Morgunblaðið - 19.05.1992, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1992
Keflavík:
Fyrstu vorstúdentarnir braut-
skráðir frá Fjölbrautaskólanum
Keflavík.
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
var slitið í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju á sunnudaginn og voru
þá fyrstu vorstúdentarnir braut-
skráðir. Að þessu sinni luku 34
stúdentsprófi en alls voru 53
nemendur brautskráðir á önn-
inni. Þetta var 17. starfsár skól-
ans sem nú hefur brautskráð
1.716 nemendur. Fjöldi nem-
enda fékk verðlaun fyrir góðan
námsárangur og þar bar hæst
árangur Magnúsar Randvers
Rafnssonar sem brautskráðist
af tveim brautum og með fleiri
einingar en áður þekkist í sögu
skólans auk þess sem hann fékk
fjölda verðlauna fyrir góðan
námsárangur.
Ægir Sigurðsson aðstoðarskóla-
meistari greindi frá starfi skólans
og að ýmissa breytinga megi
vænta í kjölfar nýrrar sóknaráætl-
unar sem unnið hefði verið að á
önninni. Ægir greindi einnig frá
því að skólinn hefði fengið styrk
frá menntamálaráðuneytinu til að
þróa nýjar starfstengdar náms-
brautir til að þjóna nemendum
skólans og atvinnulífinu.
Að lokinni athöfn ávarpaði
Hjálmar Árnason skólameistari
brautskráða og lagði mikla áherslu
á gildi menntunar í endurreisn at-
vinnulífs á tímum vaxandi alþjóða-
samstarfs. „Gangið veg sanngirni
og látið réttsýni varða ykkar Ieið,“
voru lokaorð skólameistara til fyrr-
verandi nemenda. Mikill fjöldi
gesta var viðstaddur athöfnina þar
sem m.a. komu fram nemendur í
Tónlistarskólanum í Sandgerði.
- BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Fyrstu vorstúdentarnir selja upp hvítu kollana. En þeir voru braut-
skráðir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Ytri-Njarðvíkurkirkju á
sunnudaginn.
Frumsýning á íslandi
OS/2
Kynning á OS/2 og LOTUS hugbúnaði í ráðstefnusal
Verslunarskóla íslands þriðjudaginn 19. maí.
Nú er OS/2 stjórnkerfið komið til landsins og af því tilefni verður
Nýherji með kynningu á því og nokkrum vinsælum
hugbúnaðarpökkum frá LOTUS í ráðstefnusal Verslunarskóla
íslands þriðjudaginn 19. maí. Meðal þeirra sem flytja fyrirlestra eru
þau Flemming Schmidt og Jonna Kielström hjá IBM í Danmörku.
Miðvikudaginn 20. maí verður svo opið hús hjá Nýherja, Skaftahlíð
24, þar sem sýndar verða ýmsar lausnir sem keyra undir OS/2
stýrikerfinu.
Dagskrá, þriðjudaginn 19. maí:
Kl. 13 - 13.50 Kynning á OS/2 2.0 Flemming Schmidt, deildarstjóri
hjá IBM í Danmörku
Sýning á OS/2 2.0 Helgi Pétursson, kerfisfræðingur
hjá Nýherja
Kl. 14 -14.50 Kynning'á LOTUS hugbúnaði-Notes, cc:Mail,
AmiPro
Jonna Kielström, kerfisfræðingur hjá IBM í
Danmörku
Kl. 15 -15.50 Framtíðarþróun OS/2 hjá IBM, Flemming Schmidt
Verð, afgreiðsla o.fl. Guðmundur Hannesson,
markaðsfulltrúi hjá Nýjherja
Kl. 16-16.30 Sýning á LOTUS hugbúnaði
Freelance Jonna Kielström
Misstu ekki af þessu einstaka
tækifæri til að kynnast því
nýjasta í stjórnkerfum og
hugbúnaði.
Aðgangur ókeypis.
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 • SÍMI 69 77 00
A lltaj' skrefi á undan
Ljósm. Jón Svavarsson
Þrír guðfæðingar vígðir
Biskup íslands, Ólafur Skúlason, vígði þrjá guðfræðikandídata til prest-
þjónustu á sunnudag. Prestvígslan fór fram í Dómkirkjunni og voru
vígsluþegar dr. Sigurður Ámi Eyjólfsson, sem vígður var aðstoðarprest-
ur í Bústaðarprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, Sigríður
Óladóttir, sem vígð var sóknarprestur til Hólmavíkurprestakalls í
Húnavatnsprófastsdæmi og Hannes Björnsson, sem vígður var sóknar-
prestur til Patreksfjarðarprestakalls í Barðastrandarprófastsdæmi.
Elísabet Sigurðardóttir
Sr. Árni Þórarinsson
Ættarmót á Snæfellsnesi
AFKOMENDUR Elísabetur Sigurðardóttur og sr. Árna Þórarinsson-
ar efna til ættarmóts dagana 13. og 14. júní vestur á Snæfellsnesi.
Ætlunin er að hittast í Laugagerðisskóla eftir hádegi á laugardegin-
um 13. júní, þaðan sem farið verður með áætlunarbifreiðum niður
að Stóra-Hrauni.
Þeir sem ekki hafa tiikynnt þátt- ine Magnúsdóttur eigi síðar en 20.
töku eru vinsamlega beðnir að hafa maí. Eftir þann tíma er ekki hægt
samband við Jódísi Sigurðardóttur, að gera ráð fýrir gistingu í Lauga-
Rósu Stefánsdóttur eða Önnu Krist- gerðisskóla. (Fréuatiikynning)
Vidskiptovinir
athugid!
Vegna breytinga í verslun okkar í
Ármúla 17A, verður þjónusta í
versluninni í lógmarki næstu
þrjór vikurnar.
Opnum aftur nýja og glæsilega
verslun með nýjum línum
þriðjudaginn 9. júní.
í S L E N S K
K L A S S í K
INNANHÚSS
I N N R É T T I n"g A R
ÁRMÚLA 17A. 108 REYKJAVlK, SlMI: »1- 67 99 33, FAX: 91- 67 99 40
MIÐÁS 11,700 EGILSSTAOIR, SlMI: 97-1 14 62