Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 19

Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 19
19 starf, að manngildi sé metið eftir námshæfileikum. Baráttan gegn þessum fordómum verður ekki háð með því að leggja niður próf og einkunnir eða með því að leiða hjá sér staðreyndir um eðlislægan og félagslegan einstaklingsmun nem- enda. Að horfast í augu við staðreyndir Eins og ailir menn eru böm einn- ig ólík hvert öðru. Þau em ólík að upplagi og þau eru ólík að félags- legum ástæðum. Megin forsenda þess að nemendur nái eðlilegum árangri í námi er að kennarinn, foreldramir og einig nemendurnir sjálfir, geri sér grein fyrir þessari staðreynd. „Sannleikurinn mun gera okkur frjálsa," sagði Páll postuli. í þeim anda er stefna Mið- skólans. Skólinn þarf að horfast í augu við staðreyndir. Á grundvelli stað- reynda ber kennurum að leiðbeina nemendum sínum, hveijum og ein- um eftir því sem efni standa til, m.a. á grundvelli prófa. Það er ekki markmið skólans í sjálfu sér að greina á milli þeirra sem eiga erfitt með nám og hinna sem reyn- ist það auðvelt. heldur að aðstoða hvern og einn nemanda til að ná sem bestum árangri og með því að stuðla að aukinni lífshamingju hans, gleggra sjálfsmati og auk- inni sjálfsvirðingu. Leiðsögn/nemendakort Árangur í námi byggist mjög mikið á því að kennarinn fái hald- góðar upplýsingar um nemendur sína. Markviss leiðsögn í námi hlýt- ur ávallt að byggja á réttum upp- lýsingum. Hveijum nemanda, sem innritast í Miðskólann, mun fylgja svokallað nemendakort. Þar verða skráðar upplýsingar um hvern ein- stakan nemanda, svo sem um fjöl- skylduhagi, námsferil, einkunnir, skólagöngu, heilsufar og þátttöku í ýmisskonar störfum innan skól- ans og utan, þátttöku í íþróttafé- lögum, tónlist og öðru slíku. Nem- endakortið á að gera kennurum auðveldara að fylgjast með skóla- starfinu og námsferli hvers ein- staks nemanda. Lögð verður rík áhersla á að bekkjarkennarar skrái reglulega umræddar upplýsingar. Ríkisskólar og einkaskólar Einkaskólar á grunnskólastigi eru ekki reknir sem gróðafyrirtæki fremur en ríkisskólamir. Þeir em fyrst og fremst reknir í þeim til- gangi að veita foreldrum þjónustu. Þessi þjónusta einkaskóla getur verið frábrugðin þeirri sem hægt er að sækja í ríkisskólann. í því felst ekki gagnrýni á þá síðar- nefndu sem gegnt hafa mikilvægu hlutverki frá upphafi skólaskyldu. En nú eru nýir tímar. Ríkiseinokun grunnskóla stríðir gegn hagsmun- um foreldra. Samstarf og sam- keppni ríkisskóla og einkaskóla er í anda nýs tíma. Ef vel tekst til um rekstur þessa nýja skóla er ég sannfærður um að það muni hafa örvandi áhrif á starfsemi annarra skóla, ekki aðeins á höfuðborgar- svæðinu, heldur einnig víða annars staðar. Höfundur er prófessor í uppeldisfræði við Kennaraháskóla Islands. TILBOÐ Slj| H§ VONDUÐ TEPPI| MIKIÐ ÚRVAL BETRAVERÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992 Gegii nautaati - gegn misþyrmingu á dýrum LAUGARDAGINN 18. júlí nk., viku fyrir setningu Ólympíuleikanna á Spáni, verður farin fjöldamótmælaganga í Madrid. Gangan er skipuð af ADDA (Asociacion para la Defense de los Derechos del Animal). Þetta verður stærsta mótmæla- ganga sem hingað til hefur verið farin gegn nautaati á Spáni. WSPA (World Society for the Protection of Animals) styður baráttu spænskra dýravina gegn nautaati. Islenskir dýravinir hafa einnig lagt sitt af mörkum og hafa í eitt ár safnað undirskriftum þar sem nautaati er mótmælt og hafa undirskriftalistarn- ir verið sendir til réttra aðila. Þessi mótmæli verða afhent spænskum yfirvöldum. Stjóm SDÍ þakkar góðar undirtektir íslendinga í baráttunni gegn þeirri misþyrmingu á dýrum sem nautaat er. Þeir íslendingar sem staddir verða á Spáni þegar fyrirhug- uð mótmælaganga verður farin og hafa hug á að slást í för með dýravin- um alls staðar að úr heiminum geta haft samband við ofangreind dýra- verndarfélög eða Samband dýra- verndarfélaga íslands, sem. veita all- ar nánari upplýsingar. A Ut er komið hjá Landlæknisembættinu: Heilbrigðisskýhslur 1986-1987 ........Verðkr. 1.000. Heilbrigðisskýrslur 1988..............Verð kr. 1.000. Læknaskrá 1992........................Verðkr. 500. Fylgiritið Sveigjanlegur eftirlaunaaldur .Verð kr. 200. Til sölu á skrifstofu embættisins, Laugavegi 116, sími 627555. Landlæknisembættið. Vegna mikillar sölu á nýjum bílum A NOTUÐUM BILUM Nokkur verð dæmi Renault Express árg. 1990. verð kr. 550.000 stgr. Susuki Fox Samurai árg. 1989. verð kr. 6ao.ooo stgr. Mazda 626 GLX 2.0 árg. 1987. Verð kr. 560.000 stgr. Nissan Patrol disel árg. 1988. verð kr. 1.450.000 stgr. BILAB í L. ASA L A sævarhöfða 2 674848 i húsi Ingvars Helgasonar GMC Jimmy disel 6.2 árg. 1988. Verð kr. 1.600.000 stgr. Toyota Corolla st. 4x4 árg. 1989. verð kr 850.000 stgr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.