Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
‘t ■ <
© M/DVIKUDAGf
Börn meðlagsgreiðenda
ódýrustu börn á Islandi
eftir Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur
Hinn 28. maí sl. birtist jjrein í
Morgunblaðinu eftir Asthildi
Sveinsdóttur undir fyrirsögninni:
„Eru börn einstæðra foreldra ein-
getin á íslandi?" í greininni er rétti-
lega á |>að bent að upphæð með-
lags á Islandi er úr öllu samræmi
við þann kostnað sem fylgir fram-
færslu bams. Ef það væri notað
sem viðmiðun, væri börnum ein-
stæðra foreldra greinilega ætlað
að að lifa langt undir fátæktar-
mörkum. Greinin endar á þeim orð-
um að það væri „afskaplega
ánægjulegt ef þingmenn gerðu
minna af því að eyða tíma hátt-
virts Alþingis í innbyrðis karp og
beittu í staðinn kröftum sínum til
að gera lagabreytingar er stuðluðu
að því að einstæðum foreldrum
yrði kleift að sjá börnum sínum
farborða á mannsæmandi hátt.“
Um leið og ég tek heilshugar
undir þessi orð og þakka greinar-
höfundi fyrir góða og tímabæra
grein vil ég bekja athygli hennar
og annarra á frumvarpi frá
Kvennalistanum sem hefur það
beinlínis að markmiði að auka hlut-
deild meðlagsgreiðenda í fram-
færslu bama sinna. Þetta frumvarp
hefur verið flutt i tvígang, nú síð-
ast á nýafstöðnu þingi, en í bæði
skiptin hafa þingkonur Kvennalist-
ans talað fyrir daufum eyrum.
Barnalífeyrir og meðlag
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að kostnaður við framfærslu barns
verði metinn af nefnd sem í eigi
sæti fimm fulltrúar sem séu til-
nefndir af tryggingaráðherra,
dómsmálaráðherra, tryggingaráði,
Félagi einstæðra foreldra og Hag-
stofu íslands. Þessi nefnd geri síðan
tillögu til. ráðherra um upphæð
bamalífeyris og má hann ekki
nema lægri upphæð en sem nemur
helmingi af kostnaði við fram-
færslu barns.
Ástæðan fyrir því að farin er sú
leið að hækka barnalífeyri Trygg-
ingastofnunar er sú, að í barnalög-
um er kveðið á um framfærslu-
skyldu foreldra og þar segir að í
meðlagsúrskurði megi „aldrei
ákveða lægri meðlagsgreiðslu en
barnalífeyri nemur, eins og hann
er ákveðinn á hveijum tíma í lögum
um almannatryggingar." Þrátt fyr-
ir að þarna sé einungis kveðið á
um lágmarksupphæð þá telst það
til undantekninga að úrskurðað sé
um hærra meðlag, nema þá tíma-
bundið. Það er reyndar mál sem
þarfnast sérstakrar skoðunar en
sem ekki eru tök á að fara út í í
þessari grein.
Skv. 15. grein almannatrygging-
alaga er barnalífeyrir greiddur með
börnum yngri en 18 ára ef annað
hvort foreldrið er látið eða er öror-
kulífeyrisþegi. Ef þetta á við um
bæði foreldri er greiddur tvöfaldur
bamalífeyrir. Þá er barnalífeyrir
greiddur með börnum sem ekki eru
feðruð og í ákveðnum tilvikum með
börnum ellilífeyrisþega og refsi-
fanga. Barnalífeyrir er með öðrum
orðum g;reiddur með börnum þegar
annars eða beggja framfærenda
nýtur ekki við eða þegar aðstæður
framfærenda eru með þeim hætti
að þeim er ekki unnt að uppfylla
framfærsluskyldu sína. Síðast en
ekki síst er barnalífeyrir svo notað-
ur sem viðmiðun um meðlags-
greiðslur, eins og fyrr segir.
Kostnaður við
framfærslu barns
Af þessu má ljóst vera að barna-
lífeyrir er framfærslueyrir barna
og ætti því, ef allt væri með felldu,
að taka mið af raunverulegum
framfærslukostnaði þeirra. Því fer
hins vegar víðs fjarri eins og sést
best á því að meðlag er aðeins
7.425 kr. á mánuði. Við skulum
skoða einfalt reikningsdæmi.
Við skulum gefa okkur að for-
sjáraðili bamsins leggi 7.425 kr.
