Morgunblaðið - 10.06.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
9
Fáksfélagar
athugið
Almennur félagsfundur verður haldinn mánudaginn
15. júní kl. 20.30.
Fundarefni: Nýr félagsbúningur.
Fákur.
Vib ávöxtum
peningana þína
á inefoan þú
nýtir tíma
þinn í annab
Hjá Þjónustumiöstöb ríkisverðbréfa starfa
sérfræbingar í ávöxtun sparifjár meb ríkisverbbréfum
og veita þér jafnframt trausta fjármálaþjónustu sem
felst m.a. í vörslu og umsýslu ríkisverbbréfa. Þú þarft
ekki ab eyba dýrmætum tíma þínum í ab fylgjast meb
hvaba ávöxtunarleibir séu bestar, hvenær ab innlausn
líbur o.s.frv. - vib gerum þab fyrir þig:
• Við geymum fyrir þig ríkisverbbréfin
í öruggum geymsium
• Við látum þig vita þegar líður ab
innlausn og veitum þér faglega
ráðgjöf um næstu skref
• Þú færð yfirlit um eign þína
í ríkisverðbréfum um hver áramót
• Við seljum fyrir þig spariskírteini
með lágmarkskostnaði
• Með þátttöku okkar í Verðbréfaþinginu
getur þú tekið þátt í tilboðum um kaup
á spariskírteinum
Góð stjórnun felst í því að dreifa verkefnum
til trausts fagfólks. Láttu sérfræðingana hjá
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa hafa umsjón með
ávöxtun sparifjár þíns. Á meðan getur þú sinnt þínu
starfi og áhugamálum.
þJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-62 60 40 og Kringlunni, sími 91-68 97 97
Tungufossar
stjórnarand-
stöðunnar
Geir Haarde (S-Rvk)
segir í grein í DV síðast-
liðinn fimmtudag, sem
hefur að yfirskrift: Þing-
sköp, ræðuhöld og fylgis-
hrun:
„Á nýafstöðnu þingi
töluðu stjómarþingmenn
(þingmeirihhitinn) 31%
ræðutímans en stjómar-
andstöðuþingmenn
(minnihlutinn) í 69%. Á
fyrsta þingi síðustu ríkis-
stjórnar, veturinn
1988-89, töluðu þing-
menn þáverandi stjóm-
arflokka hins vegar 43%
ræðutímans en þing-
menn stjórnarandstöðu
57%. Þótti stjómarand-
staðan á þeim tima þó
býsna málglöð! Allir sjá
að hér hefur orðið ger-
breyting á og stjómar-
andstæðingar að vem-
legu leyti lagt undir sig
ræðustól Alþingis.
Við þetta bætist síðan
að umræðutími á Alþingi
hefur lengst til muna eft-
ir að þinginu var breytt
í eina málstofu, þvert
ofan í spár flestra. Heild-
arræðutími nú var 687
klukkustundir og þar af
fóm 150 tímar í umræð-
ur utan dagskrár og um
þingsköp. Til saman-
burðar var heildarræðu-
timi á þinginu 1988-89
samtals 544 tímar ...
Þingmenn stjóniar-
andstöðunnar töluðu
samtals í 475 af áður-
nefndum 687 tímum.“
Maraþonmál-
þóf í beinni
útsendingn
Síðan segir Geir:
„Þar af töluðu Alþýðu-
bandalagsmemi í 220
klukkustundir, þótt þeir
séu aðeins þriðjungur
stjórnarandstöðunnai’.
Þingmenn Alþýðubanda-
Iagsins, 9 talsins, notuðu
einnig 43% þess ræðu-
tíma sem fór í umræður
um gæzlu þingskapa.
Að tala af sér fylgið!
Geir Haarde, alþingismaður, segir í grein
í DV, að tvær staðreyndir haldist í hend-
ur að því er Alþýðubandalagið varðar:
1) að þingmenn þess (9 af 63) hafi h'afi
talað samtals í 220 klukkustundir (af 687
töluðum tímum) á síðasta þingi, 2) og
að það sé eini stjórnarandstöðuflokkur-
inn sem hríðlagt hafi af í skoðanakönnun-
um frá því á sl. hausti, það er úr 20% þá
í 13,9% í síðustu viku.
Talaði hver að meðaltali
í nær íímmfalt lengri
tíma en hinir þingmenn-
imir 54. Átti formaður
flokksins þar drjúgan
hlut að máli ... Er furða
þótt fylgið hrynji af
stjómarandstöðuflokki
sem þannig misnotar
málfrelsið á Alþingi?“
Síðan víkur Geir í
gi-ein sinni að því að
fjöldi góðra þingmála
dagi uppi, nái ekki þing-
legri umfjöllun og af-
greiðslu, vegna málþófs.
