hestamann-
afélögin Andvari í Garðabæ, Fákur
í Reykjavík, Gustur í Kópavogi,
Hörður í Mosfellsbæ og Sörli í Hafn-
arfirði auk tímaritsins Eiðfaxa og
Hestamenntar-Reiðmenntaskóla.
Rá&húsið verður opið
til sýnis eftirtalda daga
um páskana, ásamt sýningu
um byggingarsögu hússins.
• Skírdag, 16. apríl
• Laugardag, 18. apríl
• Mánudag, 20. apríl
frá kl. 12:00 til 18:00
frá kl. 12:00 til 18:00
frá kl. 12:00 til 18:00
SkPifstola
-, ■ Vvv •';
SCHOLTES OFNAR - ALDREI GLÆSILEGRI!
Með fullkominni hitastjórn
og nákvæmu loftstreymi
nærðu þeim árangri við
baksturinn sem þig hefur
alltaf dreymt um.
Með innrauðum hita og
margátta loftstreymi færðu
steikina safaríka og fallega
brúnaða.
Með innrauðum hita og
loftstreymi, sem líkir eftir
aðstæðum undir beru lofti,
nærðu útigrillsáhrifum allan
ársins hring.
Nafnið segir allt sem
segja þarf.
Funahöfða 19, sími 685680