Morgunblaðið - 15.04.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1992
23
Börn náttúrunnar í New York Times:
Vitræn mynd sem
erfitt er að flokka
í HINU víðlesna dagblaði New York Times var lofsamleg umsögn
kvikmyndagagnrýnanda blaðsins, Vincents Canbys, um kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn Náttúrunnar, 2. apríl sl., þremur
dögum eftir afhendingu verðlaunanna. I umsögninni segir m.a. að
kvikmyndin veki fremur upp óttablandna lotningu en ástríðufullan
áhuga, hún sé vitræns eðlis en erfitt sé að flokka hana.
í umsögn Canbys segir: „í Börnum
náttúrunnar er flallað um dauðafin
sem hin fullkomlega eðlilegu og óhjá-
kvæmilegu endalok lífsins. Hann sé
ekki staðreynd sem beri að óttastj
horfa framhjá eða bægja frá sér. 1
kvikmyndinni er nokkurs konar
söguþráður en hún kemur frekar
fyrir sjónir sem heimildarmynd um
endurkynni af fornum helgisiðum.
Þegar gamli ekkjumaðurinn Geiri
er fyrst kynntur til sögunnar er hann
að bregða búi. Þegar áform Geira
um að búa hjá giftri dóttur sinni í
borginni fara út um þúfur, fellst
hann á að fara inn á elliheimili og
láta þar síbrosandi starfslið ráðskast
með sig.
Börn náttúrunnar fjallar að mestu
leyti um uppreisn Geira og Stellu,
ekkju sem Geiri kynnist á elliheimil-
inu, gegn þessu fyrirkomulagi, nefni-
lega að afskræma dauðann með því
að deila honum með fjöldanum. Dag
einn yfirgefa þau elliheimilið, draga
sparifé sitt út af bankareikningum,
stela jeppa og aka norður á bóginn.
Um leið og íslenskt landslagið verður
frumstæðara og óbyggðimar taka
við, verða skilin milli lífs og dauða
smám saman óskýrari uns þau
hverfa alveg.
Böm náttúmnnar er vitræn kvik-
mynd sem ekki er auðvelt að flokka.
Hvorki Geiri né Stella eru persónur
í hefðbundnum skilningi. Þau em
fulltrúar, tákhmyndir í nútímalegri
goðsögn sem fundinn er staður í stór-
kostlegri og kuldalegri fegurð. Frið-
riksson hefur leikstýrt Bömum
náttúrunnar af auðsæilegri ná-
kvæmni, en kvikmyndin vekur frem-
ur upp óttablandna lotningu en
ástríðufullan áhuga.“
Stofnaðir tveir sjóðir
fyrir Eystrasaltsríkin
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra og efnahags- og fjármálaráð-
herrar annarra Norðurlanda undirrituðu á þriðjudag samning við
Evrópubankann um stofnun tveggja sérstakra sjóða fyrir Eystrasalts-
ríkin. Þetta er hluti af norrænni fjárfestingaráætlun fyrir Eystrasalts-
ríkin sem fjármálaráðherrarnir tóku ákvörðun um í byrjun marsmán-
aðar.
Sjóðunum er ætlað það hlutverk
að örva Ijárfestingu í smærri fyrir-
tækjum í Eystrasaltsríkjunum. Und-
irritun þessa stofnsamnings markar
fyrstu skref norrænu Ijárfestingará-
ætlunarinnar, en áformað er að hún
komi til framkvæmda 1. júlí 1992,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu Ijármálaráðuneytisins.
Undirritunin fór fram í tengslum
við fyrsta ársfund Evrópubankans
sem haldinn er í Búdapest. Meðal
viðstaddra við undirritunina voru
■ HLJÓMDISKAKL ÚBBUR
Japis hefur tekið til starfa, en
hann er stofnaður til að bjóða
áskrifendum að tónleikum Sinfó-
níuhljómsveitar Islands upp á
vandaða tónlist á hagstæðu verði.
Klúbbfélögum er boðið upp á tvo
hljómdiska á mánuði. Klúbbfélag-
ar geta afþakkað hvorn sem er
eða báða. Einnig verður boðið upp
á stærri útgáfuflokka á afborgun-
arkjörum, en verðið sem er upp-
gefið miðast við að greiðslan sé
skuldfærð á greiðslukort viðkom-
andi.
fulltrúar frá Eistlandi, Lettlandi og
Litháen.
Norræna fjárfestingaráætlunin
fyrir Eystrasaltsríkin var samþykkt
á fundi fjármálaráðherra Norður-
landa í Helsingfors 4. mars síðastlið-
inn og á fundi með viðkomandi ráð-
herrum frá Eystrasaltsríkjunum var
formlega gengið frá áætluninni með
undirskrift sameiginlegrar yfirlýs-
ingar um málið. Áætlunin opnar
Eystrasaltsríkjunum aðgang að jafn-
virði 7 milljarða íslenskra króna til
ráðstöfunar á næstu þremur árum,
bæði í formi beinna styrkja og lána.
Áætlunin skiptist í tvo meginþætti.
