Morgunblaðið - 10.06.1992, Síða 39

Morgunblaðið - 10.06.1992, Síða 39
2G0I IwOi. .0r HUOAauxiycmvi QigAjaMUOflOM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992 39. Aukín afköst — lægri laun eftir Sigurð T. Sigurðsson Blekkingar Fyrir tveimur árum neitaði ÍSAL, einir atvinnurekenda á ís- landi, svokölluðum þjóðarsáttar- samningum og tilkynnti að um enga samninga yrði að ræða nema verkamönnum í kerskálum fækkaði um 22. Fækkunina sögðu fulltrúar ÍSAL vera gerða vegna hagræðing- ar af nýjum tæknibúnaði í kerskál- um og buðu starfsmönnum ein- greiðslur vegna fækkunarinnar og þeirrar hagræðingar sem ÍSAL hefði af henni. Eingreiðslumar námu um 3% af árslaunum verka- manns. Einnig var í yfirlýsingum frá fyrirtækinu gert ráð fyrir ha- græðingarbónus, ef fækkunin næði fram að ganga. Þessar yfirlýsingar ÍSAL urðu til þess að samkomulag náðist og nýr kjarasamningur tók gildi. Hins vegar hefði ekkert samkomulag náðst við verkamenn, hefðu þeir vitað um þau óheilindi hjá ÍSAL að segja einungis frá þeim mann- afækkunum sem talið var að verka- menn samþykktu, en geta þess ekki að fyrirtækið ætlaði sér að fækka verkafólki langt umfram það sem tilkynn't var. Með þessari óþokkalegu framkomu og blekk- ingum um hagræðingarbónus tókst ÍSAL/VSÍ að auka vinnuálag á verkamenn í framleiðsludeildum álversins það mikið að óeðlilegt verður að teljast. Afsal réttinda í ár leikur ÍSAL sama Ieikinn aftur og neitar að undirrita kjara- samning nema verkalýðsfélögin gangi að eftirfarandi skilyrðum: að starfsmenn afsali sér kaffi- tímum, að ÍSAL megi ákveða einhliða og án íhlutunarréttar viðkom- andi starfsmanna eða verkalýðs- félags hvort og hvenær unnin er reglubundin dagvinna eða vaktavinna, að ÍSAL verði heimilt að ráða verktaka í hvaða störf sem er í álverinu á hvaða launum sem er, án tillits til kjarasamnings fyrir- tækisins við verkalýðsfélögin. Eins og í samningunum 1990 hafnar ÍSAL nú öllum hugmyndum verkalýðsfélaganna og ríkissátta- semjara um lausn kjaradeilunnar og ætlar með hótunum að loka verksmiðjunni að knýja fram leyfi til að láta verktaka undirbjóða vinnuna í álverinu og sniðganga m--------—■—---------—— PCILÍMOGFÚGUEFNI ::í iiftSn £ Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 þannig samning, sem verkalýðsfé- lögin hafa gert við fyrirtækið um kaup og kjör. Kjaraskerðing Svissneski auðhringurinn sem á ÍSAL og samtök íslenskra atvinnu- rekenda beita nú öllum tiltækum ráðum til að skerða kaup og kjör starfsfólks í álverinu eins mikið og frekast er unnt og æ oftar heyrist nú sú hótun að þeir sem mögli og taki ekki á sig stöðugt aukna vinnu séu óæskilegir og megi búast við áminningu eða uppsögn. íslenska álfélagið metur einskis við verkamenn þá miklu hagræð- ingu, sem nú þegar er búið að ná í fyrirtækinu og ætlar auðsjáanlega að launa þeim aukið vinnuframlag með sífellt meiri kjaraskerðingu. Það segir sína sögu um ástandið að á sama tíma og veruleg hagræð- ing á sér stað í fyrirtækinu hafa laun starfsmanna rýrnað um 5% umfram önnur laun í landinu. Öryggismál ekki undanskilin Ekkert bendir til þess að ÍSAL muni láta hér staðar numið í kjara- skerðingum, heldur halda áfram þeirri ætlun sinni að gera vinnu við álframleiðslu í Straumsvík að láglaunastörfum. Spymi ekki bæði stjórnvöld og verkalýðshreyfingin við fótum gegn þessari erlendu ágengni í Straumsvík og setji ÍSAL stólinn fyrir dymar, mun varla mögulegt að komast hjá hörðum átökum, sem ekki sér fyrir endann á. Gauragangurinn og offorsið í þessú erlenda fyrirtæki er svo mik- ið að jafnvel öryggismálin fá ekki að vera í friði. ÍSAL reynir nú ein- hliða að afnema áratuga gamalt samkomulag um skiptivinnu á bryggjukrönum við lestun og losun skipa, þó svo að slíkt hljóti að kalla á aukna slysahættu. Rógburður Hinn þýski forstjóri ÍSAL hefur ítrekað gengið freklega á rétt starfsmanna sinna. Hann hefur ásakað þá í víðlesnasta blaði lands- ins fyrir ijárkúgun og hann notaði eigið skipulagsleysi í stjórnun fyrir- tækisins til þess að rægja þá og telja þjóðinni trú um að hópur verk- amanna í álverinu ynni einungis 2 til 3 