Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
Þórir Schiöth varð annar, en hann varð af sigri þegar bilaði í þessari þraut, en hann valdi Mudder-
dekk í stað skófludekkja í mýrlendið.
Torfæra á Hellu:
Magiiús tók forystu í
meistarakeppninni
MAGNIJS Bergsson tók forystu í Islandsmeistarakeppninni í tor-
færuakstri sérútbúinna jeppa með sigri í keppni Bilabúðar Benna
og Oiís á Hellu á laugardaginn. Hann vann sinn flokk, en Guð-
mundur Sigvaldason vann flokk standard-jeppa. _
Þrautimar í keppninni voru alltof margar í mótum og þrautir
óvenjulegar að því leyti að þær
buðu upp á fremur lítil tilþrif, en
kröfðust þess meiri lagni í akstri
og mörg dekk afmörkuðu aksturs-
leiðimar enda hafði verið umkvört-
unarefni keppenda að veltur væru
ófærar með öllu oft og tíðum. Rign-
ing setti svip á keppnishaldið, en
vatnaakstur og akstur í mýrlendi
gerði keppendur enn votari en ella.
Keppni var jöfn í báðum flokkum,
en tímabraut í lokin réð miklu um
Magnús Bergsson vann í sérút-
búna flokknum og hefur for-
ystu í meistarakeppninni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Mót ofar skýjum. Árni Kópsson tók eitt af fáum flugum keppninn-
ar, en hafði ekki erindi sem erfiði og komst ekki í verðlaunasæti
og hefur ekki náð að vinna mót það sem af er árinu, en hann
hefur titil að verja.
úrslitin. Sem dæmi tapaði Þórir
Schiöth sigurmöguleikum í sérút-
búna flokknum, þegar óvenjulegur
bíll hans bilaði í miðri þraut. Magn-
ús Bergsson var vel að sigrinum
kominn, ók yfirvegað að venju, sem
skilaði sér í þrautunum að þessu
sinni. Ámi Kópsson átti ekki góðan
dag og komst ekki í verðlauna-
sæti, þrátt fyrir góð tilþrif á köfl-
um. í götubílaflokknum vann Guð-
mundur Sigvaldason með rúmlega
100 stiga mun, Ragnar Skúlason
varð annar og Þorsteinn Einarsson
þriðji.
Mikill ljöldi keppenda skráði sig
til leiks og þurfti undankeppni til
að fækka keppnistækjum í sérút-
búna flokknum og sýnir þetta best
stigvaxandi áhuga á þessari íþrótt,
en mikil uppsveifla er í aksturs-
íþróttum almennt. Bílkross er lang-
vinsælast og horfur á stórum mót-
um í rallakstri á komandi mánuð-
um.
Bílamarkaburinn
'■'-w-rœr.
Volvo 740 GL '85, rauður, 5 g.p ek. 98 þ.
Mjög fallegur. V. 720 þús. stgr., sk. á ód.
Honda Prelude EX ’87, topplúga, sjálfsk.,
vökvast., spoiler, ek. 68 þ. Fallegt eintak.
V. 760 þús. stgr.
MMC Pajero ’89, 5 g., vökvast., sportf.,
grind o.fl. ek. 49 þ. Toppeintak. V. 1320
þús. stgr.
Renault 5 TR '90, rauöur, 5 g., ek. 25 þ.
V. 550 þús. stgr.
Peugout 205 junior '91, ek. 14þ., 2 dekkjag.
o.fl. V. 550 þús. stgr.
Range Rover 4 dyra '84, sjálfsk., ek. 96 þ.
Fallegur jeppi. V. 1190 þús., sk. á ód.
wrrrr
Toyota Tercel Rv Special 4x4 ’88, hvítur,
ek. 67 þ. V. 730 þús. stgr.
Daihatsu Charade TS ’88, ek. 56 þ. Gott
eintak. V. 430 þús. stgr.
Mercury Cougar sport ’88, blár, sjálfsk.,
ek. 120 þ., rafrúður, krómfelgur, V6-2.8,
eöalvagn. V. 830 þús., sk. á ód.
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími
671800
Nú erfjör íbilaviðskiptum!
Vantar á skrá og á staðinn
allar gerðir af nýlegum
bflum
Undirbúningi sjálfvirks tilkynningaskyldukerfis skipa lokið:
Uppsetning kostar um 100 millj.