Annars vegar bein framlög Norður-
landanna til þess að styrkja tækni-
lega uppbyggingu einkafyrirtækja.
Hins vegar verður veitt sérstök lána-
fyrirgreiðsla til ákveðinna fjárfest-
ingarverkefna.
Annar sjóðurinn sem stofnaður er
veitir fé til tæknilegrar aðstoðar og
undirbúningsvinnu vegna ijárfest-
ingar og einkavæðingar. Hinum er
ætlað að veita lán og áhættufé til
einkafyrirtækja í Eystrasaltsríkj-
unum, leggja hlutafé í þarlend fyrir-
tæki og greiða fyrir einkavæðingu.
Hrafnarnir höfðu fest hreiðrið í loftnetið á sumarbústaðn-
um og erfitt var að ná því niður.
Dóttir Auðar, Sara Hrund Finnbogadóttir, stendur við
hreiðrið eftir að það hafði verið tekið niður.
Hrafnshreiður í sumar-
bústað í Biskupstungum
AUÐI Búadóttur eiganda sumarbústaðar í landi Kjóastaða í Bisk-
upstungum, brá heldur betur í brún er hún ásamt fjölskyldu sinni
kom þar síðastliðinn laugardag og sá að tveir hrafnar, sem sveim-
uðu yfir þeim, höfðu gert sér hreiður við loftnetið á bústaðnum.
Eftir miklar vangaveltur ákvað hún að fjarlægja hreiðrið bæði
þar sem mikill óþrifnaður var í kringum bústaðinn og vegna
þess að ólíklegt er að hún hefði getað eytt nokkrum tíma þar í
sumar, en engin egg voru í hreiðrinu.
Auður segir að mikið rusl hafi
verið á veröndinni fyrir neðan
hreiðrið og var það alveg tilbúið.
„Það var erfítt að ná hreiðrinu
niður þar sem krummarnir höfðu
notað snúrur, sem voru bundnar
við loftnetið og flettað þeim inn
í það. Hreiðrið var klætt að inn-
an með ull, snærum og mosa og
í því voru m.a. leggbein og
kjálkabein úr kindum auk annars
rusls. Þetta var alveg lystilega
vel gert og ótrúlegt að krumm-
arnir hafi getað gert þetta,“ seg-
ir Auður.
Hún segir að það hafi tekið
sig nokkurn tíma að taka ákvörð-
un um það hvað hún ætti að
gera en ákvað svo að fjarlægja
hreiðrið en að allt ruslið hafi
fyllt þrjá stóra ruslapoka. „Ég
hefði örugglega ekkert getað
verið í bústaðnum fyrr en í haust
ef ég hefði ekki tekið hreiðrið,"
segir Auður.
Að sögn Jóns Hlíðbergs, hjá
Náttúrufræðistofnun, er varp-
tími hrafna nú að hefjast. Á
hann von á því að almennt ljúki
varptímanum um 20. apríi næst-
komandi. Hann segir að ekki sé
algengt að hrafnar verpi við
mannabústaði en á Suðurlandi
sé lítið um varpstaði fyrir þá og
því hafi það stundum komið fyr-
ir þeir hafi valið sér slíka staði.
Jón segir ennfremur að mikill
hávaði og slæm lykt fylgi hrafns-
hreiðrum eftir að ungarnir séu
komnir og að mjög erfitt sé að
komast nálægt hreiðrinu á með-
an ungarnir séu enn í þeim.
Borgarráð:
Beiðiii háskólans um styrk hafnað
BORGARRÁÐ hefur hafnað beiðni Háskóla fslands um 300 þúsund
króna styrk til að taka upp á myndband nokkra fyrirlestra í skól-
anum.
í bréfi háskólans segir, að verið
sé að kanna ýmsar forsendur fyrir
hugsanlegu fræðslu- og menning-
arsjónvarpi á vegum skólans.
Hlutverk slíks sjónvarps yrði að
hvetja til símenntunar og skipu-
legrar endurmenntunar lands-
manna, að miðla fræðsluefni til
almennings og jafnframt að sam-
stilla íslenska skólakerfíð frá
grunnskóla til háskólastigs. Ef vel
tekst til með upptöku efnis gætu
tilraunaútsendingar farið fram
næsta haust eða vetur í samvinnu
við RÚV - sjónvarp.
Leitað var til borgarinnar um
styrk, þar sem Háskólinn býr við
krappan fjárhag um þessar mund-
ir, segir í bréfi Háskólans til borg-
arinnar. Erindið hlaut ekki stuðn-
ing borgarráðs.
Raudi 0% miðinn á KÓPAL málningu er trygging
fyrir þvi að í málningunni séu engin lífræn leysiefni.
Málningin er nær lyktarlaus og gæði hennar
og verð eru fyllilega sambærileg við aðra málningu.
Sýndu lit og málaðu með umhverfisvænni málningu
þvi að umhverfisvernd
er mál mál ar anna.
Imáírmtff'i
GUTRAÍúí
málningh!f
- þoð segir sig sjálft -