Morgunblaðið - 19.05.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.05.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1992 5 Bátasmíði í Víetnam: Miklir möguleik- ar fyrir Islendinga - segir forstjóri Mótunar hf. REGIN Grímsson, forstjóri Mótunar hf., sem framleiðir Gáskabáta, er nýkominn úr ferð til Víetnams. Þangað fór hann í boði þarlendra stjórnvalda sem áhuga hafa á samstarfi um smíði þessara báta í landinu. Regin segir að í Víetnam séu miklir möguleikar í boði fyr- ir Islendinga og íslensk fyrirtæki sem framleiða vörur til útgerða. Víetnamar þurfi að byggja upp sjávarútveg sinn svo til frá grunni og spurning sé hvort Islendingar eigi ekki að vera þeir fyrstu sem koma þeim til aðstoðar við það verkefni. Regin Grímsson fór til Hanoi 5. maí sl. til viðræðna við stjórnvöld en Mótun hf. kemur til greina sem samstarfsaðili Víetnama við upp- setningu á smábátaverksmiðju. Yrði það verkefni unnið í samvinnu við Sameinuðu _ þjóðirnar og Alþjóða- bankann. „Ég tel að íslendingar eigi fullt erindi inn á þennan markað enda má segja að Víetnamar séu svo gott sem á bronsaldarstiginu í út- gerðarmálum," segir Reginn. „Við hjá Mótun höfum hugsað okkur að senda þangað tvo Gáskabáta á til- raunaveiðar þar sem notuð yrði ís- lensk veiðiþekking. Ég er nú að hafa samband við önnur íslensk fyr- irtæki um samstarf." í máli Regins kemur fram að Mótun fer nú í sambandi við ríkisrek- ið útgerðarfyrirtæki í Víetnam sem hefur sjálfstæðan fjárhag. Verið er að ganga frá samstarfssamningi við það fyrirtæki. „Það kom fram í heim- sókn minni til landsins að þarlend stjórnvöld telja Gáskabáta góðan kost. Hins vegar er ekki bara að Víetnama skorti góða smábáta held- ur nánast allt annað eins og stærri skip og allskyns veiðarfærabúnað og þar gætu önnur íslensk fyrirtæki komið inn í myndina," segir Regin. „Ég er að hafa samband við hugsan- lega samstarfsaðila hér innanlands og reikna með að halda fund með þeim bráðlega um málið.“ > Morgunblaðið/Vilhjálmur Eyjólfsson Mikill ís í Jökulsárlóni í föstudagsveðrinu eftir páskana fór sandrifið sem hafði um nokkurn tíma lokað Jökulsárlóni við Breiða- merkursand. Nú er flóð og fjara í Jökulsárlóni og mikill ís þar á floti eins og svo oft um þetta leyti. Öskugeirar frá gömlum eldgosum teygja sig niður að lóninu því jökullinn skilar öllu sem í hann fer. Á myndinni má sjá að verið er að prufukeyra hjólabát fyrir ferðamannavertíðina. - Vilhjálmur. NÝR OG GLÆSILEGUR MITSUBISHI > Stálu bíl sem var í gangi BIL, sem skilinn var eftir í gangi á mótum Rauðarárstígs og Grett- isgötu meðan ökumaðurinn hugð- ist bregða sér frá í skamma stund á föstudagskvöld, var stolið og fannst um fimm tímum síðar eftir að hafa komið við sögu í tveimur umferðaróhöppum. Þjófurinn komst undan. Um tveimur tímum eftir bílþjófn- aðinn var tilkynnt til lögreglunnar að hinum eftirlýsta bíl hefði verið ekið utan í annan við Gerðuberg og síðan í burtu. Klukkan fjögur um nóttina hafði þessum bíl svo verið ekið utan í ljósastaur á Bæjarhálsi og af staðnum. Skömmu síðar fann lögregla bílinn stórskemmdan og mannlausan í Bleikjukvísl og var ekki vitað hverjir þarna höfðu verið að verki. ----*—*—•---- Tveir á nær 150 km hraða TVEIR ökumenn voru sviptir öku- leyfi í Borgarnesi um helgina. Þeir mældust á 145 og 147 km hraða, annar undir Hafnarfjalli en hinn á Hvalfjarðarströnd. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi var mikið um hraðakstur í Borg- arfirði um helgina og margir kærðir eftir að hafa mælst á of miklum hraða. ----» ♦ ♦---- Henti steini í barnarúm > Meira innirými > Betri hljóðeinangrun > Aukinn öryggisbúnaður > > Aflmiklir hreyflar með rafstýrðri fjölinnsprautun > Styrktarbitar í hurðum > > Aukin þægindi > Enn betri aksturseiginleikar > DÆMIÐ SJÁLF AÐ LOKNUM REYNSLUAKSTRI Verð frá kr. 897.600 STEINN, sem hent var inn um rúðu íbúðar við Njálsgötu, hafn- aði við fætur 6 mánaða gamals barns, sem lá sofandi í rúmi sínu. Atvikið átti sér stað laust eftir miðnætti aðfaranótt laugardags og var ókunnur maður þar að verki. Rúðan brotnaði og lágu glerbrot a víð og dreif um herbergið en barnið sakaði ekki. HVARFAKÚTUR MINNI MENGUN > A IHl hekla MITSUBISHI LM)GAVEGIV74 MOTORS SÍMI695500 >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.