TALIÐ er að kostnaður hins opinbera við uppsetningu sjálfvirks tilkynn-
ingarskyldubúnaðs, þ.e. landstöðva, fjarskiptastöðvar og eftirlitsstöðv-
ar, verði rúmlega 100 milljónir kr. Kerfisverkfræðistofa Verkfræði-
stofnunar Háskóla Islands hefur í samvinnu við Póst og síma gert ítar-
lega athugun á tæknilegum og fjárhagslegum þáttum í uppsetningu
slíks kerfis og er þeirri vinnu nú lokið.
Hann gæti jafnframt tekið á móti
upplýsingum frá landi, t.a.m. frá
fiskmörkuðum.
Þorgeir sagði að greinargerðin
yrði send samgönguráðuneytinu í
næstu viku og frekari framvinda
þessa máls væri í höndum þess. Sjálf-
ur taldi hann ekkert vera því til fyrir-
stöðu að heijast handa síðla sumars
eða næsta haust við uppsetningu
kerfisins, allur undirbúningur hefði
þegar farið fram.
Útflutningur á tómötum
og gúrkum til Færeyja
Að sögn Þorgeirs Pálssonar, for-
stöðumanns kerfisverkfræðistofunn-
ar, er gert ráð fyrir einni fjarskiptat-
ölvu á vegum Pósts og síma og
kæmi sterklega til álita að hún yrði
staðsett í Gufunesi. Slík móðurtölva,
eða fjarskiptastjóri, stjómaði fjar-
skiptum í gegnum fjórtán landstöðv-
ar. Sérstök eftirlitsstöð yrði í bæki-
stöðvum Tilkynningaskyldunnar og
bærust öll gögn til hennar í gegnum
fjarskiptastjórann. Þá væri gert ráð
fyrir uppsetningu 14 smástöðva sem
næðu til svæða sem erfitt yrði að
ná til með öðrum hætti.
Þorgeir sagði að ekki væri um
mikla tæknivæðingu fyrir flotann að
ræða. Tengja þyrfti litla tölvu við
staðsetningartæki skipanna sem
stjómaði fjarskiptunum, hvort sem
það væru lóran-tæki eða GPS-kerfi,
og kostnaður við það yrði um 200
þúsund kr. á hvert skip. Meginfjár-
festingarkostnaðurinn lægi í land-
kerfum Pósts og síma og samteng-
ingum frá þeim inn til miðstöðvarinn-
ar, eða fjarskiptastjórans.
Tilkynningar munu berast frá
skipunum um staðsetningu þeirra
sjálfvirkt og ekki sjaldnar en á
fímmtán mínútna fresti. Eftirlits-
tölva í bækistöðvum Tilkynninga-
skyldunnar gerir síðan starfsmanni
þar viðvart ef eitthvað fer úrskeiðis.
Þorgeir sagði að kerfíð byði upp
á ýmsa aðra möguleika, eins og t.d.
gagnasendingar. Flotinn gæti t.a.m.
stundað sín bankaviðskipti í gegnum
kerfið og unnt væri senda aflaupplýs-
ingar frá flotanum stöðugt til lands.
SÖLUFÉLAG garðyrkjumanna
sendi nýlega nokkur hundruð
kíló af gúrkum og tómötum á
markað í Færeyjum með flugvél
Flugleiða. Að sögn Kolbeins
Ágústssonar, sölustjóra Sölu-
félagsins, seldist allt grænmetið
upp á skömmum tíma, en verðið
sem fékkst var það sama og
skráð verð hér á landi.
Kolbeinn sagði að Færeyingar
hefðu viljað fá smá tilraunasendingu
af grænmeti. „Það hittist svo á með
gúrkurnar að á sama tíma voru frétt-
ir í Færeyjum um eitraðar gúrkur
erlendis, þannig að öll sendingin seld-
ist á örskömmum tíma. Hvort fram-
hald verður á þessu fer eftir verðinu
hér heima, en ef það hækkar hafa
þeir væntanlega ekki mikinn áhuga,
og við getum væntanlega ekki gert
þétta nema þegar verðið er í lág-
marki,“ sagði hann.
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
5.-9. júní.