Armstrong
KERFIS-LOFT
Yfir 250 gerðir
aí loftaplötum.
CMC -
upphengikerfi
og lím.
Leitið tilboða
EINKAUMBOÐ
TEPPABÚDIN
B YGGIN G AVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 26.
SÍMI 91-681950
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
„Ástæðan fyrir þessum
tvískinnungi er einfald-
lega sú að ríkið er sjálft
stór meðlagsgreiðandi.
Hagsmunir ríkisins og
meðlagsgreiðandi
feðra eru órjúfanlega
samtvinnaðir í 15. grein
almannatryggingalag-
anna og 11. grein barn-
alaganna og ríkið getur
ekki hækkað meðlags-
greiðslur feðranna
nema með því að hækka
barnalífeyrinn og þar
með sín eigin útgjöld."
til framfærslu þess, meðlag eða
barnalífeyrir — eftir atvikum —
nemi 7.425 kr., mæðralaun 4.653
kr. og barnabætur 7.970 kr. á
mánuði ef barn er undir 7 ára aldri
en 5.560 kr. ella. Að öllu saman-
lögðu hefur barnið til framfærslu
27.473 kr. á mánuði ef það er und-
ir 7 ára aldri en 25.063 kr. ef það
er eldra. Ymsum kann að þykja
þetta all nokkuð en það vantar
engu að síður talsvert upp á að
upphæðin nægi barni til fram-
færslu.
Könnun sem gerð var á vegum
Félags einstæðra foreldra árið
1986 bendir til að framfærslu-
kostnaður barns framreiknaður til
dagsins í dag sé á bilinu 30-50
þúsund krónur á mánuði og fari
hækkandi með hærri aldri. Það sem
upp á vantar, miðað við ofan-
greinda útreikninga, verður það
foreldri sem fer með forsjána að
leggja af mörkum, og í langflestum
tilvikum er það móðirin.
Ábyrgð meðalagsgreiðenda
Ég leyfi mér að fullyrða að með-
lagsgreiðendur hafi mun minni til-
kostnað af börnum sínum en allir
aðrir foreldar. Hverjir aðrir komast
af með að greiða 7.425 kr. til uppi-
halds barna sinna á mánuði? Ekki
einstæðar mæður eða faðir eða
móðir í sambúð!
Foreldrar í sambúð sem vinna
fulla vinnu utan heimilis þurfa að
greiða um 25.000 kr. á mánuði
fyrir það eitt að hafa bamið í dag-
vistun hjá dagmóður. Og jafnvel
þó að þeir greiddu aðeins fyrir 5
tíma vistun á leikskóla þá væru það
7.300 kr. á mánuði og þá er allt
annað eftir. Þess má líka geta í
þessu sambandi að meðalagið eða
barnlífeyririnn hrekkur ekki einu
sinni fyrir greiðslu dagvistargjalds
sem nú er 8 600 kr. á mánuði fyr-
ir einstæða 1 reldra.
í ljósi þessa er heldur kaldhæðn-
islegt að í alln umræðunni um að
fólk misnoti velferðarkerfið með
GARÐASTAL
Á þök og veggi
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ, SÍMI 652000
DAGURINN
I HAFNARFIRÐI
stendurfyrir Sjómannadagshófi
í Súlnasal Hótel Sögu
á Sjómannadaginn 14. júní.
■'v—-.
Fordrykkur
Veislukvöldverður
Skemmtiatriði
Landsliðið í spaugi teygir hláturstaugar
gestanna
Húsið opnað kl. 19.00
Að loknu borðhaldi kl. 23.00
hefst dansleikur með hinni vinsælu
á hljómsveit Stefáns P.
Verð á dansleik kr. 850.-
- lofar góðul
WORD 2*0
Ný, íslensk bók um Word 2.0 f. Windows eftir Brynjólf Þorvarðarson, tölvufræðing.
Fæst í flestum bókabúðum. Sendum í póstkröfu. Sími 91-687590. Tölvuskóli Reykjavíkur.
því að skrá sig utan sambúðar og
notfæri sér þannig stuðning samfé-
lagsins við einstæðar mæður skuli
enginn hafa dregið inn þátt og
ábyrgð hinna meðlagsskyldu feðra.
Ef fjárhagsleg ábyrgð þeirra á af-
kvæmum sínum væri meiri, en
samfélagið létti henni ekki af þeim
í því mæli sem nú tíðkast, liti dæm-
ið kannski öðruvísi út.
