Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 1
80 SIÐUR B/C
129. tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hungursneyð að
skella á í Sarajevo
Belgrad, Washington, Zagreb, London. Reuter, The Daily Telegraph.
HERSVEITIR Serba héldu í gær áfram stórskotaárásum á Sarajevo,
höfuðborg Bosníu-Herzegovínu, og götubardagar blossuðu upp í
borginni. Bandaríska utanríkisráðuneytið skýrði frá því að hungurs-
neyð væri að skella á í borginni vegna tveggja mánaða umsáturs
Serba. I ráði er að utanríkisráðherrar samtaka 45 múslimaríkja
ræði möguleikann á hernaðaríhlutun í Bosníu á fundi í Tyrklandi í
næstu viku.
Hlé var á árásunum á Sarajevo
í fyrrinótt eftir að sveitir múslima
og Króata hófu fyrstu gagnsókn
sína gegn árásarsveitum Serba. Lík
lágu eins og hráviði á götunum eft-
ir bardagana og óstaðfestar fregnir
herma að tugir hafi fallið í valinn
og rúmlega 350 særst.
„Sarajevo er óþekkjanleg," sagði
einn íbúa höfuðborgarinnar. „Við
lifum eins og rottur í kjöllurum.“
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti samhljóða áætlun um
að senda um 1.100 hermenn á vett-
vang til að hafa eftirlit með flugvell-
inum í Sarajevo til að tryggja að
hægt yrði að koma matvælum til
borgarbúa. Flugvöllurinn er nú á
valdi Serba. Í áætluninni er þó gert
ráð fyrir að varanlegt vopnahlé
komist á áður en hermennirnir
verða sendir til borgarinnar en ólík-
Úkraína:
Mannskætt
legt er talið að bardögunum linni í
bráð.
Embættismaður í bandaríska ut-
anríkisráðuneytinu sagði að margir
íbúa Sarajevo, sem eru um 300.000,
væru að deyja hægum dauðdaga
vegna matarskorts. „Flestir verða
að láta sér nægja hveiti og netlur,“
sagði hann.
I Tyrklandi er nú rætt um að
senda sveit íslamskra sjálfboðaliða
til aðstoðar trúbræðrum sínum í
Bosníu. Nokkur múslimaríki, svo
sem Líbýa og Iran, beita sér nú
fyrir því að sendar verði hersveitir
til aðstoðar bosnískum múslimum,
sem litið er á sem píslarvotta í nýju
samsæri gegn íslam. Amr Moussa,
utanríkisráðherra Egyptalands,
sagði í gær að þetta mál yrði rætt
á fundi Samtaka múslimaríkja í
næstu viku.
Mate Granic, aðstoðarforsætis-
ráðherra Króatíu, sagði í gær að
hartnær tvær milljónir manna hefðu
flúið frá fyrrverandi lýðveldum
Júgóslavíu.
Reuter
Æft fyrir setningu Evrópukeppninnar
Úrslitamót Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu hefst í Svíþjóð í dag með leik Svíþjóðar og Frakk-
lands, sem verður sýndur í beinni útsendingu í ríkissjónvarpinu klukkan 18.15. Á myndinni æfa sænsk-
ar stúlkur boltakast fyrir setningu mótsins.
Sjá umfjöllun um Evrópukeppnina á bls. B3.
Þingkosningarnar í Tékkóslóvakíu:
Havel segir að hægt sé að
afstýra upplausn landsins
ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgnnbiaðsins.
Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, og Vaclav Klaus, formaður
Lýðræðisflokksins (ODS), ræða við blaðamenn í gær.
námuslys
London. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 38 námu-
menn biðu bana í gassprengingu
í kolanámu í austurhluta Úkraínu
í gær.
18 manna til viðbótar var saknað
í gærkvöldi og 27 voru á sjúkra-
húsi eftir sprenginguna.
Rússneska fréttastofan Itar-Tass
sagði að kviknað hefði í kolaryki í
námunni og kolmónoxíð hefði borist
um loftræstikerfið um öll göng
námunnar.
Tillögur um einkavæðingu
landhelgisgæslunnar eru til at-
hugunar í sjávarútvegsráðuneyt-
inu en talið er að hún geti sparað
því allt að 620 milljónir ÍSK á
ári. Á árinu 1986 var eftirlit úr
lofti einkavætt og þykir það hafa
gefíst mjög vel.
Árið 1379 voru herskip fyrst
notuð til að veija ensk fískiskip
fyrir sjóræningjum en Elísabet I
kom á eiginlegu eftirliti 1575.