Aðfaranótt iaugardags kom
holdvotur maður inn á miðborgar-
stöð lögreglunnar. Sá hafði stokk-
ið í höfnina, en þótti sjórinn kald-
ur og ákvað því að fara í land
aftur. Honum tókst að komast upp
úr af eigin rammleik, en ástæða
þótti til að flytja hann á slysá-
deildina. í því er verið var að
leggja af stað þangað sáu lögregl-
umennirnir hvar ung stúlka tók á
rás út úr símaklefanum við
Tryggvagötu í átt að höfninni og
virtist liggja mikið á. Skipti eng-
um togum, stúlkan hijóp viðstöðu-
laust fram af bakkanum og hafn-
aði í sjónum. Lögreglumennirnir
brugðut skjótt við, fískuðu stúlk-
una upp úr sjónum og notuðu síð-
an ferðina til þess að aka henni
á slysadeildina því talsvert var af
henni dregið.
Á hvítasunnudag þurfti lög-
reglan að loka 29 sölubúðum,
myndbandaleigum og fleiri þess
háttar stöðum. í 4. gr. samþykkt-
ar um afgreiðslutíma verslana í
Reykjavík frá 15. nóvember 1990
segir m.a. að á hvítasunnudag
skuli öllum sölustöðum lokað allan
daginn. Þessu áttu margir versl-
unareigendur erfitt með að una.
Að kvöldi hvítasunnudags
mældu lögregluþjónar í þjóðvega-
eftirlitsbíi lögreglunnar bifhjól á
160 km/klst. hraða á Vestur-
landsvegi á Hvalfjarðarströnd.
Heldur dró í sundur með lögreglu-
bílnum og bifhjólinu. Akstur bif-
hjólsins var stöðvaður af lögreglu-
mönnum í öðrum þjóðvegaeftir-
litsbíl við Brynjudalsá. Ökumaður-
inn var síðan fluttur á lögreglu-
stöðina þar sem hann var sviptur
ökuréttindum. Síðar um kvöldið
var bíll mældur á 135 km hraða
á Suðurlandsvegi nálægt borg-
inni. Sá ökumaður var einnig
sviptur ökuréttindum. Alls voru
63 ökumenn kærðir fyrir of hrað-
an akstur í eða við borgina um
helgina. Fáeinum ökumönnum lá
mikið á að komast út úr borginni
á föstudagskvöld. T.d. var einn
þeirra stöðvaður á 140 km hraða
á Vesturlandsvegi í Svínahrauni
auk annarra á svipuðum hraða
nálægt borgarmörkunum. Á
sunnudagskvöld og um miðjan
dag á mánudag lá þeim sörnu eða
öðrum mikið á að komast til borg-
arinnar aftur. Þá mældust þeir á
allt að 146 km hraða á Vestur-
landsvegi, en hraðinn var minni á
Suðurlandsvegi, enda þéttari um-
ferð þar á þeim tíma.
Alls var tilkynnt um sex líkams-
meiðingar til lögreglu um helgina.
Aðfaranótt sunnudags voru tveir
ungir menn handteknir í miðborg-
inni eftir að hafa veist að þeim
þriðja. Fyrirmyndina að þessari
hegðun sinni sögðu þeir vera sjón-
varpsmynd á annarri sjónvarps-
stöðinni kvöldið áður.
Skömmu eftir miðnætti á
mánudag veitti vegfarandi at-
hygli tveimur drengjum þar sem
þeir voru að stela ljóskösturum
af bílum á bílasölu við Borgartún.
Drengirnir fóru á brott á bíl en
vegfarandinn náði niður bílnúmer-
inu. Hann hafði samband við lög-
regluna, sem stöðvaði drengina á
bílnum skömmu síðar. Þeir voru
færðir á lögreglustöðina þar sem
þeir viðurkenndu þjófnaðinn.
Tilkynnt var um 19 innbrot og
16 þjófnaði um hátíðina. M.a. var
brotist inn í fimm bíla á bílasölum
um hátíðina. Óvenjumikið hefur
verið um innbrot og þjófnaði und-
anfarnar vikur. Allmargir hafa
verið handteknir vegna þessara
mála, en svo virðist sem gera
þurfi skilvirkara ferlið afbrot, lög-
regla, réttarkerfi, dómskerfi og
viðurlagakefí, þ.e. að afbrota-
mennirnir verði í flestum tilvikum
gefin kostur á að taka út refsingu
sína í beinu framhaldi af afbroti.