Morgunblaðið - 19.05.1992, Side 48

Morgunblaðið - 19.05.1992, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI 1992 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Virtu tiifinningar annarra og þú munt uppskera ríkulega ef þú sýnir umhyggju í starfi. Þú gætir eignast nýjan vin sem hugsar öðruvísi en þú. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú ert latur í morgun. Sláðu ekki slöku við í vinnunni, þó þú eigir erfltt með að einbeita þér. Þú deilir hugmyndum með vinum þínum í kvöld. Tvíburar (21. mal - 20. júní) í» Þú átt erfitt með að ná tökum á hversdagslífinu því þú ert með hugann í framtíðinni. Farðu gætilega í dag, því annars gætir þú sært tilfinn- ingar einhvers. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Vertu ekfci að ýfa upp gömul sár. Nú er rétti tíminn fyrir pör að leita hamingjunnar saman, gleyma fortíðinni og einbeita sér að framtíðinni. (23. júlí - 22. ágúst) Þú gætir komið meiru í verk heima hjá þér en í vinnunni. Láttu ekki smámuni trufla annars gott samband í kvöld. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú ert ekki jafn affcastamikill í dag og venjulega vegna hugarástands þíns. Þú finnur þér nýtt skapandi áhugamál. Vog (23. sept. - 22. október) Einhver í fjölskyldunni er með eitthvað nýtt á pijónunum. Vertu á verði í innkaupum í dag því aðhaldssemi í pen- ingamálum er nauðsynleg núna. Sþoródreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú geislar af visku og sköpun- arkrafti í dag þó fjölskyldan sé áhugalaus fyrir hugmynd- um þínum. Takt.u því bara með ró og haltu þínu striki. Bogmaóur (22. nóv. — 21. desember) Ný fjárhagsáætlun lofar góðu. Þetta er ekki rétti dag- urinn til að miðla öðrum af hugmyndum sínum. Vertu á verði gagnvart fólki í dag. Steingeit (22. dés. - 19. janúar) Þú ert óþolinmóður í morg- unsárið og þér gengi betur í vinnunni ef þú slakaðir svolít- ið á. Þú átt í smáfjárhagserf- iðleikum sem þú verður að takast á við. Ný vinátta hefst. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Þó þú stefnir hátt og hafir þínar hugmyndir um frama í starfi skaltu ekki viðra þær við yfirmenn þína í bili því þröngsýni og aðhald ræður ríkjum á þeim bæ um sinn. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Einbeittu þér að félagslífí núna frekar en að draga þig inn í skel. Farðu í ieikhús eða á myndlistarsýningu. Þú heyr- ir í einhveijum sem þú hefur ekki haft samband við lengi. Stjörnusþána á að lesa sem áœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staóreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI TD^ÍjVU, STiNGTU HAUSK/UAy T&GGMUM þETTA G/tT Sfco. • f>£rr/4 M/Z. BB T£A / FERDINAND SMÁFÓLK BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Vestur spilar út ÁK í tígli gegn 4 hjörtum suðurs: Norður ♦ DG54 V5 ♦ 8754 4K543 Suður ♦ ÁK V ÁKG10872 ♦ 10 + G62 Vestur Norður Austur Suður 1 tígull Pass 1 spaði 4 hjörtu Pass Pass Pass Austur á drottninguna blanka í tígli og hendir spaða í tígul- kónginn. Eftir að hafa trompað, leggur suður niður hjartaás og vestur lætur drottninguna. Taktu við. Spilið vinnst auðveldlega ef laufás er réttur, en sú staðreynd að austur átti fyrir svari bendir til að hann haldi á ásnum í laufi. Alltént er ástæðulaust að spila laufí á kóng þegar örugg vinningsleið er til — auðvitað að því gefnu að suður hafí trompað tígulkónginn með ein- hveiju öðru en tvistinum! Norður ♦ DG54 V5 ♦ 8754 ♦ K543 Vestur Austur ♦ 96 ♦ 108732 ▼ D V 9643 ♦ ÁKG9632 ♦ D *D109 +Á543 Suður ♦ ÁK y ÁKG10872 ♦ 10 ♦ G62 Sagnhafi tekur tvö tromp í viðbót, síðan ÁK í spaða og send- ir síðan austur inn á hjarta. Með bestu spilamennsku og bestu vörn spilar suður hjartatvistin- um, sem austur neyðist til að drepa með þristi og spila svört- um lit. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Það gekk á ýmsu í áskorenda- einvígi Artúrs Júsupov (2.655) og Jans Timman (2.620) í Linar- es á Spáni um daginn. Þessi staða kom upp í þriðju skákinni og Timman hafði svart og átti leik. Hollendingurinn hefur peði meira og sterka stöðu og missti nú af laglegri vinningsleið: 31. — Hxh3!, því 32. gxh3 — Dg3+, 33. Khl - Dxh3, 34. Kgl - Dg3+, 35. Khl — He4 er með öllu von- laust á hvítt. Annar sterkur leikur var 31. — Hd3! í staðinn lék Tim- man slökum leik: 31. - Dg3?, 32. Dbl - Hel, 33. Dxb6 - H7e2, 34. H5f2 - f5? (Með því að skipta upp á öllum hrókunum hefði Timman átt góða vinningsmöguleika á drottninga- endatafli) 35. d6! ogeftir 11 leiki í viðbót var samið jafntefli. Eins og skákunnendum er vafa- laust í fersku minni tókst Timman að sigra 6-4 í einvíginu. Talsvert var um grófar yfirsjónir en keyrði um þverbak þegar Júsupov lék sig í mát í einum Ieik!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.