Fyrstu varðskipadeildina stofnaði
hins vegar Karl I árið 1636. í
fyrra stöðvuðu varðskipin 137
skip innan bresku fiskveiðilög-
VACLAV Havel, forseti Tékkó-
slóvakíu, sagði eftir fund með
sögunnar og þau áttu mestan
hlut að málshöfðunum vegna
ólöglegra veiða.
Talsmenn hersins segjast ótt-
ast, að auk þess sem hundruð
manna muni missa atvinnuna,
muni eftirlit með vopnasmygli til
IRA, Írska lýðveldishersins, öðru
smygli og ólöglegum innflytjend-
um minnka stórlega. Frakkar,
Þjóðveijar, Hollendingar og fleiri
þjóðir hafa herskip við landhelgis-
gæsluna og nokkur uggur er um
að landhelgisbijótar muni bera
minni virðingu fyrir einkareknu
gæslunni en hernum.
I Vaclav Klaus, formanni Lýðræð-
I isflokksins (ODS), í gær að upp-
lausn sambandsríkisins Tékkó-
slóvakíu væri ekki endilega óum-
flýjanleg. Klaus mun eiga fund á
morgun, fimmtudag, með Vladim-
ir Meciar, leiðtoga Hreyfingar
fyrir lýðræðislegri Slóvakíu
(HZDL), sem vann stórsigur í
þingkosningunum í Slóvakíu um
helgina. Þeir áttu sex stunda fund
á mánudag og Klaus sagði eftir
hann að sambandsríkið ætti enga
framtíð fyrir sér og framhaldsvið-
ræður þeirra myndu snúast um
upplausn sambandsríkisins en
ekki framtíð þess. Havel fól Klaus
að hefja stjórnarmyndunarvið-
ræður á sunnudag eftir sigur ODS
í þingkosningunum í Bæheimi og
Mæri um helginá.
Stefna ODS var skýr í kosninga-
baráttunni. Klaus sagði þá að hann
kærði sig hvorki um „þriðju leiðina"
í efnahagsmálum, utanríkismálum
né í sambandi Slóvakíu og tékkneska
hluta sambandsríkisins Tékkóslóvak-
íu. Flokkur hans hlaut þriðjung at-
kvæða í Bæheimi og Mæri. En hreyf-
ing Meciars, sem boðaði breytt sam-
band við tékkneska hlutann og hæg-
ari efnahagsumbætur en Klaus hefur
komið á, fékk þriðjung atkvæða í
Slóvakíu.
Klaus sagði eftir fundinn með
Meciar að skoðanamunur þeirra væri
verulegur, Meciar vildi alþjóðlega
viðurkenningu á fullveldi Slóvakíu
en hann sjálfur treysta bönd sam-
bandsríkisins. Meciar lagði til á
fundinum með Klaus að Slóvakía og
tékkneski hlutinn mynduðu með sér
viðskipta- og varnarbandalag en að
öðru leyti fara hvort sína leið, sam-
kvæmt útvarpsfréttum. Slóvakar
voru á móti tillögu Havels um þjóðar-
atkvæðagreiðslu um framtíð Tékkó-
slóvakíu í fyrra en Meciar er nú sagð-
ur reiðubúinn að fallast á hana svo
framarlega sem Havel gefur ekki
kost á sér sem forseti.
Framtíð Havels í forsetastóli er
fullkomlega óljós. Meciar sagði strax
eftir að niðurstöður þingkosninganna
lágu fyrir að hann myndi segja þing-
mönnum flokksins í sambandsþing-
inu að greiða atkvæði gegn Havel í
forsetakosningunum sem á að halda
í þinginu í byijun júlí. Flokkur Klaus
styður hins vegar Havel og stórum
meirihluta Tékka finnst ekki annað
koma til greina en Havel verði áfram
leiðtogi þjóðarinnar. Meciar mun
vera reiðubúinn að styðja einhvern
annan Tékka í forsetastól, bara ekki
Havel sem honum fínnst ekki hafa
sýnt Slóvökum og efnahagserfiðleik-
um þeirra nægan skilning.
Sjá „Tékkar kjósa ...“ á bls. 28.
Bretland:
Verður landhelgis-
gæslan einkavædd?
London. The Daily Telegraph.
BÚIST er við, að breska landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyt-
ið ákveði á næstunni að einkavæða landhelgisgæsluna við Bret-
land. Yrði þar með lokið þeirri 600 ára gömlu hefð að sjóherinn
hafi það starf með höndum en það hefur hann gert allt frá
árinu 1379.