Morgunblaðið - 15.04.1992, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) P*
Þú átt við erfiðleika að stríða,
en færð mikilsverðan stuðning
frá nákomnum ættingja.
Leggðu áherslu á samveru og
eindrægni. Betur sjá augu en
auga.
Naut
(20. apríi - 20. maí)
Tafir í starfi þínu kunna að
draga þig svolítið niður núna.
Þó eru hendur þínar ekki að
öllu leyti bundnar svo að þú
gætir komið ýmsu í verk á
meðan þetta ástand varir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) i&
Vertu samvinnufús og reyndu
að fá sem mest út úr lífínu.
Erfiðleikar vegna umgengni
við eina manneskju þurfa ekki
að koma í veg fyrir að þú njót-
ir lífsins.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það kann að taka sinn tíma
að fá aðra til samstarfs.
Treystu aðeins á eigið frum-
kvæði, ef þú ætlar að koma
einhveiju i verk í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú stendur frammi fyrir
ákveðnu vali í dag og veist
ekki í hvom fótinn þú átt að
stíga. Þú færð góðar fréttir
£ símleiðis eða bréfleiðis.
Meyja
(23. ágúst - 22. sontomhcrl <3P>
Þér er enn órótt út af ákveðnu
vandamáli. Það borgar sig fyr-
ir þig að sýna frumkvæði í
dag. Fjárhagur þinn fer batn-
andi úr þessu.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú hefðir gott af að komast í
ákveðna fjarlægð frá vanda-
máli sem þú glimir við heima
fyrir. Hafðu samband við vini
sem búa í fjarlægð og settu
þér að hitta þá eins fljótt og
hægt er.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það sem gerist á bak við tjöld-
in kemur þér vel. Þú verður
að lesa milli línanna núna, þar
sem einhver þeirra sem þú
umgengst er erfiður viðskiptis
reynir að koma sér hjá allri
ábyrgð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú þarft að vara þig á óprúttn-
um fjárglæframönnum í dag.
Láttu smávægilegar áhyggjur
ekki aftra þér frá því að njóta
samvista við fólk í dag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einbeittu þér að því sem þú
ert að gera, en láttu eigingjam-
ar óskir lönd og leið.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þetta er ekki heppilegur tími
fyrir þig til að gefa ráðlegging-
ar, en hafðu það skemmtilegt
og sinntu áhugamálum þínum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú vinnur sigur í starfi þínu
og á fjármálasviðinu. Þú verður
fyrir vonbrigðum með einn vina
þinna. Vertu heima í kvöld og
njóttu þess að vera með fjöl-
skyldunni.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
GRETTIR
TA H /1 H /11 O éT^ ICIilMI
1 CJSVIIVS! Uu JtlMIMI
FERDINAND
Þegar maður býr í eyðimörkinni, er ekkert meira spennandi en horfa Hvað svo?
á sólina setjast.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þú ert enn að raða hundunum
þínum þegar andstæðingarnir
eru komnir í sjö grönd:
Norður
♦
¥
♦
*
Vestur Austur
♦ G1097 ... ♦
¥62 ¥
♦ K98 ♦
♦ G753 ♦
Suður
Vestur ♦ ¥ ♦ + Norður Austur Suður
— * 1 tígull Pass 3 lauf
Pass 3 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Passs 7 grönd
Pass Pass Pass
Ög nú er að veíja útspilið.
Það er ekki vandamál að spila
út spaðagosa gegn þremur
gröndum. En nú þarftu aðeins
einn slag og hann er líklegastur
til að koma á lauf. Suður meldar
eins og maður með þéttan lauf-
lit. Hann telur nóg að fá tvo ása
hjá makker til að vaða í sjö, svo
hann ætlar sér greinilega að
taka helminginn af slögunum á
lauf. Þú veist að það gengur
ekki, en sérð að tígulkóngurinn
liggur vel til sagnhafa. Hættan
er því mikil á því að tígullinn
taki við hlutverki líflitarins og
skili sagnhafa 13 slögum.
Norður
♦ 3
¥ ÁG109
♦ ÁDG102
♦ 864
Vestur
♦ G1097
¥62
♦ K98
♦ G753
Austur
♦ 86542
¥87543
♦ 743
♦ -
Suður
♦ ÁKD
¥ KD
♦ 65
♦ ÁKD1092
Að þessu athuguðu er rökrétt
að spila úr tígli, áttunni eða
níunni, og taka þennan valkost
út úr myndinni strax. Sagnhafí
getur ekki með nokkru móti
svínað, því hann á 14 örugga
slagi ef Iaufið skilar sér.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á móti í Rússlandi í vetur kom
þessi athyglisverða staða upp í
viðureign alþjóðlega meistarans
Tunik (2.470), sem hafði hvítt
og átti leik, og Tsjernjak, sem
hafði svart. Svarta staðan gæti
virst í lagi, því 39. Bxf6? — Dxf4+
er jafntefli með þráskák. En hvít-
ur á laglegan vinningsleik:
39. Hc5! - Dd2 (Eftir 39. -
Dxc5, 40. Bxf6 er ekki lengur
þráskák í stöðunni og hvítur vekur
óumflýjanlega upp drottningu.)
40. Bxf6! - Dxr4+, 41. Kgl —
De3+, 42. Khl. Þar sem hrókur-
inn á c5 valdar cl er ekki lengur
þráskák í stöðunni svo svartur
gafst upp.