Orðrétt:
„Ástæðan fyrir því er
alveg skýr í ljósi upplýs-
inganna hér að ofan. Hún
er fyrst og fremst linnu-
lítil ræðuliöld stjómar-
andstöðunnar, einkum
Alþýðubanchilagsins, um
þingmál sem á dagskrá
komust, auk langra um-
ræðna utan dagskrár og
um gæzlu þingskapa.
Fleiri mál komust ein-
faldlega ekki að.
Breytingin i eina mál-
stofu hefur að mínum
dómi tekizt vel að flestu
leyti. Það hefur sýnt sig
að ótakmarkaður ræðu-
tími einstakra þing-
manna og takmarkaður
fundartími á þingfund-
um fer ekki saman svo
vel sé. Á því þarf að ráða
bót.“
Geir segir í grein sinni
að skýringin á því, hvers
vegna Alþýðubandalag-
inu, sem jafnan rær und-
ir meðal óánægjuafla í
þjóðfélaginu, hafi ekki
tekizt að nýta sér stjóm-
arandstöðu á erfiðleika-
tímum, sem krafizt hafi
samdráttar í rikisbú-
skapnum og aðgerða sem
ekki vom sársauka-
lausar, til fylgisauka,
eins og td. Framsóknar-
fiokkurinn, sé eflaust
margþætt. Gildur þáttur
hemiar sé efalítdð sá að
landsmenn hafi getað
fylgzt með „þingfundum
í beinni útsendingu Sýn-
ar siðustu vikur þing-
haldsins og hygg ég að
þar sé nærtækasta skýr-
ingin á fylgishruni Al-
þýðubandalagsins. Fram-
ganga nokkurra Alþýðu-
bandalagsmanna, eink-
um formanns flokksins,
síðustu daga þingsins,
var með þeim hætti að
flestum sem á horfðu
hefur áreiðanlega blö-
skrað“.
Kreppurfyrr
ognú
Úr leiðara Alþýðublaðs-
ins sl. fimmtudag:
„Munurinn er hins
vegar sá, að kreppa
fjórða áratugarins var
alheimskreppa; hörm-
ungar sem komu að utan.
Kreppan í dag er lands-
kreppa ... efnahagur er-
lendra ríkja, m.a. í Evr-
ópu, er blómlegur í kjöl-
far aukinnar samvimiu
og minnkandi verzlunar-
hafta milli Ianda ...
Gífurlegt verðfall á
sjávarafurðum og sölu-
tregða á erlendum mörk-
uðum lagði undirstöðuat-
vinnuveg okkar í rúst
[upp úr 1930] og kreppan
lagðist yfir ísland ... Rík-
isstjóm Ásgeirs Ásgeii's-
sonar, sem tók við völd-
um 1932, brást rétt við
kreppunni með því að
draga saman seglin og
stórminnka ríkisúlgjöld
... gengi íslenzku krón-
unnar var ekki rýrt með
fjárfestingarþenslu
Ríkisstjórn Hermanns
Jónassonar, sem tók við
1943, tók hins vegar
skakkan pól í hæðina,
reyrði niður atvinnulífið
og stóijók ríkisútgjöld;
kreppan hafði fætt af sér
fyrstu haftastjómina.
Einokun, pólitísk spilling,
minnkandi þjóðartekjur
og minni hagvöxtur áttu
eftir að einkenna stjóm
landsins og þjóðarbúið
uns viðreisnarstjómin
tók við völdum í lok sjötta
áratugarins og höftunum
létti.“
8,8% ávöxtun
Góð langtímafjárfesting
Fastir vextir
Verðtrygging
SKULDABRÉF GLITNIS
Skuldabréf Glitnis eru verðtryggð skuldabréf sem bera
8,8% fasta vexti og eru fáanleg til 2 - 4 ára. A tímum
lækkandi vaxta getur einmitt verið gott að tryggja sér
fasta vexti og því eru Glitnisbréf mjög góður kostur til
langtímafjárfestingar. Bréfin eru gefin út af eignar-
leigufyrirtækinu Glitni hf., sem er dótturfyrirtæki
Islandsbanka hf.
Ráðgjafar VIB veita frekari upplýsingar um skulda-
bréf Glitnis, svo sem gjalddaga og einingar.
Verið velkomin í VIB.
m
Metsölublad á hverjum degi!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavik. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.