klukkutíma á 8 stunda vakt. ★ GBC-Pappírstætarar Þýsk framleiðsla Ýmsar stærðlr og gerðlr fáanlegar OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 -105 Reykjavik Símar 624631 / 624699 Til þess að upphefja sjálfan sig hefur hann gert sig sekan um að skýra rangt frá samningsákvæðum og oftar en einu sinni brotið gild- andi kjarasamning og haft að engu mótmæli verkalýðsins þar um. Hann virðir að engu samstarf við verkamenn eða þau verkalýðs- félög sem þeir eru í og hann er búinn að koma málum þannig fyrir að öll eðlileg samskipti milli aðila hafa lagst af. Gagnkvæmt traust, sem áður var til staðar, er ekki lengur fyrir hendi. ÍSAL gengur of langt Með óbilgimi sinni og heimtu- frekju hefur ÍSAL gengið of langt. Fyrirtækinu nægir ekki að sitja við sama borð og annar atvinnurekstur i landinu, heldur heimtar það sér- stök kjör til handa sér, sem myndu veita því verulega meiri réttindi umfram önnur fyrirtæki, til viðbót- ar þeim miklu fríðindum sem fyrir- tækið hefur nú þegar, s.s. tollfijáls- an innflutning tækja og búnaðar, lágt orkuverð og sérstakar skatta- ívilnanir. Ein af aðalkröfum ÍSAL er óheft fijálsræði til útboða á verkefnum og störfum í fyrirtækinu. Þegar ÍSAL hóf starfsemi sína í Straums- vík fyrir meira en 20 árum þótti sjálfsagt að takmarka verulega alla verktöku hjá fyrirtækinu. Flestir íslendingar voru sammála um það þá og veru væntanlega á sömu skoðun nú, að laun hjá erlendu stór- Sigurður T. Sigurðsson „Fyrirtækinu nægir ekki að sitja við sama borð og annar atvinnu- rekstur í landinu, held- ur heimtar það sérstök kjör til handa sér.“ iðjufyrirtæki eins og ÍSAL eigi að vera þókkaleg og koma verði í veg fyrir að hægt sé að skerða þau með undirboðum verktaka. Veru- leikinn hvað þetta snertir hefur ekkert breyst og frekari starfsemi verktaka en nú þegar á sér stað hjá ÍSAL myndi aðeins leiða til launalækkunar í margs konar störfum hjá fyrirtækinu. Verka- mannafélagið Hlif hefur eitt sér og einnig í samstarfi við önnur verkalýðsfélög reynt að ná samn^ ingum við ÍSAL en án árangurs. Fyrirtækið virðist ekki geta sætt sig við íslenskar aðstæður. Það hafnaði miðlunartillögu ríkissátta- semjara um lausn deilunnar þrátt fyrir að Vinnuveitendasamband ís- lands mælti eindregið með sams konar tillögu á almennum markaði. Yfirdrottnunarvald Hlíf mun aldrei una því að starfs- fólki ÍSAL sé gert lægra undir höfði en öðrum launþegum. Þegar álverið hóf starfsemi sína gengustr eigendur þess inn á ákveðna skil- mála, vilji þeir breyta þeim verður um það að semja. Haldi þeir hins vegar áfram uppteknum hætti, að reyna með hótunum að fá vilja sín- um framgengt, mun það óhjá- kvæmilega leiða til átaka. Verkamannaféiagið Hlíf óskar eindregið eftir að ná samkomulagi um öll ágreiningsmál við ÍSAL, þannig að báðir hafi hag af, en hafnar í eitt skipti fyrir öll því yfir- drottnunarvaldi, sem forstjórinn er að reyna að innleiða í samskiptum sínum við félagið og meðlimi þess. Höfundur er formaður Verkamannafélagsins Hlífar. Tilkynning um útgáfu markaðsverðbréfa Lind hf. Útboð skuldabréfa í júní 1992 1. flokkur 1992, A-F Kr. 150.000.000,- Kr. eitt hundrað og fimmtíu milijónir 00/100 Útgáfudagur: 1. júní 1992. Gjalddagar: 20.07.1995, 20.11.1995, 20.02.1996, 20.05.1996, 20.08.1996 og 20.01.1997. Sölutímabil: 9. júní 1992 - 9. september 1992. Grunnvfsitala: 3210. Einingar bréfa: Kr. 200.000.- Verötrygging og ávöxtun: Ofangreind bréf eru verðtryggð miðað við hækkun lánskjaravísitölu. Ársávöxtun, umfram verötryggingu, er 9,00% á fyrsta söludegi. Söiuaöilar: Landsbréf hf., Suðurlandsbraut 24, Reykjavík og Landsbanki íslands. Skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum. Skráning: Sótt hefur verið um skráningu skuldabréfanna á Verðbréfaþingi (slands. Landsbréf hf. eru viöskiptavaki skuldabréfa Lindar hf. á Verðbréfaþingi íslands. Umsjón meö útgáfu: Landsbréf hf. LANDSBRÉF H.F. Landsbankinn stendur rneð okkur SuðurJandsbraut 24, 108 fíeykjavík, sími 91-679200, fax 91-678596. Laggilt verdbréfafyrirtæki. Aðili ad Verðbréfaþingi íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.