Melrakkar I
forstofuherbergjum
Ég hef heyrt því fleygt að mörg-
um meðlagsgreiðendum þyki illa
með sig farið og meðlgsgreiðslur
hindri þá jafnvel í því að eignast
nýja fjölskyldu. Þeir hafi hreiplega
ekki efni á því. Guðmundur Ólafs-
son, fulltrúi í nefnd þeirri sem fé-
lagsmálaráðherra skipaði til að
skoða stöðu karla, líkti meðlags-
greiðandi karlmönnum við mel-
rakka í nýlegu útvarpsviðtali. Sagði
þá ekki hafa efni á öðru en að
hýrast í forstofuherbergjum vegna
þeirrar byrðar sem meðlagið væri
þeim. Illt ef satt væri og leiðir
óneitanlega hugann að því hvað
kalla eigi mæðurnar sem bera hit-
ann og þungann af framfærslu
barnanna og hafa að auki minni
möguleika á að afla sér tekna en
melrakkarnir í forstofuherbergjun-
um — þó að ekki væri vegna ann-
ars en þess að þær eru konur. Ótal
kannanir sýna líka að einstæðir
foreldar eru almennt tekjulægri og
búa við verri félagslegar aðstæður
en aðrir hópar í þjóðfélaginu.
Mér er auðvitað ljóst að lág-
launamann munar um að greiða
eitt, tvö eða þijú meðlög á mánuði
en ég held að það sé óhætt að full-
yrða að hann sé samt betur settur
fjárhagslega en lágíaunamaðurinn
sem fer með forræði og framfærslu
barna sinna. Meðlagsskylda föð-
urnum getur vissulega reynst erfitt
að stofna fjölskyldu að nýju og
eignast fleiri börn en þá vaknar sú
spurning hvort við höfum ríkari
skyldum að gegna við þau börn sem
við höfum sett inn í þennan heim
eða hin sem ófædd eru.
Hagsmunir ríkisins
Ég held að allt sanngjarnt fólk
hljóti að viðurkenna að 7.425 kr.
meðlag er hraksmánarlega lág upp-
hæð sem nauðsynlegt er að hækka.
Sú spurning vaknar því óneitanlega
hvernig á því standi að ríkisvaldið
haldi upphæð meðlags niðri en ráð-
herrar hrósi sér engu að síður af
því af og til að þeir vilji gera vel
við einstæðar mæður? Þegar sá
gállinn er á þeim leiðrétta þeir lítil-
lega mæðralaunin og jafnvel barna-
bótaaukann en láta meðlagið
óáreitt. Ástæðan fyrir þessum tví-
skinnungi er einfaldlega sú að ríkið
er sjálft stór meðlagsgreiðandi.
Hagsmunir ríkisins og meðlags-
greiðandi feðra eru' óijúfanlega
samtvinnaðir í 15. grein almanna-
tryggingalaganna og 11. grein
barnalaganna og ríkið getur ekki
hækkað meðlagsgreiðslur feðranna
nema því að hækka barnalífeyrinn
og þar með sín eigin útgjöld.
Þegar frumvarp Kvennalistans
var lagt fram á Alþingi í vetur fékk
það ekki ýkja mikinn hljómgrunn
meðal þingmanna. Sjálfsagt var
það að hluta til vegna þess að þeim
óx í augum að leggja aukin útgjöld
á láglaunamenn á tímum niður-
skurðar og kjaraskerðinga. Það er
skiljanlegt en auðvitað fer því víðs
fjarri að allir meðlagsgreiðendur
séu með lágar tekjur. Sú spuming
hlýtur líka að vakna hvers láglaun-
menn í sambúð og einstæðar mæð-
ur eigi að gjalda?
Það er aftur á móti full ástæða
til að hafa áhyggjur af þeim að-
stæðum sem launafólk á íslandi eru
búnar til að ala upp börn og rækja
foreldrahlutverk sitt og þeirri
naumu aðstoð sem því er veitt í
formi barnabóta og annars stuðn-
ings frá ríkinu. Við þessu þarf að
bregðast með almennum aðgerðum
sem kæmu öllu láglaunafólki til
góða — líka þeim sem greiða með-
lag.
Höfundur er þingkona
Kvennalistans íHvykjavík.
►
f
I
I
»
»
»
»
»
I
I
1
í
I
>
1-