Morgunblaðið - 19.05.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI 1992
23
Hátækniiðnaður á íslandi III:
Forsendur aukinnar fjöl
breytni eru traustar
eftir Pál
Theodórsson
íslenskt atvinnulíf hefur þörf fyr-
ir meiri fjölbreytni. Nútíma atvinnu-
líf byggir í vaxandi mæli á þekk-
ingu. Forsendur aukinnar fjöl-
breytni eru traustar því á hverju
ári snúa hundruð ungra karla og
kvenna frá löngu' námi og vinnu
erlendis. En er þessi auðlind virkj-
uð? A Islandi þessa unga fólks er
að jafnaði ekki gróinn iðnaður.
Samtal mitt við ungan íslenskan
hugvitsmann, rafmagnsverkfræð-
ing sem vill nú snúa heim, lýsir
þessu. Ég held hér áfram að rekja
viðræður okkar.
Hann vill fullþróa og framleiða á
íslandi tæki sem hann hefur fundið
upp. Hann hafði helst bundið vonir
við að fá stuðning frá Rannsókna-
sjóði Rannsóknaráðs ríkisins, en
markmið sjóðsins er að styrkja
nytjarannsóknir sem geta eflt ís-
lenskt atvinnulíf. Kunningi minn
hafði talið líklegt að þessi sjóður
hefði verið efldur töluvert, nú þegar
svo brýn þörf er fyrir meiri ijöl-
breytni í íslensku atvinnulífi. Svo
reyndist þó ekki. Þvert á móti,
framlag til sjóðsins hefur lækkað
nokkuð frá síðasta ári.
- En þetta eru samt liðlega 100
milljónir króna, kannski get ég
fengið stuðning frá sjóðnum.“
- Hvað þarftu mikið til að full-
hanna tækið?“
- Ég þarf að hafa góðan raf-
mangsverkfræðing með mér og við
getum lokið verkinu á tæpum
tveimur árum. Tækin sem þarf við
þróunarstarfið eru ekki dýr, við
þurfum tvær góðar tölvur, hugbún-
að og ýmis fylgitæki.
Hann gaf mér síðan mat sitt á
heildarkostnaðinum. Mér fannst
það nokkuð varlega metið og tók
að spyija hann nokkurra spurninga.
— Jú þetta er kannski of lágt
metið, sagði hann.
Eftir að hafa skoðað betur áætl-
un hans og rætt hana varð niður-
staða okkar að þróunarkostnaður-
inn yrði um 16 milljónir króna, en
síðan þyrfti að reikna með um fimm
milljónum króna þriðja árið við að
undirbúa framleiðslu og sölu. Ef
vel gengi með megináfangann yrði
Páll Theodórsson
„Forsendur aukinnar
fjölbreytni eru traustar
því á hverju ári snúa
hundruð ungra karla
og kvenna frá löngu
námi og vinnu erlendis.
En er þessi auðlind
virkjuð?“
kannski ekki erfitt að útvega síð-
ustu fimm milljónirnar.
- Hvaða möguleika hef ég á að
fá þessar 16 milljónir króna frá
Rannsóknasjóði, spurði hugvits-
maðurinn.
Ég varð að svara í fullri hrein-
skilni að það gæti hann varla feng-
ið. Sjóðurinn krefðist undartekn-
ingalítið mótframlags sem ekki
mætti vera minna en það sem sjóð-
urinn veitti. Og jafnvel þótt hann
gæti tryggt mótframlag, fjórar
milljónir á ári í tvö ár, nei, sjóður-
inn mundi varla veita svo stóran
styrk í eitt verkefni af þessu tagi.
Lán ætti ég víst frekar að segja
því þetta fé á eðlilega að endur-
greiða, gangi verkefnið vel.
- En verkefni mitt er engan veg-
inn stórt, mótmæiti viðmælandi
Varst |jú í
Fríkirkjunni?
Á undanförnum árum hefur fjöldi safnaðarfélaga fallið af
skrá vegna búferlaflutninga, skv. gömlum stjórnvaldsregl-
um. Þessum reglum hefur nú verið breytt þannig að nú
getur fólk verið í Fríkirkjusöfnuðinum hvar sem það býr.
Hvaé meé þig?
Nánari upplýsingar í síma 27270 í dag kl. 10-13.
Fríkirkjan í Reykjavík.
minn, þetta væri talið lítið og ódýrt
verkefni í því umhverfi sem ég vinn
í. Þetta er fráleitt.
Ég varð að viðurkenna að þetta
væri rétt hjá honum, en Rannsókna-
sjóður, Vísindasjóður og trúlega
ýmsir fleiri svipaðir sjóðir eiga erf-
itt með að neita mörgum um stuðn-
ing og reyna því frekar að hafa fleiri
en smærri styrki.
- Ég ætti þá kannski frekar að
dreifa þessu á fjögur ár, spurði
hugvitsmaðurinn með nokkurri
óþolinmæði.
- Já, það mundi trúlega auka
möguleika þína á að fá stuðning frá
sjóðnum, svar'aði ég.
- En þá væri verkefni mitt senni-
lega dauðadæmt, ég má ekki missa
tvö ár. Auk þess verð ég að fá með
mér mann sem þekkir vel til hug-
búnaðar þar sem mig vantar
reynslu. í heild mundi þetta kosta
sjóðinn sömu heildarupphæð.
Hugvitsmaðurinn sagði mér nú
að stórt íslenskt fyrirtæki, sem flyt-
ur inn ýmsar vélar og tæki, hefði
boðið sér vel launaða stöðu sölu-
stjóra.
- Ég ætti kannski bara að taka
þessu boði. Eða að vinna að þróun
tækisins erlendis, sagði hinn ungi
hugvitsmaður.
Þessari sögu er ekki enn lokið,
hún verður rakin frekar í næstu
grein.
Höfundur er eölisfræðingur og
starfar við Raunvísindastofnun
Háskólans.
UTIHURÐJR
• Vandaöar útihuröir úr furu, oregon pine og mahóní tilbúnar til
uppsetningar. Þeim fylgir karmur, lamir, skrá, húnar og
þéttilistar.
• Viö sérsmíöum einnig hurðir og glugga eftir þínum óskum.
Gerum föst tilboö í alla smíöi.
• Góöir greiösluskilmálar.
Áratuga reynsla í huröa- og gluggasmíði.
B.0.
RAMMI
viö Reykjanesbraut í Hafnarfirði - Símar 54444 og 654444
TIME MANAGER - NÁMSKEIÐ
I FYRSTA SINN Á ÍSLENSKU
TÍMASTJÓRNUN,
MARKMIÐASETNING,
FORGANGS VERKEFNI,
MANNLEG SAMSKIPTI
OG AUKNAR HUGMYNDIR.
Stjórnunarfi
2
Hauku\
TMi
Haukur Haraldsson
Upplýsingar í síma 621066
Stjórnunarfélag
íslands
FRÆ og áburður
í hentugum umbúðum
RAÐGJOF SERFRÆÐINGA UM GARÐ- OG GROÐURRÆKT
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
SMIÐJUVEGI 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 4321 1